Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1994, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994
Skák
Smyslov gaf
skákkonum
engin grid
Vassilí Smyslov, fyrrverandi heimsmeistari, lætur engan bilbug á sér finna
þótt orðinn sé 73 ára gamall.
Keppni öldunga viö úrvalsliö
kvenna er aö verða árviss viöburöur
og vekur ævinlega mikla athygli.
Hollendingurinn Joop van Oosterom
á heiöurinn af þessmn atburði og
hefur honum tekist að draga marga
þekkta garpa aö taflborðinu eftir
langt hlé. Skemmst er aö minnast
þess að Friörik Ólafsson tók þátt í
keppninni á síðasta ári en hún fór
þá fram í Vínarborg.
Nú var teflt í Monaco. Sem fyrr var
hvor sveit skipuð sex mönnum sem
tefldu tvær skákir gegn hverjum hðs-
manna andstæðinganna. Leikar fóru
svo að kvenfólkið endurtók sigurinn
frá árinu áður en mjótt var á mun-
um. Þær hlutu 37 vinninga gegn 35
vinningum öldunga. Sveit þeirra var
skipuð kínverska heimsmeistaran-
xun Xie Jun (7,5 vinningar), Judit
(7.5) og Zsuzsu Polgar (7), Ioseliani
(6.5) , Tsíbúrdanidze (5,5) og Arak-
hamíu (3) en þrjár síðastnefndar eru
allar frá Georgíu.
Karlar stilltu upp frægum stjörn-
um. Aldursforsetinn og fyrrverandi
heimsmeistari, Vassilí Smyslov, sló
öllum við og hlaut 8 vinninga. Hann
er orðinn 73 ára gamall en það er
eins og hann láti engan bilbug á sér
finna þótt árin færist yfir og reikni-
getan verði þokukenndari. Smyslov
hefur ætið látið ofumæma tilflnn-
ingu fyrir stöðunni stýra leikjum sín-
um og ekki brást hún honum nú
fremur en endranær.
Umsjón
Jón L. Árnason
Vlastimil Hort náði næstbestum
árangri karla (7,5), Borís Spasskí,
fyrrverandi heimsmeistari, kom
næstur (6), síðan Lajos Portisch (5,5),
Borislav Ivkov (4,5) en Bent Larsen
varð að sætta sig við neðsta sætið
(3,5) en hann varð efstur karla í fyrra.
Ungverski stórmeistarinn Lajos
Portisch hefur teflt margar fallegar
skákir um ævina en alveg frá unga
aldri hafa óvæntar leikfléttur verið
hans Akkílesarhæll. í Monaco tókst
kvenfólkinu nokkrum sinnum að
koma á hann höggi. í tvígang bhnd-
aðist Portisch fyrir sígildum steflum
- eða var það kvenleg fegm-ð? Skoð-
um fyrst Ioseliani - Portisch úr 1.
umferð. Ioseíiani hafði hvítt og átti
leik:
18. Bxh7+! Kh8
Ef 18. - Kxh7 19. Dh5+ Kg7 20.
Dg4 + Kh7 21. Hf3 og svartur verður,
eins og í skákinni, aö gefa drottning-
una til að komast hjá máti.
19. Hf3! Dxf3
Þvingað en nú er eftirleikurinn
auðveldur.
20. gxf3 Kxh7 21. Df2 Hg8 22. Dh4+
Kg7 23. Hgl+ Kf8 24. Hxg8+ Kxg8 25.
Dxf6 Bxf3+ 26. Kgl Bd5 27. h4 Hf8 28.
Kf2 c4 29. h5
- Og Portisch gafst upp.
Og í 3. umferð kom þessi staða upp
í skákinni Xie Jun - Portisch:
8 I
7 6 A 5 A A A A A
4 A A
3 A s
2 A 1 W 9 & & &
ABCDEFGH
25. Bxh7+!Rxh7 26. Dh5
Tvöfalt uppnám. Portisch hefur
e.t.v. stólað á „björgunarleiðina" 26.
- Bxg2+ 27. Kxg2 Dc6+ 28. Kgl Rf8
en þá er 29. BxfB! (29. - gxfB 30. Hg3+
og mátar) mjög sterkt.
26. - Kf8 27. Dxh7 Df7 28. Ba3 e5 29.
Dd3 exf4!? 30. Hh8+
Ef 30. Dxd6+ Kg8 og færi svarts
eru hættuleg. T.d. 31. Ddl Dg6 32.
HÍ3 Dc2! o.s.frv.
30. - Ke7 31. Re4 Bxe4 32. Dxe4+ Kd7
33. Db7+ Bc7 34. Hxe8 Dxe8 35. Bxc5
De2 36. Bb6 Ddl+ 37. Bgl a5 38. c5
Dd2? 39. a3 g5 40. b4 axb4 41. axb4
- Og svartur gaf.
Nýr stigalisti FIDE
AnatoU Karpov hefur hækkað um
fjörutíu Elostig á nýjum Usta FIDE
sem gekk í gUdi um mánaðamótin -
mest munar um Linares-mótið fræga
í febrúar. Karpov trónir efst á Ustan-
um en nýtur góðs af því aö nöfn
Kasparovs og Shorts er þar hvergi
að finna eftir að þeir gáfu Alþjóða-
skáksambandinu langt nef. Karpov
er efstur með 2780 stig, Sírov (Lett-
landi) kemur óvænt næstur með
2740, Kramnik (Rússlandi) hefur
2725, Anand (Indlandi) hefur 2720,
Salov (Rússlandi) 2710, Kamsky
(Bandaríkjunum) og ívantsjúk
(Úkraínu) 2695, Gelfand (Hvíta Rúss-
lapdi) 2680, Bareev (Rússlandi) 2675
og Júsupov (Þýskalandi) er í 10. sæti
með 2665 stig.
Meðal efstu ungmenna - tvitugra
og yngri - eru nöfn sem láta kunnug-
lega í eyrum íslendinga. Efstur er
Kramnik (2725), þá Kamsky (2695),
síðan Topalov (Búlgaríu, 2645) en í
4. sæti er Ungveijinn Zoltan Almasi,
sem tefldi á alþjóðlega Kópavogsmót-
inu (2620), og í 5. sæti Rússinn Vadim
Zvjagínsev (2585) sem sigraði ásamt
Hannesi á opna Reykjavíkurskák-
mótinu.
Judit Polgar hefur flest stig
kvenna, 2630, og er langefst. Systir
hennar, Zsuzsa, kemur næst með
2550 og sænska skákdrottningin Pia
Cramling er í 3. sæti með 2525 stig.
Jóhann Hjartarson er efstur Is-
lendinga og í 72. - 75. sæti á heimslist-
anum, með 2585 stig. Hannes Hlífar
Stefánsson hefur nú skotist upp í 2.
sæti eftir góða sigra á alþjóðamótun-
um í Reykjavík og Kópavogi, hefur
2560 stig. Margeir Pétursson hefur
2540 stig, Jón L. Ámason 2525, Helgi
Ólafsson 2520, Karl Þorsteins 2510,
Friðrik Ólafsson 2465, Þröstur Þór-
hallsson 2460 og Helgi Áss Grétars-
son 2450 en hann hefur hækkað um
65 stig frá áramótum. Alls hafa 57
íslendingar alþjóðleg stig og hefur
þeim fjölgað um 15 frá síðasta lista.
Áskorendaeinvígin
Síðar í mánuðinum hefst 2. lota
áskorendaeinvigja FIDE á Indlandi.
Þar tefla einvígi Timman og Salov,
Anand og Kamsky og Kramnik og
Gelfand. Anatolí Karpov bætist síðan
í hóp sigurvegaranna þriggja og þeir
tefla „flórmenning" um heimsmeist-
aratitiÚnn.
Þá hefur verið dregið í undanúrslit-
um PCA-keppninnar. Short mætir
Kamsky og Ánand teflir við Adams.
Þessi einvígi verða háö í Barcelona
á Spáni í september - teflt inn réttinn
til þess að skora á PCA-meistarann,
Garrí Kasparov.
Vertu með
- draumurinn gæti orðið að veruleika