Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1994, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994
13
Frá sama tíma verður GPS gervihnattakerfið aðalstaðsetningarkerfi
við ísland.
Samtímis því að núverandi Loran-C kerfi verður lagt niður hefst
rekstur nýs lorankerfis, svo kallaðs NELS kerfis. Hætt verður að
senda út loranmerki frá stöðvunum á Gufuskálum og á Grænlandi.
Búast má við að þetta nýja keifi nýtist ekki við vestanvert landið.
Athugið að breyta þarf Loran-C tækjum svo að hægt sé að nota þau
við NELS kerfið.
Á Krít lifir fólk lengur:
Ólífuolía og
áhyggjulaust líf
Hinn t. janúan 1995 venfiur núverandi
Loran-C stafisetningarkerfi fagt niður
- gæti verið rétta lyfið
Á eyjunni Krít eru íbúar ótrúlega
heilbrigöir og þeir verða háaldraðir.
Á eyjunni þekkjast ekki margir
þeirra sjúkdóma sem mjög algengir
eru á Vesturlöndum. Sænskur blaða-
maður, Ame Reberg, heimsótti eyj-
una Krít og skrifaði grein um þessa
undraveröld í sænskt tímarit. Hann
segist aldrei hafa mætt jafnmikilli
lífsgleði og á þessari eyju. „Lífsgleðin
var jafnsterk og hin rauða Grikk-
landssól. Þama dansa imgir jafnt
sem gamlir saman.“
Sagt er að Krítarbúar séu heii-
brigðari en aðrir. Það hefur rann-
sóknardeild við háskólann í Lundi
komist að raim um en hún hefur
verið með könnun á heilsu íbúanna
á Krít í samvinnuverkefni við grísk-
an háskóla. Karlmenn á aldrinum
15-79 ára hafa verið sérstaklega
rannsakaðir og hefur komið í ljós að
þeir eru frískari en gengur og gerist.
Þeir em með óvenju lágan blóðþrýst-
ing, lágt kólesterolhlutfall, hjarta og
æðasjúkdómar em nær óþekktir og
krabbamein er sjaldgæft. „Og samt
reykja þeir og drekka ótæpilega."
Áfengi og tóbak er náttúrlega ekki
hollt, það er löngu vitað. En hvað er
það þá sem gerir það að verkum að
Krítveijar em svona heilbrigðir?
Hugsunin skiptir máli
Líklegast á hið áhyggjulausa líf á
Krít stóran þátt í þessu. Það hefur
nefnilega mikið að segja fyrir heilsu
okkar hvemig við hugsum. Það sem
kemur innan frá skiptir máli.
í landi eins og Svíþjóð aukast
hjartasjúkdómar stöðugt meðal
yngri karlmanna og em heilbrigðis-
yfirvöld þar farin að líta í átt til Krít-
ar varðandi gott heilbrigðisástand
fólksins þar.
Vináttubönd em sterk á Krít og
fólk heldur mikið saman. Fjölskyld-
ur og vinir tengjast órjúfanlegum
böndum og halda gleðskap upp úr
þurru á veitingahúsum eða í görðum
sínum og skemmta sér með eða án
víns. Sjaldan sést þó bara vatn í glös-
um.
Annað, sem er áberandi í lífi Krít-
arbúa, er gríska ólífuolían. Hún er
fljótandi í öllum grískum mat. í salat-
inu, á kjötinu og í sósunum. Ólífuol-
ían er einnig notuð í hárið, sem húð-
olía og í fegmnarbaðið. Eyjan Krít
er undirlögð af ólífuolíu.
Olían punktur-
inn yfir i-ið
Olían skiptir öllu máli í borðhald-
inu og setur punktinn yfir i-iö i mat-
argerðarlistinni. Það er einmitt borð-
haldið sem setur svo sterkan svip á
fjölskyldu- og vináttuþáttinn því þeg-
ar fólk safnast í kringum matarborð-
ið eflast þessi tengsl. Þá er mikið lagt
upp úr skímum, brúðkaupum og
jarðarfórum. Og mennirnir gráta
jafnóþvingað og þeir hlæja.
Blaðamaðurinn segist hafa tekið
olífuolíuna með sér heim og hún sé
ekki bara notuð í matargerðinni því
hann setur dropa í lófann og nuddar
henni í húð og hársvörð. Olían er
eins og næring í hárið og á líkamann
og því setur hann hana einnig út í
baðið. „Loks fæ ég mér einn hnífsodd
af olíu á tunguna til að efla and-
ann,“ segir blaðamaðurinn. „Síðan
bjóðum við nágrönnunum í heim-
sókn í kvöld og tökum upp grískt
léttvín," segi ég við frúna sem telur
það óheppilegt í miðri viku. „Jú,
skemmtilegt kvöld lengir lífið, út-
skýri ég þá fyrir henni," segir hann
ennfremur í grein sinni. „Og í garð-
veislunni um kvöldið njótum við
þess að vera til. Enginn okkar deyr
úr hjartaáfalli, ekki heldur bömin
sem njóta nærvem foreldra sinna.“
Á hinni fátæku eyju Krít þekkir
engrnn leikskóla eða elliheimili.
Kannski er kominn tími fyrir vel-
ferðarþjóðfélagið að srúa við.
A eyjunni Krít eru hjarta- og æðasjúkdómar nær óþekktir.
TILKYNNIN6 TIL
r iNOTENDA
Samkvæmt rannsóknum er eyjan Krít mikill unaðsstaður þrátt fyrir fátækt
því þangað komast ekki þeir streitusjúkdómar sem þekktastir eru á Vestur-
löndum.
Til að bæta þjónustu við notendur, sem þurfa meiri nákvæmni en
GPS kerfið gefur, hefur samgönguráðuneytið staðið fyrir
uppbyggingu á leiðréttingarkerfi sem gefur notendum 5 til 10 metra
staðsetningamákvæmni á hafsvæðinu umhverfis ísland.
^' Laugavegi 178
Kvöldverðartilboð
vikuna 8/7 - 15/7
Vita- og hafnarmálastofnun sér um rekstur leiðréttingarstöðva og
eru fimm af sex þegar komnar í notkun og áætlað er að sú síðasta
verði tilbúin fyrir áramót.
Athygli notenda er vakin á því að mikill munur getur verið á
staðsetningum eftir því í hvaða staðsetningarkerfi þær em gerðar.
Það er því ekki hægt að finna stað mældan í Loran-C kerfinu með
GPS (eða NELS tækjum), Loranpunktasöfn verða því ónothæf.
Unnið er að því að breyta Loran tölum í GPS tölur.
Frönsk lauksúpa
*
Döölufyllt grísasneið
með grænmeti og apríkósusósu
*
Ostakaka
með völdum berjum
j|c
Kr. 1.950
Borðapantanir í síma 88 99 67
Nánari upplýsingar veitir Vita- og hafnamálastofnun,
sími 91-600000.
SAMGÖNGURÁÐUNEYTI
RÁÐUNEYTI FLUTNINGA, FJARSKIPTA OG FERÐAMÁLA
HlomOGUR