Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1994, Side 18
18
LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994
Dagur í lífl Láru Margrétar Ragnarsdóttur alþingismanns:
Á kafi í garðvinnu
með heimilisfólkinu
Lára Margrét Ragnarsdóttir alþingismaður að snyrta í garðinum hjá sér. DV-mynd Sveinn
Þegar ég lagði höfuðið á koddann
í gærkvöldi hafði ég aðeins ákveðið
eitt: Á morgun, þriðjudag, ætlaði ég
að taka mér frí. Undanfarnir dagar
hafa verið svo annasamir, svo nú
gæti ég leyft mér aö gera nákvæm-
lega ekkert! En hjá fólki eins og mér
er það eitthvert það óvanalegasta
sem gerist að hafa dagskrá morgun-
dagsins auða. Það kom auðvitað á
daginn að slíkt gengur heldur ekki
upp.
Eg vaknaði í algjörri kyrrð, glugga-
tjöldin voru dregin frá, eins og oft
þessar sumamætur, úti var bjart og
enn hlýtt, og svo byrjaði veröldin að
vakna, fuglamir tóku til við morgun-
sönginn. Ég læddist fram úr, inn í
stofu og opnaði þar út. Mér var
ómögulegt aö sofna við þessa dýrð.
Hugurinn reikaði til bamsáranna í
sumarbústaðnum með ömmu og afa
og morgunþagnarinnnar þar. Loks
tók ég mér bók í hönd og þegar ég
fann til syfju aftur var tími til fyrir
hina fjölskyldumeðlimina að vakna
til vinnu.
Síminn hóf
upp raustsína
Ég fann fyrir frelsinu þegar ég var
orðin ein eftir, nú gæti ég gert það
sem mér sýndist, t.d. að leggja mig
aftur, hvað ég og gerði. Varla var
höfuöið aftur á koddann komið er
síminn hóf upp raust sína og þar með
vissi ég að friðurinn var úti. Það
vom fyrirspumir vegna íslensk-
ameríska félagsins og væntanlegra
póhtískra funda og ferða, hringt var
frá viðgerðarþjónustu vegna ryksug-
unnar, góð vinkona með fréttir af sér
og sínum og loks frétt um fráfall ald-
ins vinar, mikils öðlingsmanns. Sím-
inn kom í góðar þarfir þessar tæpar
tvær stundir.
Þá mundi ég eftir stofublómunum,
sem staðið höfðu án umönnunar allt-
of lengi enda farin að hneigja höfuð-
ið. Vatnskannan og áburðurinn var
tekinn fram og reynt að sefa sam-
viskuna.
í göngutúr um
Breiðholtið og
Elliðaárdalinn
Undir hádegi hringdi nafna mín,
góð vinkona og granni og minnti mig
á fogur fyrirheit sumarsins. Við vor-
um síðan komnar í göngutúrinn okk-
ar rómaða um Breiðholtið og Elliða-
árdalinn í dýrlegu veðri og hita,
sveittar og fullar af ákefð um aö
ganga hringinn á enda og gott betur-
ekki þýddi annað, bíða mætti lengi
eftir annarri eins hhðu. Eftir tæpa
tvo tíma kvöddumst viö, sælar og
sáttar. Þegar maður hugsar um þau
tækifæri sem Reykjavík býður til
útivistar nánast rétt við húshomið,
hvar sem búið er í bænum, er ekki
hægt annað en að dást að þessari
náttúruparadís.
Eftir nokkra stund við blaða- og
tímaritalestur mundi ég eftir að ég
hafði lofað góðum stuðningsmanni
mínum að hitta hann í dag rabba við
hann um hans hjartans mál og enn
fremur að hinn síhressi sjálfstæðis-
maður Guðjón Arnar Kristjánsson
(eða Addi Kitta Gauj) átti stóraf-
mæli, og af því mátti fyrir engan mun
missa. Hvorir tveggja fundimir tók-
ust með ágætum og var afmæhð
haldið í einstöku bhðviðri í minni
gömlu elskuðu sveit, Mosfehssveit-
inni (með sumarbústaðsminningun-
um), við dýrlegar krásir í stíl við sjó-
manninn.
Árleg garðveisla
Nú var klukkan langt gengin í níu
og ekki grunlaust að heimilismenn
mínir hefðu heldur viljað mig heima
við kötkatlana en í hanastélsveislu,
þar sem þeir vom á kafi í garðvinnu
með öðrum nágrönnum okkar. Við
ætlum nefninlega að ljúka meiri
háttar átaki í þesari viku og halda
síöan árlega garðveislu um helgina,
veislu sem hvorki aldnir né ungir
vilja missa af!
Kartöflumar voru settar í pottinn,
farsið á pönmrna og síðan var öhu
sporðrennt, því úti beið hlý, björt
sumamóttin og garðurinn og engin
leið að láta tækifæri til að njóta þess-
arar einstöku bhöu renna úr hönd-
um sér. Maður lætur þá bara svefn-
inn og aðgerðarleysið bíða rigningar
og skammdegis!
Finnur þú funm breytingar? 265
Konurnar okkar verða svei mér ánægðar þegar við komum loksins Nafn:................
heim með eitthvað!
Heimilisfang:
Myndimar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þeg:ar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum hðnum
birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun: Rummikub-spil-
ið, eitt vinsælasta fiölskyldu-
spil í heimi. Það er þroskandi,
skerpir athyghsgáfu og þjálfar
hugareikning.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur. Bækumar sem eru í
verðlaun heita: Mömmudrengur,
Þrumuhjarta, Blóðrúnir, Hetja og Ban-
væn þrá. Bækumar em gefiiar út af
Frjálsri fiölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 265
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir tvö hundr-
uð sextugustu og þriðju get-
raun reyndust vera:
1. Hafsteinn Sigurðsson,
Vesturbergi 111,
111 Reykjavík.
2. Hörður Sigurðsson,
Klapparstíg 1,
101 Reykjavík.
Vinningarnir verða sendir
heim.