Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1994, Síða 19
LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994
19
Þríburamót í Kjósinni:
Það gerir enginn ráð
fyrir að eignast þríbura
- segir Sigurrós Kristinsdóttir í félagi þríburaforeldra
Sigurrós ásamt eiginmanni sínum, Ragnari Borgþórssyni, og þríburun-
um Kamillu Rut, Andra Má og Aroni Pétri. DV-mynd Sveinn
„Við stofnuðum þetta félag til
þess að berjast fyrir okkar málum,
eins og t.d. lengingu á fæðingaror-
lofi og heimilishjálp, en aðal-
markmið félagsins er stuðningur
við aðra foreldra sem eru að eign-
ast þríbura því það er alveg heil-
mikið að eignast þrjú börn í einu.
Fólk á fullt í fangi með eitt barn
hvað þá þrjú. Það gerir auðvitað
enginn ráð fyrir því,“ segir Sigur-
rós Kristinsdóttir, ein af stofnend-
um félags þríburaforeldra sem
stofnað var á síðasta ári en félagiö
hélt sitt annað stórmót í Kjósinni
um síðustu helgi.
„Við vorum 6-7 sem stofnuðum
félagið en það voru aðallega konur
úr Kópavoginum, Reykjavík og ein
frá Selfossi. Um leið og við fréttum
af einhverjum konum sem ganga
með þríbura þá fórum við í heim-
sókn og spjöllum við þær. Við ger-
um einnig mikið að því að láta föt
ganga á milli. Þríburar fæðast oft
fremur litlir og oft á tíðum mjög
mikið fyrir tímann þannig að við
látum svoleiðis föt ganga á milli.
Við endurnýjum þannig fotin og
hjálpum hver annarri. Ég fékk t.d.
þrenn stígvél og regnfót um daginn
og það munar strax alveg rosalega
um það,“ segir Sigurrós.
Mikil þörf á stuðningi
Fyrsta mót félagsins var haldið á
Selfossi í fyrrasumar og svo hittist
hópurinn aftur í sumarbústað í
Eilífsdal í Kjós um sl. helgi.
„Það hefur aldrei verið eins mik-
il þátttaka og var um sl. helgi og
þá sérstaklega utan af landi. Við
vorum t.d. að sjá þríbura frá Djúpa-
vogi í fyrsta sinn þó svo að við
höfum aíltaf haft símasamband við
foreldrana. Það voru alls níu þrí-
burar á mótinu og við vorum í
kringum 54 allt í allt að meðtöldum
systkinum þríburanna. Þetta var
mjög fint og við grilluðum, fórum
í leiki, skiptumst á ráðum og leyfð-
um krökkunum að hittast."
Sigurrós segir að það séu alls
þrettán þríburar í félaginu, þeir
elstu eru 11 ára en þeir yngstu um
tveggja mánaða. Hún sagði að um
helmingur þessara barna séu
glasabörn eða börn foreldra sem
hafa fengið hjálp með lyfjagjöf.
„Þær konur sem eiga elstu þrí-
burana segjast hafa farið á mis við
mikið með því að hafa ekki haft
svona félag til að leita til frá upp-
hafi. Konur sem eignast þríbura
þurfa á miklum stuðningi að halda
vegna þess að það breytist svo
margt við það að eignast þríbura.
Eitt af því sem við göngum t.d. í
gegnum eru vandamál í sambandi
við vinnu. Við erum svona annars
flokks manneskjur þegar við ætl-
um að fara að vinna vegna þess að
fólk segir alltaf: „Og hvað ætlarðu
að gera þegar börnin verða veik.“
Ekki gat
ég skilað þeim
Sigurrós á sjálf þríbura, tvo
stráka og eina stúlku, sem eru um
eins og hálfs árs gamlir og auk þess
á hún tvær stúlkur, eina tvítuga
og aðra tíu ára.
„Ég hafði góðan tíma til að byggja
mig upp þegar ég gekk með mína
þríbura því ég vissi strax um þetta
þegar ég var komin tvo mánuði á
leið. Þetta eru nefnilega glasabörn
og þá er alltaf farið svo fljótt í són-
ar. En mér brá mikið og ég sagði
ekki mikið fyrstu dagana. Fólk
spurði mig hvað ég ætlaði að gera
en ég gat náttúrlega ekkert gert.
Ekki gat ég skilað þeim. Það varð
auðvitað mjög mikil röskun á lífi
okkar. Við bjuggum uppi á þriðju
hæð og þurftum að byrja á því að
fá okkur aðra íbúð og svo þurftum
við að fá okkur stærri bíl því við
vorum allt í einu orðin sjö á heimil-
inu.“
Lengra fæðingaror-
lof og heimilishjálp
Sigurrós sagði að það væri komið
alveg eins fram við þríburamæður
eins og konur sem eignast eitt barn
sem er auðvitað allt annað mál.
„í því sambandi mætti t.d. nefna
fæðingarorlofið sem ætti auðvitað
að vera 18 mánuðir en ekki 8 mán-
uðir eins og þríburamæður fá, þær
fá aðeins einn mánuð umfram aðr-
ar mæður fyrir hvert barn. Það er
auðvitað ósköp lítið því það fer
enginn sem hefur eignast þríbura
út að vinna eftir 8 mánuði."
Sigurrós segir að þrátt fyrir að
þau séu ekki orðin nægilega mörg
í félaginu til að berjast almennilega
fyrir sínum málum reyni þau eins
og þau geti og nóg er af málum til
að berjast fyrir.
„Okkar aðalbaráttumál eru þó
lengra fæðingarorlof og svo heimil-
ishjálp. Það getur náttúrlega eng-
inn séð einn um þrjú börn þannig
að hinn aðilinn verður að vinna
fyrir þessu. Við fengum fria heimil-
ishjálp en nú er búið að breyta því
vegna samdráttar og því þurfum
við að borga eitthvað fyrir það
núna. Það er alltaf byijað á vitlaus-
um enda þegar niðurskurður er.
Kona, sem ég þekki, sem var með
sex mánaða þríbura, þurfti að
hætta með heimilishjálpina því
hún gat bara alls ekki borgað
þetta.“
Sigurrós segir að þjóðfélagið
komi alls ekki nægilega til móts við
þríburaforeldra og það sé eiginlega
ekki gert ráð fyrir þeim.
„Það hugsa kannski margir sem
Þríburarnir samankomnir á mótinu sem haldið var í Kjósinni um siðustu helgi. Alls eru þrettán þríburar í
félaginu.
svo að það séu nú margir sem eigi
þrjú börn en það er bara alls ekki
það sama að eiga þijú og að eiga
þau öll á sama aldri. Það gera sér
kannski ekki allir grein fyrir því
að i hvert skipti sem við kaupum
eitthvað fyrir börnin þá þurfum við
alltaf að kaupa þrennt af hveiju.
Það vantar svona smáskOning á
þessu hjá þessum háu herrum. Það
er eins og þjóðfélagið sé eiginlega
að refsa þeim sem eiga fullt af börn-
um í stað þess að hrósa þeim sem
leggja út í þetta.
Við í félaginu ætlum að halda
áfram að hittast og félagið er aUtaf
að eflast meira og meira. Við erum
staðráðin í að halda áfram að berj-
ast fyrir okkar málum," segir Sig-
urrós að lokum.
AEG
Vampyr 8200
1500 wött,
stillanlegur sogkraftur,
6 Töld sía,
dregur inn snúruna,
innbyggð (yígihlutageymsla.
Litur: Hvít.
Verft kr. 16.735,-,-
Stgr. kr. 15.899,-
B R Æ Ð U R N I R
ORMSSONHF
Lógmúla 8, Sími 38820
Umbobsmenn um land allt
◄ ES3i
Vampyr 7200
1300 wött, stillanlegur
sogkraftur, 4 föld sía,dregur
inn snúruna,
innbyggö fylgihlutageymsla.
Litur: Rauö.
Verö kr. 15.742,-,-
►
Vampyr 7100
1300 wött,
stillanlegur sogkraftur,
dregur inn snúruna,
4 föld sía
innbyggö fylgihluta-
geymsla.
Litur: Jökulgrá.
Verö kr.14.501,-
Stgr. 13.776,-
og litir - Hagstætt verð.
Vampyr 730
kraftmikil
1300 wött
dregur inn
snúruna,4 föld sia
2 fylgihlutur,Litur: Ijósgrá.
verö kr. 13.678,-
Stgr. kr. 12.994,-