Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1994, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994
35
„Þjóðir keppa hver við aðra en auk þess keppa kynþættir innbyrðis, svartir og gulir gegn hvítum ...“
Knattspyrna
er dauðans
alvara
Sumir eru svo einfaldir að halda
að knattspyrna sé leikur eða íþrótt.
Þeir halda að menn komi saman til
að leika með bolta sér og öðrum til
skemmtunar; aðalatriðið sé ekki
að vinna heldur vera með. Nökkva
lækni hefur lengi verið ljóst að
skoðanir sem þessar eru ákaflega
bamalegar. Knattspyma er ekkert
gamanmál fremur en bardagar
skylmingaþræla á Kólosseum
hinnifornu.
Hverjir eru bestir?
Nú fer heimsmeistarakeppni
fram 1 þessari göfugu íþrótt.
Nokkrar útvaldar þjóðir senda hð
sín til Ameríku til að berjast til
þrautar. Eftir því sem á líður
harðnar bardaginn og hvert hðið
af öðru axlar sín skinn og heldur
heim á leið. Að leiðarlokum stend-
ur eitt lið eftir og kallast heims-
meistarar næstu 4 árin. Þessi
keppni er gífurlega hörð enda er
tekist á um mikla peninga, heiður
og þjóðarstolt. Þjóðir keppa hver
við aðra en auk þess keppa kyn-
þættir innbyrðis, svartir og gulir
gegn hvítum; heimsálfur slást, Asía
gegn Evrópu, Norður-Ameríka
gegn Suður-Ameríku; fátækar
þjóðir berjast við ríkar, svangar við
saddar, gamaitkommúnískt
drengjauppbeldi berst við kapítal-
ískafrjálshyggju. Keppnin dregur
að sér fjölmarga sjónvarpsáhorf-
endur enda er unnt með tilkomu
nútíma fjölmiðlunar að flylja svita,
blóð, fögnuð, kvöl og óp skylminga-
þrælanna inn í stofur til fólks.
Nökkvi læknir hkir keppni sem
þessari við glaðlega heimsstyrjöld
í skemmthegri vasaútgáfu. Þjóð-
irnar beijast gjöreyðingarstríði í
90 mín. þar til önnur hvor verður
að játa sig sigraða. Venjulegar
styijaldir með flugvélum og
sprengjuvörpum eru endalausar og
oft ihskiljanlegar eins og átökin í
Bosníu. Samheijar sundrast og
snúast á sveif með fornum mót-
heijum og mynda óskiljanleg
bandalög. Borgir faha en vinnast
aftur og víglínan er oft óskhgrein-
anleg. Fylkingar sem takast á líkj-
ast hver annarri og ákaflega erfitt
er að greina góðu kallana frá þeim
vondu. En í knattspymunni eru
línurnar skýrar. Herir þjóðanna
em í litskrúðugum, fahegum bún-
ingum sem gerir þá aðgreinanlega
Á læknavaktiimi
Óttar
Guðmundsson
læknir
og öhum viðureignum lýkur innan
tilskhins tima í beinni útsendingu
í sjónvarpi. Áhorfandinn getur æst
sig upp, fylgst spenntur með sigri
eða ósigri og lifað sig inn í and-
rúmsloft vígvaharins um stund.
Hann er hluti af heild sem á sér
eitt markmið; að sigra andstæðing
sinn. Þetta minnkar einmana-
kennd einstaklingsins og eykur
manngildi hans enda er hann þátt-
takandi í sögulegri þróun. Sjálfs-
virðing og mat á eigin verðleikum
og getu eykst aö sama skapi.
Mikil dramatík
En hvað gerir knattspymuna
svona sérstaka. Af hveiju fara allar
þessar þúsundir út á knattspymu-
vellina til að hvetja liöið sitt til
dáða. Afhveiju sitja mhljónir
manna fyrir framan tækin sín og
horfa á leiki. Um þetta hafa verið
skrifaðar miklar og langar bækur.
Eftir slysið mikla í Bmssel 1985
þegar nokkrir tugir ítaia biðu bana
í slysi eftir áflog Liverpool-aðdá-
enda og Juventus-manna, skrifaði
ítalski rithöfundurinn Umberto
Eco grein. Hann taldi að áhorfend-
ur fylgdust með íþróttakappleikj-
um af sömu ástæðu og Rómveijar
hinir fornu horfðu á gladíatora
slást. Þeir vhdu sjá blóð, spennu
og bardaga. Slysið og leikurinn í
Brussel vom að áhti Ecos hin full-
komna skemmtun þar sem áhorf-
endur fengu bæöi blóð og dauða og
auk þess knattspymuleik, sem
kannski var óþarfur þar sem til-
gangi hans var náð áður en hann
hófst. Heimsmeistarakeppnin nú
hefur búið yfir mikilh spennu og
dramatík. Besti knattspyrnumaður
heims varð uppvís að eiturlyíja-
neyslu og sendur grátandi heim.
Þjóðverji sýndi áhorfendum smán-
arflngurinn og var rekinn heim.
Leikmenn hafa kvartað undan lífs-
hættulegum hita eins og þrautpínd-
ir galeiðuþrælar. Hápunktur þess-
arar kitlandi spennu var þó Kól-
umbíumaður sem gerði sjálfsmark
og var drepinn af tryhtum löndum
sínum fyrir vikið. „Þakka þér fyrir
sjálfsmarkið," sagði morðinginn og
tók í gikk skammbyssunnar sinn-
ar. Spenna, þjáning, blóð og barátta
eru lykhorð mannlegrar skemmt-
unar. Sagt er að í styrjöldum Qölgi
bameigum og sjálfsmorðum fækki.
Þjóðir þjappast um sameiginleg
markmið sem gefur lífinu ákveðið
ghdi. Einangrun einstaklingsins
minnkar og samkennd þjóðarinnar
eykst. Ekkert er eins vel til þess
fahið að sameina þjóðir eins og
sameiginlegur andstæðingur.
Heimsstyijöld í vasabroti eins og
heimsmeistarakeppni í knatt-
spymu gegnir því þýðingarmiklu
hlutverki. Hún sameinar fólk og
gefur því tækifæri th að gráta eða
hlæja saman, hún brýtur upp
hversdagsleikann og gefur ltíinu
nýtt ghdi. Þeir sem em keppninni
andvígir geta sameinast í andstööu
sinni, íjasað og rifist og hringt th
sjónvarpsins og kvartað eða skrif-
að greinar í blöö. Slík sameiginleg
óánægja er ágæt spennulosun. Hin-
ir geta fagnað með sínum mönnum
og fundið lífið ólga í bijóstinu og
aukið þannig eigin lífsnautn.
Nökkvi læknir óskar þjóð sinni til
hamingju með stöðugar knatt-
spyrnuútsendingar aha helgina.
GLERLISTANÁMSKEIÐ
Jónas Bragi Jónasson glerlistamaður heldur námskeið
í annars vegar steindu gler og hins vegar í glerbræðslu.
Námskeiðin heíjast 13. júlí. Síðustu námskeiðin í ár.
Upplýsingar í síma 15054.
Ódýrt þakjárn
Ódýrt þakjárn og veggklæðning
Framleiðum þakjárn og fallegar veggklæðningar á hag-
stæðu verði.
Galvaniserað, rautt og hvítt.
TIMBUR OG STÁL HF.
Smiðjuvegi 11 - Kópavogi
Símar: 45544 og 42740, fax 45607
Sveitarstjóri
Starf sveitarstjóra Raufarhafnarhrepps er laust til
umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 22. júlí nk.
Umsóknir skal senda til skrifstofu Raufarhafnar-
hrepps, Aðalbraut 2, 675 Raufarhöfn.
Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Guðmundsson
sveitarstjóri í síma 96-51151.
Hreppsnefnd Raufarhafnarhrepps
ftVMABTILBM
20-50% afsláttur
Sumarblónt frá 25 kr.
/'t:
yr 0U blómabmt á aðeins 390 kr.
00 ái /iiiíi GARÐSHORN
lí 10-22 v/3ossvogskiújugarÖ - sími 40500
0 CONWAY
Rúmgóður 4-6 manna tjaldvagn með fortjaldi,
á sérstyrktum undirvagni og 13" hjólbörðum.
VERPKR »5.008,o.
Á sértilbodi med fortjaldi, borði og varadekki.
TITANhf
LÁGMÚLA 7
SÍMI 814077