Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1994, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 9. JÚLÍ 1994
37
Trimm
„Adrenalíngusan stóð
upp úr hausnum á mér'
- Kári Kaaber langhlaupari segir frá
„Kunningi minn plataði mig til að
taka þátt í fimm kílómetra hlaupi
veturinn 1989. Ég sló til en haföi þá
aldrei hlaupið svo langt. Þetta var
gífurlega gaman og adrenalíngusan
stóð upp úr hausnum á mér. Þama
varð mér ljóst hvað það er gaman
að keppa í hlaupi og þá fékk ég bakt-
eríuna."
Sá sem hér segir frá er Kári Kaa-
ber, fyrmm fótboltakappi, nú skrif-
stofustjóri sem æfir langhlaup í frí-
stundum sínum. Kári er 44 ára gam-
all og er í fremstu röð í sínum aldurs-
flokki. Hann hefur ekki stundað
hlaup mjög lengi en náö góðum ár-
angri með seiglu og einbeitni þrátt
fyrir áfóll. Trimmsíðan spurði Kára
spjörunum úr, meðal annars hvemig
hann hefði byrjað að skokka.
Ómarkvisst í fyrstu
„Ég byrjaði að fikta viö þetta 1986
en það var mjög ómarkvisst. Ég vildi
fyrst og fremst halda mér í formi
vegna fótboltans sem ég stundaði til
1991. Eftir þetta 5 km hlaup fór ég
að auka hlaupin en var aUtaf einn
og fór 20-30 kílómetra á viku og yfir-
leitt aldrei um helgar.
Fótboltinn vék smátt og smátt og
hlaupin tóku allan minn tíma. Þetta
ár fór ég fyrst í hálft maraþonhlaup
og kom ákaflega stoltur með þanið
brjóst og sperrt stél í mark á 1,37
klst. Enn bætti ég í hlaupin, jók við
æfingar en fór nú ekkert fram um
tíma þó ég færi í 60 kílómetra á viku
og bætti mig aðeins um eina mínútu
milli ára í hálfmaraþoni. Á þessum
tíma velti ég lítið fyrir mér æfinga-
plönum og búnaði við hlaupin heldur
bara fór út og hljóp og taldi að því
hraðar sem ég færi því betri hlyti ég
að verða.“
Meiðsli koma í ljós
Kári hélt áfram að æfa, heltekinn
hlaupadellu og fór að taka þátt í öll-
um almenningshlaupum sem hann
náði til. Afdrifarík hvörf urðu á ferli
hans sumarið 1992 þegar hann hljóp
hálft Reykjavíkur-maraþon, 14 kíló-
metra í Reykjalundarhlaupinu viku
seinna og svo aftur hálft maraþon á
Selfossi viku síðar. Þá gerðu alvarleg
álagsmeiðsli í hásinum vart við sig,
sem gerðu kappann Kára óhlaupa-
færan í rúmlega sex mánuði.
„Ég var afar fúll og dapur þegar
þetta kom upp og hætti alveg að fylgj-
ast með hlaupum og sýndi þessu eng-
an áhuga. Kunningjar stöppuðu þó í
mig stálinu og ég fór til sjúkraþjálf-
ara sem tók mig rækilega í gegn og
kenndi mér að gera teygjuæfingar
samviskusamlega en þær hafði ég
fram að þessu trassað nær alveg.
Meinið var að ég hafði verið að
hlaupa alltof mikið og alltof hratt á
öllum æfingum.
Upp úr þessu fór ég að verða miklu
skipulegri og má segja að ég hafi
byijað á núlli aftur og byggt mig upp
hægt og rólega, miklu markvissar en
áður.“
Tíu mílur
í Bláskógum
Sú nýbreytni verður tekin upp í
hinu árlega Bláskógaskokki 17. júlí
nk. að hlaupnar verða 10 mílur eöa
16,1 kílómetri. Þetta árlega fjalla-
skokk eða heiðahlaup nýtur mikilla
vinsælda og svo verður eflaust nú.
Að vanda mæta hlauparar við
íþróttahúsið á Laugarvatni en þaðan
verður þeim ekið í rútum áleiðis til
ÞingvaUa en mislangt eftir því
hversu langt þeir hyggjast hlaupa.
skeiðið við hlið landsins bestu hlaup-
ara. Þetta er grasrótarhreyfmg,
formanns- og stjórnlaus þó stofnend-
ur hópsins teljist til aðalsins.
„Þetta er einstaklega skemmtilegur
hópur sem hefur hlaðið skemmtilega
utan á sig. Þar sést hve hlaupin eru
góð íþrótt þar sem allir geta æft sam-
an og enginn er fyrir neinum. Það
kom mér á óvart hve þetta er mikil
hópíþrótt."
Umsjón
Kári Kaaber ætlar að hlaupa heilt maraþon I fyrsta sinn á ævinni i sumar.
DV-mynd BG
Foringi
„öldunganna''
Núna hleypur Kári um 80 kíló-
metra í viku, yfirleitt einn en alla
sunnudaga með ÖL-hópnum svokall-
aða en hann var einn stofnenda hans
1992. í fyrstu voru þetta nokkrir
„eldri“ skokkarar eða öldungar sem
vildu hlaupa langt saman einu sinni
í viku og fóru &-8 saman í upphafi.
Nú eru 25-30 manns í hópnum á góð-
um degi og þar blandast saman
skokkarar á öllum aldri og renna
Páll Ásgeir Asgeirsson
Kári hefur eins og fleiri sem æfa
hlaup farið í mjólkursýrupróf. Þá er
mjólkursýran í blóðinu mæld við
álag og út frá því ákvarðaður há-
markspúls. Út frá þessu eru æfmgar
sniðnar og púlsklukka notuð á æf-
ingum til að fylgjast með hve ör
hjartslátturinn er.
„Ég er mjög hrifmn af þessu og
flnnst það hafa skilað mér mjög góð-
um árangri. Með þessu móti hleyp
ég að jafnaði hægar á æfingum en
hef samt tekið framfórum."
í Reykjavíkur-maraþoni í sumar
ætlar Kári að hlaupa heilt maraþon
í fyrsta sinn á ævinni og æfir mark-
visst fyrir það.
„Mér hefur tekist með því að fara
nógu hægt að byggja mig aftur upp
eftir meiðslin og tek enga áhættu í
þeim efnum. Fari svo að ég fmni fyr-
ir meiðslum við aukið álag hika ég
ekki við að hætta við að hlaupa heilt
maraþon. Ég hef nógan tíma. Menn
endast vel í þessari íþrótt og ég get
átt mörg góð ár eftir.“
Hlaupið við tónlist
Margir hlauparar, skokkarar og
göngugarpar kjósa að stunda áhuga-
mál sitt með útvarp eða vasadiskó á
höfðinu. Auðvitað velja þeir sína
prívattónlist eða útvarpsþátt en hér
skal minnt á nokkur úrvalslög sem
gott væri að rifja upp: Born to Run
- Bruce Springsteen, Runaround Sue
- Dion, Running on Empty - Jackson
Brown, Run for Your Life - The Beat-
les, Keep on Running - Spencer Da-
vis, Group Runaway - Del Shannon,
Running down the Road - Arlo Gut-
hrie, Run to Me - The Bee Gees. Erf-
itt er að muna eftir íslenskri tónhst
sem hentar en þó koma lög eins og
Sprettur, Áfram veginn og Hvert ör-
stutt spor upp í hugann.
Reykjavíkur-maraþon 21. ágúst 1994:
Almenn vellíöan og
aukið starfsþrek fylgir
reglulegu skokki!
- starfsgeta hjarta og æðakerfis eykst til muna
10/7-16/7 7. vika Sunnud. Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Samt. km
(10km) (21 km) 7kmról. 15km ról. hvíld hvíld 4kmról. 6kmjafnt 3kmról. hvíld 5kmjafnt 25 6kmról. 10kmjafnt 4kmról. hvíld 7kmjafnt 42
Meginhlaupaleiðin liggur um Lyng-
dalsheiði og er afar skemmtileg i því'
góöa veðri sem oft hefur verið þegar
hlaupið fer fram. Rútuferðin frá
Laugarvatni leggur af stað kl. 13.00
en ræst er í hlaupið kl. 13.30. Þeir sem
kjósa að skokka skemmra er boðið
upp á 5,5 kílómetra. Skráning er á
skrifstofu HSK á Selfossi í síma
94-21189.
Skokk er ákjósanleg íþrótt. Þeir
sem reyna mikið á sig andlega finna
fljótt hversu skokkið endurnærir á
allan hátt. Þú ert þreyttur andlega
af neikvæðum hugsanagangi og þú
ferð út í veður og vind og skokkar.
Blóðið streymir um æðamar vegna
þess að hjartavöðvinn, þessi eini og
sanni, fer að slá. Og hveiju slær
hann? Jú, hann slær gleðitilfmningu
um þig alla(n) vegna þess að þú upp-
götvar að þú ert lifandi!
J.B.H.
VOLVO 850 y 1“^ ) 'íjr * '.íif \ —_i -J DÁ DÁ ii
Styrktaraðili Reykjavíkurman iþons
f-