Alþýðublaðið - 06.04.1967, Page 4

Alþýðublaðið - 06.04.1967, Page 4
1 Ritstjóri: Bcnedikt Gröndal. Simar 14900—14903. — Auglýsingasimi;. 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við Ilverfisgötu, Rvík. — Prentsraiðja Alþýðublaðsins. Sírni 14905. — Áskriftargjald kr. 105,00. — í lausa- sölu kr. 7.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Gamlar hugsjónir og nýjar ÆSKAN í stjórnarflokkunum hópaðist til að hlusta á kappræður ungra jafnaðarmanna og Heimdellinga um þjóðnýtingu, opinberan rekstur og verðgæzlu. Enda þótt ríkisstjórnin hafi ekki borið svip af inn- byrðis deilum, eru stjórnarfiokkarnir að sjálfsögðu ósammála um margt, þar á rneðal þetta efni. í ræðum ungra jafnaðarmanna kom það skýrt fram, að þeir hafa eins og flokksbræður þeirra um heim allan horfið frá þeirri hugmynd 19. aldar sósíalista, , að þjóðnýta eigi öll framleiðslutæki. í þess stað aðhyll ast jafnaðarmenn nú blandað hagkerfi, þar sem opin- loer rekstur, samvinnurekstur og einkarekstur er notað hlið við hlið eftir því hvað bezt hentar hverju verk- efni. Þjóðnýting er ekki takmark, heldur leið að tak- marki jafnaðarmanna. Þeir hika ekki við að breyta 'um leiðir í baráttu sinni þegar þjóðfélagsaðstæður breytast, en markmiðið er óbreytt. Þrátt fyrir þetta hefur hugmyndinni um opinberan rekstur aukizt mjög fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn .meðal annarra stutt hana í stórum stíl. Ræðumenn ungra jafnaðarmanna sýndu fram á, hvernig ríkis- rekstur hefur á síðustu árum farið vaxandi. Islenzk stóriðja er ríkiseign, til dæmis Sementsverksmiðja ríkisins (sem skammsýnir íhaldsmenn vilja selja ein' staklingum), og nú berst einn ráðherra Sjálfstæðis- manna fyrir því að gera Aburðarverksmiðjuna ó- tvíræða ríkiseign. Seðlabankinn er voldug ríkisstofn" un, sem hefur gífurlegt vald í efnahagslífinu, og er þessi banki meira vii'ði sem opinber reltstur en þjóð- nýting hundrað smáfyrirtækja. Þá hefur ríkið með jpátttöku Sjálfstæðismanna hafið stórfelldustu íbúða" hyggingar í sögu þjóðarinnar, og hefði það einhvern ííma verið kallað sósíalismi. Þannig mætti lengi telja dæmi þess, að ríkisrekst- ur er ekki aðeins mikill á íslandi heldur hefur hann íarið ört vaxandi á undanförnum árum, ekki einungis •vegna baráttu Alþýðuflokksins, heldur oftast með fullri þátttöku Sjálfstæðismanna og annarra flokka. Þegar litið er á þessa þróun, verða hin stóru orð Heimdellinga og annarra íhaldsmanna í Sjálfstæðis- flokknum á rnóti þjóðnýtingu harla léttvæg. Þessir menn halda dauðahaldi í gamlar íhaldskreddur gegn þjóðnýtingu, en taka ár eftir ár þátt í að efla og styrkja opinberan rekstur. Jafnaðarmenn eru í þessum efnum hreinskilnari. Þeir hafa endurskoðað hinar gömlu hugmyndir um að þjóðnýta allt. Þeir segja í stefnuskrá sinni, að þeir vinni að blönduðu hagkerfi, þar sem opinberum rekstri, samvinnurekstri og einkarekstri sé beitt jöfnum höndum þannig, að rekstur atvinnutækjanna sé fyrir hagsmuni þjóðarheildarinnar en ekki gróða einstaklinga, eins og' Heimdellingar krefjast. 4 6. apríl 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ / Simi 21240 HEILDVFRZLUNIN HEKLA hf Laugavegi 170-172 KOMIÐ, SKOdlÐ OG REYNSLUAKIÐ Nú geium v/ð boBið Volkswagen-bíl, sem kostar 136.800,- krónur Hvers konar bíll er það? Nýr VOLKSWAGEN 1200 Hann er með hina viðurkenndu 1.2 lítra vél, sem er 41.5 h.a. — Sjólfvirku innsogi — Al-sam- hraðastilltur fjögurra hraða gír- kassa — Vökva-bremsur. Hann er með: Rúðusprautu — Hitablóstur ó framrúðu é þrem stöðum — Vindrúður, til að fyr- irbyggja dragsúg í loftræstingu — Tvær hitalokur við fótrými að framan og tvær afturí. Hann er með: öryggislæsingar á dyrum — Hurðahúna, sem eru felldir inn í hurðarklæðningu, og handgrip á hurðum. Hann er með: Stillanleg fram- sæti og bök — þvottekta leður-. líkisklæðningu á sætum — Plast- klæðningu í iofti — Gúmmímott- ur á gólfi — Klæðningu á hiið- um fótrýmis að framan. Hann er msð: Krómaða stuðara —- Krómaða hjólkoppa — Króm- lista á hliðum. Þér getið fengið VW 1200 í perluhvítum, Ijósgráum, rubí-rauðum og bláum lit. Og verðið er kr. 136.800,— t> á krossgötum ★ STÆRSTI TÚRISTAHÓPURINN. Nýlega birtu dagblöðin fróðlega skýrslu um gjaldeyristekjur íslendinga af útlend- um ferðamönnum og fjölda þeirra á árinu sem leið. Ég hef nú ekki lengur handbærar tölurnar, en tekjurnar þóttu umtalsvex-ðar og ferðamanna- fjöldinn nam tugum þúsunda, ef ég man rétt. Stærsta túristahópsins var þó ekki getið, enda nokkuð annars eðlis og gefur lítið í aðra hönd, kemst þess vegna ekki á skýrslur um ferðamál eða gjaldeyristekjur. Ég á hér við vorfuglana. — Þrátt fyrir það finnst mér ástæða til að minna á þessa ágætu ferðalanga, sem koma hingað í þús- undatali á sumri hverju og halda fyrir okkur konserta ókeypis úti um mýri og móa. Nú fer einmitt sá tími í hönd að þessara góðu gesta sé von, þeir fyrstu ættu jafnvel að vera komnir, ef allt væri með felldu um tíðarfarið, má enda vera að einhverjir hafi þegar tyllt fæti við suðurströndina, þótt ekki hafi af því frétzt. Höfuðborgarbúar veita lóunni að jafnaði fyrst athygli og í ungdæmi mínu þótti það einatt frétt til næsta bæjar, þegar hún sást í fyrsta sinni eða í henni heyrðist. Spóinn var hins vegar alltaf einna seinastur á ferðinni, enda áttu þá að vera úti öll hret. i ★ ÓVENJULEG TOLLSKOÐUN. 1 Sem ég sit og hripa niður þessar línur, flytur útvarpið þær fréttir, að tveir ágætir fuglafræðingar íslenzkir hafi verið sendir til Surtseyjar og eigi að dvelja þar næstu vikurnar og fylgjast með fuglakomu til eyjarinnar og at- huga hvað þeir kunna að hafa í fórum sínum. Það hafa sem sé lengi verið uppi deilur um það meðal grasafræðinga, hvernig íslenzka flóran sé tilkomin á þessu afskekkta skeri, íslandi, leikur jafnvel grunur á, að fuglar kunni að smygla hing- að fræjum í fiðri sínu og innýflum. Þetta eiga þeir félagarnir í Surtsey m. a. að athuga og verð- ur fróðlegt að fylgjast með þessari óvenjulegu tollskoðun. Framhald á 10. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.