Alþýðublaðið - 09.04.1967, Síða 3
9. apríl 1967 ■ Sunnudags ALÞÝÐBLAÐIÐ
3
Nýjar reglur um
nafnskírteini
OKKAR A MILLISAGT
DEILUR SJÁLFSTÆÐISMANNA á Vestfjörðum halda áfram a£
fullum krafti óleystar. . . Þorvaldur Garðar Kristjánsson lætur
menn sína safna undirskriftum í gríð og ergju, en vinnur að !því
að fá kjördæmisráðið kallað saman aftur til að ganga frá foramboðs
listanum. . . Aðeins fjórir efstu menn eru komnir á listann, eins
og hann var birtur í Morgunblaðinu.
3. marz sl. var gefin út ný reglu-
gerð um útgáfu og notkun nafn-
skírteina og hafa nú verið gerðar
allvíðtækar breytingar á tilhögun
skírteinanna í þeim tilgangi að
liamla gegn misnotkun þeirra, seg-
ir í frétt frá Hagstofu íslands.
í nýju reglugerðinni er m. a.
ákveðið að mynd skuli framvegis
vera á nafnskírteinum einstakl-
inga á aldrinum 12—25 ára og fá
þeir ekki afhent skírteini, nema
þeir leggi fram mynd til áfest-
ingar. Þessi myndskylda kemur
strax til framkvæmda í Reykja-
vík og nágrenni, en annars staðar
ákveður lögreglustjóri hvenær hún
komi til framkvæmda. Þessi mynd
skylda tekur þó aðeins til nýrra
skírteina, sem útgefin eru. Sam-
hliða því að myndskylda er tekin
upp hafa verið gerðar sérstakar
ráðstafanir til að tryggja að mynd
ir séu raunverulega af þeim, sem
gefið er upp, og verða allar mynd-
ir að berast lögreglustjórum eða
Hagstofu í lokuðu umslagi og
vera vottfestar af þar til bærum
aðilum, skólastjórum, ef um skóla
nemendur er að ræða. Þá mun
Hagstofan ein framvegis gefa út
skirteini í stað glataðra og
skemmdra skírteina og gildir
myndskyldan einnig um þau.
Ráðstafanir hafa einnig verið
gerðar til að koma í veg fyrir, að
ártali sé breytt eða skipt um mynd
á nafnskírteini í fölsunarskyni.
Framvegis verður fæðingarár skír-
teinishafa þrykkt með stórum rauð
um stöfum á öll nýútgefin skír-
teini og gerður liefur verið sér-
stakur stimpill er settur skal á
brún myndar á skírteinunum. Hins
vegar þarf önnur ráð til að taka
fyrir notkun þeirra falsaðra nafn-
skírteina, sem þegar eru í umferð,
og er nú í athugun, hvað gert
skuli til úrbóta í því efni.
Árlega eru gefin út skírteini til
allra 12 ára barna, og verða skír-
teini ársins 1967 afhent á næst-
unni í Reykjavík og nágrenni, en
síðar annars staðar á landinu. —
Tala barna fæddra 1955, sem nú
fá nafnskírteini er um 4.400 og
ennfremur fá nú nafnskírteini um
450 aðrir, sem voru nýskráðir hér
á landi v'ið manntalið 1. des. 1966.
! I
Atökin í Alþýðubandalaginu sýna vel, að það er saman-
sett af gerólíkum hópum manna, sem mundu aldrci eiga sam
leið um neitt, ef ekki væri von í sætum í borgarstjórn eða á
þingi. . . Raunveruleg áhrif þessa bandalags í íslenzkum
stjórnmálum hafa líka verið svo til engin Deilurnar f
Rcykjavík hjá þeim snúast nú um Magnús Kjartansson
og Jón Hannibalsson, sem sumir vilja að verði saman efstir
á lista. . . Þessir menn eru svo ólíkir og hafa deilt svo havka
lega, að þetta er eins og að setja ætti Jóhann Ilaístein og
Ólaf Ragnar Grímsson á sama lista.
ORATOR, félag laganema við Háskólann, mun standa að sjón
varpsþætti, þar sem mál verður tekið fyrir rétt, að því er segii’ í
tímariti félagsins, Úlfljóti. . . Magnús Þ. Torfason prófessor veríiur
laganemum til aðstoðar svo og Halldór Þorbjörnsson. . . Formaður
sjónvarpsnefndar Orators er Þórður Ásgeirsson.
MIKIÐ er nú að gera á Alþingi og meira að segja lialdnir funkir
á föstudögum og laugardögum. . . Standa vonir til að ljúka þ|ng
inu fyrir fyrsta sumardag, enda hefst þá Landsfundur Sjálfstæþis
manna. . Eldhúsdagsumræður verða í þessari viku og munu alþlng
ismenn tala í átta klukkustundir samfleytt tvö kvöld. . . Samið fief
ur verið frumvarp um að hætta þessari vitleysu og skera umræour
niður í skaplega lengd, sem fólk gæti hlustað á, en frumvarpinu ýar
frestað. . . Þó eru horfur á að ræður verði styttri fyrir kosningaráar
og stafar það af áhrifum sjónvarpsins.
EFTIRTALDIR MENN hafa verið skipaðir í Þjóðhátíðárnefnd af
hálfu Reykjavíkurborgar: Valgarð Briem framkvæmdastjóri, Ellert
Schram skrifstofustjóri, Böðvar Pétursson verzlunarmaður, og Jó-
hann Möller tannlæknir. Ennfremur hefur verið óskað eftir því að
Fþróttabandalag Reykjavíkur og Skátasamband Reykjavíkur tilnefni
menn í nefndina með sama hætti og verið hefur.
ísland - Svíþjóð í
kvöldogannaðkvöSd
íslendingar og Svíar þreyta
landsleiki í handknattleik í kvöld
og annað kvöld í íþróttahöliinni
í Laugardal. Báðir leikirnir hefj-
ast kl. 20,15.
Þjóðirnar hafa háð fjóra lands-
leiki í handknattleik til þessa.
Fyrsti leikurinn var háður í Lundi
og lauk með sigri Svía 15 mörk
gegn 7. Þetta var jafnframt fyrsti
landsleikur íslands í handknatt-
leik. Næst léku þjóðirnar í Borás
1959 og enn sigruðu Svíar og nú
með 29 mörkum gegn 16. Þriðji
landsleikurinn fór fram í sam-
bandi við heimsmeistarakeppnina
í Vestur-Þýzkalandi 1961 og var
háður í Essen. Svíar sigruðu með
18 mörkum gegn 10.
Þá er komið að fjórða leiknum,
en hann vákti jafnframt mesta
athygli. ísland vann Svíþjóð í HM
1964 með 12 mörkum gegn 10.
Leikurinn fór fram í Bratislava,
Tékkóslóvakíu.
Leikirnir í kvöld og annað kvöld
verða vafalaust hinir skemmti-
legustu, Svíar eru mjöig sterkir í
handknattleik og það er íslend-
ingar einnig. íslenzka liðið hef-
ur æft vel fyrir þennan leik.
Íþróttasíðan leitaði álits nokk-
urra sérfræðinga um 'álit þeirra
á leikjunum og sænska landslið-
iriu, koma svör þeirra hér á eftir.
★ Valgeir Ársælsson:
Þetta sænska lið er tiltölulega
ungt, Svíar hafa lagt áherzlu á
að yngja liðið upp á þessu keppn-
istímabili. Liðið skipa nokkrir
leikmenn, sem bezt hafa staðið
sig á Unglingamótum Norðurlanda
undanfarin ár og eru íslenzkum
handknattleiksmönnum . að góðu
Framhald á 14. síðu
íslenzka landsliðið á rabbfundi sl. föstudag með stjórnarmönnum
syni, sem situr fyrir enda borðsins.
Sumarbúðir og
skóli í Krísuvík
Iívík, SJÓ. | eiga við hegðunarvandkvæði að
Ákveðið hefur verið að reisa stríða. Verður þessi skóli starf-
skóla fyrir börn í Krísuvík, sem j andi yfir veturinn, en einnig er
♦ ákveðið að reisa sumarbúðir fyrir
unglinga á sama stað, sem verða
starfræktar sumartímann.
Er upphaf þessa máls, að sum-
arbúðanefnd Þjóðlkirkjunnar í
Kjalarnesprófestsdæmi hafði hug
á að koma upp sumarbúðum fyrir
vandræðabörn í stórum stíl, Braigi
Friðriksson, fyrrv., framkvæmda-
stjóri sumarbúðanefndarinnar
hafði samráð um þetta mál Við
forráðamenn samtaka sveitarfé-
laganna í Reykjaneskjördæminu,
og kom þá í ljós; að brýn þörf
væri á því að koma upp skóla
fyrir börn, sem ættu við hegðun-
arvandkvæði að stríða. Þetta var
fyrir þrem, fjórum, árum, en um
líkt leyti setti menntamálaráð-
herra nefnd; til að kanna þörfina
á því, að reistur yrði slíkur skóli.
Var þá samþykkt, að öll sveit-
arfélögin í Reykjaneskjördæminu
tækju þátt í byggingu slíks skóla
og á aðalfundi samtaka sveitarfé-
iaganna fyrir stuttu var ákveðið
að reisa þennan skóla. Á aðal-
fundi var kjörin skólanefnd fyrir
HSÍ os „einvaldinum“ Sigurði Jóns Krísuvíkurskólann, sem svo er
kallaður, og eiga sæti í henni
Karl Guðjónsson fræðslufulltijúi.
Kópavogi, Helgi Jónasson yfir-
kennari, Hafnarfirði og Ragnjar
Guðleifsson bæjarfulltrúi, Keila-
vík. Til vara eru Reynir Gu 3-
steinsson skólastjóri, Vestmapna
eyjum, Einar Kr. Einarsson skóla
stjóri, Grindavík, og sr. Bjailni
Siigurðsson, Mosfelli. Auk þeirra
eiga þeir sr. Ásgeir Ingibergsson
Framhald á 14. ísðu.
Flugvél hrapaði í
Seoul, 47 farast
SEOUL, 8. apríl (NTB-AFP) -
Að minnsta kosti 47 manns biðu
bana I morgun þegar suður-kór-
esk lierflugvél með 11 mönnuni
um borð hrapaði á þéttbýlt fá-
tækrahverfi Seoul.
Auk þeirra 11 manna, sem voru
um borð í flugvélinni, biðu að
minnsta kosti 36 manns bana þeg
ar hús hrundu eftir flugslysið.
Margir aðrir voru fluttir á sjúkra
hús með lífsihættuleg brunasár.
Flugvélin bilaði skömmu eftir
flugtak frá nálægum flugvelli.