Alþýðublaðið - 09.04.1967, Blaðsíða 13
Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 9. apríl 1967
ÖJJíAyAG.SBÍ.0
'Hiil 4IS85
O. S. S. 117
Snilldar vel gerS og hörku-
spennandi, ný, frönsk sakamála
mynd. Mynd í stíl við Bond
myndirnar.
Kerwin Mathews
Nadia Sanders.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum.
Sumarið með
MONIKU
Ein af beztu myndum Ingmar
Bergmans.
Harriet Andersson
Sýnd kl. 6,50 og 9
— Ein í hendi — tvær á flugi —
JERRY LEWIS.
Sýnd kl. 5
TEIKNIMYNDASAFN
Sýnt kl. 3
SEOJRE
J_______________
EiNANGRUNARGLER
FIMM ÁRA ABYRGÐ
Söluumboð:
SANDSALAN S.F.
Elliðavogi 115.
Síini 30120. Pósthólf 373.
Massey -
Fe’rguson
DRÁTTARVÉLA
og GRÖFUEIGENBUR
Nú er rétti tímmn til a6
láta yfirfara og ger& við
vélamar fyrir vorið.
Massey Ferguson-víð-
gerðaþjónustu annast
Vélsmiðja
Eysteins Leífssonat
hf.
Síðumúla 17.
sími 30662.
^fjtnnuiaarinjöuí
S.ÁRS.
BEDRICH
(1824-
ÞEIR munu fáir, sem á annað borð hafa
eyra fyrir tónlist, sem ekki leggja við
hlustirnar, þegar þeir heyra forleikinn að
Seldu brúðinni eða Moldau, í morgun- eða
miðdegisútvarpinu. Fjörið er svo smitandi
og þrótturinn svo gneistandi, en samt svo
þýður og mildur. Fá verk eru aðgengilegri
J:örnum, unglingum og öðrum þeim, sem
eru að byrja að hlusta á tónlist, enda oft
á efnisskrá nemendatónleika. Unga stúlku
þekki ég, sem alltaf, áður en hún varð tal-
andi, heimtaði að leikin vaeri „pomm-pomm”
platan. Það var Moldau. Þeim, sem sáu
tékkneska óperuflokkinn, sem hingað kom
fyrir nokkrum árum og sýndi Seldu brúð-
ina í Þjóðleikhúsinu, er óperan e.t.v. sér-
lega hugstæð. Slavneskir dansar Dvoraks,
sem mjög oft heyrast í útvarpinu eiga sér
líka aðdáendahóp tónelskra unglinga, sem
gleðjast og lifna, er þeir heyra seiðandi
tóna þeirra.
Smetana sótti fyrirmyndir sínar í sveita-
söngva þjóðar sinnar, sem þróað hafði með
sér tónlistarhefð í aldaraðir og fóstrað
marga tónsnillinga.
Lög Tékkanna eru ekki eins þunglyndis-
leg og þau pólsku og ekki eins dulúðug og
þau rússnesku. Þau bera svipmót lands
síns, grænna hlíða, krystalstærra lækja,
frjósamra akra og snyrtilegra þorpa, þetta
eru söngvar og dansar, fjörugir og kátir,
þótt af og til heyrist hin angurværu sakn-
aðarstef, sem einkenna alla slavneska tón-
list.
Smetana var sonur alþýðunnar og sagði
í tónum sögu föðurlands síns, þjóðsögur,
sagði frá gléði þjóðar sinnar og sorgum.
Selda brúðurin er, talin einhver bezta
gamanópera, sem samin hefur verið. í
henni lyftir hann hinu alþýðlega hljóðfalli
polkans upp á sama listræna svið og Chopin
marzurka og Johan Strauss valsinum. Því
miður eru alvarlegu óperurnar hans Dali-
bor og Libuse lítt þekktar utan heimalands
hans.
í Föðurland mitt, óði til fósturjarðar-
innar brennur ættjarðarást hans. Verklð
er sex symfónisk ljóð. í hinu fyrsta, Vyse-
brad, lýsir hann tímum hinna fornu kon-
m--
SMETANA
1884)
unga Bæheims. í öðru, því þekktasta, —
Moldau, — fylgir hann straumi hins fagra
fljóts, sem rennur gegnum litrík þorp í
hátíðabúningi, hlustar á næturljóð vatna-
dísanna og heilsar loks hátíðlega gömlu
Praha, sem rís á árbökkunum og vitnar um
forna frægð. Sarka: í því heyrum við
gömlu skáldin flytja kvæði sin við undir-
leik hörpunnar. í Á Bæheimsvöllum og
-lundum skynjum við' hina heillandi nátt-
úrufegurð landsins. í Tabor heyrist vopna-
brak trúarbragðastríðanna á dögum Hússít-
anna. Blamík myndar að lokum umgjörð
um verkið og hljómar eins og hátíðlegur
sigursöngur, sem boðar trú á endurreisn
tékkneskrar þjóðar.
Úr lífi mínu er alger andstæða Föður-
lands míns. Verkið er fallegur og við-
kvæmnislegur strengjakvartett spróttinn
beint upp úr sálardjúpi höfundar.
13
Lifsganga Smetana var raunaleg. Þeim
mun aðdáanlegri er lífskraftur hans, sem
yfirvinnur alla erfiðleika, sem verða á vegi
hans og gerir honum kleift að halda sitt
strik í blíðu og stríðu. Þjóðrækni sú, sem
speglaðist í fyrstu verkum hans, vakti illan
bifur austurrísku yfirvaldanna, sem reyndu
að bæla niður sérhverja skilnaðarhreyf-
ingu. Utanlands var aðeins einn maður, sem
eitthvað var í spunnið — Liszt.
Smetana flúði heimaland sitt og settist
að í Svíþjóð árið 1856. En svo virtist, sem
andi hans væri enn að verki í ættlandi
hans, því að þar áttu sér breytingar stað.
Öll þjóðin tók höndum saman um að safna
fé til að reisa þjóðleikhús í Praha. Smet-
ana, sem hafði dreymt um slíkt hús alla
ævi, varð fyrsti forstjóri þess. Húsið var
hátíðlega vígt árið 1866. En hamingjan
varð skammvinn. Örlögin lustu hann hart.
Ógæfa bæði Beethovens og Schumanns kom
yfir hann: Hann misti heyrnina árið 1874
og andaðist sturlaður árið 1884.
En sól tékkneskrar tónlistar var komin á
loft, ekkert megnaði að slökkva hana og
því vermir hún enn, úng hjörtu á ísa köldu
landi. — G. P. tók saman.
Ðie MoldaU :VUnv.OSmeinna
!■'. 1 Kj: H C 1 - 81 c S á V iit6UN E R r H'.t.n A R A i O N ! KR
< UHIIItllU f'h', /l
'MiiA./.iI/í
AÐALFUNDUR
B.I.F. og Farfugladeildar Reykjavíkur verður
haldinn mánudaginn 10. apríl kl. 8,30 s.d, í
Farfuglaheimilinu, Laufásvegi 41.
Stjórnirnar.
Hafnarfjörður
Kranastjóri óskast til starfa á Michigan —
bílkrana.
Upplýsi'ngar gefnar í síma 52119 eða 50492 og
á skrifstofu hafnarstjóra, Strandgötu 7.
Hafnarstjórinn í Hafnarfirði
Auglýsing
LAX OG SILUNGSSEIÐI
Laxeldisstöð ríkisins í Kollafirði hefur til sölu
laxaseiði af göngustærð svo og kviðpokaseiði
til afgreiðslu í maí og júní. Ennfremur eru til
sölu silungsseiði af ýmsum stærðum. Þá mun
Laxeldisstöðin hafa laxahrogn til sölu í haust
Pantanir á seiðum og hrognum óskast sendar
Veiðimálastofnuninni, Tjarnargötu 10,
Reykjavík, hið allra fyrsta.
Laxeldisstöð ríkisins