Alþýðublaðið - 09.04.1967, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 09.04.1967, Blaðsíða 9
s Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 9. apríl 1967 og ég geri allt sem ég get til að verða hraust. Mig dreymir um að dansa í Svanavatninu. Ég hef séð það meira en hundrað sinnum, og ég kann hverja hreyfingu. Það er æðsta þrá lífs míns að fá að dansa Odette-Odile.” Hún er nýgift aftur, kvikmynda framleiðandanum John Sullivan, og býr í London. En hún gleym- ir aldrei fjölskyldu sinni í ísra- el. Hún var elzta barnið, og þeg- ar faðir hennar dó fór hún að vinna fyrir heimilinu. Fyrsta sem hún ge’rði þegar hún fékk mikla peninga fyrir kvikmynd var að láta byggja yndislegt hús handa- móður sinni og systkinum. „Þeg- ar ég var lítil sagði ég við mömmu, að ég ætlaði að byggja ógurlega fínt hús handa henni þegar ég væri orðin stór og rík. Mamma hefur unnið mikið um ævina og oft átt erfitt, en aldrei hefur hún kvartað, og hún gaf börnunum sínum ást, sem ekki Framhald 11. síðu. „ÞEGAR hún er komin í gang — hamingjan hjálpi okkur!” George Roy Hill, leikstjóri nýj- ustu kvikmyndar Julie Andrews, Hawaii. „Mitt aðalverk er að hafa taumhald á henni, sefa hana, stilla hana. Hún er svo áköf og tilfinningaheit, að henni hættir mest til að ýkja og yfirleika. En hæfileika skortir hana ekki.” Julie Andrews hefur fleira en yndislega söngrödd. Hún er á góðri leið að verða fyrsta flokks skapgerðarleikkona. Og í Torn Curtain, næstsíðustu mynd sinni, var hún talin of „sexy” fyrir al- mennan markað. í Hawaii er hún aftur indæla, stillta stúlkan; þar leikur hún. eiginkonu trúboða frá öldinni sem leið. Söngröddin varð upphaf frægð- arferils hennar, Hún var aðeins sjö ára gömul, þegar hún fyrst vakti athygli, qg móðir hennar, Barbara, og stjúpfaðir, Ted And- rews, ákváðu að láta hana læra að syngja. Tólf ára var hún orðin víðþekkt sem undrabarn. Faðir hennar, Ted Wells, minnist henn- ar sem „elskulegrar telpu. Hún var grönn og létt í hreyfingum, róleg og jafnvæg í skapi.” En Julie segir: „Mér fannst ég alveg hryllilega ljót. Það var tek- in af mér reynslukvikmynd þegar ég var tólf ára, og þeir reyndu að láta þessa ólaglegu, hjólbein- óttu fuglahræðu með útstandandi tennurnar líta út eins og Shirley Temple. Það tókst náttúrlega alls ekki.” Faðir hennar segir, að hjóna- skilnaður foreldra hennar hafi haft mjög truflandi áhrif á hana. En Julie kallaði stjúpföður sinn alltaf pabba (hann lézt sl. ár) og þótti ákaflega vænt um hann. Nítán ára gömul lék hún í The Boy Friend, en tuttugu og eins árs lék hún og söng aðalhlutverk ið í My Fair Lady, hlutverkið sem gerði hana að stjörnu. Af óskilj anlegum ástæðum fékk hún ekki að leika það í kvikmyndinni, þótt hún hefði vakið geysilega hrifn ingu með túlkun sinni bæði í Bret landi og Bandaríkjunum. En hún fékk sárabætur: Mary Poppins, The Americanization of Emily, The Sound of Music — þessar myndir gerðu Julie Andrews að einni af stærstu stjörnunum í kvik myndaheiminum, og nú hefur hún tvö ár í röð verið efst á vinsælda listanum í Bandaríkjunum. Hún fær rúmar fjörutíu milljón ir (ísl. kr.) fyrir hverja mynd sem hún leikur í. Hawaii er nýkomin á markaðinn, það er verið að ljúka við Thoroughly Modem Millie, og bráðlega á Julie að leika Gertrude Lawrence í kvikmynd um ævi og feril hinnar dáðu Broadway- stjörnu. Frægðin hefur fært henni auð æfi, nýtt hús í Hollywood og hin eftirsóttu Oscar-verðlauri. En tau'gaspennan hefur einnig tekið sinn toll. í október sl. lár skildi Julie við mann sinn, Tony Walt on, eftir sjö ára hjónaband. „Störf okkur toguðu okkur hvort í sína áttina,“ segir hún. „Við erum enn góðir vinir, en einhvern veginn var hjónaband okkar orðið nafnið tómt.“ Julie hefur á tilfinningunni, að hún hafi eytt miklum hluta æv innar á flótta undan sjálfri sér. „Það er erfitt að vera raunveru leg manneskja í þessu gervilífi frægðar og umtals. Ég held, að ég sé að byrja að ná jafnvægi núna og sjá hlutina í réttu ljósi. Holly wood hefur breytt mér, ég þurfti að venjast þessum hraða og látum og kynnast sjálfri mér á nýjan leik. Nú er ég að fá innri ró, og um leið finn ég, að ég get gefið meira í leik mínum. Og ég er far in að finna til ábyrgðar gagnvart fólkinu sem kemur að sjá mynd irnar mínar.“ Roamer i 100% vatnsþétt V erksmið juábyrgð Gæðin eru óvéfengjanleg. Kornelíus. Jónsson. úra og skartgripa- verzlun. Skólaörðustíg 8 ÚTBOÐ Byggingasamvinnufélag atvinnubifreiðastjóra, óskar eftir tilboðum í smíði eftirfarandi: 1. Útidyrahurðir 2. Eldhúsinnréttingar. Hvort tveggja í fjölbýlishúsi nr. 14—22 við Fellsmúla. — Útboðsgagna má vitja í dag og á mánudag á skrifstofu byggingarfélagsins að Fellsmúla 14—22, gegn 1 þús. kr. skilatrygg ingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudag inn 18. apríl kl. 11 f.h. SKIPAÚ.TÍieR® RIKISINS M.s. Esja fer vestur um land til Akur- eyrar 13. þ.m. Vörumóttaka ár degis á mánudag til Patreksfjarð ar, Tálknafjarðar, Bíldudals, Þingeyrar, Flateyrar, Suðureyrar ísafjarðar og Akureyrar Farseðlar seldir á miðvikudag. M.s. Blikur fer austur um land hringferð 13. þ.m. Vörumóttaka árdegis á mánudag til Hornafjarðar, Dúpa vogs, Breiðdalsvíkur, Stöðvar- fjarðar, Fáskrúðsfjarðar, Reyðar fjarðar, Eskifjarðar, Norðfjarðar, Seyðisfjarðar, Borgarfjarðar,, Vopnafjarðar, Bakkafjarðar Þórs hafnar, Raufarhafnar, Kópa- skers, Húsavíkur, Akureyrar og Skagastrandar. Farseðlar seldir á miðviku dag. SERVÍETTU- PRENTUN SfMX 32-101. ÖKUMENN! Látið stilla í tíma, áður en skoðun hefst. Hjólastillingar Mótorstillingar Ljósastillingar Fljót og örugg þjón- usta. BÍtASKOÐUN & STILLING Skúlagötu 32 Sími 13-100. Ofnkranar, Tengikranar, Slöngukranar, Blöndunartæki. Burstafell byggingavöruverzlun Réttarholtsvegl 3. Síml 3 88 40. '

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.