Alþýðublaðið - 19.04.1967, Side 11
fc Ritsf íórTÓrn Eidsson
52. Víbavangshlaup IR
hefst kl. 2 á morgun
UM 20 þátttakendur Jiafa tilkynnt
þátttöku frá ýmsum félögum og
samböndum. KR-ingar eru með
flesta keppendur eða 5, UMSE 2 og
aðrir aðeins með 1 keppanda.
Reiknað er þó með að eitthvað
bætist við er að sjálfu hlaupinu
kemur og einhver félögin reyni
að hafa' í sveit.
Keppt verður um þriggja, fimm
og tíu manna sveitabikara, sem
ýmis fýrirtæki hafa gefið. Þriggja
manna bikarinn hefur Hagtrygg-
ing gefið, fimm manna bikarinn
Gunnar Ásgeirsson og bikarinn
fyrir tíu manna sveitina heíur
Olíufélagið Skeljungur gefið. Bik-
ararnir eru allir nýir og keppt um
þá í fyrsta skipti.
Þriggja og fimm manna bikar-
arnir þnrfa að vinnast þrisvar í
röð eða ails fimm sinnum, til þess
að vinnast til eignar, en bikarinn
fyrir tíu manna sveitina vinnst til
eignar í hvert skipti fyrir sigur
tíu manna sveitar, en það eru litt
ar líkur á því, að í þetta skipti
verði um nokkra tíu manna sveit
að ræða.
Keppendur eiga að mæta við
Hljómskálann kl. 10 f.h. á morg-
un. Þá á að ganga með þeim og
leggja brautina um Vatnsmýrina,
en hlaupið hefst svo kl. 2 e.h. Að
hlaupi loknu býður stjórn Í.R.
til kaffidrykkju og verðlaunaaf-
hendingar, keppendum og starfs-
mönnum.
UCLA sigraöi í bandarísku
háskólakeppni í körfubolta
Fyrir nokkru lauk bandarísku
háskólakeppninni (NCAA) í
körfuknattleik með sigri BRU-
INS, liðs UCLA háskólans, í úr-
slitaleik gegn liði Dayton háskóla.
Leikurinn fór fram í Louiseville
í Kentucky og lauk með yfirbui’ða
sgiri UCLA, 79:64. en það var
30. sigur liðsins í röð á keppn-
istímabilinu.
NCAA-keppnin er úrslitakeppni
milli 10 beztu liáskólaliðann í
Bandaríkjunum, en til að komast
í hana verða liðin 10 að sigra í
nokkrum minni keppnum, sem eru
ef svo má segja, einskonar und-
anrásir fyrir aðalkeppnina. Það
þykir mikill heiður að því að
sigra í þessari keppni, og eiga
leikmenn sigurliðanna venjulega
greiðan aðgang að atvinnumanna-
liðunum, þegar skólagöngu þeirra
lýkur. Þá er Ólymþíulið Banda-
ríkjanna, sem alltaf hefur haft
höfuð og herðar yfir keppinauta
sína á Ólympíuleikunum, myndað
með þessa sömu menn sem aðal
uppistöðu. Til marks um áhuga
fólks í Bandaríkjunum á keppni
| FH og Fram ||
|; leika að nýju
|;á föstudagskvöld
i • Leikur FH og Fram um f
I1 íslandsmeistaratitilinn í i
handknattleik karla verffur 5
(i háffur á föstudagskvöldiff í j
i1 íþróttahöllinni.
i \
háskólaliðanna, má nefna, að í
Kentucky, þar sem úrslitin fóru
fram, er hvert sæti skipað á alla
leikj vetrarins í húsi, sem tekur
Framhald á 14. síðu
Hér hefur Lucius Allen komizt 6-
valdaffur upp aff körfu Dayton og
skorar.
KR-KFR leika í
7. deild í kvöld
í KVÖLD heldur íslandsmótið í
körfuknattleik áfram í íþróttahöll
inni í Laugardal. Þá verða leiknjr
þeir leikir, sem frestað var vegna
landsleiksins við Dani 2. april:
KR — KFR 1. deild.
ÍR — ÍKF 1. deild.
Keppnin hefst kl. 20.15.
★ Belgía sigraði Holland 1=0 i
landsleik í Antwerpen á sunnudag.
★ Luxemburg og Pólland gerðu
jafntefli í undankeppni EM i
knattspyrnu. Hvorugt liðið skor-
aði.
i
★ Gordon Banks Leicester mark-
vörður Englands frá HM var seid-
ur til Stoke í gær fyrir 52 þús.
pund. Banks, sem er 28 ára gam-
all hefur leikið fyrir Leicester í
átta ár.
Alcindor (nr. 33) er ekki árennilegur, þar sem hann gnæfir yfir
Elvin Hayes, bezta mann Dayton.
ÍBK vann ÍBH 4:0
Reykjavík, Hdan.
Annar leikur Litlu bikarkeppn-
innar fór fram í Keflavík í gær-
kvöldi. Keflvíkingar sigruðu Hafn
arfjörð með 4 mörkum gegn engu.
Vilhjálmur Ketilsson, 17 ára ný-
liði, skoraði fyrsta mark leiksins
snemma í fyrri hálfleik, en Einar'
Gunnarsson bætti öðru við ríðar
í hálfleiknum, með góðri aðstoð
Jóns Jóhannssonar. Er um 15 mín.
voru liðnar af síðari hálfleik skor
ar Einar aftur, eftir sendir.gu frá
Jóni og þögar um 10 mín. eru til
leiksloka bætir hann enn einu
markinu við, þannig að leiknum
lauk með sigri Keflvíkinga 4—0.
Leikinn dæmdi Grétar Norðfjörð
og gerði það vei. Veður var hið
bezta þegar leikurinn fór fram og
voru áhorfendur mjög margir.
Keflvíkingar höfðu yfirhöndina
svo að segja allan leikinn og ljóst
er, að þeir verða ekki auðsigraðir
í sumar.
Nýtt íslandsmet
Á sundmóti KR í gærkvöidi,
setti sveit Sundfélags Hafnarfjarð-
ar nýtt íslandsmet í 4x50 m bringu
sundi karla, synti á 2:20,1 min.
Gamla metið, 2.20,7 mín. átti Ár-
mann. Nánar á morgun.
Feðgar settu ný
met í kúluvarpi
Guttormur
;Ólafsson,KR
Á LAUGARDAGINN var keppt í
stangarstökki og kúluvarpi Ung-
linga- og drengjamóts íslands í
íþróttahöllinni í Laugardal. Skýrt
hefur verið frá afreki Guðmund-
ar Hermannssonar í kúluvarpinu,
en hann keppti sem gestur og
varpaði 16,96 m, sem er ísl. inn-
anhússmet. Kastsería 'hans var:
16,3 - óg. — 16.72-16,96-16,56
-16.23.
Úrslit í mótinu urðu sem hér-
segir:
Kúluvarp unglinga: m.
Arnar Guðmundsson, KR 14,46
Erlendur Valdimarsson, ÍR 14,30
Páll Dagbjartsson, ÍR 13,67
Árangur Arnars, sem er sonur
Guðmundar Hermannssonar er
nýtt unglingamet.
Stangarstökk unglinga: m.
Bergþór Halldórsson, HSK 3,25
Erlendur Valdimarsson, ÍR 3,10
Guðjón Magnússon, ÍR 3,10
Guðni Sigurðsson, ÍR 2,95
Kúluvarp drengja: m.
Kjartan Kolbeinsson, ÍR 13,06
Guðni Sigfússon, Á 12,56
Marteinn Mortensen, ÍR 11,44
Stangarstökk drengja: m.
Framhald á 14. siðu.
GUTTORMUR er 23 ára
verzlunarmaður, 183 em á
hæð. Hann hefur æft körfu-
knattleik siðan 1958 og hef-
ur átt sæti í KR-liðinu sem
bakvörður síðan meistara-
fiokkur KR var stofnaður á
ný árið 1962. Hans sterkasta
hlið er ágæt skot af meðal- * t
færi, auk þess að vera sterk-
ur varnarmaður. Hann hef-
. ur leikið fjóra..landsleiki.
!
Auglýsið í Alþýðublaðinu
19. apríl 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 1|!