Alþýðublaðið - 20.04.1967, Síða 7

Alþýðublaðið - 20.04.1967, Síða 7
Aðatfundur Styrktar- félags vangefinna Drengjakór KFUM mannahöfn kemur Aðalfundur styrktarfélags van- gefinna var haldinn að dagheimil inu Lyngási hinn 19. marz sl. Formaður félagsins, Hjálmar Vil (hjálmsson, ráðuneytisstjóri, setti fundinn og stjórnaði honum. Ritari fundarins var frú Sig- ríður Ingimarsdóttir. Formaður las skýrslu félagsst. og skýrði einstök atriði hennar. Framkvæmdastjórinn, séra Er Hátíðahöld í Kópavogi Hátíðahöld sumardagsins fyrsta í Kópavogi hefjast með útisam- komu við Kópavogsskóla kl. 1,30 e.h. Þar leikur Skólahljómsveit in undir stjórn Björns Guðjóns sonar, séra Lárus Halldórsson heils ar sumri, Samkór Kópavoigs syng ur undir stjórn Jan Moraveks, sveit úr Breiðabliki sýnir glímu, Leikfélag Kópavogs sýnir þátt úr ibarnaleikritinu Ó, amma Bína og Ríó-tríóið leikur. Óli Kr. Jónsson yfirkennari stjórnar samkomunni Barnasamkomur með fjölbreyttri dagskrá verða í Kópavogsbíói kl. 3 og kl. 4,30 síðdegis. Merki dags ins og fánar verða seldir. Allur á- góði rennur til sumardvalarheim ilis Kópavogs sem er í byggingu í Lækjarbötnum. Slagorð í Peking PEKING, 19. apríl (NTB-Keuter) — Rauðir varðliðar hengdu upp áróðursspjöld með árásum á sov- ézka leiðtoga á veggi sovézka sendi ráðsins í Peking í dag. Frétta- stofan Nýja Kína birti í gær grein með harðorðri gagnrýni í garð Rússa, þar sem þeir voru sakðair um samvinnu við Bandaríkjamenn igegn Kínverjum og byltingarmönn um í Asíu. lendur Sigmundsson, las reikninga félagsins fyrir árið 1966 og skýrði þá. Voru þeir samþykktir umræðu- og athugasemdalaust. Kosnir voru tveir menn í aðal stjórn og tveir í varastjórn. í aðalstjórn voru kosnir Guð- mundur St. Gíslason, endurkosinn og Magnús Kristinsson. í vara stjóm voru kosnar frú Sigríður Thorlaeius, endurkosin tíg frú Sig urbjörg Siggeirsdóttir. Aðalstjóm félagsins skipa nú.: Hjálmar Vilhjálmsson, fqrm. Frú Sigríður Ingimarsdóttir rit ari, frú Kristrún Guðmundsdóttir gjaldkeri og Guðmundur St. Gísla son og Markús Kristinsson með- stjórnendur. Endurskoðandi var endurkjör inn Guðmundur Illugason. Hinn að alendurskoðandinn. Ingólfur Guð mundsson, er tilnefndur af félags málaráðherra. í lok fundarins þökkuðu formað ur og framkvæmdastjóri gott sam starf við ýmsa aðila, sem að mál efnum vangefinna vinna. Spænsk stjórnar- völd bjóða styrk Spænsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingi til náms á Spáni 1967 — 68. Styrktímabilið er 8 mánuðir frá október 1967 að telja. Styrkurinn nemur 5000 pe- setum á mánuði, en auk þess fær styrkþegi 3000 peseta við upplraf styrktímabilsins og er undanþeg- inn innritunargjöldum í opinber- um kennslustofnunum, sem undir spænska menntamálaráðuneytið heyra. Umsóknum um styrk þennan skal komið til menntamálaráðu- neylisins, Stjórnai-ráðshúsinu við Lækjartorg, fyrir 15. maí næstk. og fylgi staðfest afrit prófskír- teina ásamt meðmælum. Umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneytinu. Drengjakór KFUM í Kaupmanna- höfn — Parkdrengekoret — kem- ur í þriðju söngför sína hjngað til íslands í júlímánuði n.k. Kórinn kom fyrst hingað sumarið 1954 og siðan aftur sumarið 1956 og fékk í bæði skiptin mjög góðar móttökur og ávann sér miklar vin- sældir fyrir fágaðan, léttan og skemmtilegan söng — og. leik, en auk fjölbreytts söngs, þá flutti kór inn þá einnig söngleikinh „Eldfær in“ eftir ævintýri H. C. Andersen og „Sunnudagur á Amager“ eftir J. L. Heiberg. í fyrri heimsóknum söng kór- inn margsinnis hér í Reykjavík fyrir troðfullu húsi áheyrenda og auk þess söng kórinn á mörgum stöðum úti á landi, Akureyri, Sauð á'rkróki, Bifröst í Borgarfirði, Akra .nesi, Hafnarfirði og á Selfossi. Vestmannaeyjar voru einnig á Jerðaskrá kórsins, en veður haml- aði þá flugferð kórsins þangað. Park-drengjakórinn var stofnað- úr haustið 1943 af núverandi stjór11 anda, Jörgen Bremholm. Kórinn er deild í aðalfélagi KFUM í Kaupmannahöfn — KFUM’s Cen- tralforening — og hefir bækistöð sína á íþróttasvæði félagsins i Em- drup — KFUM’s Idrætspark — og dregur nafn sitt þar af: PARK- DRENGEKORET. í söngkórnum (konsert-kórnum) eru 26 drengir á aldrinum 9—14 ára, en auk aðalkórsins starfar æfingakór til endurnýjunar söng- kórnum eftir þörfum, — þ.e. þegar -eldri drenrgirnir fara í mútur. Kórinn hefur haldið meira en -þúsund stærri og minni söng- skemmtanir i Danmörku, Svíþjóð, Noi-egi, Finnlandi, íslandi, E.ng,- landi, Þýzkalandi og í Tékkósló- vakíu. Á 25. afniælisárinu — 1968 — er í ráði að kórinn fari í söng- för til Bandaríkjanna. Undirbúning og móttöku kórs- ins !hér annast sömu aðilar og 1954 og ’56, þ.e. hópur vina kórs- ins innan KFUM. Meðan kórinn verður hér, 4.—18. júlí n.k. er ráðgert eins og fyrr að koma drengjunum fyrir á einkaheimil- um, 1—2 drengjum á hverju heim ili. Gamlir vinir kórsins og aðrir, sem gjarnan vilja opna heimili í Kaup- í sumar sín fyrir kórdrengjunum meðan þeir dveljast hér, geta nú þegar — eða síðar — tilkynnt það til húsvarða KFUM og K, Amtmanns- stíg 2 B sími 17536. í sumar ætlar kórinn eins og áð- ur að hafa söngskemmtanir í R- vík og úli á landi, en ennþá er ekki fullráðið hve víða kórinn fer hér um að þessu sinni. Söngskrá- in verður fjölbreytt og vönduð og söngleik mun kórinn einnig flytja nú eins og fyrr. HjáEparbeiðni NÝLEGA varð stórbruni á bænum Krossi á Skarðsströnd í DaVasýslu. Brann íbúðar- húsið til kaldra kola á stuttri stund og missti bóndinn, Ág- ‘ilsti iBreiiðdaf, og fólk hans að mestu allar eigur sínar, því sáralitlu var unnt að bjarga. Var hvort tveggja hú's og - h!Íib?í lágt vátryggt, og hefur því jjölskyldan 'orðfið, fyrir mjög tilfinnanlegu tjóni og er Hjátlpar þurfi. Því hef- ur verið ákveðið að hefja fjár- söfnun henni til handa til að létta undir í viestu erfiðleik- unum. Mun undirritaður veita framlögum Ipiðtöku,, ejfnnifg kaupfélögin í sýslunni, svo og Bjarni Fl'nnbogason, rá&u'n nautur í Búðardal. Þá hafa dagblöðin góðfúslega. lofað að taka við framlögum. Ingiberg J. Hannesson, sóknarprestur, Hvoli. Sjálfkjoriö hjá Starfs- mannafélagi ríkisstofnana Á trúnaðarmannaráðsfundi sem haldinn var i Starfsmannafélagi ríkisstofnana 31. marz 1967, var gengið frá tillögum um stjórnar- menn í kjöri á aðalfundi félags- ins 1967. Með fundi þessum rann út frestur til að skila tillögum. — Tiilaga trúnaðarmannaráðs var sVohljóðandi: Foirmaður: Tryggvá Sigúrbjarn- arson, Rafmagnsveitur ríkisins. Meðstjórnendur: Einar Ólafsson, Áfengis- og Tó- baksverzlun ríkisins, Gunnar Bjarnason, Þjóðleikhúsið. Helgi Eiríksson, Skipaútgerð rík- . isins. . , Páll Bergþórsson, Veðurstofa ís- lands. Sigurður Ó. Heigason, Tollstjóra- skrifstofa. Þórhallur Bjarnason, Kleppsspít- alinn. I Varastjórn: Hulda Einarsdóttir, Landsspítal- inn. Sverrir Júlíusson, Raforkumála- skrifstofa. Þorvaldur Steinsson, Kópavogs- hæli. ! • Þar sem ekki komu fram tillög- r ur um fleiri en kjósa átti, teljast framangreindir sjálfkjörnir saní- kvæmt 10. gr. félagslaga. Aðalfundur félagsins verðu'r haldinn í samkomuhúsinu Lidó, þriðjudaginn 25. apríl og hefst hann kl. 20,00 e. h. 20. apríl 1967 ALÞYÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.