Alþýðublaðið - 20.04.1967, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 20.04.1967, Blaðsíða 11
l=RStsfióri Örn Eidsson Tvær ungar og efnilegar stúlkur vöktu mesta athygli Hrafnhildur Kristjánsdóttir og Ellen Ingvadóttir sigruðu i 5 greinum af 8 Unga kynslóðin vakti mesta at-1 bygli á Sundmóti KR, sem háð var í Sundhöllinn í fyrrakvöld. Tvær stúlkur úr Ármanni, þær Ellen Ingvadóttir, sem aðeins er 14 ára og Hrafnhildur Kristjáns- dóttir, sem er einu ári eldri sigr- uðu í fimm einstaklingsgreinum af átta, sem keppt var í á mót- inu. Báðar settu þær met í sín- um aldursflokki, Ellen, sem er sérstaklega efnileg sundkona setti telpnameí (aldursflokkurinn 13— 14 ára) setti met í 200 m. bringu- sundi, synti á 3:04,2 mín. og jafn- aði metið í 100 m. bringusundi, synti á 1:25,4 min. Auk þess varð hún þriðja í 100 m. skriðsundi. Mesta athygli vakti sigur Ell- enar i 200 m. bringusundi, en hún sigraði m.a. methafann Hrafn liildi Guðmundsdóttur, ÍR, sem að vísu er ekki í æfingu. Annars verður að telja það hæpið, að láta þessa bráðefnilegu sundkonu taka þátt í þrem erfiðum grein- um á tæpum klukkutíma. Stíl Ell- enar er hægt að lagfæra mikið og þá fer hún að ógna metum Hrafnhildar í bringusundi. Hrafnhildur Kristjánsdóttir er í mikilli framför, enda hefur hún æft vel í vetur. Hún sigraði í 100 m. skriðsundi á 1:05,1 mín., sem er 9/10 úr sek. lakari tími en met Hrafnhildar Guðmundsdóttur. Þetta er bezti tími Hrafnhildar á vegalengdinni og nýtt stúlknamet (aldursflokkurinn 15—16 ára). Hrafnhildur setti auk þess stúlkna met í 100 m. baksundi og náði bezta tíma ársins, 1:18,9 mín. Þriðji sigur þessarar kröftugu og skemmtilegu sundkonu var í 100 m. flugsundi, en hún hafði geysilega yfirburði og synti á 1:20,1 min. Af eldri kynslóðinni vakti Guð- mundur Gíslason, Ármanni mesta GÍasgow Rangers sigraði Slavia, Sofíu í gær 1:0 í fyrri leik liðanna í undanúrslitum í Evrópukeppni toikarmeistara. Willoughby skoraði markið á 32. mínútu. Lokomotivet, Leipzig, Austur- - Þýzkalandi sigraði Kilmarnock, Skotlandi í fyrri leik liðanna i borgariceppni Evrópu með 1:0. Leikurlnn fór fram í Leipzig. U Guðm. Þ. Harðarson, Æ. athygli, en hann sigraði örugg- lega í 100 m. bringusundi á 1:13,6 mín., sem er hans bezti tími á vegalengdinni. Met Harðar B. Finnssonar ÍR 1:11,1 mín. er þó ekki í hættu enn. Guðmundur synti fyrsta sprettinn fyrir Ár- mann í 4x50 m. bringusundi og millitími hans, 33,3 sek. er hans bezti tími á þeirri vegalengd. Met Harðar er 32,4 sek. Guðmundur Þ. Harðarson, Ægi hafði allmikla yfirburði á 2:09,4 mín., en met hans er 2:08,0. Guð- mundur er augsýnilega í góðri æf- ingu og líklegur til enn meiri af- reka í vor. Keppnin í 4x50 m. bringusundi karla var geysispennandi milli Ármanns og SH. Þeir fyrrnefndu tóku forystuna strax í upphafi og héldu henni þar til á síðasta spretti, að Gesti Jónssyni tókst að fara fram úr Einari Kristinssyni og snerta bakkann einu sekúndu- broti á undan. Báðar sveitirnar syntu á betri tíma en íslenzka met ið, sem Ármann átti. Tímarnir voru 2:20,1 og 2:20,2 mín. Met Ármanns var 2:20,7 mín. Methaf- ar SH eru Gunnar Kristjánsson, Árni Þ. Kristjánsson, Erling Ge- orgsson og Gestur Jónsson, Drengjasveit Ægis, sem hlaut þriðja' sæti setti nýtt drengjamet, synti á 2:28,5 mín. Gamla metið sem Ármann átti var 2:31,6 mín. í 4x50 m. skriðsundi sveina (aldursflokkurinn’ 13 — 14 ára) sigruðu KR-ingar örugglega, en Ægir var í öðru sæti. HELZTU ÚRSLIT: 200 vi. bringusund kvenna: mín. Ellen Ingvadóttir, Á 3:04,2 Hrafnhildur Guðmundsd. ÍR 3:08,5 Elín B. Guðmundsd. Á 3:22,2 100 m. baksund stúlkna: mín. Hrafnhildur Kristjánsd. Á 1:18,9 Sigrún Siggeirsd., Á 1:20,8 Ingunn Guðmundsd. Self. 1:25,4 Guðmunda Guðm.d. Self. 1:31,4 200 m. skriðsund karla: mín. j Guðm. Þ. Harðars. Æ 2:09,4 Guðm. Gíslas. Á 2:14,5 Gunnar Kristjánss. SH * 2.22,2 Logi Jónsson KR 2:22,8 100 m. bringusund stúlkna mín. Ellen Ingvad. Á 1:25,4 Ingibjörg Haraldsd. Æ 1:28,7 Elín B. Guðmundsd. Á 1:30,5 Sigrún Siggeirsd. Á 1:30,5 100 m. bringusund sveina 13 — 14 ára: mín. Sigmundur Stefánss. Self. 1:28,2 Karl Alfreðss. ÍA 1:31,4 Reynir Vignir Á 1:33,8 Sveinn Jóhannss. SH 1:35,7 100 m. skriðsund kvenna: mín. Iírafnhildur Kristjánsd. Á 1:05,1 Ingunn Guðmundsd. Self. 1:10,5 Ellen Ingvad. Á 1:14,7 Ingibjörg Haraldsd. Æ 1:18,2 100 m. bringusund karla: Guðmundur Gíslas. Á Leiknir Jónss. Á Gestur Jónsson Á Fylkir Ágústss. Vestra 4x50 m. skriðsund sveina: mín. Asveit KR 2:22,5 Sveit Ægis . 2:25,7 Sveit Selfoss A-sveit SH 2:2tf,4 2:28,4 100 m. flugsund kvenna: mín. Hrafnhildur Kristjánsd. Á 1:20,1 Sigrún Siggeirsd. Á 1:32,7 Sólveig Guðmundsd. Self. 1:38,6 Sæunn Strange, SH 1:42,0 i 4x50 m. bringusund karla: mín. Sveit SH 2:20,1 A-sveit Ármanns 2:20,2 Drengfasveit Ægis 2:28,5 B-sveit. Ármanns 2:29,1 4ÁM3A . unds -Ivoruiti WFTIEIDIR AÐALFUNDUR Aðalfundur Loftleiða hf. verður haldinn föstu daginn 19. maí n.k., kl. 2 e.h. í Hótel Loft- leiðir. DAGSKRÁ: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. önnur mál. Hluthafar fá atkvæðaseðla í aðalskrifstofu Loftleiða á Reykjavíkurflugvelli, fimmtudag- inn 18. maí. Þeir, sem enn hafa ekki vitjað jöfnunarhlutabréfa sinnaværu beðnir að koma með gömlu hlutabréfin um leið og aðgöngu- miðarnir eru sóttir. Sjtórn Loftleiða hf. .... Auglýsing Frá BSemaskálanum við N ýbýlaveg. Sumardaginn fyrsta 1967 Láttu blómin tala, er ferð á vinarfund Láttu blómin tala á helgri vígslustund Láttu blómin tala í björtum sólarsal Já, láttu blómin tala, er gleðja á mey og hal. Láttu blómin tala, þá lífið ljósið sér Láttu blómin tala, þá lífið héðan fer Láttu blómin tala, þá blæða sorgarsár Já, láttu blómin tala, þá orðaforði er fár. Láttu blómin tala öll þín ævispor Láttu blómin tala, það eykur þrótt og þor Láttu blómin tala, þá skapast sálarró Já, láttu blómin tala, þau tala ávallt nóg. BLÓMAS KÁLINN. !Í V, ( I1 d c d 20. apríl 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ -JM

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.