Alþýðublaðið - 23.05.1967, Síða 5
Gylfi Þ. Gíslason:
Ríkisútvarp, Þjóðleikhús,
Sinfóníuhljómsveit
RÍKISÚTVABPIÐ má hiklaust telja eina af
mikilvægustu og áhrifamestu mcnningarstofn-
unum þjóSarinnar. Starfsemi þess hefur ver-
ið aukin á undanförnum áratug. Dagskráin
hefur bæði verið lengd og gerð vandaðri en
áður var. Árið 1956 mun hafa verið útvarpað
í um það bil 10 stundir á dag. Nú er út-
varpað í um það bil 15 stundir daglega.
1956 voru rekstrarútgjöld útvarpsins 11,6
millj. kr. en í fyrra námu þau 58 millj. kr.
Þá hefur nú verið hafinn rekstur íslenzks
sjónvarps. Það hófst 1. september sl. eftir
aðeins tveggja ára undirbúning og má það
teljast til einsdæma I nálægum löndum. 1.
september n.k. mun dagskrá sjónvarpsins
verða komin í það horf, sem henni er fyrir
hugað fyrst um sinn, en ákveðið hefur verið
að sjónvarpa 6 daga í viku. Telst sjónvarpið
þá verða tekið til starfa í endanlegu formi.
Stofnkostnaður sjónvarpsstöðvarinnar í
Reykjavík, að meðtöldum undirbúningskostn-
aði, mun ncma tæpum 80 millj. kr., og hef-
ur allt það fé fengizt greitt af aðflutnings-
gjöldum af innfluttum sjónvarpstækjum. En
ríkisstjórnin tók þá skynsamlegu ákvörðun á
sínum tíma, að tekjur af aðflutningsgjöldum
af innfluttum sjónvarpstækjum skuli ganga
til greiðslu stofnkostnaðar sjónvarpsins. Hins
vegar skal rekstrarkostnaður þess greiddur
með tekjum af afnotagjöldum og auglýsing-
um. Gert er ráð fyrir því, að árlegur rekstr
arkostnaður sjónvarpsstöðvarinnar verði
milli 40 og 50 millj. kr., miðað við 6 daga
sjónvarp í viku. Tekjur af aðflutningsgjöld-
um munu hins vegar áfram verða notaðar
til þess að greiða stofnkostnað dreifikerfis-
ins um landið. Hafa þegar verið reistar ýms
ar litlar endurvarpsstöðvar, sem dreifa sjón-
varpsefninu um Suðurland og Vesturland. Á-
kveðið hefur verið að byggja aðalendurvarps-
stöð dreifikerfisins um landið, stöðina á
Skálafelli, endurvarpsstöð á Vaðlaheiði fyrir
Akureyri og umhverfi hennar, og endmrvarps
stöð á Eiðum, sem mun verða hornsteinn
dreifikerfisins fyrir Austurland. Fé er tryggt
til þessara framkvæmda. Hins vegar er um
að ræða ýmis tæknivandamál í þessu sam-
bandi, og gera þarf nákvæmar mælingar til
þess að komast að raun um, hvaða fram-
kvæmdaaðferðir eru beztar frá tæknisjónar-
miði. Er unnið að þessum málum, og verður
áherzla á það lögð, að teygja sjónvarpskerf-
ið um landið eins ört og framkvæmanlegt
Til skamms tíma hafði Þjóðleikhúsið að-
eins tekjur af helmingi
skemmtanaskatts. Það var
hins vegar orðið ónógt.
Fyrir tveim árum voru
því teknar upp beinar
fjárveitingar á fjárlögrum
til rekstrar Þjóðleikhúss-
ins. 1956 nam rekstrar-
kostnaður þcss 8 millj.
kr. Nú í ár mun hann
nema 23 millj. kr. Starf-
semi Leikfélags Reykjavíkur hefur og verið
Framhald á 14. síðu.
(slensk
mennta-
mál í
áratug
TILBOÐ OSKAST
í nokkrar fólks'bifreiðar og Volkswagen sendi
ferðabifreið er verða sýndar að Grensásvegi 9,
miðvikudaginn 24. nóv. kl. 1—3. Tilboðin verða
opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama dag.
Sölunefnd Varnarliðseigna.
Dregið hefur verið
í happdrætti Skíðalyftunnar á ísafirði
og kom upp númer 4586. Vinningurinn er bif
reið áf gerðinni Vauxhall Viva, árgerð 1967.
Vinningshafi snúi sér til Braga Ragnarsson-
ar, sími 570 eða 574, ísafirði.
F?ADI®NETTE
tækin eru byggð
fyrir hin erfiðustu
skilyrði
ÁRS ÁBYRGÐ
Radionette-verzlunin
Aðalstræti18 sími 16995
Aðalumboð:
Einar Farestveit & Co. hf.
Vesturgötu 2.
I
Fiskurinn sem þér veiðið er aldrei langt
frá heimahöfn yðar.
Þetta stóra fiskvinnslufrystiskip er sér-
staklega byggt til að taka á móti og frysta nýveiddan
fisk frá veiðiskipum og flytja hann til hafnar.
Lengd ............ 99,4 m.
Breidd ........... 14,0 m.
Dýpt, miðskipa .... 7,2 m.
Særými, fulllestað 5.060 tonn
Djúprista, fulllestað 5,3 m.
Burðarmagn .... 2500 tonn
Rúmmál lesta 3.270 rúmm.
Ganghraði .... 14 hnútar
Úthaldstími .. 60 dagar
Úthaldsvegalengd 6.500 mílur.
Fiskvinnslan er sjálfvirk, fiskurinn frystur í blokkir
pakkaður og komið fyrir í lestum skipsins.
Ppplýsingar:
BORGAREY H F .
Símar 81020, 34757.
Moscow G-200 — USSR.
- ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5
23. mal 1967