Alþýðublaðið - 24.05.1967, Síða 3
ísrael:
Sundrung meðal Araba
Framhald af 1. síðu.
leiðingar fyrir heimsfriðinn og
frelsi skipa á hafinu. Hann sagði
að ísraelsstjórn teldi að á'lyktun-
artillaga SÞ frá 1957, sem ábyrgð
ist' frjálsar siglingar á Akabaflóa,
væri enn í fullu gildi.
Utanríkisráðherra ísraels, Abba
Eban, leggur af stað í ferðalag á
morgun til höfuðborga vestrænna
Herstyrkur
landanna
LONDON, 23. maí (NTB-
Reuter) — Herafli Arabíska
sambandslýðveldisins hefur
tvöfaldazt síðan í Súezstríð-
inu 1956. í egypzka herafl-
anum eru nú 190.000 her-
menn og þar vVð bætast
50.000 menn í egypzka þjóð-
arverðinum.
Egyptar munu nú hafa
90.000 menn undir vopnum
og ráða yfir mun fullkomn-
ari vopnum en fyrir ellefu
árum.
Sömu sögu er að segja
um ísraelsmenn, vopnabúr
þeirra liefur batnað stórkost-
lega, og nú eru í ísraelska
hernum 71.000 menn en þar
við bætast 200.000 menn úr
varahernum. Árið 1956 gátu
í.sraelsmenn Jfmtt 250.000
menn til vopna, þar af all-
margar konur, því ógiftar
konur verða að gegna her-
þjónustu.
Af þeim 190.000 mönnum
sem þjóna í egypzka herafl-
anum eru 160.000 í land-
hernum, 15.000 í flughern-
um, 11.000 í flotanum. Egypt
ar eiga auk þess 100 eld-
flaugar og starfa 4.500 við
þær varnir. Egyptar eiga
500 herflugvélar, aoallcga
sovézkar.
Vm 3.006 manns eru í ís-
raelska flotanum. Flugher-
inn ræður yfir 450 flugvél-
um, aðallega frönskum.
Sýrlendingar hafa 48.000
menn undir vopnum og ráða
yfir 250 flugvélum. Jórdan-
íumenn hafa 30.000 menn
undir vopnunu
ríkja, þar sem hann mun gera
grein fyrir viðhorfum stjómar
sinnar til áStandsins. Meðan þessu
fer fram halda ísraelsmenn áfram
að efla varnir sínar, en ísraels-
stjóm er sögð líta á deiluna við
Arabalöndin sem milliríkjadeilu,
sem ekki verði leyst með vopnum.
I Moskvu lýsti sovétstjómin því
yfir í kvöld, að hún mundi leggj-
ast gegn hvers konar árásarað-
gerðum fyrir botni Miðjarðarhafs,
að sögn Tass.
□ Vonleysi
MikiII mannfjöldi hafði safnazt
saman á flugvellinum í Kairó við
komu U Thants í dag og hrópaði
„Egyptar munu sigra“ og „Lifi
Í'íasserlP. Tilgangur heinisóknar
hans er að fá Nasser til að fallast
á að SÞ gegni einhvers konar frið-
argæzluhlutverki fyrir botni Mið-
jarðarhafs þrátt fyrir brottflutn-
ing gæzlusveita SÞ frá landamær-
um ísraelg og Egyptalands. Heim-
ildir AFP herma, að litlar líkur
séu til þess að viðræður hans við
Nasser beri árangur.
Nokkur Arabaríki hétu Egypt-
um stuðningi í dag í deilu þeirra
við ísraelsmenn. Forsætisráð-
herra Sýrlands, Youssef Zouayen,
kom í óvænta heimsókn til Kairó
skömmu eftir að U Thant kom
þangað og sagði: „Orð stoða ekki.
Það er kominn tími til að berjast.“
Áður hafði Nasser forseti skorað
á stjórn írans að hætta olíusend-
ingum til ísraels. Stjórn íraks til-
kynnti að hún mundi senda fjöl-
mennt herlið og flugvélar til Eg-
yptalands, og Kuwait kvaðst
mundu senda sjálfboðaliða til Si-
naiskaga.
I
□ Klofningur
Hins vegar hafa deilur risið upp
með Sýrlendingum og Jórdaníu-
mönnum, sem hafa vísað sendi-
herra Sýrlendinga í Amman og
ræðismanni þeirra í hinum jórd-
anska hluta Jerúsalem úr landi
vegna atburðar þess á landamær-
um Sýrlands og Jórdaníu á sunnu-
daginn, þegar 16 manns biðu bana
í sprengjutilræði, sem gert var
með vitund sýrlenzku stjórnar-
innar. Mikil spenna hefur ríkt í
sambúð Sýrlendinga og Jórdaníu-
manna á undanförnum mánuðum.
Enda hallast Sýrlendingar að Rúss
um en Jórdaníumenn að vestur-
veldunum. Sýrlendingar hafa sak
að Jórdaníumenn um linkind í
garð ísraelsmanna og hvatt til upp
reisnar gegn Hussein konungi.
í New York komu meðlimir Ör-
yggisráðsins með brezka fulltrú-
anum, Caradon lávarði í broddi
fylkingar, saman til fundar í skrif
stofu dönsku sendinefndarinnar,
en talið er að ráðið verði fljót-
lega kailað- saman til formlegs
fundar til að ræða ástandið. Bret-
ar munu beita sér eindregið fyrir
því, að SÞ aðhafist eitthvað í mál-
inu til að koma í veg fyrir styrj-
öld.
Wilson forsætisráðherra sendi í
kvöld George Brown utanríkisráð
herra til Moskvu og George Thom
son aðstoðarutanríkisráðherra til
Washington, og eiga þeir að reyna
að koma því til leiðar, að eitthvað
verði gert til að varðveita friðinn
fyrir botni Miðjarðarhafs. Brown
utanríkisráðherra átti að fara til
Moskvu í gær, en förinni var frest
að vegna ástandsins. Bretar hafa
þungar áhyggjur eins og sjá má
af því, að brezkum togurum hefur
verið ráðlagt að yfirgefa þau svæði
þar sem til átaka getur komið.
□ Rússar varkárir
Rússar hafa ráðlagt Nasser for-
seta að fara með gát, samkvæmt
góðum heimildum. Þótt egypzka
Framhald á 14. síðu
Nær 2ja milljards kréna
gjaldeyrisvarasjóður
Þegar vinstri stjórnin fór frá völdum var enginn gjald-
eyrisvarasjóður til, raunar var 144 millj. kr. Gjaldeyris-
heild í árslok 1959. En í lok sl. árs hafði myndast gjald-
eyrisvarasjóður er nam 1915 milljónum króna.
í viðskiptum þjóðarinnar við önnur lönd hefur verið
greiðsluafgangur öll árin 1960—’66 nema 1963, 1966 og af-
gangrur á tímabilinu í heild. Þetta hefur stuðlað að því,
þjóðin eignaðist gjaldeyrisvarasjóð í stað nettóskulda gagn-
vart útlöndum í árslok 1959. Gjaldeyrisstaðan licfur síðan
verið þessi (miðað við árslok og núgildandi gengi):
1959 144 millj. kr.
1960 127 — —
1961 527 — —
1962 1150 — —
1963 1311 —- —
1964 1593 — —
1965 1912 — —
1966 1915 — —
Oft er sagt, að þótt við höfum eignast gildan gjaldeyris-
varasjóð hafi heildarskuldir þjóðarinnar gagnvart útlöndum
vaxið. Það er jafnvel sagt, að allur vöxtur gjaldeyrisvara-
sjóðsins eigi rót sína að rekja til aukningar lána til langs
og skamms tíma. Ef heildargjaldeyrisstaðan í árslok er
borin saman við heildarstöðuna í lok 1965 verður niður-
staoan þessi:
1959 1965
milij. kr. millj. kr.
Gjaldeyrisstaða — 144 — 1912
Föst erlend lán — 2491 — 3912
Stutt vörukaupalán — 50 — 554
—• 2685 — 2554
í árslok var heildarstaðan gagnvart útlöndum þ.e.a.s. öll
erlend lán að frádregnum gjaldeyrisvarasjóðnum, 2554 míllj.
en I árslok 1959 voru heildarskuldirnar 2685 millj. kr.
Teknir í landhelgi
í fyrrinótt tók varðskipið Óð-
inn vélbátana Lundey RE-381,
Svein Sveinsson, GK-363 og Bald
ur KE-97, að meintum ólöglegum
togveiðum út af Hraunum.
Og síðdegis í gær tók þyrla
Landhelgisgæzlunnar vélbátana
Kára GKK-146, Gullfara GK-111
og Kristján RE-250 einnig að
meintum ólögleguni togveiðum.
Mál skipstjóranna verður tekið
fyrir í hcimahöfn bátanna.
TALID AD IKVEIKJA
VALDIÐ ELDSVODANUM
280 SAKNAÐ
BRÍÍSSEL, 23. maí (NTB-AFP) — 281 manns er
saknað eftir brunann mikla í vöruhúsinu „Innova-
tion“ í Briissel í gær. Grunur leikur á, að um í-
kveikju hafi verið að ræða.
Mörg vitni segja, að eldurinn
'hafi komið upp á þremur stöðum
á öllum hæðum hússins samtím-
is. Óhugsandi er talið, að eldur-
inn hafi getað breiðzt eins skjótt
út og raun bar vitni.
Lögreglan rannsakar nú hvort
sú tilgáta sé rétt, að andstæðingar
Bandaríkjanna, sem efndu til mót-
mælaaðgerða gegn stefnu Banda-
ríkjanna í Vietnam fyrir utan
verzlunina í síðustu viku, hafi
verið valdir að brunanum. Banda-
rísk söluvika hófst í verzluninni
fyrir helgi, og flugumiðar sam-
taka róttækra vinstrisinna er
kalla sig „Baráttuna fyrir friði og
frelsi þjóðanna", funduzt í verzl-
uninni.
Á fjórðu hæð hússins var veit-
ingasalur, sem tók 800 manns, og
var hann troðfullur þegar eldur-
inn kom upp. Auk þeirra sem fór-
ust í eldslogunum, biðu margir
bana við það að fleygja sér út um
glugga, sumir í logandi klæðum.
34 lík hafa verið grafin úr
brunarústunum, en mjög erfitt er
um vik þar sem enn logar í rúst-
unum og hætta er á að brunnir
veggir hrynji.
24. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3