Alþýðublaðið - 30.05.1967, Blaðsíða 6
DAGSTUND
Ú T V A R P
ÞRÍÐJUDAGUR 30. MAÍ.
7.00 Mojgunútvarp.
Veouríregnir. Tónleikar. 7.30
Fréíttr. Tónleikar. 7.55 Bæn. 8
Morgunleikfimi. Tónleikar. 8.30
Fréctir og veðurfregnir. Tónleik
ar. 8.55 Fréttaágrip. Tónleikar.
9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 10.
05 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
12.00 Háclegisútvarp.
Tónleikar. 12.25 Fréttir og veð-
urfregnir. Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna. Tónleikar.
14.40 Við, sem heima sitjum.
Finnborg Örnólfsdóttir les fram-
haldssöguna „Skip sem mætast
á nóttu“f eftir Beatrice Haira-
den, í jj-ýðingu Snæbjarnar Jóns-
sonar (11).
15.00 Miðdegisútvarp.
Fréttir. Tilkynningar. Létt lög.
HljómíJVeitir Don Durlachers,
The Supremes, The Saint Jazz-
hljómsveitin, Roy Black, Connie
Francis, George Feyer, Dany
Mann, Floyd Cramer og hljóm-
sveit og Stefan Patkai o.fl.
skemmta mcS hljóðfæraleik og
söng.
16.30 Síðdegisútvarp.
Veðurfregnir. íslenzk lög og
klassísk tónlist.
17.00 Fréttir.
Einar Kristjánsson syngur
„Bikarinn“ eftir Markús Krist-
jánsson; Fritz Weisshappel leik-
ur undir.
Hljómsveit konunglegu óperunn
ar í Covent Garden leikur
„Hans og Gretu“, svítu eftir
Humperdinck; John Hollings-
worth stjómar.
Rudolf Serkin og Búdapest
strengjakvartettinn leika Kvint-
ett í f-moll op. 34 eftir Brahms.
17.45 Þjóðlög.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins.
19.00 Fréttir.
19.20 Tilkynningar.
19.30 Daglegt mál.
Árni Böðvarsson flytur þáttinn.
19.35 Lög unga fólksins.
Hermann Gunnarsson kynnir.
20.20 Alþ^ngiskosningamar 11. júní.
Stjórnmálaflokkarnir kynna
stefnu sína.
21.20 Fréttir.
21.45 Dagskrá Bandalags íslenzkra
kvenna.
Frásagnir og viðtöl.
Þessar konur koma fram: Aðal-
björg Sigurðardóttir, Herdís Ás-
geirsdóttir. Lára Sigurbjörns-
dóttir, Guðlaug Narfadóttir, Jó-
hanna Fgilsdóttir, Sigríður Ingi
rnarsdóttir, María Pétursdóttir
og Halldóra Eggertsdóttir.
Kynn^r nr* Guðrún P. Helgadótt-
ir skólastjóri.
22.30 Veðurfregnir.
a. John McCormac syngur nokk-
ur lög.
b. Nicolai Gedda og Victoria de
los Angeles syngja dúett úr
„Faust“ eftir Gounod.
22.50 Á
Blauttegar vísur og brunakvæði
(Songs of Seduction).
úr ýmsum hlut-
um Bretlands.
Peter Kennedy og Alan Lomax
hafa safnað.
23.35 f stuttu máli og dag-
skrárlok.
Ý 8 * B
Armann.
Handknat+ioíks'le’id kvenna.
Æfirfeartaria sumarið 1967.
Þriöiud.: 15 fyrir byrjendur og II.
fi. B.
Þriðjud.: kl. 8.30 fyrir M.fl., I. fl. og
II. fl. A.
Fimmtud.: kl. 6.15 fyrir byrjendur og
II fl. B.
Fimmtud.: kl. 8.30 fyrir M.fl., I. fl. og
II. fl. A.
Allar æfingar fara fram á félagssvæð
inu við Sigtún.
íslandsmeistarar í I. fl. kvenna
1967, eru beðnar að mæta til mynda-
töku þriðjudaginn 6. júní kl. 8.30 á
Ármannsvelli.
Stjórnin.
+ MinningarsjóSnr Landspátalans.
Minningarspjölsd sjóðsins fást á eftir*
töldum stöðusxr. Verzhminni Oculus,
Austurstræti 7, Verzluninni Vík,
Laugavegi 52 ofi hjá Sigríð! Bach-
mann, forstöðufeonu, Landspítalanum.
SamúðarskeyU sióðsins afgreiðir
Landssíminn.
•jf Minnmgarspjöld Fingbjörgnnar-
svcuarmnar.
fást á eftirtöldum stöðum: Bókabúð
Braga Brynjólfssonar, hjó Sigurði
Þorsteinssyni^ sími 32060, hjá Sigurði
Waage, sími 34527, hjá Stefáni Bjama
syni, sfmi 37392 og Magnúsi Þórarins-
syni, sími 37407.
Unglingasundmót verður haldið í
Sundlaug Vesturbæjar Sunnudaginn
4. júní 1967, og hefst kl. 3,30 e.h.
Képpt verður í eftirtöldum greinum.
Telpur fæddar 1955 og síðar: 50
m. bringusund, 50 m. flugsund.
Sveinar fæddir 1955 og síðar: 50 m.
baksund, 50 m. flugsund.
Telpur fæddar 1953 og 1954. 100 m.
fjórsund, 100 m. bringusund, 50 m.
flugsund.
Sveinar fæddir 1953-1954. 50 m. bak
sund, 100 m. fjórsund.
Stúlkur fæddar 1951 og 1952. 200
m. fjórsund, 100 m. skriðsund.
Drengir fæddir 1951 og 1952. 200 m.
bringusund, 50 m. flugsund, 200 m.
fjórsund.
Þátttökutilkynningar berist til Sig-
geirs Siggeirssonar, sími 10565 fyrir
fimmtudaginn 1. júní 1967.
Unglinganefnd S.S.Í.
^ Orlofsnefnd húsmæðra, Reykjavlk.
Eins og undanfarin sumur mun orlofs
dvöl húsmæðra verða í júlímánuði
og nú að Laugaskóla í Dalasýslu. Um-
sóknir um orlofsdvalir verða frá 1.
púní á mánudögum, þriðjudögum,
fimmtudögum og föstudögum kl. 4-6,
á miðvikudögum kl. 8-10, á skrifstofu
kvenréttindafélags íslands, Hallveig-
arstöðum Túngötu sími 18156.
Silungasalur Náttúrufræðistofnun
ar íslands verður í sumar frá 1. júní
opin alla daga frá kl. 1.30-4.
•& Kvenfélag Óháða safnaðarins.
Fimmtudagskvöldið 1. júní verður
farið í heimsókn til kvenfélags Kefla
víkur, upplýsingar í síma 34465 eða
34843. Basarinn er n.k. laugardag 3.
júní. Tekið á móti basarmunum
föstudag kl. 4—7 og laugardag kl.
10—12 í Kirkjubæ.
•£■ Slysavarnarfélagið Ilraunprýði í
Hafnarfirði fer í skemmtiferð næst
komandi sunnudag 4. þ. m. Þátttaka
tilkynnist í síma 50290, 50597 og
50231. — Ferðanefndin.
Ásgrímssafn Bergstaðastræti 74 er
opið sunnud., þriðjud. og fimmtud.
frá kl. 1.30-4.
'jó’ Kvennaskólihn í Reykjavík. Þær
stúlkur, sem sótt hafa um skólavist
í Kvennaskóla Reykjavíkur eru beðn-
ar að koma til viðtals í skólann
fimmtudaginn 1. júní kl. 8 síðdegis
og hafa með sér prófskírteini.
+ Náttúrulækningafélag Reyltjavíkur.
Fundur verður haldinn í Náttúru-
lækningafélagi Reykjavíkur miðviku
daginn 31. maí kl. 21 í matstofu
félagsins Hótel Skjaldbreið. Sr. Helgi
Tryggvason flytur erindi: „Líkaminn
verkfæri andans“. Veitingar, allir
velkomnir. — Stjórnin.
+ Náttúrulækningafélag Reykjavíkur.
Frá og með 1. júní verður góður mið
degisverður framreiddur í matstofu
félagsins, auk annarra máltíða. Mat-
stofa N.F.L.R. Hótel Skjaldbreið.
S K I P
+ Eimskipafélag íslands. Bakkafoss
fór frá Seyðisfirði 25. 5. til Rotter-
dam, Hamborgar og Gdynia. Brúar-
foss fór frá ísafirði 25. 5. til Cam-
bridge, Camden, Norfolk og New
York. Dettifoss kom til Reykjavíkur
24. 5. frá Þorlákshöfn. Fjallfoss fer
frá Fáskrúðsfirði í kvöld til Norð-
fjarðar, Seyðisfjarðar, Vopnafjarðar
og Þórshafnar. Goðafoss kom til
Reykjavíkur 24. 5. frá Hamborg.
Gullfoss fer frá Leith á morgun til
Kaumannahafnar. Lagarfoss kom til
Klaipeda 28. 5., fer þaðan til Turku,
Kotka, Ventspils og Kaupmannahafn
ar. Mánafoss fór frá Leith 26. 5. til
Gautaborgar og Moss. Reykjafoss
kom til Reykjavíkur 28. 5. frá Þor-
lákshöfn. Selfoss fer frá N. Y. 2. 6.
til Reykjavíkur. Skógafoss fer frá
Hamborg á morgun til Kristiansand
og Reykjavíkur. Tungufoss fer frá
Akranesi í dag til Reykjavíkur.
Askja fór frá Kaupmannahöfn 27. 5.
til Reykjavíkur. Rannö fer frá Riga
30. 5. til Helsingfors og Kaupmanna-
hafnar. Marietje Böhmer fór frá
Vestmannaeyjum 25. 5. til Antwerp-
en, London og Hull. Seeadler er vænt
anlegur til Reykjavíkur í fyramálið
frá Hull.
★ Skipaútgerð xíkisins. Esja er í
Reykjavík. Herjólfur er- í Reykjavík.
Blikur var á Akureyri í gær á aust-
urleið. Herðubreið kemur til Reykja-
víkur í dag að vestan úr hringferð.
■^ Hafskip hf. Langá er í Gdynia.
Laxá fór frá Hafnarfirði 25. 5. til
Gdynia og Hamborgar. Rangá fór frá
Hull í gær til íslands. Marco fór frá
ísafirði 26. 5. til Kungshavn, Turku
og Helsinki. Lollik er í Reykjavík.
Andreas Boye er í Vestmannaeyjum.
F L U G
Loftleiðir hf. Leifur Eiríksson er
væntanlegur frá N. Y. kl. 10.00. Held-
ur áfram til Luxemborgar kl. 11.00.
Er væntanlegur til baka frá Luxem-
borg kl. 02.15. Heldur áfram til N. Y.
kl. 03.15. Vilhjálmur Stefánsson er
væntanlegur frá N. Y. kl. 23.30. Held
ur áfram til Luxemborgar kl. 00.30.
Flugfélag íslands hf.
Millilandaflug:
Skýfaxi fer til London kl. 10.00 í dag.
Vélin er væntanleg aftur til Reykja-
víkur kl. 21.30 í kvöld. Flugvélin fer
til Glasgow og Kaupmannahafnar kl.
08.00 í fyrramálið. Sólfaxi fer til
Kaupmannahafnar kl. 09.00 í dag.
Vélin er væntanleg aftur til Reykja-
víkur kl. 21.00 í kvöld. Snarfaxi fer
til Vagar, Bergen og Kaupmanna-
hafnar kl. 11.00 í dag. Vélin er vænt-
anleg aftur til Reykjavíkur kl. 21.10
annað kvöld.
Innanlandsflug:
í dag er áætlað að fljúga til Vest-
mannaeyja (3 ferðir), Akureyrar (3
ferðir), Piitreksfjarðar, Húsavíkur?
Isafjarðar og Egilsstaða.
Á morgun er áætlað að fljúga til
Akureyrar (2 ferðir), Fagurhólsmýr-
ar, Hornafjarðar, ísafjarðar, Vest-
mannaeyja (2 ferðir), Egilsstaða og
Sauðárkróks.
íbúð óskast á leigu
2-3ja herbergja íbúð óskast til leigu 1. júlí.
Upplýsingar eftir hádegi í dag og næstu daga
í síma 23303.
LÖGTÖK
Samkvæmt úrskurði yfirborgarfógetans í
Reykjavík upp kveðnum 27. m'aí 1967, fara
fram lögtök á öllum ógreiddum hljóðvarps- og
sjónvarpsafnotagjöldum, er féllu í gjalddaga
15.4 1967, 13.5 1967 og fyrr, ásamt innheimtu-
kostnáði, dráttarvöxtum og öllum öðrum kostn
aði á ábyrgð gerðarbeiðanda, en kostnað gerð-
arþola, að 8 dögum liðnum frá birtingu þessa
lögtaksúrskurðar.
Reykjavík 29. maí 1967.
RÍKISÚTVARPIÐ.
Frá Skólagörðum Kópavogs
Innritun fer fram í görðunum við
Fífuhvammsveg 20 og við Kópavogs-
braut 9 fimmtudaginn 1. júní 1967 kl. 9-12
fyrir hádegi og 2-5 eftir hádegi. Rétt til þátt-
töku fá börn á aldrinum 9-12 ára.
Þátttökugjald er kr. 300.-.
UPPBOÐ
Eftir ákvörðun skiptaréttar Reykjavíkur fer
fram opinbert uppboð á hluta þrotabús Kára
B. Helgasonar í Njálsgötu 49, hér í borg, föstu
daginn 2. júní 1967, kl. 2 síðdegis.
Leitað verður boða í eignina, svo sem hér seg-
ir:
1. Verziunarpláss á 1. hæð í austurenda.
2. íbúð á 2. hæð í austurenda.
3. íbúð á 3. hæð í austurenda.
4. 10 herbergi í risi í tvennu lagi.
Þá verður einnig leitað boða í einu lagi í áð-
urgreinda eignarhluta.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
BIFREIÐASTJÓRI
Karl eða kona getur fengið starf nú þegar
við skeytaútsendingu ritsímans.
Upplýsingar í síma 22079.
RITSÍMAST J ÓRI.
Auglýsingasími
Alþýðublaðsins
er
0 30. maí 1967
ALÞYÐUBLAÐIÐ