Alþýðublaðið - 30.05.1967, Blaðsíða 9
*
Eggert G. Þorsteinsson, sjávarútvegsmálaráðherra
flutti á sjómannadaginn, eins og venja er til, ræðu
um sjávarútveginn og hlut sjómansðéns í lífi þjóðar-
innar. Var ræða hans einstaklega greinargott yfirlit
og þykir Alþýðublaðinu hlýða að láta hana koma á
prenti, og gerir það hér með góðfúslegu leyfi ráðherr-
ans.
þessum efnum, er væntanleg nú
allra næstu daga.
Þær staSreyndir liggja nú fyrir
augum alþjóðar a5 verðlag á síld-
arafurðum hefur frá miðju sl. ári
farið alvarlega lækkandi, fyrst og
fremst vegna aukins framboðs á
sömu .afurðum frá öðrum þjóðum,
sem virðast geta boðið, iægra
verð.
Við verðum að vona að þetta
sé tímabundið, ástand, en mæta
verður hér staðreyndum og iþað
sýndu sjómenn og útvegsmenn á
sl. hausti, þrátt fyrir ögranir og
frýunárorð óábyrgra aðilja.
Grundvallarskilyrði í öllum
hugleiðingum okkar um þessi efni
og tillögur til úrbóta er að þær
styðjist við raunveruleikann.
f jafn veigamikilli undirstöðu-
grein og sjávarútvegurinn er ís-
lenzku þjóðinni, ber og brýnasta
naúðsyn til að horfst verði í
augu við staðreyndir, og forðast
verði hleypidóma og þá ekki síð-
ur það að framtíðarskipan þess-
ara mála verði pólitískt bitbein
hinnar almennu stjórnmálabar-
áttu.
Með hliðsjón af framangreindu,
skulum við hugleiða þá möguleika,
sem talið verður að fyrir hendi
séu til að tryggja, sem þjóðhags-
lega hagkvæmastan rekstur ís-
lenzks sjávarútvegs í allra nán-
ustu framtíð.
Framtíðarhorfurnar
Það ætti í upphafi þessara hug-
leiðinga að vera óþarft að minna
á þær staðreyndir, — að í framtíð
eins og nútíð verða ekki eygðir
möguleikar á því að innlendir að-
iljar geti ráðið nokkru. sem nem-
ur um í
1) Verðlag á erlendum markaði
að öðru leyti en því, sem áhrær-
ir vöruvöndun og gæði þeirra
afurða er við seljum.
2) Veðrátta, gæftir eða gæfta-
leysi, nema að því leyti sem hægt
verður að mæta þeim erfiðleik-
um með stærri og fullkomnari
skjpastól.
3) Styrkleika fiskiganga á fiski-
mið okkar, — þótt við með bættri
aðstoð og aðbúnaði við vísinda-
menn okkar þ.e. fiskifræðingana,
ættum að geta haft þar betri yf-
irsýn um veiðimöguleikana frá ári
til árs.
Þrátt fyrir framangreindar
staðreyndir hljótum við að gera
tilraun til að gera okkar áætlan-
ir um framtíðarhorfur.
Það er mín persónulega skoðun
að framtíðarverkefni í íslenzkum
sjávarútvegsmálum verði í nán-
ustu framtíð að beinast að eftir-
farartdi atriðum:
Efling hafrannsókna og bættri
aðstöðu vísindamanna okkar, til
að stunda störf sín, —• sérstak-
lega á hafi úti. —
Til þessa tíma, hefur nauðsyn-
legt reynst, að stunda vísinda-
störf á skipum, sem smíðuð voru
og hugsuð til allt annarra starfa
og hafa því vægast sagt verið
unnin við erfiðar aðstæður.
Nú hillir loks undir fyrstu spor
in til úrbóta í þessum efnum svo
sem fyrr er greint með tilkomu
hins nýja síldarleitarskips, m.s.
Árna Friðrikssonar, sem áætlað
er að fullbúið verði í byrjun júlí
n.k. og með útboði á byggingu
sérstaks' og fullkomins hafrann-
sóknaskips, sem þegar hefur ver-
ið ákveðið að beri nafn Bjarna
Sæmundssonar, hins fyrsta vís-
indamanns okkar á sviði sjávar-
útvegsmála.
II.
Efla þarf gæði fisksins með
bættri méðferð, allt frá fyrstu
handtökunum í sjálfri veiðinni,
til endanlegrar afhendingar hans
í hendur neytenda. — Framtíð
fiskvinnslu okkar hlýtur að byggj
ast á frekari vinnslu aflans í landi
og beinast inn á brautir neyt-
endaumbúða.
í þessum efnum verður þó að
hafa í huga þá dýrkeyptu reynslu
sem við höfum þegar orðið fyrir
í að stofna ekki til kostnaðar-
samra fjárfestingarframkvæmda í
nýjungum, sem ekki fá síðan bor-
ið sig, vegna þess að kaupendur
eru annað hvort ekki fyrir hendi
■— þ.e. ekki markaður, — eða
söluverð of lágt til að standa und
ir framleiðslukostnaði.
Mörgum okkar þykir það und-
arlegt að aukinn markaður skuli
t.d. ekki finnast utan Evrópu fyr-
ir niðursoðnar og niðurlagðar síld
arafurðir. Eigi að síður er þetta
enn staðreynd að markaðssvæði
þessara ágætu vöru er nánast allt
í Evrópu og það aðeins í syðri
hluta hennar.
Aukin og efld markaðsleit og
öflun nýrra markaða er því for-
senda alíra nýjunga í fiskiðnaði
okkar. ásamt því að fylgjast vel
með i því til að þjóna breyttum
smekk og óskum neytenda.
m.
Stuðla þarf að endurnýjun fiski
fiota okkar, með sem allra fjöl-
breytilegustum fiskiskipum, —
allt frá minni gerðum vélbáta-
flotans til úthafsveiðiskipa með
frystiaðstöðu um borð.
Undirstaða allra þeirra mögu-
leika á enn meiri framförum til
aukinnar og bættrar vinnslu sjáv-
arafla, er að sjálfsögðu sú, að sem
mestur og fjölbreytilegastur afli
berist á land. — í framhaldi þess
arar stefnu verður einnig að leyfa
okkar eigin skipum, sem fjölbreyti
legasta nýtingu fiskveiðilögsög-
unnar, með hinum ýmsu veiðar-
færum. — Slík fjölbreytni má þó
ekki ganga út á þá braut að
stofna framtíðarveiðiaðstöðu okk-
ar sem þjóðar í hættu, — öll
frekari fjölbreytni verður afdrátt
ar- og undanbragðalaust að tak-
markast af því, að svo verði á
málum haldið.
' H'-
iy ■
Nauðsyn ber til að skapa bætta
aðstöðu til þjálfunar skipstjórn-'
arefna og sjómanna. —•
Það er fullyrt af þeim sem
gerst til þekkja, að hinar miklu
tækhinýjungar sem átt hafa sér
stað á síðustu 7—8 árum með
mjög örúm stækkunum á fiski-
skipum, — hafi sá vandi fyígt,
að aldrei hafi borið brýnni nauð-
Framhald á 15. i»íðu.
STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS
Aðalfundur Stjórnunarfélags fslands verður
haldinn laugardaginn 3. júní kl. 14,00 í Átt-
hagasal Hótel Sögu.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Karl H. Masters rekstrarhagfræðingur flyt
ur erindi á ensku, er nefnist:
STJÓRNANDINN SEM LEIÐTOGI.
Stjórnin.
Rafsuöumenn
Viljum ráða nokkra rafsuðumenn nú þegar.
RUNTAL-OFNAR HF.
Síðumúla 17. — Sími 35555.
Fornmunir óskast
Gamlar byssur, olíulampar, gömul húsgögn,
tréskurður, gamalt postulín og glervörur,
'hvaðeina, sem er 50 ára eða eldra.
Svör óskast send Alþýðublaðinu merkt 800.
Frá borgardómaraembættinu
Skrifstofur borgardómaraembættisins verða
lokaðar vegna flutnings 30. og 31. maí. Vei-ða
opnaðar í Túngöu 14 fimmtudaginn 1. júní
n.k.
YFIRBORGARDÓMARINN
í REYKJAVÍK.
TILKYNNING
Athygli skal vakin á 137. og 138. grein Bruná
málasamþykktar fyrir Reykjavík um sölu á
eldfimum vökvum. Undir þessar reglur heyrir
sala á FLJÓTANDI GASI (própan, bútan, o.
s. frv.) Allir þeir, sem annast sölu á slíku,
verða að hafa leyfi brunamálastjórnar.
Reykjavílt, 29. maí, 1967.
SLÖKKVILIÐSSTJÓRINN í REYKJAVÍK^
AUGLÝSIÐ í ALÞÝÐUBLAÐINU
30. maí 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9