Alþýðublaðið - 04.06.1967, Síða 3
Sunnudags AlþýðublaÖið — 4. júní 1967
3
76 milljónir til íbúðabygginga
í 30 kaupstöðum og kauptúnum
STJÓRN Byggingasjóðs verkamanna ákvað á fundi*
sínum x gær lánveitingu til að byggjai 165 nýjar íbúð-l
ir í 30 kaupstöðum og kauptúnum á landinu. Nemur
lánaveitingin 76 milljónum króna, og er hér um að
ræða stærstu lánveitingu sjóðsins til þessa.
Ákvörðun þessi er byggð á
því, að ríkisstjórnin hefur á-
kveðið að beita sér fyrir fjáröfl-
un til viðbótar eigin tekjum sjóðs-
ins, svo sem nauðsynlegt kann a'ð
reynast til að hægt verði að full-
nægja lánsloforðum þessum.
Stjórn Byggingasjóðs verka-
manna skipa þessir menn: Eggert
G. Þorsteinsson, Þorvaldur Garð-
Andreas
sendur
til USA?
GRISKA herforingjastjórnin
liefur tilkynnt, að reynt verði að
senda Andreas Papandreou, son
Georgs PaPandreou, fyrrverandi
forsætisráðherra, til Bandaríkj-
anna, þar sem Andreas hefur
dvalizt langdvölum og starfað
sem hagfræðiprófessor. Styliano‘
Pátakos, innanríkisráðherra,
sagði í ræðu fyrir skömmu, að
vera kynni, að Andreas Papan-
dreou yrði sendur til Bandaríkj-
anna að afstöðnum réttarhöldum
yfir honum, hvcrt sem hann yrði
sekur fundinn eða sýknaður.
ar Kristjánsson, Gunnar Helga-
son, Finnbogi Rútur Valdimars-
son og Eysteinn Jónsson.
Eggert G. Þorsteinsson félags-
málaráðherra sagði í viðtali við
Alþýðublaðið, að undirbúningur
þessarar miklu lánveitingar hefði
að vísu tekið lengri tíma en bú-
izt var við, en hefði loks fengið
farsælan endi og bæri að fagna
því. Þegar lægju fyrir umsóknir
frá 30 kaupstöðum og kauptún-
um á landinu, en vitað væri, að
fleiri hefðu í hyggju að sækja
urn lán og yrðu þær umsóknir
teknar fyrir jafnóð.um og þær bær
ust. Ríkisstjórnin hefði samþykkt
að útvega það fé sem á’ vantar
annað hvort með lánum eða nýj-
um tekjustofnum.
Eggert sagði að lokum, að á-
samt starfsemi Framkvæmda-
nefndar byggingaáætlunar væri
þessi nýja lánveiting Byggingar-
sjóðs verkamanna stórt skref í
rétta átt í húsnæðismálum lág-
launafólks.
BLAÐH) Washington Post held
ur því fram í dag, að Johnson
forseti hafi reynt að telja um fyr-
ir Nasser og' fá hann til að loka
ckki innsiglingunni til Akabaflóa.
Fortölur Johnsons hafi engan ár-
angur borið og muni það líklega
leiða til þess, að Bandaríkin beiti
Frá setningu Uppeldismálaþings í gærmorgun.
Uppeldismálaþing
hófst í gærmorgun
UPPELDISMALAÞING á veg-
um Félags íslenzkra barnakenn-
ara og Landsambands framhalds-
skóla hófst í Melaskóla kl. 10 í
valdi til þess að fá Nasser til að Rær- Viðstaddir voru mennta-
láta undan. málaráðherra, borgarstjórinn í
Gylfi Þ. Gíslason.
Jón Ármann Héðinsson.
Karl Steinarr Guðnason.
UNGT FÓLK I
HAFNARFIRÐI
FUJ í Hafnarfirði efnir til fundar í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði þriðjudaginn 6. júní og hefst fundurinn
kl. 20,30.
Ávörp flytja: Gylfi Þ. Gíslason ráðherra, Jón Ármain Héðinsson viðskiptafræðingur og Karl Steinarr
Guðnason kennari. Síðan verða frjálsar umræður og fyrirspurnum svarað.
Allir eru velkomnir á fundinn og er ungt fólk í Hafnarfirði og nágrenni sérstaklega hvatt til þess
að fjölmenna og kynna sér skoðanir Alþýðuflokksins. . , .
Reykjavík, fræðsluráð borgarinn-
ar, skólastjórar og kennarar.
Skúli Þorsteinsson form. SÍB
setti þingið. Hann þakkaði mennta
málaráðherra margvíslega vin-
semd og stuðning við kennara-
stéttina og gat um aðalmál þessa
14. þings, sem er: Þjóðernið, skól-
inn og uppeldið, en framsögu í
því hafði Þórhallur Vilmundar-
son prófessor. Skúli kvað skóla-
starfinu of þröngur stakkur skor-
inn með ítroðslu, sem miðaðist við
próf, en of litla rækt vera lagða
við hið félagslega starf og efl-
ingu þjóðernis. Þetta kynni að lag-
ast með lengingu skólatímans. —
Landið kallaði á ræklunarstörf,
þau ættu að vera fastur liður í
skólastarfinu.
Þá flutti menntamálaráðherra
ávarp, talaði um lestrarkunnáttu
í tvennum skilningi. Ekki væri
nóg að þekkja stafina, heldur
þyrfti að lesa og lesa mikið til
menntunar og ánægju. Ekki veitti
af á tímum hraða að sækja sér
ró í bókina, eiga hana að vini,
sækja í hana fróðleik um liið
liðna og fylgjast með framþró-
un hins nýja tíma. Þetta ættu
skólarnir að kenna, því hefðu
kennararnir miklu hlutverki að
gegna. Að lokum þakkaði ráð-
herra kennarastéttinni góð sam-
skipti á liðnum árum og árnaði
henni heilla.
Því næst tók til máls Þórhallur
Vilmundarson prófessor. Hann
kvað ekki að ástæðulausu að
þingið tæki þjóðernismálin til
meðferðar. Vandi væri á höndum
á tímum greiðra samgangna og
fjölmiðlunartækja.
Framhald iá 15. síðu.
T edder
látinn
London 3. júní (NTB-Reuter).
TEDDER Iávarður, yfirliers-
höfðingi í brezka flughernum og
liægri hönd Eisenhowers árið
1943-1945, lézt í dag á heimili
sínu í Suður-Englandi. Hann var
76 ára. að aldri.
Herforingjar, sem unnu með
Tedder lávarði telja, að stjórn-
kænska hans og lagni hafi átt
sinn mikla þátt í sigri í loft'orrust-
urn á Miðjarðarhafssvæðinu í síð-
ari heimsstyrjöldinni.
í fyrra sendi hann frá sér sjálfs
ævisögu, þar sem hann gagn-
rýndi marga leiðtoga frá stríðs-
tímanum, — þeirra á meðal
Montgomery lávarð.
Arthur William Tedder fæddist
árið 1890 í Skotlandi. Hann var
aðlaður 1946. Eftir síðari heims-
styrjöldina var hann herráðsfor-
maður í flughernum, þar til hann
lét af störfum 1950.