Alþýðublaðið - 04.06.1967, Side 9
Sunnudags Alþýðublaðið -- 4. júní 1967
d
MILLS VEX UPP
er orðin að ungri leikkonu
lítið eitt á föður sinn, hinn ó-
gæta leikara, John Mills.
„Það hefur sannarlega haft sitt
að segja fyrir mig, að fá' mína
eigin íbúð út af fyrir mig,” segir
hún. „Mér finnst ég frjálsari en
áður, sjálfstæðari og hafa meiri
ábyrgðartilfinningu. Hvað þrosk-
ann snertir, veit ég ekki — maður
verður ekki fullorðinn bara við
að eiga tuttugu og eins árs afmæli.
Ég er hrædd um, að það sé nauð-
synlegt að fá töluverða lífs-
reynslu áður en maður getur tal-
izt fullorðin manneskja.”
Hayley bjó áður hjá foreldrum
sinum úti í Richmond, nokkru
fyrir utan London. „En ég var allt
af að nauða á þeim að leyfa mér
að fá íbúð sjálf. Ekki svo að
skilja, að okkur hafi komið illa
saman — nei, þvert á móti, ég
get ekki hugsað mér sameinaðri
og ástríkari fjölskyldu en okkar.
En mig langaði að spila upp á
eigin spýtur.
„Pabbi og mamma voru alveg
á móti því til að byrja með. En
svo þurfti pabbi að fara til Holly-
wood að leika í nýrri mynd, og
auðvitað vildi mamma fara með
honum. Hún fer alltaf með hvert
sem hann fer. Það þýddi, að við
Jonathan hefðum orðið ein eftir
í þessu risahúsi þar sem maður
verður að labba níu hundruð
tröppur eða svo til að komast í
cldhúsið, ef hann langar að sjóða
sér egg eða smyrja brauðsneið.
„Þá er einhver munur að at-
hafna sig í þessari pínulitlu í-
búð, þar sem maður verður að
ganga út á hlið eins og krabbi til
að reka sig ekki á veggi eða hús-
gögn. í Richmond höfðum við nóga
húshjálp, en hér geri ég allt
sjá'lf. Mér finnst það skemmtileg
tilbreyting. Ég býð vinum mínum
í mat, og ég hef gaman af að
vera eldabuska, þó að ég sé eng-
inn snillingskokkur.”
Hayley verður að hugsa um lín-
urnar, því að kvikmyndastjörnur
mega aldrei verða grammi of
þungar, og í rauninni þurfa þær
alltaf að vera fimm kílóum fyrir
neðan eðlilega þyngd, vegna
þess að kvikmyndavélin sýnir
þær breiðari á tjaldinu en þær
eru í raun og veru.
„Kvikmyndavélin getur verið
ægileg,” segir Hayley. „Ég þurfti
að leika eitt nektaratriði í The
Family Way, og þá fann ég það'
bezt. Ég sat í eins konar setu-
baðkeri, atriðið var mjög vel tek-
ið og ekki á neinn hátt hneylcsl-
anlegt, en mér leið alveg hrylli-
lega þegar ég sá sjálfa mig.
. „Mér fannst ég eins og fugla-
hræða, ekkert nema bein og þau
útistandandi eins og ég veit ekki
hvað. Ég varð að megra mig fyrir
myndina, af því að ég var of
búlduleit, en þegar kinnarnar voru
orðnar sæmilega innfallnar var
ég líka orðin grindhoruð.
„Það sem fór alveg með mig í
því atriði var einn af ljósamönn-
unum sem sat uppi á palli hátt
fyrir ofan mig. Þarna sat ég í
baðkerinu allsnakin, og þarna sat
pilturinn fyrir ofan mig — og las
dagblað. Ég get svarið, að hann
leit ekki upp úr því eitt augna-
blik.
„Þetta fannst mér fullmikið
af því góða. Ég hugsaði með mér
bálvond: ,Ja hérna! Hef ég þá
alls engan kynþokka? Hér sit ég
allsber í baðinu, og hann lítur
ekki upp úr krossgátunni sinni!’
Þá þóttist ég vita, að ég myndi
aldrei slá út Sofiu Lören eða
Framhald á 13. síðu.
Ný sending
af Terrylene kápum
og hötfum
BERNHARD LAXDAL
Kjörgarði.
Gagnfræðaskóli Garðahrepps
óskar eftir að ráða kennara í íslenzku og er-
lendum tungumálum. Óskir umsækjenda um
sérstaka fyrirgreiðslu þurfa að berast skóla-
nefnd fyrir 1. júlí n.k.
Nánari upplýsingar gefur skólastjórinn, Gunn-
laugur Sigurðsson, sími 51984 eða formaður
skólanefndar, séra Bragi Friðriksson, sími
50839.
SKÓLANEFND.
HÚSEIGENDUR
Tökum að okkur að annast frágang lóða, svo
sem gangstéttalögn, hellur eða steypu. Kant-
steinslögn og steypu, jarðvegsskipti, frá-
rennslislagnir og malbikun með útleggjara og
vibrovaltara.
Vönduð vinna á vægu verði. — Leitið tækni-
legra upplýsinga og tilboða í síma 36454 —
milli kl. 13 og 18,30.
Heimasímar: 37824 — 37757 — 41290.
HLAÐPRÝÐI HF.
Sænska harðplastið
PERSTORP
PLATTAN
hefur hlotið gæðaviðurkenninguna.
Ávallt fyrirliggjandi í miklu litavali.
Getum útvegað hentugar stærðir til
álímingar á hurðir.
PLASTSKÚFFUR ásamt RENNIBRAUTUM.
í fataskápa og eldhús.
MJÖG IIAGSTÆTT VERÐ.
SMIÐJUBÚÐIN
Háteigsvegi — Sími 21222.