Alþýðublaðið - 24.06.1967, Síða 1
Laugardagur 24. júní 1967 - 48. árg. 205. tbl. - VERÐ 7 KR.
Fyrsta þota íslendinga,
nýja Boeing 727C 'þota Flugfé-
lags íslands kemur til landsins
dag og er áætlað, að vélin lendi
á Reykjavíkurflugvellí klukkan
laust eftir fjögur. Tekið verður
á móti liinni nýju flugvél með
liátíðlegri athöfn á flugvellinum;
Lúðrasveit leikur, Birgir Kjar-
an formaður stjórnar Flugfélags
íslands, flytur ávarp, flugvélinni
Eins og fram hefur komið
í fréttum er Boeing 727 þot
an búin þeim eigjnleikum
áð nota styttri flughrautir
til flugtaks og lendingar en
aðrar gerðir þota. Flughraði
hennar er hinsvegar mikill,
um 965 km á klst. 1 25 þús.
feta hæð. Á fmgleiðum
Flugfélags íslands milli landa
mun þotan fljúga í 25 þús.
feta til 35 þús. feta hæð
(10.688 km.).
Flugþol Boeing 727 er
Framhald á bls. 14.
hin Iverður gefið nafn, en að því loknu
| syngur Karlakórinn Fóstbræður
þjóðsönginn. Loks flytja svo Ing-
;ó!fur Jónsson, flugmálaráðherra.
og Örn Ó. Johnson, forstjóri
FÍ„ ræður. Flugstjóri verður
Jóhannes R. Snorrason, yfir-flug-
stióri Flugfélagsins.
Eins og frá var sagt í fréttum
á sínum tíma, ákvað Flugfélag
íslands eftir margháttaðar athug-
anir, útreikninga og áætlunar-
gerðir, að kaupa þotu af gerð-
inni 727, þar sem hún hentaði
þörfum Flugfélagsins betur en
aðrar gerðir sem nú eru í notkun
Samið var við flugvélaverk-
smiðjur Boeing í Seattle um kaup
á einni slíkri flugvél, ríkisábyrgð
ar lertað fyrir miklum hluta and-
virðisins, en annað greiddi Flug-
félagið sjálft af eigin fé og með
stuttum lánum. í fyrstu var áætl
að að nýja þotan kæmi til lands-
ins um mánaðamótin maí —
júní, en vegna tafa og seínkana
á ýmsum hlutum til flugvélar-
innar, tilkynntu Boeing verk-
smiðjurnar fyrir um það bil hálfu
ári síðan aS veruleg seinkun yrði
á afhendingu. Var búist við að
seinkunin yrðj að minnsta kosti
einn mánuður. Þotan myndi þá
Framhald é 15. síðu.
Emil Jónsson, utanríkisráðherra, heilsar Willy Brandt, utanríkisráðherra Vestur-Þýzkalands. Frú Brandt
er að koma niður stigann.
WILLY Brandt, utanríkisráð-
herra Vestur-Þýzkalands kom í
opinbera heimsókn til Reykjavík-
ur í gærkvöld, en hann er nú á
ferðalagi um Norðuriönd. Hingað
kom Willy Brandth frá Stokk-
hólmi, en héðan fer hann til
Oslóar, sem er síðasti viðkomu-
staðurinn í þessari ferð.
Aætlað hafði verið, að utanrík-
isráðherrann kæmi hingað með
þotu og lenti á Keflavíkurflug-
velli, en af ófyrirsjáanlegum á-
stæðum gat ekki orðið af því.
Þess í stað flaug hann með flug-
vél af gerðinni Dc 6, og lenti
hún á Reykjavíkurflugvelli klukk
an rúmlega sjö í gærkvöldi.
Á Reykjavíkurflugvelli voru
mættir til að taka ó móti ráðherr
anum Emil Jónsgon, Henning
Thomsen, sendiherra V.-Þýzkal.,
Agnar Kl. Jónsson, rtáðuneytis-
stjóri, PáU Ásg. Tryggvason,
deildarstjóri, Bjami Guðmunds-
son, blaðafulltrúi og fleiri.
Þegar Brandt og föruneyti
hafði gengið út úr flugvélinni og !
heilsað, sagði hann fáein orð við
fréttamenn, sem þarna voru
staddir.
Hann kvaðst lengi hafa haft á-
huga á því að koma til íslands og
því þætti honum einstaklega
ánægjulegt, að hafa farið þessa
ferð til Norðurlanda, en þetta
væri jafnframt fyrsta heimsókn
hans til íslands.
Ég mun með lánægju svara öll-
um þeim spurningum, sem kunna
að verða lagðar fyrir mig, varð-
andi málefni Evrópu. Þá er ég
! einnig reiðubúinn að ræða ýmis
Framhald á bls. 14.