Alþýðublaðið - 24.06.1967, Blaðsíða 3
HVATT TIL ALSHERJAR-
VERKFALLSI HONGKONG
HONGKONG, 23. júní.
Pekingsinnaðir Kínverjar í
Hongkong hófu í dag nýja toar-
Þing Flug-
málðfélags
Islands
ANNAI) landsþing, Flugmála-
félags íslands hófst í Oddfellow-
húsinu uppi í gær. Fór þá fram
kosning kjörbréfanefndar, svo
og þingforseta og þingritara. For
seti Flugmálafélagsins, Baldvin
Jónssón, hæstaréttarlögmaður,
flutti skýrslu félagsstjórnar og
lagðir voru fram endurskoðaðir
reikningar félagsins.
Þá voru teknar fyrir skýrslur
ýmissa nefnda félagsins, svo sem
svifflugnefndar, vélflugunefndar
og failhlífarstökksnefndar og loks
voru 7 fulltrúar kosnir í allsherj-
arnefnd þingsins.
Þinginu verður haldið áfram
og verða þá umræður um skýrslur
nefndanna, þingnefndir skila
störfum. Loks fer fram kosning
stjórnar og ákvörðun næsta fund-
arstaðar.
Hvalveiöar
AF Rogalandi í Noregi berast
þær fréttir, að 'hvalveiðimóð-
urskipið Kosmos IV., sem nota
ó sem fljótandi síldarbræðslu
við ísland í sumar, leggi af
stað til miðanna miðvikudag-
inn 28. júní. Alls verða á skip-
inu 130 til 140 manns, þar af
um 70 manns, sem vinna við
iþjónustu um borð, af þeim eru
um 20 konur.
áttu gegn brezkum yfirvöldum í
nýlendunni og hvöttu menn til
að gera allsherjarverkfall á morg
un. Jafnframt gerðu stjórnarvöld
in tilraun til að fá opinbera
starfsmenn lá sitt band og fá þá
til að taka þátt í verkfallinu. Var
bæði útvarpað og sjónvarpað
áskorunum til opinberra starfs-
manna, einkum þeirra er stárfa
að flutningamálum.
Blöðin heimtuðu verkfall, og
telja opinberir aðilar það vera
tilraun til að „bjarga andlitinu"
vegna hinna misheppnuöu til-
rauna fyrr í sumar til að æsa til
verkfalla.
Yfirvöldin hafa brugðið á það
ráð að heita eins konar „tryggðar
verðlaunum“ þeim opinberu
starfsmönnum sem ekki leggja
niður vinnu sína á morgun, en
Iþað munu vera um 30.000 manns.
Hins vegar hafa kommúnistar lof
að þeim 500 Hongkong-dollurum
hverjum fyrir að leggja niður
vinnu sína.
óhagstæð
Vöruskiptajöfnuðurinn við út-
lönd var óhagstæður um 228,6
milljónir í maímánuðj sl. og er
vöruskiptajöfnuðurinn þá orðinn
óhagstæður um 620 milljónir á
fyrstu- fimm mánuðum ársins.
í maí var flutt inn fyrir 602,9
mjlljónir. en út fyrir 374,2 millj-
ónir. Til maíloka í fyrra hafði
\crið flutt út fyrir 2.269,4 millj-
ónir, en á sama tíma í ár fyrir
aðeins 1.801,5 milljónir, og er mun
urinn nærri því að vera sá sami
og hvað jöfnuðurinn er miklu ó-
hagstæðari í ár eða um 500 millj
VILJA AUKA ÞJOÐ-
ERNISLEGT UPPELDI
Á fundi skólastjóra héraðs-
mið- og gagnfræðaskóla, sem
getið var um hér í blaðinu á
föstudaginn, var gerð eftirfar-
andt ályktun:
1. Fundur skólastjóra héraðs-
mið- og gagnfræðaskóla,
haldinn í Borgarnesi 18.-20.
júní 1967, ályktar, að leggja
beri aukna áherzlu á þjóð-
ernislegt uppeldi og hvetur
alla skólamenn og aðra upp-
alendur til að leggja þess-
um málum lið.
2. Jafnframt bendir fundurinn
á nauðsyn þess, að fram fari
rækileg könnun, annars veg-
ar á stöðu íslenzkrar tungu
og menningar meðal uppvax
andi kynslóðar og hins veg-
ar ítökum erlendra áhrifa.
3. Fundurinn væntir þess, að
yfirvöld fræðslumála láti
fram fara ýtralega athugun
á þessum efnum og beiti sér
síðan fyrir þeim ráðstöfun-
um, er nauðsynlegar þykja.
ÁÆTLUN HALDIÐ
STRAUMSVÍK
STJÓRN íslcnzka álfélagsins
bauð í gær fréttamönnum að
skoða framkvæmdir þær, sem
þegar eru hafnar við Straums-
vík til undirbúnings smíði álverk-
smiðju þar. Þegar er búið að
slétta mestan hluta athafnasvæö-
isins, en ennþá er unnið á aust-
asta hluta þess, og verður því
verki sennilega lökið innan m.án-
aðar. Þá er byrjaö að aka upp-
fyllingarefni í væntanlega
bryggju og liefst vinna af full-
um krafti við hana fljótlega.
Af húsum á svæðinu er þeg-
ar byrjað að reisa tvo 80 metra
langa svefnskála fyrir starfs-
menn við væntanlegar fram-
kvæmdir, og ennfremur er unnið
að byggingu mötuneytis og skrif-
stofuhúss. Þessar framkvæmdir
eru hinar athyglisverðustu, enda
allar gerðir úr stöðluðum eining-
um, gerðum af kanadísku fyrir-
tæki vestur í Alberta. Hver ein-
ing kemur sér í kassa að vestan
og er hún tvö herbergi og gangur
á milli. Allt fylgir með, gluggar,
lofthitunartæki, salernis- og bað-
Togarinn Marz var tek-
inn í landhelgi í fyrraaag
austur af Hvalsnesi. Málið ^
var tekið fyrir hjá bæjarfó-
getanum á Neskaupstað og
var skipstjórinn fundinn
þús öxig
sekur og gert að greiða 400
Framhald á 15. síðu.
tæki, tveir skápar í hverju her-
bergi, fjaðrarúm og dýna. Tók 10
vikur að reisa Skálana, en enn-
þá er þó unnið við þá inni. Skál
arnir eru úr tré og standa á
steinsteyptum stöplum. Fyrirhug-
að er að flytja skálana burtu, þeg
ar byggingarframkvæmdum í
Straumsvík er lokið.
Þegar í næsta mánuði verður
hafizt handa um að steypa undir-
stöður verksmiðjubygginganna,
og gat Halldór H. Jónsson,
stjómarformaður ísal, þess. að í
undirstöðumar mundu fara um
50.000 rúmmetrar af steypu, en
það er svipað því steypumagni,
sem fer í allar byggingar í
Reykjavík á heilu ári.
Álbræðslan sjálf verður í
lengsta húsi á íslandi. Það verð-
j ur 640 metrar að lengd eða rúm-
ur hálfur kílómetri. í því húsi
verður hægt að framleiða 30.000
tonn af áli á ári, en annað hús,
jafnlangt, verður væntanlega
byggt við hlið þess, þar sem
framleiða má sama magn. Gat
Halldór þess, að áætlaður heild-
arkostnaður við verksmiðjuna,
miðað við 60.000 tonna ársafköst,
væri tveir og hálfur milljarður
króna.
Starfsmenn verksmiðjunnar
verða um 500 talsins, þegar hún
er komin í full afköst, og verða
starfsmennirnir flestir íslending-
ar. Þegar er búið að ráða nokkuð
af mönnum til starfa, en fleiri
verða ráðnir á næstunni og verða
þeir allir sendir utan til þjiálfun-
ar í verksmiðjum sem þessari.
I Framhald 'á 15. síöu.
A.S.Í.mótmæl
ir gerðardómi
Eftirfarandi raótmæli samþykkti
miðstjórn Alþýðusambands íslands
á fundi sínum þ. 22. júní sl. í til-
efni af gerðardómslögum útg. 16.
júní sl. um bann við vinnustöðv-
un félaga innan Farmanna- og
fiskimannasambands íslands:
„Miðstjórn Alþýðusambands ís-
lands mótmælir harðlega setningu
bráðabirgðalaga þeirra, sem út
voru gefin hinn 16. júní síðastlið-
inn og bönnuðu löglegt verkfall
yfirmanna á kaupskipaflotanum
Er hér enn ráðizt á helgan rétt
stéttarsamtakanna og freklega
brotið gegn anda laganna um stétt
arfélög og vinnudeilur.
Er það álit miðstjórnar, að eng-
inn vandi hafi verið leystur með
setningu bráðabirgðalaganna —■
heldur hafi vandamálunum aðeins
verið skotið á frest — enda hafa
félög þau innan Farmanna- og
fiskimannasambands íslands, sem
þessj harkalega ofbeldisaðgerð rík
isvaldsins bitnaði á, þegar ákveð-
ið að verkfallið skuli aftur hefj-
ast frá og með þeim degi, er lög-
in falla úr gildi, ef eigi hafa tek-
izt samningar fyrir þann tíma'í.
24. júní 1967 *• ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3