Alþýðublaðið - 24.06.1967, Síða 5
REYKJAVIK
TOGARARNIR :
Formenn Sjálfsbjargar á ísafirði.
Við ætlum að end-
urbyggja húsið...
FIMM eða sex trillur stunda
nú færaveiðar frá Reykjavík og
hafa aflað vel, þegar gefið hef-
ur. Einnig eru nokkrir smærri
dekkbátar á færum. Aðeins fjór-
ir bátar eru á humar og eru það
Kári Sölmundarson, Smári,
Sjöfn og Geir, en hann landaði
15/6 í Reykjavík 770 kílóum af
slitnum humar. Þessir bátar
landa annars alltaf suður með
sjó, og erfitt að fylgjast með
aflabrögðum þeirra. Einn bátur
er á trolli héðan, þ. e. Blakkur
og landaði hann 19/6 11.380 kg.
og aftur 21/6 12.260 kg. Krist-
björg er að útbúa sig á troll.
Lítill spenningur er hjá sjó-
mönnum fyrir kolanum núna
vegna þess hve lítið verð er á
honum og hirða þeir ekki nema
það skársta af honum. Mun
verðfall á markaði í Englandi
vera orsökin.
snurv. færi 15/6 16/6
Skógarfoss X 0.630
Fróðj X 5.660
Ásbjörg X 9.430
Víkingur X 1.390 2.030
Bliki X
ísl. II. X
Ásbjörg X
Valur X 3.730
Jón Bjarnas. X
Þór Ólafss. X 4.940
Hafnarberg X
Hamar X
Vísir X
Sleipnir X
Léttfeti X
Kristbjörg X
Snurvoðabátarnir eru yfirleitt'
tvær nætur og einn dag í róðri
eða um 36 tírna, því að þeim er
skammtaður hámarkstími. Sára-
lítið af afla þeirra er koli, Hafn-
arbergið var með mest' í einum
róðri eða 2,5 tonn. 3—4 trillur
eru á snurvoð og hafa fiskað
sæmilega. Pétur Sigurðsson er á
línu við Græniand og hefur
gengið nokkuð vel og er ekki
að vita eftir lélega byrjun á
síidveiðunum það sem af er, að
fleiri bátar snúi sér að því næsta
ár.
íslenzku togararnir hafa ver-
ið mjög heppnir með sölur sín-
ar í Englandi undanfarið, því
markaðurinn er mjög misjafn
frá degi til dags. Karlsefni, sem
gengið hefur mjög vel undanfar-
ið seldi 19/6 og 20/6 215 tonn
fyrir £18.206 og Júpíter 20/6 og
21/6 178 tonn fyrir £17.811.
Marz selur á mánud.; er með 410
tonn þar af um helmingur ýsa.
Úranus fór beint á' veiðar frá
Englandi, þar sem hann seldi á
fimmtudag í fyrrí viku fyrir rúm
£11.000.
Egill Skallagrímsson landaði
í Reykjavík 19/6 281,8 tonnum,
eða fullfermi, þar voru 264 tonn
af karfa. Og þá gerði Þormóður
Goði einn stórtúrinn í viðbót,
landaði 442.160 tonnum, þar af
var karfi 427 tonn. Er Þormóð-
ur þá búinn að fá yfir 1700 tonn
á rúmum tVeimur mábiuðum.
19/6 20/6 21/6 22/6 alls
6.870 4.700 1.230 5.190 18.620
4.410 7.010 17.080
8.450 7.400 25.280
7.490 7.630 18.540
1.400 1.030 2.550 4.980
10.010 10.010
11.730 6.430 18.160
6.380 10.110
5.500 0.740 6.240
3.970 10.310 19.220
5.000 5.000
10.390 10.390
1.070 1.070
5.150 5.150
1.030 1.030
4.270 4.270
Víkingur var með 390 tonn á
Akranesi, og eins og allir vita
var Maí í Hafnarfirði með um
580 lestir. Þessir þrír togarar eru
örugglega aflahæstu skipin hér-
lendis frá áramótum. Tryggva
Ófeigssyni hefði örugglega verið
óhætt að minnast á Þormóð
Goða í grein sinni í Morgunblað-
inu þann 21/6 sl. Hann er
þekktur fyrir að skíta Bæjarút-
gerð Reykjavíkur út á' alla
enda og kanta, enda metinn af
bæjarbúum samkvæmt því. í
umræddri grein Tryggva talaði
hann um „hina snjöllu grein
Einars Sigurðssonar 26/2 1967
um tap togara.” Ef ég man rétt'
voru allar þær tölur sem þar
birtust ágizkun og því í ósköp-
unum birta ekki annað hvort
Tryggvi Ófeigsson eða Einar
Sigurðsson nákvæmar tölur úr
einum túr hjá einhverjum tog-
ara sinna. Einar á nákvæmlega
eins skip og togarann Mai, sem
var til umræðu í umræddri
grein, svo að honum ættu að
vera hæg heimatökin hvað það j
snertir. Einum lið sem Einar I
reiknaði með í þessari grein, þ. ^
e. afborganir, svo og hvernig
útkoman er hjá einkafyrirtækj-
unum sem reka togaraútgerð
hafa allir landsmenn áhuga á.
Enginn efast um erfiðleika tog-
araútgerðarinnar og þar þurfa
víðtækar breytingar að eiga sér
'stað, t. d. varðandi vökulögin og
gagnvart fækkun manna í vélar-
rúmi, ef einhver glóra á að vera
í þessari útgerð í framtíðinni.
Þar sem Tryggvi er sifellt að
tönnlast á tapi togara Bæjar-
útgerðarinnar hvar sem hann
fær því við komið, því í ósköp-
unum birtir hann ekki reikninga
yfir snillirekstur einkaframtaks-
ins og engum dettur í hug að
segja, að hann hafi ekki einna
bezt vit allra manna hérlendra
á' rekstri togara. Bæjarútgerðin
gæti á móti sýnt fram á rekst-
ur Ingólfs Arnarsonar frá komu
hans til landsins, því hann er
keyptur á sömu kjörum og þrír
af togurum Tryggva, en hverjir
eru á innlendum og hverjir á
erlendum lánum hefur Tryggvi
viljandi alveg sleppt alls staðar,
því eins og allir vita, hefur hver
gengislækkun af annarri ásamt
öðru hjálpað til þess að útkoma
þeirra togara sem eru með er-
lend lán áhvílandi gersam-
lega útilokað hallalausa út-
komu. Ingólfur Arnarson er elzti
nýsköpunartogari íslendinga og
hefur alla tíð verið hið mesta
gæfuskip og ekki þætti mér ó-
líklegt að Tryggvi væri stoltur
af því að hafa átt hann, en
Framhald á bls. 10.
Á 9. ÞINGI Sjálfsbjargar
hitti ég að máli formann og
varaformann Sjálfsbjargar á ísa
firði, Ingibjörgu Magnúsdóttur
og Helgu Marselliusdóttur, og
spurði þær frétta að vestan.
Hvenær var félagið Sjálfs-
björg stofnað á ísafirði?
Það var stofnað 29. sept. 1958.
Og þið eruð auðvitað báðar
stofnfélagar?
Já, svarar Ingibjörg. Það var
dag einn að til mín hringdi
bráðókunnur maður úr Reykja
vík, og spurði, hvort ég vtldi
ekkj vera með að stofna félag
fatlaðra á ísafirði. Maðurinn
var Sigursveinn D. Krist-
insson, frumkvöðull að stofnun
þessara félaga. Það kom tölu-
vert á mig, því að ég vissi ekki
um neinn fatlaðan á ísafirði
nema mig, en ég lofaði að at-
huga málið. Og þegar betur var
að gáð, reyndust fleiri fatlaðir
en ég bjóst við. Varð svo að
samkomulagi að Sigursveinn
kom vestur og var á stofnfund
inum.
Hvað voru stofnendurnir marg
ir?
Þei-r voru 32.
Og hve margir eru félag-
arnir núna?
(
Virkir félagar eru 67, en
styrktarfélagar 65.
Nú var til Styrktarfélag laln
aðra og fatlaðra. Þið hafið t3l-
ið heppilegra að stofnað væri
félag, sem saman stæði ein-
göngu af fötluðu fólki? 1 :
Við álítum það heppilegra, að
fólk, sem er fatlað, vinni sjálft
að framgangi sinna mála, þVí
að hver veit betur hvar skórinn
kreppir en fatlaða fólkið sjálft?
Auk þess starfar Styrkarfélag
lamaðra og fatlaðra aðeins í
Reykjavík, en deildir Sjálfs-
bjargar eru nú orðnar 10 víðs
vegar um landið og næst þann
ig til miklu fleira fólks.
Hvað um árangurinn?
Árangurinn má teljast mjög
góður. Aðalatriðið er, að við
höfum fengið fatlað fólk til þess
að koma saman, blanda geði og
vinna saman. í félagi við Berkla
vörn á ísafirði keyptum við svo
húsið að Mjallargötu 5, flutt-
um þangað vinnustofu okkar og
rekum hana þar ásamt verzlun
í félagj við Berklavörn. Þar hef
ur fatlað fólk unnið öll störf.
Þið urðuð fyrir tilfinnanlegu
tjóni vegna eldsvoða í húsnæði
félagsins á sl. vetri Veldur það
Frh. á 10. síðu.
Þing SJálfsbjargar í Hverageröi
9. ÞING Sjálfsbjargar, landssam
bands fatlaðra, var haldið I
Hveragerði dagana 3.-5. júní.
Mættir voru 43 fulltrúar frá
10 félagsdeildum víðsvegar að af
landinu
Þingsetning fór fram laugar
daginn 3. júní kl. 14., og var
þar margt gesta auk þingfull-
trúa. Formaður Sjálfsbjargar í
Ámessýslu, Þórður Jóhannsson,
bauð alla velkomna og fagnaði
því, að eitt fámennasta félag
samtakanna hefði fengið tæki
færi til þess að standa fyrir
þingi, og vonaðist hann til að
öll störf þingsins mættu verða
sem árangursríkust.
Theodór A. Jónsson flutti á-
varp og setti þingið. Þá var
kosið í kjörbréfanefnd og fundi
slitið meðan hún starfaði í
fundarhléinu var kaffi fram bor
ið og meðan setið var undir
borðum rifjaðj Sigursveinn D.
Kristinsson upp tildrögin að
stofnun fyrstu Sjálfsbjargarfé-
Kl. 16 var aftur gengið til dag
skrár. Þingforsetar vom þá
kosnir Þórður Jóhannsson og Sig
ursveinn D. Kristinsson. Síðan
voru fluttar skýrslur sambands
stjórnar, sambandsfélaga og frá
Öryrkjabandalagi íslands. Að
þeim loknum fór fram kosning
fastanefnda og hafði frjí Guð
ný Bjarnadóttir framsögu fyrir
atvinnu og félagsmálum, en Sig
ursveinn D. Kristinsson fyrir
tryggingamálum Urður miklar
umræður og lauk fundi ekki
fyrr en skömmu fyrir miðnætti.
Árla næsta morgunn hófust
nefndarstörf, sem stóðu fram að
hádegi. Að loknum hádegisverði
bauð hreppsnefnd Hveragerðis-
hrepps þingfulltrúum til Þing-
valla. Var ferðin mjög ánægju-
leg. Um lcvöldið bauð hrepps-
nefndin til kvöldverðar í Hótel
Hveragerði. Þar voru mörg á-
vörp flutt og sátu fulltrúar þar
í góðum fagnaði fram eftir
kvöldi.
Á mánudagsmorgun hófust
þingfundir kl 10 og voru fyrst
tekjn fyrir álit nefnda. Miklar
umræður urðu um þau og varð
afgreiðslu þeirra ekki lokið fyrr
en síðla dags. Fór þá fram stjóm
arkosning og kosning fram-
kvæmdaráðs. Er framkvæmdaráð
þannig skipað: Theodór A. Jóns
son, form. Zophanías Benedikts
son, varaform., Ólöf Ríkharðs-
dóttir, ritari, Eiríkur Einarsson,
gjaldkeri
Sigurður Guðmundsson, for-
maður Sjálfsbjargar í Reykja-
vík, bauð að næsta þing yrði
haldið í Reykjavík. Var því tek
ið með lófataki.
Að lokum ávarpaði Theodór
Jónsson þingfulltrúi, þakkaði
það traust, sem honum hefði
verið sýnt. Einnig þakkaði hann
starfsmönnum þingsins störf
þeirra og öllum góða fundar-
setu. Síðan var 9. þingi Sjálfs
bjargar slitið
24. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5