Alþýðublaðið - 11.08.1967, Page 3
Flugíélag íslands vakti áhuga Færeyinga á flugmálum
r
Marius Johannesen.
Færeyjar ■5
Flug til Færeyja tekur aSeins tvær stundir.
Faereyjaför er þvi ódýrosta utonlondsferðin,
se.m (slendingum stendur til boða.
ÞaS er samróma ólit þeirrc, sem gist hafa
Færeyjar, að nóttúrufegurð sé þar mikil og þar
búi óvenju gestrisið og skemmtilegt fólk.
Fokker Friendship skrúfuþoto Flugfélogsins
flýgur fvisvor í viku P
frá Reykjavik til Fær-1
eyja, á sunnudögum |
og þriðjudögum. •
Leitio ekki langt yfir skammt •
Fasreyja í sumarfríinu.
fujcFélag Tslaívds
ICELANDAIR
J
Um þessar mundir stendur yf-
ir norrænt æskulýðsmót, sem er
sótt af meira en 300 ungum
mönnum og konum frá hinum
Norðurlöndunum.
Mót þetta ætti að verða til
þess, að auka þekkingu itngra
Norðurlandabfta á íslandi og ís-
lendingum og bæta norræna
samvinnu.
Skilningur almennings á ís-
landi á norrænu samstarfi er
mikill og íslendingar hafa hóp-
ast til Danmerkur, Noregs og
Svíþjóðar undan farin ár og eru
nú einnig farnir að venja kom-
ur sínar til Finnlands og Fær-
eyja.
Færeyjar, þessi nágranni okk-
ar í Atlanzhafi hafa til skamms
tíma verið lítt sóttar heim af
íslenzkum ferðamönnum, þó að
mikil breyting hafi orðið á síð-
ustu tímum.
Við ákváðum því, að ræða
við færeyskan fulltrúa á Nor-
ræna Æskulýðsmótinu og mælt-
um okkur mót við Marius Jo-
hannescn í forsalnum á Hótel
Sögu.
Okkur langaði til að fræðast
um viðhorf og vandamál Fær-
eyinga viðvíkjandi mjög aukn-
um straumi ferðamanna til Fær-
eyja.
— Hvernig er aðstaða ykkar
til að taka á móti ferðamönnum?
— Okkur skortir mjög hótel-
rúm í Færeyjum og hefur það
verið all mikið vandamál, sem
nú stendur til bóta, þar sem
verið er að reisa hótel í Þórs-
höfn, sem verður helmingi
stærra en það, sem fyrir er.
Ferðamannafélag Færeyja hefur
bæði gert sitt til að auka ferða
mannastrauminn og til að út-
vega ferðamönnum gistingu í
heimahúsum.
— Hefur þetta reynst nægi-
legt?
— Nei, sem stendur eigum
við erfitt með að taka á móti
öllum þeim, sem koma í heim-
sókn til okkar.
— Hver er afstaða yðar til
aukins og vaxandi ferðamanna-
straums?
— Ég veðr nú að játa það,
að persónulega er ég mjög and-
stæður þeirri þróun, sem það
mál hefur tekið í Færeyjum og
vildi gjarnan vera laus við
ferðamennina að mestu Hins
vegar er ég meðlimur í Ferða-
mannafélagi Færeyja og ég veit
að nausyn er að auka komu
ferðamanna til Færeyja og það
vegna gjaldeyris þess, sem
þannig fæst og er nauðsyrilegur
fyrir okkur Færeyinga sem og
til að vekja áhuga annarra þjóða
á Færeyjum og vandamálum
þeirra.
— Hverrar þjóðar eru ferða-
•mennirnir helzt?
, — Til okkar koma menn frá
mörgum þjóðum, sérstaklega ís-
lendingar. Englendingar koma
líka mikið og veiða í vötnum
okkar.
— Hvað veiðist helzt þar?
— Urriði, sem við köllum
„sil“ í Færeyjum.
Meðan við sátum í anddyrinu
á Hótel Sögu fór að verða all
ónæðissamt. Matartíminn var
senn á enda og þátttakendur
í mótinu streymdu niður stig-
ann.
Mikill meiri hluti þeirra virt-
ist eiga erndi við Marius. Sam
tal okkar rofnaði hvað eftir
annað, þegar einhver birtist fyr-
ir framan okkur og reyndi að
mæla sér mót við Marius ann-
aðhvort síðar eða þá mjög fljót-
lega. •••*•*'••
Upplýsingar þær, sem við
fengum urðu því ekki jafn mikl
ar og ýtralegar og ella hfeði
orðið.
Svona er að tala við önnum
kafinn fulltrúa á Æskulýðsþingi
í matartímanum.
— Virðist yður íslendingar
koma fremur á einum tíma árs
en öðrum til Færeyja?
— Tvímælalaust. íslendingar
hafa uppgötvað Ólafsvökuna, ef
svo mætti segja. En Ólafsvak-
an er nokkurskonar þjóðhátíð
Færeyinga og haldin í júlí. Rétt
áður en ég fór hingað hitti ég
26 Akureyringa í Færeyjum.
— Var ekki erfitt að útvega
húsnæði fyrir allan þann hóp?
— Þeir fengu inni í Lýðhá-
skólanum, sem ég er skólastjóri
fyrir.
— Komu þeir fljúgandi eða
með skipi?
— Þeir komu fljúgandi og
lentu á flugvellinum í Vogey.
Hinsvegar koma margir ísledn-
ingar hingað á vegum Samein-
aða Gufuskipafélagsins með
„Kronprins Friðrik" Þeir fara
í land í Færeyjum og dvelja
þar meðan skipið fer til Kaup-
mannahafnar og aftur tiJ Fær-
eyja.
— Virðist yður samskipti ís-
lendinga og Færeyinga hafa auk
ist við aukin kynni íslendinga
af Færeyjum?
— Já. mjög mikið óg þá sérr
staklega samvinna íþrótta-
manna. íslenzkir knattspymu-
menn hafa komið til Færeyja
og færeyskir til íslands og keppt
þar í knattspyrnu við mikla og
almenna ánægju og hrifningu
heima fyrir.
— Ferðast Færeyingar mikið?
— Því er eins um þá varið
og íslendifnga, að báðar þjóðir
búa á afskekktum eylöndum og
þurfa því að ferðast langar leið-
ir til að komast til annarra
landa. Útþráin virðist báðum í
blóð borin. Færeyingar hafa
líka alltaf sótt á fjarlæg mið
til starfa og þá bæði til íslands
og Grænlands. Þetta er aðal-
lega á vetrarvertíð og ólíkt
betra að komast flugleiðis á
áfangastað en velkjast um á sjó
í yfirfullu skipi oft meira eða
minna lerkaðir og lemstraðiri
— Hvenær og hvernig var
Flugfélag Færeyja stofnað og
hvenær hófust reglubundnnr
fiugsamgöngur við Færeyjar?
— Það vfjr árið 1963, sem
Flugfélag íslands, hóf samgöng
um í samvinnu við Flugfélág
Færeyja.
Það er fyllsta ástæða til að
þaljka íslendingum og þá sér í
lagi Flugfélagi íslands fyrir það
forustuhlutverk, sem það hefr-
ur haft með höndum í færeysk-
um flugmálum.
Þó að Flugfélag Færeyja hafi
skrifstofur sínar í Þórshöfn cr
flugvöllurinn í Vogey, en þar
var fyrir gamall herflugvöllur,
sem hefur verið lagfærður mjög.
Það var Flugfélag íslands,
sem vakti áhuga Færeyipga á
flugmálum og gerði þeim unnt
að komast á skömmum tíma til
Bergen, Kaupmannahafnar Glas
gow og Reykjavíkur
Hinsvegar er því ekki nð'
neita, að nauðsynlegt verður fyr-
ir Færeyinga að eignast eiginn
flugflota og mikið hefur verið
um það' rætt í Færeyjum nð
stofna „Flugsamband Færey-
inga“.
Nú gálum við ekki fóðrað þnð
lengur fyrir okkur að tefja þenn
an önnum kafna mann og kvödd
um því Marius Johannessen með
kurt og pí og þeirri ósk að
samstarf islendinga og Færey-
inga megi ætíð verða sem mest
og bezt.
11. ágúst 1967 - HELGARBL.AÐIÐ ^