Alþýðublaðið - 31.08.1967, Blaðsíða 2
Doktorspróf
mannfræ
JENS PÁLSSON, mannfræðingur,
lauk þann 26. júlí s. I. doktors-
prófi í mannfræði (anthropology)
við náttúrufræðideild háskólans i
Mainz í Þýzkalandi, með mjög
lofsamlegum vitnisburði (magna
cum laude).
Doktorsritgerð Jens Pálssonar
nefnist „Anthropologjsche Unter-
suchungen in Island, unter beson
derer Beriicksichtigung des Ver-
gleiehs mit den Herkuntslándern
der islándischen Siedler“. Þetta
er allmikiS rit, sem innifelur m. a.
176 töflur, iínurit og kort. Það
byggist aðallega ó mannfræðirann
sóknum Jens Pálssonar á fullorðn
um íslendingum frá öllum lands-
hlutum íslands, en einnig að
nokkru leyti á rannsóknum, er
hann gerði á Dönum og Norðmönn
um fyrir nokkrum á'rum.
Aðalkaflar ritsins fjalla um sam
anburð mannfræðiiegra einkenna
efti^- landshlutunum á fslandi,
mannfræðilcjja sögu skandinav-
isku landanna og íslands, og að
lokum samanburð íslendinga við
nágrannaþjóðir þeirra.
Jens Pálsson er sonur hjónanna
Páls Ólafssonar frá Hjarðarholti,
fyrrv. ræðismanns íslands í Fær-
eyjum og Hildar Stefánsdóttur frá
• Auðkúlu.
Eftir menntaskólanám í Eeykja
vík fluttist Jens til Danmerkur
árið 1947, en stundaði nám í mann
fræði og þjóðlífsfræði (folklori-
stik) við Uppsalaháskóla í Svíþjóð
árin 1950—1952. Hann var síðan
kennari á íslandi um tíma, en fór
til Bandaríkjanna árið 1955, þar
sem hann nam mannfræði, sögu
og bókmenntir við Kaliförníuhá-
skóla. Hann tók B.A.-próf í mann-
fræðj árið 1957, en stundaði síð-
an framhaldsnám í mannfræði og
mannerfðafræði við Washington-
háskóla í Seattle og tók þar próf
árið 1958.
Síðar lagði hann stund á ýmsar
sérgreinar mannfræðivísinda við
Harvard, Oxford og Mainzháskóla,
en lauk einnig prófi í þjóðfræði
Framhald á bls. 15.
.• P' *■ 'i
M
Kínverjar kenna
Bretum um átökin
Verzlunar-
ráð 50 ára
VERZLUNARRÁÐ íslands á 50
ára afmæii í næsta mánuði og
verður það haldið hátíðlegt með
ýmsum hætti.
Verzlunarráð íslands var stofn
að 17. september 1917. Haldin
verður hátíðarveizla að kvöldi 16.
iseptember, munu m. a. sitja hana
forseti íslands og ríkisstjómin. —
Á afmælisdaginn verður móttaka
Ihjá Verzlunaráðinu. Fulltrúar frá
verzlunarráðum lá Ihinum Noi-ður-
löndunum munu verða ihér á af-
•mælinu. Gefið verður út sérstakt
thátíðarblað með greinum um mál
efni verzlunarstéttarinnar og sögu
verzlunar á íslandi o. fl.
London og Hongkong 30/8 (NTB-
Reuter).
Á sama tíma og brezkir sendi-
ráðsstarfsmenn í Peking urðu fyr-
ir nýjum árásum reiðra, rauðra
varðliða, buðust brezk yfirvöld til
þess að ræða möguleika á því
að bæta sambúð Breta og Kín-
verja. George Brown, utanríkis-
ráðherra, kom með þetta tilboð
í persónulegri orðsendingu til
starfsbróður síns í Kína, Chen Yi.
Tilboðið var sent í símskeyti til
Peking, og afrit var afhent brezka
sendifulltrúa Kína í Peking, Shen
Ping. Brezkir embættismenn
segja, að tilgangurinn með trún-
aðarbréfi Browns sé, að gera Chen
Yi það ljóst, hve alvarlegum aug-
um brezka stjórnin lítur á nú-
verandi ástand, sem ríkir í sam-
skiptum þessara tveggja þjóða.
Stjórnmálafréttaritarar telja gerð-
ir Browns mjög óvenjulegar.
Sambúð Kína og Bretlands hef-
SILDIN
Hagstætt veður var á síldarmið.
unum SV af Svalbarða sl. sólar-
hring, en lítil veiði.
Kunnugt var um afla 5 skipa,
samtals 755 lestir.
ur aldrei verið verri en nú eftir
ð rauðir varðliðar kveiktu í brezku
sendiráðsbyggingunni í Peking í
fyrri viku og eftir slagsmálin á
milli brezkra lögreglumanna og
kínverskra sendiráðsstarfsmanna í
London í gær.
í dag voru brezkir sendiráðs-
starfsmenn í Peking umkringdir
af að minnsta kosti 1000 rauðum
varðliðum, sem voru æfir yfir at-
burðunum við kínverska sendiráð-
ið í London í gær. í fréttum, sem
borizt hafa til London segir, að
rauðu varðliðamir hafi byrjað að
berja sendiráðsstarfsmenn, en
hermenn hafi þá tekið í taumana.
Rauðu varðliðarnir reyndu að
neyða brezka sendifulltrúann, Don
ald Hopson og aðra sendiráðsstarfs
menn, til þess ?ð beygja höfuð sín
í iðran, en þeir neituðu því.
Til mótmælaaðgerða kom fyrir
utan þau hús, þar. sem brezkir
sendiráðsstarfsmenn liafa nú leit-
að hælis eftir að kvelkt var í
sendiráði þeirra. Þama era 56
Bretar, þar af 15 böm, sem búa
á einkaheimilum.
Atburðum miðvikudaginn (dags-
in í dag) í Peking virðist hafa
FraiUihald á 15. síðu.
Þetta er ekki svifskipið, sem
hér er um þessar mundir, en
einhver ættingi þess mundi
þetta samt vera. Þetta skip er
sovézkt og segir í frétt, sem
fylgdi myndinni til okkar, að
það geti farið bæði á láði og
tegi, alveg eins og hitt skipið.
Hleyptu út föngum
í Suður-Víetnam
Óeirðir í Hongkong
Ráufarhöfn
Gunnar SU
Faxi GK
Harpa RE
Akurey EE
Sóley IS
2 31. ágúst 1967
lestir
180
75
260
140
100
Hongkong, 30/8 (NTB-Reauter).
Lögreglan hóf skothrið á Kín-
verja, sem stofnuðu til óeirða í
Kowloon í Hongkong í kvöld. Að
minnsta kostj tveir menn særðust,
þegar Iögreglan skaut úr skamm-
byssum á mannfjölda, sem ætlaði
að fara að kveikja í og láta dólgs-
Iega. í gær kom til óeirða eftir
að lögreglan hafði sært Kínverja
skotsári. Hófust þá mótinælaað-
gerðir gegn Bretum.
Ferðamenn, sem komnir eru til
Hongkong frá Kína, skýra frá á-
tökum í Canton, þar sem fylgj-
endur Liu Shao-chi-forseta hafa
náð á sitt vald tveimur her-
vögnum frá Mao-sinnum.
Átökin urðu á mánudaginn fyr-
ir utan menningarhöllina x Cant-
on. Herinn hafði liklega fengið
rauðum varðliðum hervagnana í
hendur, en rauðu varðliðarnir
hafa ekkj vitað, hvernig ætti að
nota þessi tæki, að því er sjón-
arvottar sögðu blaðamönnum
blaðsins South China.
Quang Ngai 30. 8. (NTB-Reuter)
Þjóðjrelsisherma-ður hleypti út
1000 föngum, en lét sjálfur lífið,
þegar hann sprengdi dyr hins vel
varða fangelsis í Quang Ngai í
Suður-Víetnam í dag. Hermaður-
inn sprengdi upp dyrnar með
sprengju, sem hann bar á sér. Að
því er hernaðaryfirvöld í Suður-
Víetnam segja, tróðu 30 þjóðfrels-
ishermenn sér inn um uppsprengd
ar dyrnar, en athyglj varðmanna
beindist öll að aðalherbækistöðv-
unum í nágrenninu og aðsetri
bandarískra ráðgjafa fyrir suður-
víetnamskar herdeildir í grennd-
inni, — en þjóðfrelsishermenn
hófu mikla skothríð á þessar bygg
ingar um leið og félagar þeirra
ruddust inn x fangelsið.
Quang Ngai er um það bil 450
kílómetra norð-austur af Saigon.
Þj óðfrelsishermenn drápu yfir-
fangavörðinn og yfirmann her-
deildarinnar, sem var á verði £
fangelsinu. Skæruliðahermennirn-
ir voru um fjórar klukkustundir í
fangelsinu, héldu ræður yfir föng
unum og drápu þjóðfrelsisher-
mann, sem ekki vildi fara með
þeim, þegar þeir yfirgáfu fang-
elsið, að því er fangelsisyfirvöld-
in segja.
1329 fangar voru í fangelsinu.
352 vildu ekki fylgja þjóðfrelsis-
hermönnunum, þegar þeir fóru
leiðar sinnar. — 30 fanganna voru
venjulegir glæpamenn, 90 voru
stjórnarhermenn, sem höfðu brot-
ið af sér gegn herlögum og hinir
Framhald á 15. síðu.
Forsætisráðherra
til Þýzkalands
KANZLARI Sambandslýðveldis
ins Þýzkalands hefur boðið
Bjarna Benediktssyni, forsætisráð
herra og konu hans að koma i
opinbera heimsókn til Þýzkalands
dagana 11. tll 15. september n.k,
og hafa Þau þegið boðið.
30. ágúst 1967.
ALÞYÐUBLAÐIÐ