Alþýðublaðið - 31.08.1967, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 31.08.1967, Blaðsíða 7
/7 NÁTTÁ ER TUNGLIÐ" SÆLUHÚS er fallegt orð. Sam- kvæmt skilgreiningu orðabókar Menningarsjóðs er merking þess „hús til að gista í í óbyggðum, á Öræfum“. Sú tegund gistihúsa á'tti !þó fram á okkar daga lítið skylt við hin rúmgóðu og þægi- legu Ihótel nútímans með fjöl- mennu þjónustuliði, útvarpi, sjónvarpi, síma og baði, dýrleg- um aðbúnaði í mat og drykk ásamt notalegri hvíld í þeim mjúka og hlýja sængurdúni, sem upphaflega taldist til forrétt- inda æðarfugls á íslandi. Þetta voru oftast litlir og lágreistir moldarkofar, naumast mann- gengir, þægindalausir með öllu, kannski í hæsta lagi grjótbálkur til að fleygja sér ó, matur eng- inn. Samt var þessum vistar- verum valið eitt af fegurstu orð- um tungunnar til einkenningar: sæluhús. Bak við það heiti felst mikil saga. Skiigreining orða- bóka á hugtakinu nær skammt, sem vonlegt er, þótt hún sé rétt það sem lnin nær. Ljóst er, að landsmenn fhafa snemma komið upp slíkum kof- um ó heiðum og fjallvegum til afnota fyrir ferðamenn og gangn amenn, enda vegalengdir víða miklar á öræfum og tóku ferðir einatt langan tíma, stundum mörg dægur, 'hvort heldur menn voru gangandi eða ríðandi. Var þó ekki í annað hús að venda en sæluhúskofann og skildi þar oft og einatt í milli feigs og óí'eigs, hvort það tókst eða tókst ekki að ná honum. Mátti hver prísa sig sælan, sem undir þak komst, þótt lélegt væri,-því það er lakur skúti, sem ekki er betri en úti í hamslausu hríðarveðri á fjöllum. En það kom líka fyr- ir, að þeir sem náðu þangað við illan leik, geispuðu golunni í kofanum, kaldir og matarlausir og aðframkomnir af þreytu. Var þess þá oftast ekki iangt að bíða að bera færi ó reimleikum í sæluhúsinu, enda munu þau sæluhús fá, þar sem hreint var með öllu. Hitt var miklu algeng ara, að fleiri eða færri aftur- göngur eða draugar væru þar viðloðandi, gerðu sér dælt við ferðamenn í vöku og svefni, berðu kofann utan eða riðu hús um næturlangt, þótt nú sé víð- ast úr þeim allur mergur. Til'er aragrúi sagna og munn mæla um gistingu manna í sælu húsum og gangnakofum og reim leika á slíkum stöðum. Skulu hér rifjaðar upp nokkrar slíkar sögur, þeim til fróðleiks, sem ekki hafa átt þess kost að lifa slíka atburði og þekkja lítið til drauga og afturgangna sjálfir. Norðvestur af Bolavöllum á Kolviðarhóli er Húsmúli. Fram- an við hann stóð sælukofi allt fram um miðja nítjándu öld við svokallaða Draugatjörn. Kofi Sæluhús Ferðafélag sins við Hvítárvatn. þessi var tvær og (hláLf alin á breidd og þrjár ólnir á lengd og í honum grjótbálkur, þakinn torfi, sem á gátu legið þrír menn. Tvær húrðir voru fyrir dyrum og gengu báðar inn í húsið. Sveinn Pálsson, læknir, getur þess í ferðabók sinni, að margir ferðamenn hafi látizt í þessum kofa, ekki fundið hann fyrr en þeir voru örmagna af himgri og kulda. í Sögu Kolviðarhóls er að finna frásögn af gistingu í Hús- múlakofanum. Hún er á þessa leið: „Gömul sögn úr Ölvesi hermir, að eitt sinn hafi ferða- maður um vetur í vondu veðri komið austan yfir Hellisheiði. Hann hafði náttstað í sæluliús- inu, lokaði dyrum að sér og lagð ist til svefns. — Að nokkurri stundu liðinni heyrði hann að komið var við hurðina og gerð tilraun til að ko-mast inn. Sá, er inni var, hugði það draug vera og opnaði ekki. Heyrði hann um hríð þrusk utan við hurðina, en svo þagnaði það. Um morgun- inn, þegar maðurinn leit út, brá honum ónotalega við. Utan dyra lá dauður maður. Var það sá, er um kvöldið hafði knúð hurð- ina og maðurinn hafði haldið vera draug. — Þetta spurðist víða og þóttu hörmuleg mistök. Eftir það hafði alvarlega verið brýnt fyrir ferðamönnum að loka aldrei húsinu að sér um nætur“. Þessi saga mun raunar vera til í ýmsum tilbrigðum víða um land og heldur hver sögumaður fast við sína útgáfu og teíur hana réttasta, leggur jafnvel fram óyggjandi sannanir fyrir máli sínu, ef því er að skipta. í Hellukofanum gamla á Hell- isheiði, sem enn stendur, bar líka eitthvað á reimleikum. T. d. segir frá því í Þjóðsögum Ól- afs Davíðssonar, að einu sinni lágu þar menn. Þeir heyrðu skarkala mikinn uppi á húsinu alla nóttina og hugðu, að draug- ur hefði valdið honum, enda þóttust þeir sjá einhverja ó- freskju í dyrunum við og við. Þá var gamla sæluhúsið á Kol- viðarhóli alræmt draugabæli og eru margar sögur til af reimleik um þar. Ein þeirra er skrásett af Þorsteini Erlingssyni og er á þessa leið: Einu sinni voru fimm Fljóts- lilíðingar á leið suður í ver. Það voru þeir ísleifur Sigurðsson frá Barkarstöðum, Sigurður Ólafs- son, vinnumaðúr þaðan, Halldór Jónsson fró Eyvinidarmúla og svo sinn maðurinn frá hvorum bænum Árkvörn og Háamúla. Þeir félagar gengu suður Hell isheiði og lágu um nótt í sælu- húsinu á Kolviðarhóli. — Þeir kveiktu ljós og fóru að sofa, eft- ir að hafa matazt, nema Halldór. Hann gat ekki sofnað og lá vak- andi um hríð. Allt í einu heyrði liann eitt- hvað gnauð fyrir utan kofann, en því næst heyrði hann, að ein hver klifraði upp á kofaþakið og tók að lemja þekjuna — beggja megin á víxl. Halldóri þótti þetta kynlegt, og tók hann það til bragðs að vekja Sigurð. Þeir fópu- út og leituðu í kring- um kofann, en urðu einskis vís- ari, fóru því inn aftur, en jafn skjótt og þeir voru komnir inn, var hurðinni hrundið upp og lamið á þilið; lagði þá vindsúg. inn um kofann, og slokknaði ljósið. Þeir Halldór og Sigurður kveiktu þegar aftur; fóru svo út, tóku jötu og skorðuðu hana fyrir dyrnar að innan. Eftir það voru dyrnar í skorðum, en þeir heyrðu högg og ókýrrð úti fyrir lengi nætur. í sumum sæluhúsum Ferðafé- lags íslands hefur orðið vart nokkurrar ókyrrðar, einkum í húsinu í Hvítárnesi. En þar er sem kunnugt er, kvendraugur og hafa ýmsir orðið hans varir. — Hann hefur helgað sér ákveðna koju í húsinu án samráðs við eigendur hússins og þykir ekki ef tirsóknarvert að deila með hon um kojupiássinu. Gamlar tóttar- rústir eru í Hvítárnesi og telja sumir, að þetta sé húsfreyjan, sem þar hafi verið og er þá kannski ekki undarlegt, þótt hún geri sig heimakomna á staðn- um. Annars er þetta hinn skikk- anlegasti og dagfarsprúðasti draugur. Fyrir nokkru spurði ég eftirlitsmanninn, sem verið hef- ur í Hvítárnesi í sumar, um sam býlið og kvaðst hann ekki hafa yfir neinu að kvarta, allt hefði gengið vel og árekstralaust hing að til. Á Austurlandi hefur draugum og afturgöngum jafnan farnazt vel, enda eru þeir tæknimennt- aðri þar en annars staðar á land inu, m. a. aka þeir bílum. T. d. eru til áreiðanlegar heimildir um meiraprófsdraug fyrir aust- Framhald 11. síðu. Sæluhús í Þúfuveri. 31. ágúst 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.