Alþýðublaðið - 31.08.1967, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 31.08.1967, Blaðsíða 13
Ný dönsk mynd, gerð eftir hinni umdeildu metsölubók Siv Holms „Jeg en kvinde“. Bönnuð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 9. Hvert viljið þér fara ? Nefnið staðinn. Við yður, jijótast og þcegilegast. Hafið samband við ferðaskrifstofurnar eða AMERICAtV Hafnarstræti 19 — simi 10275 ^4^ BÍLAKAUP 15812 — 23900 Höfum kaupendur að flest- um tegundum og árgerðum af nýlegum bifreiðum. Vinsamlegast látið skrá blf- reiðina sem fyrst. BÍLAKAUP Skúlagötu 55 við Rauðari Símar 15812 - 23900. Og hitt, sem mælti á móti var að hún efaðist um að sér tækist að leika Myru. En ihún hlaut að geta það. Fjölskyldan í London hafði ekki séð Myru síðan hún var fimm ára. Háraliturinn gat liafa breytzt og andlitsdrættir fimm ára barns eru ekki Iþað iþroskað- ir að þeir þekkist eftir sautján ár. Og hvað vissi Joss Ashlyn frændi Myru um hana. Ha frændi Myru um hana. Hann hafði tekki skrifað henni eða foreldrum hennar öll þessi ár? Hann átti ekki einu sinni mynd af Myru. Mánudaginn gekk hún heim úr vinnunni. Sólin og hitinn olli því að sársaukinn yfir svikum Nigels var enn sárari en fyrr. Hún hafði vonað að tíminn læknaði sárin að hún gæti smó saman farið að ihugsa um hann og tímann sem þau voru saman án sársauka. En þannig fór ekki. Sársauk- inn óx fremur en dofnaði. Hafði hún aðeins verið stundarskot? Hafði hann kannski meint það alvarlega en svo gleymt henni þegar hann fór frá Vancouver? Eða beið einhver eftir ihonum í Englandi? Kannski eiginkona? Möguleikarnir voru óteljandi en enginn dró úr sársaukanum. Hún fór að ihugsa um tillögu Myru. Ferð til útlanda, ný reynsla, já, jafnvel það að leika hlutverk annarrar í nokkrar vikur myndi dreifa huganum. Hún var að setja ískalda drykki á svalaborðið, þegar Myra kom heim. Hún stóð á svölunum og leit á Vonnie. — Veiztu hverju við gleymdum í morgun? Vonnie leit upp. — Nei, hverju gleymdum við? — Að ákveða hvor okkar ætti að kaupa í matinn! — Æ, ég mundi ekki eftir því. Ég gekk heim og hugsaði . . . — Það skiptir engu máli. Við eigum niðursuðudósir og ost. Hvað er í þessari könnu? — Gin, appelsín og mikið af ís. — Namm! Myra hellti sér í glas. Vonnie virti hana fyrir sér um stund áður en hún spurði: — Ertu búin að skrifa til frænda þíns og segja honum, að þú kom ir ekki? — Ekki enn. — Þú ihefðir átt að gera það. En . . . Fjólublá augun litu glettnis- lega á hana og Myra varð stríðn isleg á syipinn. — En hvað, Von nie? sagði hún iblíðlega. Nornin, hugsaði Vonnie reiði- laust. Hún vissi alltaf að ég mundi fara! Hún dró andann djúpt og sagði: — Þú þarft ekki að skrifa. Þetta er della og ég hugsa að það sé glæpsamlegt líka, en . . . Myra skellti upp úr eins og hún tæki lög og rétt ekki svo hátíðlega. — Ég er viss um að það er ekkert saknæmt við það, þó að þú leikir beztu vinkonu þína eftir samkomulagi. Hverj- um kemur það við? Ekki lögregl- unni. Og Joss frændi fær ekk- ert að vita. Þú ætlar að fara, er það ekki, Vonnie? ■n.'', -' .r^es ^HIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIllllliliillllillllllliiiiiiiiiiiiiiiiitUJ Suzanne Ebel: * 9 a a ^.................... .Ilt..I......I.......II. n.l..I.II....I.Illllllll.II ll..l■.ll..l..l.l■•■l.l.ll■lllv> — Jú, sagði Vonnie rólega. — Það er brjálæði og guð veit hvort ég get það eða ekki, en ég fer til London. — Ég hef ekki heyrt þig segja neitt gáfulegra lengi. — Er það? spurði Vonnie var lega. — Já, auðvitað. Það getur ekk ert brugðizt, sagði Myra ákveð- in. — Joss frændi er gamall pip- arsveinn, en þú sérð um hann. Hann er áreiðanlega hrifnari af blíðlyndri stúlku eins og þér en frekju eins og mér. Þú töfrar hann upp úr skónum. — Þú nærð ekki langt með smjaðri, sagði Vonnie. — Nú er bezt að undirbúa svikin — og kenna mér að falsa skriftina þína. 4. KAFLI. Vonnie beygði sig og lézt vera að skoða lásinn á töskunni sinni. í raun og veru var hún að rífa merkisseðilinn af og stinga hon- um í vasann. Nú varð hún að muna allt! Hún gekk ánægð út úr flugstöð- inni og að vagninum, sem ók henni til London. Hótelið, se*m hún hafði pant- að herbergi á var í hliðargötu við Piccadilly. Hún ætlaði að njóta næstu tveggja daga vel, hvað svo sem á gengi. Hún tók upp fötin sín og fór og keypti sér kort af London. Um kvöldið ætlaði hún til St. Johns Wood til að skoða húsið án þess að nokkur vissi. Henni fannst, að hún ætti að muna hvernig húsið liti út, nokkurs konar fölnuð bernskuminning. Myra hafði reynt að lýsa því sem bezt hún gat, en Vonnie vildi sjá það með eigin augum — til að muna betur orð Myru. Þannig og aðeins þannig gat henni fundizt hún eiga heima hér. Hún borðaði ein á veitingastað hótelsins. Hún sat við borð við gluggann. Hún drakk kaffið í garðstofunni og las vikublöð á meðan hún beið eftir að dimmt yrði. Klukkan hálf tíu leigði hún bíl í Jermyn Street og bað hann um að aka sér tii St. Johns Wood. Markyate Avenue var breið- gata með trjám á báðar hendur og vel lýst. Vonnie leit á hús- númerin og gat sér þess til að númer tíu væri við miðja göt- una. Hún gekk hinum megin við götuna. Henni fannst hún vera samsærismaður meðan hún faldi sig í skugga gömlu trjánna, sem uxu langt út fyrir fallegar girð- ingarnar umhverfis gömlu hús- in. Henni fannst hún vera að vinna myrkraverk. Þegar hún kom að húsi, sem nr. 9 var málað á stólpann leit hún yfir götuna. Tíu. Þarna var það. Húsið með stóru trjánum fyrir framan og með ljósker yf- ir útihurðinni. Hún læddist nær. Tvisvar gekk hún fram hjá hús- inu. Hvergi var ljós að sjá nema í forstofunni og rúðurnar í glugg unum þar voru litaðar i’úbín- rauðar og græna. Vonnie opnaði hliðið og gekk inn fyrir, nam staðar augnablik og hlustaði. Það heyrðist ekkert hljóð. Enginn var nálægur. Joss gamli Ashlyn bjó í þriggja hæða húsi með stóra glugga sín hvoru megin við úti- dyrnar. Stór garður umkringdi húsið. Hún læddist upp stíginn og þegar hún sá að ekki var ljós í bakgluggum hússins heldur, varð hún áræðnari. Myra hafði sagt henni að muna eftir magnolíatrénu. Joss frændi hefði málað mynd af Myru með magnolíablóm í bak- grunni. Vonnie hoi-fði umhverfis sig í dimmum garðinum og svo á vegginn. Magnolíatréð stóð við girðinguna og hún sá móta fyrir ljósum blöðum þess. — Vittu, hvort gamla rólan er þar enn, sagði Myra. — Minntu Joss frænda á, hve oft hann rólaði mér . . . þér . . . í rólunni og ég, nú brosti Myra, — þú veinaðir í hvert skipti, sem rólan fór of hátt. Vonnie stóð í skugganum af fáeinum runnum og leit um- hverfis sig. Garðui'inn var fer- hyrndur og umkringdur trjám Hún horfði á vinnustofuna, einn veggurinn var úr gleri. Svo birtist ljós í einurn kvist- glugganum. Vonnie faldi sig inn milli runnanna, stór blöð þeirra strukust um kinnar hennar, hún var næstum hrædd. Svo slökknaði ljósið. Myra hafði sagt henni, að frændi hennar hefði ráðskonu, þetta hlaut að vera herbergið liennai'. 31. á Hún snerist á hæl og gekk eft ir stígnum og þegar hún var næstum komin að dyrunum beið hún til að aðgæta, hvort sá, sem hafði kveikt ljósið hefði farið niður. Svartur köttur neri sér mal- andi við leggi hennar. Vonnie elskaði ketti, en hún varð hrædd við að sjá hann svona skyndi- lega og rak hann frá sér. Það glampaði í augu kattarins í myrkrinu, hann hvæsti og fór inn í runnana. Vonnie andaði léttara, hlustaði og beið. Hún heyrði útidyrnar opnaðar og lokaðar. Hún faldi sig í runn unum og heyrði fótatak á möl- inni. Hliðið small í lás og það var gengið niður veginn. Stuttu síðar small bílhurð í lás og bíll fór í gang. Ofnkranar, \ Tengikranar, 1 Slöngukranar, Blöndunartæki. Burstafeli byggingavöwiverzlun Réttarholtsvegi S. Simi S 88 40. T rúlof unarhringar Seridum gegn póstkröfu. Fljót afgrelðsla. Guðm. Þorsteinsson gullsmlður 1 Bankastrætl 1S. 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 13

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.