Alþýðublaðið - 21.09.1967, Blaðsíða 4
Bltstjórl: Benedikt Grðndal. Simar 14900—14903. — Auglýslngasíml:
14906. — ABsetur: Alfcýðuhúsið vlð Hverfisgötu, Rvlk. — PrentsmiSja
AlþýSublaSsins. Siml 14905. — Askrlftargjald kr. 105.00. — í lausa*
sölu kr. 7.00 elntakið. — Útgefandl: AlþýSuflokkurlxm.
Hin leiðin
Íysteinn Jónsson, formaður Framsóknarflokksins,
k tækifæri til þess að gera grein fyrir „hinni leið-
i'’ í ríkisútvarpinu s.l. laugardagskvöld í útvarps-
ttinum „Þjóðlíf”. Var Eysteinn spurður að því,
hvað Framsókn hefði gert í sumar, ef hún hefði komizt
í stjórn.
| Eysteinn sagði, að Framsókn hefði beitt sér fyrir
áa^tlunarbúskap og að hafin yrði tafarlaust athugun
á jrekstrargrundvelli hverrar atvinnugreinar. Síðan
sa^ði hann: „Þá hefði Framsóknarflokkurinn lagt til
í qðru lagi, 'að tekið yrði upp samstarf við launþega-
samtökin um markvissa stefnu í kaupgjaldsmálum,
er stefndi að því að tryggja launþegum eðlilega hlut-
deild í vaxandi þjóðartekjum. I því sambandi ætti að
taka húsnæðismálin til gagngerðrar endurskoðunar,
því að aldrei yrði ráðið við dýrtíðina nema hægt væri
að leysa húsnæðismálin”.
Þetta er sennilega „hin leiðin”, sem Eysteinn hef-
ur boðað, en erfitt hefur verið til þessa að fá upplýs-
i-ngar um, hver hún iværi.
En Alþýðublaðið vill minna á í þessu sambandi, að
Eysteinn og Framsóknarflokkurinn hafa fengið tæki-
færi til þess að sýna hug sinn í verki til atvinnuveg-
anna og verkalýðshreyfingarinnar. Enginn hefur setið
lengur í embætti fjármálaráðherra hér á landi en Ey-
steinn Jónsson og enginn hefur íþyngt atvinnuvegun-
um meira með sköttum en fjármálaráðherrann Ey-
steinn Jónsson. I vinstri stjórninni fékk Framsókn
einnig tækifæri tii þess að sýna í verki jákvæða af-
stöðu til verkalýðshreyfingarinnar og láglaunafólks.
Sú afstaða kom þannig fram, að Framsókn lagðist
gegn öllum tillögum Alþýðuflokksins um aukningu
almannatrygginganna, en lagði hins vegar fram upp-
kast að frumjvarpi um bann við verkföllum!
Vinstristjórnin varð verkalýðshreyfingunni von-
brigði, fyrst og fremst vegna afturhaldsstefnu Fram-
sóknar. Núverandi stjórn hefur hins vegar tekizt það,
sem viostri stjórninni mistókst. Henni hefur tekizt að
koma á góðu samstarfi við verkalýðshreyfinguna,
henni hefur tekizt að bæta kjör launþega meira s.l.
7 ár en nokkurri annarri ríkisstjórn áður og síðast en
ekki sízt hefur núverandi ríkisstjórn gengið til sam-
starfs við verkalýðshreyfinguna um lausn húsnæðis-
málanna.
Núnerandi ríkisstjórn hefur ekki teki^t að leysa
að fullu vanda húsnæðismálanna. En henni hefur tek-
izt mun betur í því efni en vinstri stjórninni. Ríkis-
stjórn Hermanns Jónassonar, sem gafst upp við lausn
efvu.hagsmálanna, hefði verið ánægð með þær fram-
kvæmdir í húsnæðismálum, sem núverandi stjórn hef-
ur staðrð fyrir. Og sennilega hefðu örlög vinstri stjórn
arinnar orðið önnur en raun varð á, ef henni hefði tek
izt að r.á eins vinsamlegu samstarfi við verkalýðs-
hreyfinguna og núverandi stjórn hefur tekizt að ná.
★ KENNUM: Börnum, unglingum og fullorðn-
um, byrjendum og framhald.
★ BARNADANSAR: Hringdansar og leikir (4-6 ára börn.)
Gamlir og nýjir dansar, m. a. nýj-
ustu dansarnir „Beat-Rock“
„Sandie“ og „The Cha-Polka“.
★ UNGLINGAR OG UNGT Suður-amerískir dansar, m. a.
FÓLK: nýjasti dansinn „Snuker“.
★ HJONAFLOKKAR: 10 hagnýtir samkvæmisdansar.
Upplýsingarit liggur frammi í bókabúðum. Innritun og upplýsingar í
síma 8-2122 og 3-3222 frá kl. 10-12 f. h. og 1-6 e. h.
RAGNARS
10. starfsár skólans
í Reykjavik hefst
1. október
MUNIÐ
mmmm
4 21. september 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ