Alþýðublaðið - 21.09.1967, Page 11
Hí
Ststióri Örn Eidsson:
Yfirlýsing frá
Dómaranefnd KSI
Fyrst drógust saman Keflavík ogr KR...
Bikarkeppni KSÍ
á iaugardaginn
VEGNA umræðna í blöðum og
manna á meðal um svonefnda
,,markmannsreglu“, sem íslenzkir
knattspyrnuáhugamenn sáu fyrst
í framkvæmd í leik Vals ög Lux-
emborgarmeistaranna s. 1. sunnu-
dag, vill Dómaranefnd KSÍ taka
fram eftirfarandi:
Nefndinni barst tilkynning frá
F. I. F. A. um þessa breytingu
þann 10. ágúst s. 1., en þar sem
svo langt var þá liðið á keppnis-
tímabil okkar, þá taldi nefndin
ekki rétt að breyting þessi yrði
gerð fyrr en frá og með næsta
keppnistímabili. Nefndin taldi að
tíma þyrfti til að kynna dómurum
og leikmönnum þesSa breytingu,
áður en væri farið að dæma eftir
henni. Annað gæti skapað óþarfa
mistúlkun og rugling.
Nefndin verður að játa þá yfir-
sjón sína, að láta ekki þau félög,
sem þátt taka í Evrópukeppnum
nú í ár, KR og Val, vita um þessa
breytingu, sem mun hafa verið
tekin upp hjá þeirn þjóðum, sem
byrjuðu nýtt keppnistímabil í
haust.
Mönnum til fróðleiks er bér
umrædd breyting, sem kemur í
Framhald á bls. 15.
Víkingur og „Gullaldarliðið"
leika á Akranesi á laugardag
Valur - Fram
kl. 2 á sunnudag
Úrslitaleikurinn í I. deild
milli Vals og Fram verður
háður á Laugardalsvellinum
næstkomandi sunnudag og
hefst kl. 2. Leiksins er beð
ið með mikilli eftirvæntingu,
eins og eðlilegt er. Óvarlegt
er að spá nokkru, en telja
má öruggt, að leikurinn
vcrði mjög spennandi, því
að liðin eru jöfn að styrk-
leika.
► NU ERU aðeins átta lið eftir í
Bikarkeppni KSÍ, þ.e.a.s. I. deild
arliðin sex, Valur, Fram, KR,
Akranes, Keflavík og Akureyri, á-
samt B-liði Akurnesinga (gullald
arliðinu svokallaða) og Víking.
í gær var dregið um hvaða lið
leika saman í næstu umferð, en
niðurstaðan varð þessi:
KR—Keflavík,
Valur—Akranes (A),
Víkingur—Akranes (b)
Akureyri—Fram.
Fyrsti leikurinn í áttaliða úrslit
um fer fram á laugardag, þá
leika Víkingar og B-lið Akurnes-
inga á Akranesi. Leikurinn hefst
kl. 4. Laugardaginn 30. september
leika Fram og Akureyri fyrir
norðan. Leikurinn hefst kl. 4,30.
Daginn eftir leika KR og Kefla-
vík á Melavellinum. Leikur Vals
og Akurnesinga fer fram sunnu
daginn 7. október á Melavellin-
um. Leikur Vals og Akurnesinga
fer fram sunnudaginn 7. október
á Melavellinum.
Víkingur - ÍBV
i 4. flokk
A LAUGARDAG leika Víkingar
og Vestmannaeyingar til úrslita í
4. fl. íslandsmótsins. Þrjú félög
urðu jöfn í þessum aldursflokki,
tvö áðurnefnd félög ásamt KR.
Tveir leikir hafa fárið fram,
KR vann Víking 9:3 og Vest-
mannaeyjar KR 2:1. Vestmanna-
eyingum nægir því jafntefli í
leiknum á laugardag, til að hljóta
sigur í 4. flokki.
FH sigraði og fap-
aði / Danmörku
MEISTARAFLOKKUR FH i hand
knattleik er nú á, keppnisferðalagi
í Danmörku.
Liðið hefur leikið þrjá leiki, sá
fyrsti fór fram gegn Skovbakken,
sem er eitt af sterkari liðum Dana
í handknattleik. Þess má og geta,
að Skovbakken vann Fram eftir
framlengdan leik í Evrópubikar-
keppni fyrir nokkrum árum. Leik
Skovbakken og FH lauk með jafn-
tefli, 18 mörkum gegn 18. Næst
var leikið við Fredricia og þeirri
viðureign lauk með sigri danska
liðsins 17 mörg gegn 16.
Þriðji leikurinn var við Ny-
borg og vann FH með yfirburðum,
30 mörkum gegn 19. Þess skal get
ið, að tveir dómarar dæmdu þenn-
an leik, en mjög hefur verið rætt
um það, að framvegis verði tveir
dómarar í handknattleik.
EVRÓPUBIKARKEPPNIN
í KNATTSPYRNU I GÆR
í GÆRKVÖLDI fróu fram
nokkrir leikir í Evrópubikarkeppn
inni í knattspyrnu. Úrslit urðu
þessi, í keppni meistararliða:
Anderleeht, Belgíu vanri Karl
Marx Austur-Þýzkalandi 3:1. Ol-
ympiakos Piræus, Grikklandi, Juv
entus, Ítalíu 0:0. Olympiakos, Kýp
ur — Sarajevo, Júgóslavíu 2:2.
Sparta, Tékkóslóvakíu vann Skeid,
Noregi 1:0.
í keppni bikarmeistara urðu úr
slit þessi:
Setabal, Portúgal vann Fredrik j
stað, Noregi 5:1. Tottenham — Pai I
Framhald á 6. síðu. Meistaraflokkur FH í handknattleik leikur í Danm jrku.
21. september 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ |,|;