Alþýðublaðið - 29.09.1967, Blaðsíða 2
Dansskóli Heiðars
hefst 2. október
Jleiðar Ástvaldsson, danskenn-
ati, boðaði blaðamenn á sinn fund
í. yikunni og skýrði frá starfsemi
þejrra sem nú er að hefjast í dans
skóla hans. Þetta er tólfta árið,
sem Heiðar rekur dansskóla og
sjötta árið, sem skólinn starfar í
R^ykpavík. Við skólann verða í
vetur sem endranær kenndir barna
og samkvæmisdansar.
Heiðar sótti í sumai' þing hjá
stærsta danskennarasamband ver
aldar, The Imperial Society of
Teachers of Dancing, en hann er
félagi í þessum alþjóðasamtökum.
!Þar var hann valinn til að sýna
alla nýjustu dansana og þótti það
fliin mesta upphefð. Tveir aðrir
kehnarar skólans sýndu einnig á
þinginu, það voru þær Guðrún_ j.
Pálsdóttir og Edda Pálsdóttir og
sýndu þær frumsaminn dans, er
vakti mikla hrifningu.
Þá komu hingað til landsins á j
sumrinu tveir þýzkir danskennar- j
ar, sem starfað hafa í Ameríku
o'g kenndu þeir starfsliði skólan's
Stórgjöf
Heimilissjóði taugaveiklaðara
barna hefir borizt stórmannleg
gjöf. Valdimar Kr. Árnason pípu
lagningameisfari, sem andaðist 4.
júlí s.l., hefir í erfðaskrá sinni á-
nafnað Heimilissjóði taugaveikl-
aðra barna eitt hundrað þúsund
krónum til minningar um eigin-
konu sína, Guðrúnu Árnadóttur,
sem andaðist 24. desember 1960,
■og son þeirra hjóna, Kristinn S.
Valdimarss., sem andaðist 30. okt
óber 1938. Valdimar hafði áður
ásamt börnum sínum fært Heim
iiissjóði höfðinglega gjöf, sjö þús
und krónur, einnig til minningar
itm fyrrnefnda látna ástvini hans.
Gjöfum þessum fylgja þau skil-
yrði ein, að fénu verði varið í
byggingakostnað við læknaheím-
ili handa taugaveikluðum börnum.
Stjórn Heimilissjóðs þakkar þess
ar stórmannlegu gjafir og heitir
að verja fénu samkvæmt fyrir-
mælum gefanda. Valdimar heitinn
var mjög áhugasamur um lækna
iveimilishugmyndina og trúði á
framgang hennar, meðan enn var
títið fé í sjóði. Trú hans tendraði
úhuga í brjósti annara enda sýndi
hann í verki, að hugur fylgdi
rnáli. Við fyrri gjöfina bannaði
Iiann, að nafn síns yrði getið, en
ég tek mér leyfi til þess nú.
Stjórn Heimilissjóðs þakkar hon
iim ómetanlegan stuðning og höfð Búddatrúarmanna.
inglega rausn.
Þegar Lækningaheimili tauga-
veiklaðra barna er risið af grunni
TÚunum við minnast Valdimars Kr.
Árnasonar og nefndra ástvina
hans á viðeigandi hátt.
Matthías Jónasson,
formaður sjóðsstjórnar.
)
2 29. september 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
allt það markverðasta, sem komið
befur fram í dönsum í Ameríku. I
Heiðar skýrði frá því, að nem- |
endum skólans yrði að venju gef
in kostur á að reýna við alþjóða-
dansmerkið, en gert er ráð fyrir
að nemendur séu hæfir til prófs-
ins eftir tveggja ára nám. Þá
verður sú nýjung tekin upp, að
leyfa nemendum að reyna við
alþjóða dansmerkið, en gert er
ráð fyrir að nemendur séu bæfir
til prófisns eftir tveggja ára nám.
Þá verður sú nýjung tekin upp,
að leyfa nemendum að reyna við
bronz og silfurmerki hinna alþjóð
legu samtaka, sem nefnd voru I
hér að framan. Til þess að hljóta
þau þarf enn meiri kunnáttu í
dansi en þá er fullnægjandi telst
til að fá alþjóðadansmerkið. Kenn
arar hafa leyfi til að dæma sjíáif-
ir um hæfni nemenda sinna, þeg-
ar þeir reyna við alþjóða dans-
merkið, en þegar um er að ræða
bronz- eða silfurmerki sendir al-
þjóða sambandið prófdómara á
staðinn. Prófdómari í vor er ekki
af lakara taginu. Hann verður
enginn annar en Bill Irvin, sem
kemur hingað ásamt konu sinni
Bobby, en hjónin eru iheimsmeist-
arar í dansi. Þau munu einnig
sýna dans á lokadansleik skólans.
Heiðar lýsti gleði sinni yfir
þessari heimsókn heimsmeistar-
anna og kvaðst vona að henni
fylgdi meiri dansgeta og aukinn
áhugi nemenda.
Heiðar og Guðrún Pálsdóttir
sýndu blaðamönnum nokkra hinna
Framhald á bls. 15.
CÁgúst Petersen við mynd sína, Hlíðarhús.
Sýnir í Eyjum
Ágrúst Petersen, listmálari,
opnar á morgun málverkasýn-
ingru í Akoges-húsinu í Vest-
mannaeyjum, og sýnir í fyrsta
sinn í heimalbyggð sinni, en
Ágnst er úr Vestinannaeyjum.
Þetta er þriðja sérsýning Á-
gústs, en hann sýndi í sýning-
arsalnum við Hverfisgötu 1958
og í Bogasalnum í fyrrahaust.
Ágúst hefur tekið þátt í mörg
um samsýningum og sýnir m.
a. núna á haustsýningu Félags
íslenzkra myndlistarmanna í
Listamannaskálanum. Á sýn4
ingunni í Ýestmannaeyjum
verða um 20 myndir og þar af
margar landslagsmyndir úr
eyjunum. Ágúst segist löngum
hafi sótt yrkisefni sitt beint
og óbeint til æskustöðvanna
og segist munu gera það fram
vegis. Ágúst sagði einnig, að
nokkur málverkin væru sögu-
og sagnfræðilegs eðlis, t.d.
gömlu lcrærnar, Illíðarhús o.
fl.
Sýning Ágústs Petersen, í
Vestmannaeyjum, verður opin
30. sept. til 8. okt. frá kl. 16-
22 og á Iaugardögum og sunnu
dögum frá kl. 14-22. Myndirn
ar eru allar til sölu.
Búddamunkar deila
viö Saigon - stjórn
SAIGON, 28. september (ntb-reuter).
lað kveikja í sér, ef stjórnin
VAN Thieu, forseti Suður-Vietnam, ræddi í dag í 45 mínútur í I haldi ekki loforð sitt þess efnis,
gegnum liátalara við leiðtoga Búddatrúarmanna. Tri Quang, munk ! að kalla saman fund tii þess að
en hópar Búdda-munka og nunna hlýddu á. Þetta samtal forsetans og ræða breýtinguna, sem fyrirhug
munksins átti sér stað eftir að 800 Búddatrúarmenn fóru í fylk-
irgu um götur Saigonbörgar til forsetahallarinnar, þar sem þeir af-
hentu imótmæli gegn framkomnum tillögum um breytingu á skipu
lagi Búddadóms í landinu.
Eftir samtalið fyrir utan forseta
höllir.a bauð forsetinn Tri Quang
til viðræðna í höllinni ásamt öðr
um leiðtoga Búddatrúarmanna
Tam Chau, sem samkvæmt hinni
nýju tilskipan stjórnarinnar á að
taka við æðstu stjórn samfélags
Tri Quang hafnaði því til að
byrja með að senda sendinefnd
inn í höllina, en fór að lokum
sjálfur inn í bygginguna eftir sjö
klukkutíma setu í sólinni fyrir
framan höllina. Áður en hann
fór sagði hann, að hann mundi
fara fram á, að tilskipunin yrði ó-
merk.
Stjórnmálafréttaritarar í Saigon
telja að deila munkanna og stjórn
arinnar sé stjórnmálalegs eðlis,
þar eð munkarnir hafa snúizt á
sveif með frambjóðendunum, sem
féllu í kosningunum, í fyrra mán
uði, en þessir frambjóðendur
bafa kært kosningarnar, sem Thi
eu sigraði í.
Að því er AFP-fréttastofan seg
ir, hefur Tri Quang lýst því yfir,
að þekktur munkur mundi
fremja sjálfsmorð fyrir framan
forsetahöllina á morgun með því
uð er.
Thieu lofaði, að slíkur fundur
skyldi haldinn innan sólarhrings
frá samtali þeirra Quangs.
Tri Quang var þrjár klukku-
stundir í höllinni, en sagði síðar,
að hann hefði ekki liitt neina ráð
herra, ekki Thieu forseta, Cao Ky,
forsaetisráðherra eða aðra valda-
menn. Hann sagði, að fulltrúar
ríkisstjórnarinnar hefðu sagt, að
hann skylöi snúa sér aftur til
stjórnarinnar, þegar hann og
keppinautur hans Chau hefðu
komizt að niðurstöðu í þessú málí,
væri mál Búddatrúarmanna en
ekki stjórnarinnar. Tri Quang
sagði að hann og aðrir leiðtogar
Búddatrúarmanna mundu hafast
við fyrir utan forsetahöllina í nótt.
Píanó-
tónleikar
í kvöld
í KVÖLD, föstudaginn 29. sept<
ember, verða haldnir píanótón-
leikar í sal Tónlistarskólans f
Beykjavík. Það er Béatrice Berg,
sem leikur. Hún er frönsk pí-
anóleikkona, en er gift danska
tónskáldinu Gunnari Berg og
ibýr í Danmörku.
Á efnisskránni eru eingöngu
verk eftir frönsk og dönsk tón-
skáld. Fyrst leikur hún sjö prel-
údíur eftir Debussy, en því næst
10. liluta píanóverksins „Gaff-
ky’s“ eftir Gunnar Berg. Á ný-
afstaðinni tólnistarhátíð var'
sjötti hluti þessarar tónsmíðar
fluttur hér. — Á efnisskránní
eru enn fremur nokkrir dansar
eftir J. Ph. Rameau og tvær nok
túrnur eftir Tage Nielsen. 3'ón-
leikunum lýkur með ,,Eldey“ I
og II eftir Olivier Messiaen.
Þ'etta verða einu tónleikar Bé
atrice Bérg og aðgangur er ó-
keypis. Þeir hefjast kl. 8.30.
Útvarpsstöðvar í skipum störf-
uðu um nokkurra ára skeið utan
við landhelgi nokkurra Evrópu-
ríkja, þ. á. m. Svíþjóðar, Dan-
merkur, Beneluxlar.danna og Bret
Iands. Sérfræðinganefnd Evrópu
ráðsins samdi tillögu árið 1964
um samþykkt til að koma í veg
fyrir þessa starfsemi. Samþykktin
stöðvað með löggjöf í þeim ríkj^
flestra þessara útvarpsstöðva var
stöðuð með löggjöf í þcim ríkj.
um, sem hlut áttu að máli. Þetta
gerðist, án þess að samþykktin
væri formlega staðfest. Nú hafa
Danmörk, Svíþjóð og Bclgía fall
gillt samþykktina, og gengur hún
í gildi 19. október n.k, Hún bind
ur aðeins þessi þrjú ríki, en öðrum
aðildarríkjum er eftir sem áður
heimilt að fullgilda hana.