Alþýðublaðið - 29.09.1967, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 29.09.1967, Blaðsíða 14
Loftieíðir Frh. af 1 síðu. (jölda fólks, sem ferðast nú með flugvélum til og frá Skandinayíu, en um hann ber hinn gífurlega vaxandi ferða- og farþegafjöldi SAS gleggst vitni. Þessi öfugþró- un viðskipta Loftleiða á Norður- löndum leiddi ekki einungis til tjóns fyrir Loftleiðir, heldur olli liún líka minnkandi gjaldeyris- tekjum í Skandinavíu af erlend- um ferðamönnum, þar sem vitað er, að fjöldi farþega ferðast ein- ungis landa á milli vegna hinna liagstæðu fluggjalda Loftleiða, og hækkun fluggjaldanna af þeim sökum torveldun á ferðum þeirra. Fram skal tekið að Loftleiðir hafa engan einkarétt á hinum lágu fargjöldum, enda flaug SAS á sömu gjöldum og Loftleiðir yf- *ir Atlantshafið á sínum tíma, og gæti vafalaust gert það enn ef félagið teldi sér hag í því. Þá má benda á að hraðamun- urinn á sínum tíma milli DC-4 flugvéla Loftleiða og DC-6B flug- véla SAS var 33%, en fargjalda- munur méstur 28%. Nú er hraða munurinn milli RR-400 og DC-8 39%, og ráðgerður fargjaldamis- munur af hálfu SAS landanna 10%. Eftir að Loftleiðir eignuðust Rolls Royce flugvélar sínar varð það augljóst, að mjög óhagkvæmt myndi að halda annars vegar uppit ferðum með flugvélum af DC-6B gerð milli Skandinavíu og íslands, en hins vegar ferðum milli ís- lands og Bandaríkjanna með flug- vélum af Rolls Royce gerð. Þar sem samningar, er gerðir voru við SAS löndin um lendingarréj,þ indi Loftleiða í Skandinavíu ár- ið 1964, miðuðust við ferðir með flugvélum af DC-6B gerð, þá fóru íslen?k stjórnarvöld, vorið 1966, að beiðni Loftleiða, þess á leit við skandinavísk flugmálayfir- völd, að þessum samningum yrði breytt, þannig, að fargjaldamis- munurinn mætti verða hinn sami og nú, 13% að sumarlagi en 15% liinn tíma ársins, ferðafjöldinn ó- breyttur, þrjár að vetrarlega og timm að sumarlagi, en flugvéla- tegundin önnur. Þessum tilmælum íslendinga var svarað neitandi á ýmsum fundum, sem haldnir voru um málið milli íslenzkra og skand- inavískra stjórnarvalda. Þegar staðið hafði í þófi um málið allt fram til þess er fundur norrænna utanrikisráðherra var Iialdinn í Reykjavík 25. apríl sl. bárust um það boð frá aðilum, er Loftleiðir höfðu gilda ástæðu til að trúa, að unnt yrði að leysa vandann á þessum fundi, ef Loft leiðir vildu ljá máls á samkomu- lagsgrundvelli, sem væri á allra yztu þröm þess, er félagið teldi sér mögulegt að ganga. Þetta gerðu Loftleiðir. Félagið er reiðubúið að birta þessar tillögur, ef nauðsynlegt reynist til leiðbeiningar um óvil- hallan skilning á málsmeðferð allri, en það telur nú óhjákvæmi- legt að vekja á því athygli að apríltillagan um 10 og 12% far- gjaldamun var í fyrsta lagi al- gert lágmark þeirra hundraðs- liluta, sem félagið gat sætt sig við, en jafnframt var gert ráð fyrir að hundraðshlutinn gæti lækkað miðað við reynsluna af þessum fargjaldamismun. í öðru lagi var tillagan algerlega órofin heild annarra atriða, sem félagið taldi engu síður grundvallarskilyrði þess að samkomulag gæti orðið. Á fundi, sem haldinn var 18. þ.m. um réttindamál Loftleiða á Norðurlöndum, milli íslenzkra og skandinavískra stjórnarvalda í Kaupmannahöfn, er þetta eina atriði apríltillagnanna, fargjalda- mismunurinn, slitið úr eðlilegu samhengi, og í stað þess að um verði rætt sem síðasta tilboð Loft leiða um sjálfan fargjaldamismun inn, ej- það lagt fyrir sem tillaga íslendinga, og henni svarað með gagntilboðinu, 10% allt árið. Það er grandvarlega þagað um allar aðrar apríltillögur Loftleiða í þeirri ályktun, sem send var frá fundinum, en Loftleiðum settir þar nauðungarkostir af hálfu SAS landanna, sem þau gera ráð fyrir að félagið verði að ganga að eða frá, fyrir 1. apríl 1968. í þessum nauðungakostum SAS landanna er gert ráð fyrir hvort tveggju, fækkun vikulegra ferða úr fimm niður í þrjár að sumar- lagi og þrem niður í tvær að vetr arlagi. Auk þess er Loftleiðum gert að skyldu að fljúga í liverri með 29 sæti tóm í Rolls Royce flugvélum sínum að sumarlagi, og 75 að vetrarlagi (189 sæta vélar). Urn önnur atriði í apríltilllög- um, er varða sérstök fluggjöld og félagið, telur miklu máli skipta, er engu lofað öðru en því, að eitt þeirra skuli síðar mikið ,,til yfir- vegunar“. í ályktun fundarins er gert ráð fyrir tveim hámarkstölum þeirra farþega, sem áætlað er að heim- ila Loftleiðum að flytja til og frá Skandinavíu, og er þar miðað við sæti, sem Loftleiðir mega fylla, en við yfirlestur takmarkanna, sem ráðgerðar eru, verður ljóst, að af hálfu SAS landanna er rétti lega á það treyst að til þess nnini aldrei koma. Að fengnum þessum niðurstöð- um taldi stjórn Loítleiða liyggi- legast að gefa engar yfirlýsingar eða skýringar af félagsins hálfu fyrr en búið væri að kanna af- stöðu umboðs^, og trúnaðarmanna Loftleiða heima og erlendis, til núverandi stöðu deilumálsins á fundi, sem ákveðinn hafði verið með þeim í Rcykjavík dagana 26., 27. og 28. þ.m. Að þéssum fundunr loknum tel- ur stjórn Loftleiða að samþykkt „nauðungarkostanna“ óbreyttra myndi óhjákvæmilega hljóta að leiða til þess eins að um taprekst ur yrði að ræða á flugi félagsins til og frá Skandinavíu, en afleið- ing hans um nokkurt tímabil yrði augljóslega sú, að félagið lirökkl aðist þaðan. Veruleiki óskadraums SAS samsteypunnar um stöðvun Norð urlandaflugs Loftleiða gerði að ösku alit það fé, sem Loftleiðir hafa til þessa varið til að kynna Norðurlöndin í Bandaríkjunum, og neytendur flugþjónustu Loft- leiða á Norðurlöndum yrðu að greiða SAS — eða öðrum flug- samsteypum — þann mismun, •sem nú er á fluggjöldunum, mis- mun, sem þeim hefur verið unnt að verja til greiðslu dvalarkostn aðar í Bandaríkjunum, mismun, sem gert liefur mörgum þeirra kleift að undanförnu að fljúga yfir Atlantshafið. Á því hefur verið vakin athygli að undanförnu, bæði á íslandi og hinum Norðurlöndunum, að und- anfarin ár hefði verzlunarjöfnuð- uirnn við SAS löndin verið íslend ingum óhagstæður, svo að num- ið hefur um 400 milljónum ís- lenzkra króna árlega. Á það hef- ur verið bent, að flugþjónusta Loftleiða væri íslenzk útflutnings vara, vara, sem neytendur á Norð urlöndum vilja sannarlega fá að kaupa við því verði, sem Loftleið- ir telja sér hagstætt að selja. Ef gengið væri að þeim afarkostum óbreyttum, sem nú liggja fyrir, þá gera skandinavísk stjórnarvöld ráðstafanir til þess að torvelda sínum eigin þegnum þessi við- skipti, en á sama tíma fá íslend- ingar hindrunarlaust að kaupa vörur frá SAS löndunum, jafn- vel þær sem fá má annars stað- ar við jafn góðu veiði. Hin óþrotlega árátta til hækk unar fluggjalda, er af hálfu skand inavískra stjórnvalda í algerri andstöðu við þá stefnu þeirra á öðrum sviðum, sem miðar til þess að lcoma í veg fyrir hækkanir á nauðsynjum almennings, og hlýt- ur þess vegna að vera mörkuð af annarlegum sjónarmiðum, and- stæðum hagsmunum neytenda. Norræn samvinna hefur að und anförnu átt vaxandi vinsældum að fagna á íslandi. Þeim fer nú fjölg andi hér á landi, sem lýsa yfir því opinberlega að afarkostir, sem Loftleiðir sæti á Norðurlöndum muni óhjákvæmilega Ieiða til þess að íslendingar kjósi að ein- angra sig frá hinum Norðurlanda þjóðunum og leita þar aukins vin fengis, sem vinátta hefur reynzt þeim meiri í orði en á borði. Telja Loftleiðir í þessu sambandi rétt að minna á þann skilning sem fé- lagið hefur notið í Bandaríkjun- um og Luxemborg, og er þó ekki um að ræða náin ættartengsl né erfðavenjur þar. Loftleiðir hafa að undanförnu lagt fram skerf, sem félagið tel- ur mikils verðan til eflingar raun hæfri norrænni samvinnu. Það hefur stutt að vaxandi samgöng- um milli íslands og liinna Norð- urlandanna. Það hefur með nor- rænni landkynningu leitazt^við að kynna Norðurlöndin á alþjóðleg- um vettvangi. Það hefur sannar- lega lagt sitt lið til að auka gjald eyristekjur Norðurlandanna af er- lertdúm ferðamönnum. Það hefur reynt að auðvelda Norðurlanda- búum að komast með lágum fár- gjöldum inn á liinar björtu braut ir vaxandi kynna og aukinna sam- skipta þjóðanna. Félagið er fyrir sitt leyti stað- ráðið í að halda svo lengi áfram á þessari braut sem því er unnt. Fyrir því mun það á næstunni leggja tillögur sínar til lausnar deilumálunum við SAS löndin fyr ir forsætisráðherra íslands, dr. Bjarna Benediktsson, í þeirri von að hann ræði þær við forsætis- ráðlierra liinna Norðurlandanna á þeim fundi þeirra, sem fyrir- hugaðúr er í Reykjavík í næsta mánuði. Stjórn Loftleiða hefur ákveðið að halda fyrst um sinn áfram flugi til Norðurlandanna með DC-6B flugvélum félagsins, þótt félag- inu sé það mjög óhagstætt. Loftleiðir vona, að þessum æðstu fyrirsvarsmönnum nor- rænna stjórnarvalda verði sam- eiginlega mögulegt að finna á þeim fundi þá bróðurlegu lausn, er tryggi það, að Loftleiðum verði unnt að halda eftirleiðis uppi þeim flugrekstri til og frá Norð- urlöndum, er verði félaginu halla laus, og öllum þeim hagstæður, er hans vilja njóta. Íjþróttir Framhald af 11. síðu Að lokum skýrði Óli Ólsen frá dómaranámskeiði, er hann sótti í Danmörku, þar sem helzt bar á góma tveggja dómara-kerfið. — Leizt Óla mjög vel á þessa aðferð og taldi, að íslenzkir dómarar yrðu eins fljótt og mögulegt væri að reyna þessa aðferð. Að síðustu sleit formaður fund inum og þakkaði mönnum góða fundarsetu. Frá skólum gagnfræðastigsins í Kópavogi Þetta skólaár starfa þessir skólar á gagnfræða- stiginu í Kópavogskaupstað: Gagnfræðaskólinn: Hann sækja allir annars-, þriðja- og fjórða- bekkjar nemendur (þar með taldir nemendur landsprófsdeilda), einnig allir fyrstabekkjar nemendur úr austurbænum og þeir fyrstu- bekkingar úr vesturbænum sem búsettir eru austan Urðarbrautar eða við eftirtaldar götur: Melgerði, Vallargerði, Kópavogsbraut austan Suðurlandsbrautar og Sunnubrautar, Þinghóls braut austan Sunnubrautar, Mánabraut og Sunnubraut. Unglingadeild Kársnesskólans: Þar verða allir aðrir fyrstabekkjar nemendur en áður eru taldir. Skólar þessir verða settir þriðjudaginn 3. októ ber n.k'. á þeim tíma og stað er hér greinir: Gagnfræðaskólinn í Félagsheimili Kópavogs. Kl. 10 f. h. annar bekkur og landsprófsdeild. Kl. 2 e. h. fyrsti-, þriðji og fjórði bekkur. Unglingadeild Kársnesskólans. Kl. 10.30 f. h. í samkomusal skólans. Nemendur hafi með sér ritföng og veri viðbún ir að taka' á móti námsbókum, sem úthlutað verður að skólasetningu lokinni. Fræðslufulltrúi. Bifreiö fil sölu Á bifreiðaverkstæði lögreglunnar við Síðumúla er til sýnis og sölu Chevrolet sendibifreið, árgerð 1963. Upplýsingar á staðnum. Tilboðum sé skilað til Skúla Sveins sonar, aðalvarðstjóra fyrir 8. október n.k, Lögreglustjórinn í Reykjavík. 28. september 1967. Akureyrarvöllur. Á morgun laugardaginn 30. sept. kl. 4,30, leika á Akureyri ÍBA - Fram MÓTANEFND. ’ 14 2S. september 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.