Alþýðublaðið - 08.10.1967, Side 1
Sunnudagur 8. október 1967 — 48. árg. 225. tbl. — VérS 7 Vr.
OPNAN: Ól. J
: - . ' ' '
Stjórn Fosskraft bauð blaðamönn
um austur að Búrfelli á föstudag til
að kynna gang virkjunarframkvæmda
par. Var bíaðamönnum sýnt allt svæð-
ið, sem unnið er á, cn þaó' er mjög
stórt. Til að mynda er loftlíina frá
stíflunni niður við Þjórsá að stöðv-
arhúsinu E-7 kíiómetrar.
Eins og liunnugt er, er verið a3
vinna við inestu virkjunarfram-
kvæmdir, sem til þessa hefur verið
ráðizt í á íslandi, við Búrfell
Vinna við framkvæmdirnar um
500 manns af hinu ýmsa þjóðerni.
Svíar eru fjölmcnnastir erlendra
aðila, sem þar vinna, en einnig
vinnur þar fjöltíi Dana og Þjóð-
verja.
Blaðamenn skoðuðu göngin,
sem verið er að gera í gegnum
Sámsstaðamúla. Þau verða alls
1300—1400 metra löng. Ráðgert
er, að sprengingum í göngunum
verði lokið um páska, en þá yerð
ur mikil vinna eftir inni í göng-
unum. Þegar blaðamenn höfðu
skoðað göngin óku þeir áleiðis
að þeim stað, þar sem stíflan verð
ur niður við Þjórsá. Mátti á leið-
inni sjá, hvernig vatnið á eftir
að koma eftir ákveðinni leið til
inntaksins í munna jarðganganna,
þegar framkvæmdum verður lok-
ið.
Nú er lokið um þriðjung verks
ins viS Búrfell. Verkinu á að vera'
MYNDIR FRÁ
BÚRfELLS-
VIRKJUN
SJá 3. s.
lokið að fullu um áramót 1969 —
’70, og telur stjórn Fosskraft ekki
ástæðu að ætla annað en svo
verði. Nokkrir erfiðleikar hafa
verið á að fá vinnuafl austur að
Búrfelli. Hefur af þeim ástæðum
þurft að fá leyfi til að flytja inn
erlent vinnuafl, einkum trésmiði.
15. september sl. unnu 436 manns
útivinnu við Búrfell, þar af eru
126 útlendingar. Svíar eru fjöl-
mennastir eða um 60%. Alls
vinna á staðnum eitthvað á 6
hundrað manns.
Framkvæmdir við Búrfell hóf-
ust vorið 1966, en sumarið 1966
var mest unnið við að koma upp
bækistöðvum eystra. Síðari hluta
sumarsins var svo byrjað á fram-
kvæmdum, og hafa þær í megin-
atriðum gengið mjög vel. Nokkuð
dróst á langinn að semja um
kaup og kjör, en Það hafði ekki
neina verulega erfiðleika í för
með sér.
Á síðastliðnum vetri var tíð
slæm og hamlaði nokkuð fram-
kvæmdum. Var svo komið á síð-
astliðnu vori, að framkvæmdirn-
ar voru orðnar nokkuð á eftir
áætlun, en í sumar hefur að mestu
tekizt að vinna upp aftur það,
sem tapazt hafði.
Á blaðamannafundi, sem hald
inn var austur við Búrfell, lýsti
Árni Snævarr verkfræðingur j'f-
ir fyrir hönd Fosskraft vegna
blaðaskrifa í sænska blaðinu Dag
ens Nyheter 8. september síðast-
liðinn:
,,Stjórn Fosskraft liarmar um
mæli, sem viðhöfð eru, í nefndu
blaði 8. september síðastliðinn,
um íslenzkt vinnuafl, sem þar er
að hennar dómi ranglega og ó-
Framhald á 3. síðu.
VIÐBURÐARIKT OG
SOGULEGT ÞING
ALÞINGI kemur saman á
þrlðjudaff, og benda ýmsar lík
ur til að þetta verði viðburð-
aríkt og sögulcgrt þing. Að
vanda munu nýkiiörnir alþing-
ismenn safnast saman í þing-
húsinu, en síðan ganga fylktu
liði til kirkju. Þar mun séra
Sigurjón Guðjónsson, fyrrum
prófastur i Saurbæ, prédika.
Forseti íslands setur þingið
að vanda, en að þvi ioknu mun
aldursforseti, sem er Sigurvin
Einarsson alþingismaður, taka
við stjórn fundarins. Mun
hann minnast tveggja látinna
þingmanna, þeirra ísleifs
Högnasonar og Sigurðar Þórð-
arsonar.
Fleira mun væntanlega ekki
verða gert fyrsta daginn. Má
þó búast við, að flokksfundir
verði haldnir, enda er um
margt að tala i öUum f jórum
flokkum. Væntanlega munu
ýmsir fundir innan stjórnar
flokkanna, er fjalla um mál-
efni þingsins, koma saman þeg
ar á mánudag.
Fyrsta verkefni þingsins
verður að afgreiða kjörbréf-
og mun það sjaldan hafa ver-
ið vandasamara en nú. Síðast-
liðið vor reis deUa mUli yfír-
kjörstjórnar Reykjjavíkur og
landskjörstjórnar um stöðu
H-listans, sem Hannibal Valdi
marsson stóð að, hvort reikna
skyldi atkvæði hans með Al-
þýðubandalaginu tU uppbótar
eða ekki.
Landskjörstjóm reiknaði
Alþýðnbandalaginu atkvæði
Il-Iistans, og gaf síðan út kjör
bréf til uppbótamanna eftir
því. Ef þessu verðta riftað,
gæti eitt þingsæti færzt frá
Alþýðubandalaginu til Alþýðu
flokksins. Steingrímur Pálsson
viki þá af þingi, Unnar Stef-
ánsson kæmi í hans stað. Úr
þessu verður Alþingi sjálft að
skera með afgreiðslu kjörbréf
anna.
Alþingi kemur
I———wmiiw * nnfi—ii 'n • i' -•«*
saman á
þrlSJncBag.
Þegar þetta mál hefur ver-
ið útkljáð skiptir þingið sér í
deildir, kýs forseta og nefndir.
Þá kemur að málefnalegum
verkefnum og verður fjáriaga
frumvarp lagt fram. Mun for-
sætisráðherra flytja stefnuræðu
og gera grein fyrir vióhorfum
ríkissfc'órnarinnar. Muo. hann
þar lýsa fyrstu tillöguni um
viðbrögð gegn hinum- geigvæn-
lega efnahagsvanda, sem nú
hefur borið að. Má telja víst,
að það mál setji svip sinn á
þingið í vetur öðrum fremur,
enda hafa íslenzk stjórnvöld
ekki þurft að glíma við meiri
erfiðleika um langt árabil.
^MMMMMMMMMMMMMIMIMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMM
I FUNDUR forsætisráðherra
É Norðurlanda var settur i gær
I kl. 4 í Reykjavik. Forsætis-
i ráðherra Finnlands, Danmerk-
[ ur og Noregs komu í fyrrinótt
: en Erlander forsætisráðherra
| Svia í gær með Gullfaxa. Mynd
i in er af honum er hann var
! að koma að Hótel Sögu síðdeg
i is í gær rétt áður en blaðið
! fór í prentun. Frá fundi for-
i sætisráðherranna verður skýrt
! í blaðinu eftir helgi.