Alþýðublaðið - 08.10.1967, Blaðsíða 6
6
Sunnudags Alþý5ubla3 — 8. október 1967
FYRIR ÁTTA ÁRUM varð
hún skyndilega eitt eftirlætis-
umræðuefni blaðanna um allan
heim. Farah Diba var ekki leng-
ur ung persnesk stúlka sem
stundaði nám í arkítektúr í París
og lifði sínu venjulega lífi án
þess að vekja nokkra sérstaka at-
hygli. Nei, hún var hin útvalda
brúður keisarans aí Persíu, stúlk-
an sem augu sjains höfðu beinzt
að. Það var eins og ævintýri
úr Þúsund og einni nótt, að
minnsta kosti á yfirborðinu. En
ævintýrið hafði líka sínar
skuggahliðar. Farah yrði þriðja
eiginkona keisarans. Hvorug
hinna hafði getað alið honum son
og ríkisarfa, og því var hann til-
neyddur að skilja við þær. 20
árum áður hafði hann gengið að
eiga Fawziu prinsessu, systur
Farúks sem þá var konungur
Egyptalands, og með henni eign-
aðist hann undurfagra dóttur, en
engan son. Síðar kvæntist hann
hinni glæsilegu Sorayu sem var
sannkölluð ævintýrabrúður. En
Soraya gat ekki eignazt barn.
Og samúð heimsins var með
henni þegar hún varð að skilja
við sjainn og rifta hjónabandi
sem virzt hafði mjög íarsælt að
öðru leyti en þessu eina.
Og nú átti Farah að taka við,
ung og óreynd stúlka, aðeins
tuttugu og tveggja ára og alls
óvön hirðlífi og formfestunni
kringum elztu krúnu veraldar-
innar. Margir vorkenndu henni
sárlega. Og hvernig færi, ef
hún gæti heldur ekki alið manni
sínum ríkisarfa? Þá yrði hún
einnig send á brott nokkrum ár-
um síðar.
Enginn vissi neitt um tilfinn-
ingar þessarar ungu stúlku á
þeim tíma. Hún bar auðvitað lotn-
ingu fyrir hans keisaralegu há-
tign og ljómanum kringum há-
sæti hans, en hvernig var henni
raunverulega innanbrjósts? —
Hefði hún ekki heldur viljað
giftast einhverjum jafnaldra
sínum og verða venjuleg móðir?
Blöðin birtu myndir af henni og
langar sögur um hið rómantíska
ævintýr, en hver vissi hvað var
tilbúningur og hvað sannleikur?
Það varð þó ekki dregið í efa,
að Föruh tókst fljótt það sem
Sorayu hafði aldrei tekizt — að
vinna ást og hylli fjölskyldu keis-
arans. Móðir hans sem ávallt
hafði umgengist Sorayu með
kulda og andúð og litið á’ hana
sem hverja aðra innantóma leik-
brúðu, fór smám saman að elska
Föruh eins og dóttur sína. Og
Farah tók hlutverk sitt mjög al-
varlega. Hún kærði sig ekkert
um að vera bara til skrauts við
hlið keisarans. Hún vildi vera
eiginkona hans meira en að nafn-
inu til. Hún vildi vera félagi
hans og vinur, lifa sig inn í
vandamál hans og vera honum
til styrktar í öllum örðugleikum.
Hún sökkti sér niður í sögu ír-
ans, hún kynnti sér innanríkis-
leg og utanríkisleg vandamál
þjóðar sinnar, hún ferðaðist um
landið, heimsótti spítala og fá-
tækrahverfi og tók virkan þátt í
baráttu kvenna fyrir auknum
réttindum. Og hún fékk sjainn
til að gleyma áhyggjum sínum í
þeim fáu tómstundum sem hann
leyfði sér.
Blöðin töluðu um breytinguna
á Reza Pahlavi. Sjainn var aft-
ur farinn að brosa. Hann yngd-
ist upp, og augu hans ljómuðu
þegar Farah var einhvers staðar
nálæg. Það leyndi sér ekki, að
þau voru annað og meira en
góðir félagar, þau voru líka ást-
fangin hjón.
Og krónprinsinn langþráði
fæddist. Þremur árum seinna
eignuðust þau dóttur, og svo
bættist annar sonur við. „Mig
langar að eignast mörg börn,”
sagði Farah ljómandi af gleði.
,,Að minnsta kosti finnn.” Samt
hafði Ali litli verið tekinn með
keisaraskurði. Og í sumar missti
Farah fóstur. Hún hafði lagt of
hart að sér við vinnu og ferða-
lög, sögðu læknarnir. En hún
ætlar samt að eignast fimm
börn.
„Farah .. ? Hún er allt sem
einn maður getur þráð hjá
konu,” sagði sjainn einu sinni
við svissneskan blaðamann. —
Hann er ekki vanur að tala
svo opinskátt, en í það skiptið
gleymdi liann sér. „Hún er ..
ég elska hana.” Og meira þurfti
hann ekki að segja.
26. október verða þau krýnd
keisarahjón. Sjainn vildi ekki
láta krýna sig fyrr en þjóð hans
hefði tekið meiri cfnahagslegum
framförum og lifði ekki iengur
í almennri örbirgð. Hann hefur
lifað fyrir land sitt og ætíð
hugsað mest um hag þess, skipt
jarðeignum sínum milli fátækra
bænda og barizt gegn óeðlilegu
valdi aðalsins. Oftar en einu
sinni hefur verið reynt að ráða
hann af dögum, en jafnvel verstu
fjandmenn hans hafa aldrei get-
að sagt, að hann væri eigingjarn
drottnandi.
Farah Diba verður krýnd keis
araynja við hlið hans, en sjainn
vill meira. Hann hefur lagt fyrir
þingið tillögu sem þykir næstum
fjarstæðukennd í landi þar sem
Múhameðstrú er ríkjandi og
réttur konunnar takmarkaður:
hann vill, að Farah taki við völd-
um ef hann fellur frá áður en
krónpcinsinn hefur náð lögaldri.
Slíkt er traustið sem hann ber
til hinnar ungu konu sinnar.
Kona æðsti valdhafi Persíu?
Það yrði byltingarkennd nýjung.
Frh. á 14. síðu.
Keisarahjónin við þingsetningu í Teharan. Sjainn hefur lagt
fyrir þingið tillögu þess efnis, að Farah verði látin taka við
völdum ef hann fellur frá áður en krónprinsinn liefur náð
lögaldri. Það yrði byltingarkennd breyting á stöðu konunnar
í Múhameðstrúarlandi. (Ofar). Keisarahjóninn með krónprins-
inn, Reza Kurush Pahlavi, sem verður sjö ára í desember.
(Neðar).