Alþýðublaðið - 13.10.1967, Blaðsíða 1
Föstudagor 13. október 1967 — 48. árg. 229. tbl. — VerS 7 kr,
Mikilvægast oð auka fjölbreytni atvinnuveganna
Þungar byrðar verða
Lágmark þess,
sem gera verður
í RÆöU SiNNI á Aiþingi í gær skýrði dr. Bjarni Benediktsson for
sætisráóherra frá þeim ráðstöfunum, sem nú þarf að gera í efna-
hagsmálum vegna verðhruns og aflaleysis. Til að gera ríkisbúskap-
inn haiialausan vantar 750 milljónir króna miðað við síðasta ár, og
er þetta um leið iágmark þess, sem gera verður til aðstoðar at-
vinnuvegunum. Þessar nýju byrðar verður ekki unnt að bæta með
uppbóturn á kaupgjald, ef þær eiga að ná tilgangi sínum.
Eftirfarandi ráðstafanir verða nú gerðar:
1) Felldar niður þær niður-
greiðslur, sem bætt var við
vegna verðstöðvunar síð-
asta ár, a!ls kr. 410 miiljón
ir. Við þetta hækkar verð
landbúnaðarafurða.
2) Tóbak og áfengi hækkar um
samtals 75 milljónir.
3) Tryggingariðgjöld hækka,
ella er fjárhag Trygginga-
stofnunar ríkisins stefnt í
voða, ails um 60 mllljónir
króna.
4) Daggjöld sjúkrahúsa hækka,
en ríkissjóður hefur haldið
Jjeim niðri.
5) Söluskattur verður lagður
á póst- og símagjöld og af-
notagjöld hljóðvarps og
sjónvarps. Tekjur 40 millíj-
ónir.
6) Nýr skattur verður lagður
á farmiða ttl útlandi, kr.
3.000 á hvern miða. Tekj-
ur alls 60 milljónir.
7) Eignaskattur hækkar vegna
hækkaðs mats, en það verð
úr í þéttbýli 12-faldað, en
hefur verið 6-faldað. Lág-
mark skattskyldra nettó-
eigna verður og tvöfaldað,
svo að skatturinn lendi ekki
á tiitölulega eignaUtlu fólki.
Þá verður tekin upp ný vísi
tala, sem byggð er á neyzlu-
venjum þjóðarinnar 1965 og á
að sýna réttaxi mynd af þeim
en gamla talan. Nýja vísitalan
tekur gildi 1. marz. Ráðstafan-
irnar að ofan munu (hækka
nýju vfsitöluna um 4—5%,
hina eldri nokkru meira.
Eftir þessar hækkunaraðger®
ir verður enn haldið verðstöðv
un og jþess freistað að forðast
áframhaldandi verðbólgu.
Nýr stjórnarsamningur
var birtur á Albingi í gær
EITT AF MIKILSVERÐUSTU MARKMIÐUM ríkisstjómarinnar í næstu framtíS
verffur aff gera atvinnuvegina fjölbreyttari og óháðari sveiflurrt, jafnframt
því sem markvisst verffur unnið a3 aukinni framleiðni, sagSi dr. Bjarni
Benediktsson forsætisráðberra í stefnuræðu þeirri, er han» íiutti Alþingi
í gær.
Forsætisráðherra minnti á mikla framleiðslu, hátt afurðaverð og vel-
megun sfðustu ára, en kvað verkefnin framundan allt annars cðlis. Vegna
verðhruns og afiatregðu yrði að bæta hag ríkissjóðs um 750 iirilljónir
króna til að forðast haiia á árinu 1968, og væri þetta jafniramt lág-
mark þess, sem gera þyrfti til aðstoðar atvinnuvegunum.
Bjarni
Bjarni Benediktsson
Dr. Bjarni gerði grein fyrir
'þeim ráðstöfunum, sem nú væri
óhjákvæmilegt að leggja á, en
greindi einnig frá samkomulagi
því, sem Alþýðuflokkurinn og
Sjálfstæðisflókkurinn hefðu gert
með sér um áframhaldandi stjórn
arsamstarf. Auk efnahagsráðstaf-
ana gat hann um eftirtalin mál,
sem samið hefði verið um:
Sjávarútvegur: Endurnýjun þorsk
veiðiflotans og endurskipulagn
ing fiskvinnslunnar til að
tryggja betri nýtingu tækja.
Landbúnaður: Stefnt að aukinni
framleiðni, framleiðslu fyrir
innanlandsmarkað og útflutn-
ingi án uppbóta.
Iðnaffur: Stjómin mun styðja að-
lögun iðnaðarins að breyttum
aðstæðum og efla sérstaklega
iðngreinar, sem eðlilegastar eru
við íslenzkar aðstæður, t.d.
skipasmíðar og viðgerðir,
og
veiðafæraiðnaður, netagerð
hagnýtingu auðlinda.
Verzlun: Unnið að lækkun dreif-
ingarkostnaðar og sett löggjöf
um einokunarmyndun og sam-
tök um verðlagningu.
Ríkið: Tilkostnaður verði iækkað
ur hjá ríki og í opinberum fram.
kvæmdum eins og í atvinnuveg
um.
StóriíVia: Áfram verði unnið að
upphyggingu stóriðju — í sam-
starfi við erlenda aðila, ef þess
verður þörf. Bent á sjóeínaverk
smiðju og stækkun áburðarverk
smiðju.
Mark'aðsmál: Bæta veiður mark-
aðsaðstöðu íslenzkra atvinnu-
vega. Þrautkanna á aðild að
Fríverzlunarbandalaginu, at-
Ihuga samninga við Efnahags-
bandalagið, en þar kemur aðild
ekki til greina.
Framhald á bls. 15.
Lifskjorin nijota
versna um sinn
Er forsætisráðherra hafði flutt fhrtti við þær umræður svohljóðandi
stefnuræðu ríkisstjórnarlnnar á þing yfirlýsinp fyrlr hönd flokksins:
fundi í gær tóku formenn annarra;
þingflokka til máls. Dr. Gylfi Þ. |
Herra forsetí!
Fyrir hönd Alþýðuflokksins vil ég
Gfslason menntamálaráðherra, for- taka fram, að miðstjórn flokksins
tnaður þingflokks Aiþýðuflokksins hefur samþykkt einróma að halda
áfram stjórnarsamstarfi við Sjálf-
stæðisflokkinn á grundveiii þeirrar
stefnuyfirfýsingar, sem hæstvirtur
forsætisráðherra hefur nú lesið, og
ennfremur að verkaskipting í ríkis
i stjórninni skuli vera óbreytt.
| Alþýðublaðið átti stutt tal við
menntamálaráðherra að loknum
þingfundi í gær. Fyrsta spurming
blaðsins var um stjórnarsamstarf-
ið og svaraði dr. Gylfi Þ. Gísla-
son henni á þessa leið:
— Alþýðuflokkurinn vann í sum
ar einn mesta kosningasigur, sem
hann hefur unnið í sögu sinni, og
bætti við sig einu þingsæti. Kosn
ingaúrslitin voru ótvíiæð trausts
yfirlýsing til flokksins. Eitt hið á-
nægjulegasta við kosningabarátt-
Framhald á bls. 15.