Alþýðublaðið - 13.10.1967, Blaðsíða 4
[2MEÖI>
Rltstjórl: Benedikt Grðndal. Simar 14900—14903. — Auglýsingasiml:
14906. — AOsetur: AlþýSuhúsið við Hverfisgötu, Rvík. — Prentsmiöja
Alþýöublaösins. Siml 14905. — Askriítargjald kr. 105.00. — 1 lausa*
sölu kr. 7.00 eintakiO. — Útgefandl: Alþýöuflokkurlnn.
Deila um kjörbréf
í FYRRADAG URÐU harðar umræður í sölum Al-
þingis um kjörbréf Alþýðubandalagsmannsins Stein-
gríms Pálssonar. Voru þá rifjaðar upp d'eilur um skiln
ing á kosningalögum síðan fyrir kjördag á síðasta
vori, og reyndu þingmenn óspart að sanna með til-
vitnunum og fullyrðingum ósamræmi í málstað hvers
annars, svik við kjósendur og pólitískan skollaleik
í þessum umræðum kom berlega í ljós, hversu
margklofið Alþýðubandalagið er, og verður að kalla
það kraftaverk, að þingmenn þess skuli sitja í einum
flokki. Það neistar á milli Magnúsar Kjartanssonar
og Hanni'oais. Karl Guðjónsson afneitar Þjóðviljan-
um. Lúðvík Jósefsson getur í hvorugan fótinn stigið.
Kjarni málsins er þó afgreiðsla á kjörbréfi Stein-
gríms, sem gefið var út af landskjörstjórn á þeim
grundvelli, að reikna bæri atkvæði, sem listi Hanni-
bals Valdimarssonar hlaut, með atkvæðum Alþýðu-
bandalagsins til uppbótar.
í atkvæðagreiðslu um kjörbréfið sátu Alþýðuflokks-
þingmenn hjá. Þessi afstaða byggist ekki á því,
að þeir geti ekki tekið ákvörðun í málinu. Þeir kom
ust að þéirri niðurstöðu eftir vandlega athugun, að
ekki væri lagalegur grundvöllur til að hnekkja úr-
skurði landskjörstjórnar. Hvort sem mönnum líkar
betur eða verr sé óhjákvæmilegt að viðurkenna, að
bókstafur laganna sé Steingrími í vil. Hins vegar hef
ur gangur málsins allur verið með endemum. Það
var lýðum ljóst, að listi Hannibals var borinn fram
gegn Alþýðubandalagslistanum í Reykjavík, en full-
trúar G-listans og Þjóðviljinn afneituðu I-listanum,
Þingmenn Alþýðuflokksins neita að taka þátt í að
staðfestá þennan ljóta leik og láta hinu sundurleita
þingliði Alþýðubandalagsins það efir — með aðstoð
Framsóknar.
Hins vegar lýstu þingmenn Alþýðuflokksins -yfir,
að þeir mundu beita sér fyrir endurskoðun kosninga-
laganna, svo að slíkir atburðir geti ekki komið fyrir
aftur. Tóku Sjálfstæðismenn, Framsóknarmenn og
Magnús Kjartansson undir það, en Hannibal Valdim-
arsson taldi það fráleitt — lögin ættu að vera óbreytt!
Þessi niðurstaða kjörbréfamálsins er Alþýðuflokks
mönnum ekki sársaukalaus. Ef unnt hefði verið að
fylgia heilbrigðri skynsemi einni saman, ætti sæti
Stcingríms að ganga til Alþýðuflokksins og Unnar
Stefánsson að skipa það. Aðstæður leyfa ekki bá
lausn málsins. Unnar fær því ekki fast sæti í þing
húsinu að sinni, en hann mun sem fyrsti varamaður
Albýðuflokksins verða þar tíður gestur. Hann hefur
komið þar áður og flutt mál, sem vakið hafa mikla
-athygli, mál fyrir neytendur, fyrir sveitarfélög, fyrir
Suðurlmdskjördæmi og fleiri aðila, sem Alþýðuflokk
urinn vill styðja.
4 13. október 1967 - ALÞÝÐUBLAÐID
BRÚÐKAUP
Laugardaginn 16. sept. voru
gefin saman í Háteigskirkju ung
frú Guðrún Ægisdóttir og Guðjón
Skarphéðinsson. Faðir brúðgum-
ans séra Skarphéðiun Pétursson
gaf brúðhjónin saman. Heimili
þeirra verður að Barmahlíð 29,
Rvík.
Laugardaginn 23. sept. voru
gefin saman í Dómkirkjunni af
séra Þorleifi Kjartani Kristmunds
syni ungfrú Rósa Thorsteinsson
og Pétur Jónsson. Heimili þeirra
verður' að IJraunbæ 146, Rvík.
Þann 12. ágúst voru gefin saman
í hjónaband í Fríkirkjunni í Hafn
arifirði af séra Kristni Stefáns-
syni ungfrú Áslaug Hallgrímsdótt
ir og Hr. Reynir Svansson. Heim-
ili þeirra er að Stekkjarkinn 5
Hafnarfirði.
Laugardaginn 16. sept voru gef
in saman í Kópavogskirkju af
séra Gunnari Árnasyni ungfrú Sig
urjóna Sigurðardóttir og Hall-
dór Ásgrímsson. Heimili þeirra
verður að Hraunbæ 174, Rvík.
Laugardaginn 16. sept. voru
gefin saman í Háteigskirkju af
séra Arngrími Jónssyni ungfrú
Sæunn Grendal Magnúsdóttir og
Birgir Hofland Traustason. Heim
ili þeirra verður að Grænuhlíð 7,
Rvík.
Laugardaginn 9. sept. voru
gefin saman í Bessastaðakirkju
af séra Garðari Þorsteinssyni ung
frú Sveinrós Sveinbjarnardóttir
lijúkrunarkona og Haukur Heið-
ar Ingólfsson stud. med. Heimil^
þeirra verður að Oddagötu 10 R-
vík.
Laugardaginn 23. sept. voru gef Laugardaginn 16. sept voru gef
in saman í Neskirkju af séra in saman í Keflavíkurkirkju af
Frank M. Halldórssyni ungfrú séra Birni Jónssyni ungfrú Elísa-
Gréla Sigurðar'dóttir hárgreiðslu bet Árný Tyrfingsdóttir og Ge-
dama og Sigurður Hreiðarsson org Valenlínusson. Heimili þeirra
sjómaður. Heimili þeirra verður verður iá Reykjanesvegi 6,
að Kársnesbraut 38, Kópavogi. Ytri-Njarðvík.
Laugardaginn 23. sept. voru
gefin saman í Neskirkju af séra
Jóni Thorarensen ungfrú Jóna S.
Guðbrandsdóttir og Ásbjörn Ein-
arsson. Heimili þeirra verður í
Manchester, Englandi.