Alþýðublaðið - 13.10.1967, Side 3
Kommúnistar, sem eiga sæti í
ríkissdjórn Finnlands, hafa lýst
sig andstæða gengislækkuninni,
en ekki er talið að sú afstaða
iþeirra leiði þó tii stjórnarkreppu.
Áður en ákvörðunin um gengis-
lækkunina var tekin ræddi ríkis-
stjórnin málið við Kekkonen for-
seta og stóðu þær viðræður yfir
í eina klukkustund.
Gengisfallið
tafði flugið
Flugvélar gátu ekki haldið
áælun í utanlandsflugi frá
Finnlandi í gær vegna geng
islæktSunarinnar. Gengis-
lækkunin hafði það nefni-
lega í för með sér að all-
ir fai’miðar hækkuðu í verði
og farþegar urðu að gréiða
viffhótargjald, áður en þeir
fengu að stíga út í flugvél-
arnar. Þetta þoldu margir
illa og kom iðulega til deilu
mála milli flugfarþega og
afgreiðslufólks út af þessu
gjaldi. Segja fréttasofu-
gjaldi. Segja fréttastofufregn
ir, að allra veðra hafi verið
von í Helsinki í gærmorgun.
Ríkisstjórn Finnísnds ákvað á miðvikudagskvöldið að fella gengi finnska *
marksins um 31,25%. Segir í tiikynningu, sem ríkisstjórnin gaf út um
þessa ákvörðun, að hún sé gerð eftir tillögum frá ríkisbanka Finnlands
og að fengnu samþykki alþjóða gjaideyrissjóðsins. Tilgangur gengislækk-
tmarinnar er sá að skapa grundvöil fyrir aukna þjóðarframleiðslu.
Finnsk tolöð rituðu talsvert um
gengislækkunina í gærmorgun og
segir Huvudstadbladet meðal ann
ars að það komi á óvart að geng-
islækkunin sé sVo mikil og að hún
sé ákveðin á þessum tíma, þótt
hitt sé ekki undrunarefni til geng
íslækkunar hafi dregið. Málgagn
jafnaðarmanna teiur að gengis-
lækkunin muni tvímælalaust leiða
til hagstæðari greiðslujafnaðar og
telur ákvörðunina réttmæta, en
mlálgagn miðflokksmanna bendir
á að gengislækkunin ein nægi ekki
til að koma efnahagslífi landsins
á réttan kjöl, heldur verði aðrar
aðgerðir að koma til líka, eins og
ríkisstjórnin hafi boðað. Blað
kommúnista telur að gengislækk-
unin sé auðmýkjandi fyrir þjóð-
ina og hægt hefði verið að kom-
ast hjá henni, he|iu viðeigandi
ráðstafanir verið gerðar í tíma;
nú sé hins vegar of seint að breyta
nokkru rnn málið.
Koivisto fjármálaráðherra Finn
lands gerði í gær grein fyrir á-
kvörðun stjórnarinnar um geng-
islækkunina og sagði að megintil
gangur hennar væri að hleypa
nýju blóði í avinnulífið, stjórna
fjármagninu þannig að það ýti
undir aukna þjóðarframleiðslu og
hvetji til þeirra breytinga á at-
vinnulífinu, sem aukin framleiðni
og bætt samkeppnishæfni atvinnu
veganna krefjist. Aðalbankastjóri
Finnlandsbanka, Klaus Waris, tók
í sama streng.
Framhald bls. 10.
Birgir Finnsson tekur við fundarstjórn í Sameinuðu þingi í gær.
irgir Rnnsson kjörinn
forseti Sameinaðs þings
BIRGIR FINNSSON var í gær
endurkjörinn forseti Sameinaðs
þings með 32 atkvæðnm stjórnar-
flokkanna, en Framsókn og AI-
þýðubandalagið höfðu kosninga-
bandalag og tefldu fram Eysteini
Jónssyni, sem fékk 28 atkvæði.
Fyrsti varaforseti var kjörinn
Verð hækkar á landbúnaðar-
vörum, áfengi og tóbaki
Allmiklar verffhækkanir urðu á
ýmsurn; najuðsynjavörum í gær.
Smjör og ostur hækkuðu um 25—
30%, mjólk hækkaði um 2 kr.,
súpukjöt um tæpar 6 kr. og á kart
öflum vai-ð' 6 kr. liækkun. Enn-
fremur hefur orðið 13% hækkun
á flestum vörum þeim, sem Áfeng
is- og tóbaksverzlun ríkisins sér
um sölu á.
Ástæðan til hækkunarinnar á
fyrrtöldum nauðsynjavörum, er
sú að ríkisstjórnin hefur ákveðið
að fella niður eða draga úr niður-
greiðslum, sem á vörunum hafa
verið, og hækka vörurnar þess
vegna um það sem niðurgreiðsl-
unum nemur. Þannig voru t.d.
felldar niður niðurgreiðslur á osti
og kostar nú kilóið af 45% osti
133.10 kr., en kostaði 106.70 áður.
Kíló af Smjöri kostar nú 108.20
Bridgespilarar
í Tvfmenningskeppni hefst n.k. iaugardag 14. október ki. 2
* (stundvísiega) í Ingólfskaffi, gengið inn frá Ingólfsstræti.
Stjórnandi: Guðmundur Kr. Sigurðsson.
ÖLLUM HEIMIL ÞÁTTTAKA.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur.
4
e. h.
kr. og kíló af súpukjöti kr. 75.50.
í fyrradag, áður en hækkanirnar
komust til framkvæmda, kvisað-
ist eitthvað ut um þetta og olli
talsverðri hömstrun hjá fólki.
Einkum jókst smjörsala mikið og
í sumum verzlunum seldust allar
smjörbirgðir upp á skömmum
tíma.
Frá deginum í gær að telja not
ar Áfengis- og tóbaksverzlun rík
isins nýja verðskrá, þar sem flest
ar vörur eru með hæn'a verði en
áður. Brennivínsflaskan kostar nú
kr. 315.00 og flaskan af Vodka
kr. 395.00. Þá hækka allar síga-
rettutegundir talsvert og sama er
að segja um reyktóbak og eldspýt
ur.
Að sjálfsögðu ná hækkanirnar
á landbúnaðarvörunum ekki til
þeirra vara, sem ekki hafa ver-
ið niðurgreiddar, svo sem skyrs,
rjóma og nautakjöts.
Olafur Björnsson, en annar vara-
forseti Sigurður Ingimundarson.
í Neðri-deild var kjörinn Sigurð
ur Bjarnason, fyrsti varaforseti
Benedikt Gröndal, annar varafor-
seti Matthías Á. Mathiesen. í Efri
deild var kjörinn forseti Jónas
Rafnar, fyrsti varaforseti Jón Þor
steinsson og annar varaforseti Jón
Árnason.
★ KJÖRBRÉF SAMÞYKKT
Fundur í Sameinuðu þingi hófst
á atkvæðagreiðslu um kjörbréf
Steingríms Pálssonar. Var það
samþykkt að viðhöfðu nafnakalli
i með 28 atkvæðum gegn 1, en 31
: sat hjá. Alþýðubandalag og Fram.
■ sókn greiddu bréfinu atkvæði og
' er það því samþykkt með innan
við helming atkvæða á þingi. Gegn
I því greiddi aðeins einn atkvæði,
Pétur Benediktsson, og gerði grein
fyrir afstöðu sinni í jómfrúræðu
sinni á þingi. Önnur kjörbréf voru
samþykkt án frekari athugasemda,
einnig bréf Hannibals Valdimai'S
sonar, sem segir hann vera utan
flokka.
Þá var kosið í kjörbréfanefnd
og til Efri-deildar, en þangað
fara 20 af 60 alþingismönnum.
Fjárlagafrumvarp
með nýju snibi
FJÁRLAGAFRUMVARP fyrir árið 1968 var lagt fram á Al-
þingi í gær, og er það 225 blaðsíðna bók — hin stærsta til
þessa. Hefur frumvarpið verið sett upp á algerlega nýjan hátt
og er nú í því að finna aragrúa af upplýsingum, sem þar voru
ekki áður. Af þessum sökum er ógerningur að bera niðurstöðu
tölur saman við tölur á fjárlögum fyrri ára.
Samkvæmt hinni nýju reikningsaðferð verða heildarútgjöld
ríkissjóðs 6.120 milljónir króna og nokkru betur, en heildar-
tekjur 6.195 milljónir. Tekjur umfram gjöld eru því 74,8 millj-
ónir. Lánahreyfingar ut eru 37,5 milljónum meiri en inn, og
verður því greiðslujöfnuður frumvarpsins hagstæð'ur um 37,3
milljónir.
í fjárlagafrumvarpi þessu er útgjöldum haldið í skorðum
svo sem framast er unnt og ekki aukið við þau, nema enginn
kostur sé að komast hjá því, svo sem vegna fólksfjölgunar
eða skuldbindinga. Hins vegar er gert ráð fyrir þeim f jármun
um, sem tryggja á með þeim ráðstöfunum, sem forsætisráð-
herra tilkynnti.
13. október 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3