Alþýðublaðið - 13.10.1967, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 13.10.1967, Blaðsíða 8
FORSÆTISRÁÐ- HERRA, dr. Bjarni Benediktsson, flutti í gær alþingi stefnu- ræðu ríkisstjórnar- innar. Greindi hann þar frá samkomu- lagi Alþýðuflokksins og Sjálfstæðis- flokksins um áfram- haldandi stjórnar- samstarf. Ræðan er .hér birt í heild. starfi sínu áfram, enda hafa þeir ákveðið að gera það. Verkefni þau, sem nú blasa við, eru hins vegar mjög ólík þeim, sem verið hefur við að etja á undanförnum árum. Verð- fall á helztu útflutningsvörum, erfitt árferði víða um land og aílatregða hafa á síðustu miss- erum gerbreytt viðhorfum í ís- lenzkum efnahagsmálum. Vegna þess, að allur almenningur hef- ur að undanförnu fengið hlut- íallslega meira en fyrr af stór- auknum þjóðartekjum, verður ekki hjá því komizt, að samdrátt ur þeirra um sinn leiði nú til minnkandi tekna launþega jafnt og annarra. En aðalviðfangsefn- ið hlýtur að verða að koma í veg fyrir, að þessir örðugleikar leiði til atvinnuleysis og varanlegrar kjaraskerðingar. Til þess, að það takist, þarf að gera ráðstafanir til að ná jafnvaegi í tekjum og gjöldum ríkissjóðs, helztu at- vinnugreina og þjóðarbúsins í heild. Verðfailið, sem hófst fyrir 75 millj. kr. Óhjákvæmilegt er að fallist á tillögu Trygginga- stofnunar ríkisins um hækkun iðgjalda um rúmlega 60 millj. króna því að ella væri fjárhag stofnunarinnar stefnt í voða. Leyfð verður hækkun daggjalda sjúkrahúsa, sem frestað var í ár með sérstökum greiðslum úr rík- issjóði. Þá munu afnumtíar und- anþágur sem í gildi hafa verið um greiðslu söluskatts af póst- og símagjöldum og afnotagjaldi áf hljóðvarpi og sjónvarpi. Eyk- ur það tekjur ríkisins um 40 millj. kr. Jafnhliða fjárlagafrumvarpinu mun ríkisstjórnin leggja fyrir Aiþingi frumvarp um sérstaka tekjuöflun og aðrar nauðsyn- legar ráðstafanir vegna efna- hagsörðugleikanna. Ætlunin er að leggja skatt á farmiða til út- landa, 3000 krónur á hvem miða og er gert ráð fyrir að þessi skattur afli ríkissjóði um 60 millj. kr. tekna á ári. Ennfremur verður lagt til, að við álagningu eignaskatts verði fasteignamat í hækka um 4—5% í kjölfar þeirra ráðstafana, sem nú hefur verið lýst. Á hinn bóginn er fullvíst, að atvinnuvegir landsmanna geta ekki eins og nú horfir greitt hækkað kaup. Þess vegna er nauðsynlegt að koma í veg fyrir, að þessi hækkun fram- færslukostnaðar valdi tilsvar- andi kauphækkun, og eru því í frumvarpinu ákvæði um það, að kaup skuli ekki hækka vegna þessara ráðstafana. Að frátöld- um slíkum óhjákvæmilegum verðhækkunum eins og þeim, sem taldar hafa verið, mun rík- isstjórnin áfram fylgja verð- stöðvunarstefnu, og er gert ráð fyrir, að ákvæði núgildandi verð- stöðvunarlaga séu framlengd með því frumvarpi, sem áður er getið um. Jafnframt er ætl- unin, að hin nýja vísitala taki gildi 1. marz næstk. og miðist kaupgjald framvegis við hana á sama hátt og verið hefur sam- kvæmt eldri vísitölu. Þær ráðstafanir, sem nú hafa verið taldar eru tvímælalaust Alþýðuílokkurinn og Sjálf- stæðisflokkurinn hafa nú haft samvinnu í ríkisstjórn síðan haustið 1959 eða í 8 ár. Hefur þetta samstarf staðið lengur samfleytt en nokkur önnur sam- vinna um stjórn landsins. Við upphaf þess mótuðu flokkarn- ir nýja stefnu í efnahagsmálum. Markmið hennar var að styðja að aukningu þjóðartekna og bættum lífskjörum með því að beina framleiðslu og viðskipt- um inn á hagkvæmar brautm, rétta við greiðslujöfnuð við önnur lönd og endurvekja láns- traust þjóðarinnar erlendis. — Stefna sú, sem fylgt hefur ver- ið, hefur ásamt mikilli fram- leiðslu og hagstæðu útflutnings- verðlagi sjávarafurða hin síðari ár fram á árið 1966 orðið þess valdandi, að þjóðartekjur hafa á undanfömum árum vaxið meira en á nokkru öðru sam- bærilegu skeiði, þannig að lífs- kjör þjóðarinnar jafnt til sjávar og sveita hafa að undanfömu ver- ið betri og batnað örar, en nokkru sinni fyrr. Þetta á sinn þátt í því, að þjóðin hefur vott- að stjórnarflokkunum traust í þeim tvennum Alþingiskosn- ingum, sem háðar hafa verið frá því að þeir gengu saman í rikisstjórn. Alþingiskosningarn- ar nú í sumar leiddu i ljós, að stjómarfÍQkkarnir hafa meiri hluta kjósenda að baki sér og hiutu meiri hluta í béðum deild- um alþingis. Það er þess vegna ótviræður vilji kjósenda, að stjórnarflokkarnir haldi sam- rúmu ári, gerði að verkum, að augljóst var, að útflutningsat- vinnuvegirnir gætu ekki risið undir aukningu framleiðslu- kostnaðar. Ákvað ríkisstjórnin því að beita sér fyrir verðstöðv- un, í trausti þess, að launþegar æsktu þá ekki launahækkunar. í þessu skyni varð ríkisstjórnin að stórauka niðurgreiðslu vöru- verðs samfara öðrum ráðstöfun- um jafnframt því, sem aðstoð við sjávarútveginn var aukin. Var þetta kleift í bili, án nýrr- ar tekjuöflunar, vegna mikils tekjuafgangs ríkissjóðs á árinu 1966, enda voru þá taldar horfur á, að verðfallið yrði ekki varan- legt. Nú hefur raunin orðið önn- ur svo bersýnilega er ekki unnt að minnka fyrirgreiðslu við sjávarútveginn og ef halda ætti öllum þeim niðurgreiðslum, sem eiga sér stað, auk fjáröflunar til þess að greiða óhjákvæmi- legan kostnaðarauka ríkisbúsins vegna fólksfjölgunar og skuld- bindinga, sem þegar hvíla á rík- inu, þyrfti á næsta ári að afla um 750 milljón króna nýrra tekna til þess að ríkisbúskapur- inn yrði hallalaus. Þess vegna hefur ríkisstjóm- in ákveðið, að fella niður þær niðurgreiðslur á íslenzkum land- búnaðarv., sem ákveðnar hafa verið vegna verðstöðvunarinnar. Er hér um að ræða niðurgreiðsl- ur að upphæð 410 millj. kr. á ársgrundvelli. Þá' hefur verð á- fengis og tóbaks nú verið hækk- að fallast á tillögu Trygginga- tekjiur ríkissjóðs á næsta ári um kaupstöðum og kauptúnum tólf- faldað í stað þess, að það er nú sex-faldað, en sex-faldað í sveit- um, þar sem engin matshækkun er nú, og verður þessi hækkun þó lægri en hins nýja fasteigna- mats. Jafnframt verður lágmark skattskyldra nettoeigna tvöfald- að til þess að hækkun fast- eignamatsins komi .ekki niður á fólki, sem er tiltölulega eigna- lítið. Auk þess munu verða gerð- ar ýmsar ráðstafanir til sparn- aðar í opinberum rekstri. Með framangreindum ráð- stöfunum á ríkisbúskapurinn að geta orðið hallalaus á næsta ári, en það er frumskilyrði þess, að hægt sé að ráða við þá efnahags- örðugleika, sem nú steðja að. Þessar ráðstafanir og þá auð- vitað fyrst og fremst niðurfell- ing þeirra niðurgreiðslna, sem upp hafa verið teknar, síðan verðstöðvunin komst á, hljóta að auka .framfærslukostnað. Kauplagsnefnd og Hagstofan hafa reiknað út tvær vísitölur um breytingar á framfærslu- kostnaði. Samkvæmt gildandi- lögum breytist kaupgjald í sam- ræmi við breytingar á eldri vísi-- tölunni. Það verður hins vegar ekki véfengt, að nýrri vísilalan er réttari mælikvarði á breyt- ingu raunverulegs framfærslu- kostnaðar, því að hann' er mið- aður við neyzluvenjur á árinu 1965, - en ■ ekki 1953—1954 eins' og hinn fyrri, þegar lífskjör al- mennings voru miklu lakari en nú. Nýrri visitalan er talin munu lágmark þess, er gera þarf at- vinnuvegunum til styrktar. Á undanförnum árum hefur ávallt þurft að framkvæma öðru hvoru aðgerðir af því tagi, sem nú eru ráðgerðar. Slíkt er auðvitað ó- æskilegt. Til þess að eyða nauð- syn þvílíkra skyndiaðgerða ætíð öðru hvoru, þarf að gera at- vinnuvegi þjóðarinnar fjölbreytt- ari og síður sveiflum háða, jafn- framt því, sem markvíst verði að því unnið, að auka framleiðni í öllum atvinnugreinum sem og hagkvæmni í rekstri ríkis og sveitarfélaga. Stjórnarflokkarn- ir eru sammála um, að þetta sé á meðal mikilvægustu verkefna næstu ára, og mun ríkisstjórnin Ieggja höfuðáherzlu á, að árang- ur náist í þessum efnum. í þessu skyni mun ríkisstjórn- in beita sér fyrir, að fram- leiðslugeta atvinnuveganna verði nýtt sem bezt . enda verði þessa gætt bæði í rekstri og fjárfestingum. í sjávarútvegi verði lögð sér- stök áherzla á endurnýjun þorsk- veiðiflotans og þá endurskipu- lagningu fiskvinnslunnar, sem nú þegar er hafin, þannig að betur nýtist þau tæki, sem þeg- ar- eru fyrir hendi. • í landbúnaði ■ verði-stefnt að því að auka framleiðni og fjöl- breytni framleiðslunnar, þannig að.-hantt veröi: í-framtíðinni fær um að fullnægja margbreyti- legum þörfum . innlends mark- aðs- og- flytja út- vörur án upp- bóta úr ríkissjóði. í iðnaði verði haldið áfram að styrkja viðleitni fyrirtækja til að laga sig að þeim breyttu aðstæðum, sem,frjáls innflutn- ingur og lækkandi tollar skapa. Sérstaklega verði stefnt að efl- ingu þeirra iðngreina, sem eðli- legastur starfsgrundvöllur er fyrir hér á landi svo sepi iðnað í tengslum við framleiðsluat- vinnuvegina þ. á. m. skipasmíð- ar og skipaviðgerðir, veiðarfæra- iðnað og netagerðir, og stuðlað verði að stofnun iðngreina til hagnýtingar náttúruauðlinda. í viðskiptum verði lögð á- herzla á að efla nýja verzlunar- hætti, er lækki dreifingarkostn- að, jafnframt því, sem sett verði eftirlit með einokunarverð- myndun og samtökum um verð- lagningu. Um opinberan rekstur og franikvæmdir mun ríkisstjórnin leggja áherzlu á, að gerðar séu hliðstæðar ráðstafanir og í at- vinnurekstri til lækkunar til- kostnaðar. Fjárlaga- og hag- sýslustofnunin mun hafa forystu um að beita sér fyrir þessu í samvinnu við einstök ráðuneyti, stofnanir og sveitarfélög.. Jafnframt því sem unnið verði að framleiðniaukningu hvarvetna sem við verður kom- ið, telur rikisstjórnin, að halda beri áíram stóríðjuframkvæmd- um, svo að öll landgæði, þ. á. m. fossa-afl og jarðhiti nýtist þjóð- inni allri til heilla. í því skyni telur ríkisstjómin að leita beri samvinnu við erlenda aðila eft- ir því, sem þörf er á, jafnframt því, sem úrslitayfirráð íslend- g 13. október 1967 - ALÞÝÐUBLAÐID

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.