Alþýðublaðið - 31.10.1967, Blaðsíða 15
Flugsamgöngur
í'rainnaiu ur opnu.
ins, að til aivanegs sRaða getur
orðið.
Þess vegna haía menn komizt
að raun um, ao þegar flugvélin
á að fai'a í gegnum hljóðmúrinn,
verður þaö ao gerast i gífur-
legri hæö og örugglega nógu
langt frá borgum.
Önnur vandamái eru í sam-
bandi við risaíiugvélar af venju
legri gerð. I byggingu þeirra er
einnig við erfoieiKa að etja, en
ekki eins marga. Þar er um að
ræða að framieiöa þotu eða
skrúfuþotu, sem getur flutt 700
— 1000 farþega iangar vegalengd
ir til að verö feröanna lækki frá
því sem er í dag.
Þessar risaþotur yrðu með
mörgum farrýmum, þar yrðu 30
flugfreyjur og þar yrðu 10 smá
veitingahús. Þessar þotur myndu
gjörbreyta feröavenjum okkar.
Svo er það íiúgvéiin, sem fara
á stuttar vegalengdir og getur
hafið sig til fiugs og lent á
stuttum torautum. Þegar tækni-
leg vandamál við gerð hennar
hafa verið leyst, munu flugvél-
ar verða mún meira notaðar í
fei ðir á miili stuttra vega-
lengda. Vélarnar verða að geta
lent á um 50 m braut og einn-
ig þó að um sé að ræða gras
og ójöfnur.
Hætt hefur verið við í bili
að gera tilraunir meö flugvélar
sem geta hafið sig til flugs lóð-
rétt eins og þyrlur. Slíkt mundi
verða mjög dýrt og alls ekki
hættulaust.
Sennilega verður ekki farið út
í að framleiða flugvélar er
fljúga hraðar en sagt hefur ver-
ið frá hér í greininni, því að
næsta skrefið verða eldflaug-
ar. Þeim verður skotið á loft
líkt og geimförum, sem fara út
fyrir gufuhvolfið og fara úm
geiminn. Þær koma aftur inn
í gufuhvoifið rétt áður en þær
lenda, hinum megin á hnettin-
um, eftir 40 mín. ferð. Þær fyr-
irætlanir eiga að rætast árið
1980.
Þegar um er að ræða flugvél-
ar, knúnar atómkrafti, hafa
tmenn frestað þeim tilraunum af
ýmsum ástæðum. Þó eru nokkr-
ir vísindamenn í Boston, sem
vinna að hugmyndinni um að
nota þessa oi-ku til að knýja
geysistór loftskip. Ferðin frá
Evrópu til Ameríku tekur þá
heilar 36 klst., en farþegarnir
munu hafa sama aðbúnað og
væru þeir á skemmtaferðaskipi.
í Þýzkalandi er verið að vinna
að svipuðum athugunum, til
þess að reyna að lækka far-
mið'averðið eins og mögulegt er
og því eiga loftskipin að taka
sem flesta farþega.
Farartækið verður að svipa
til geimfaranna, sem þegar eru
í notkun, en ólík að því leyti að
hver hluti þess verður að geta
snúið til jarðar. Farþegar og
farangur, sem fara á tll geim-
stöðvar, verða í aftasta og
minnsta hluta farartækisins. En
til að ná þessu takmarki verður
að gera farartæki, sem getur
farið með tuttugu og tvöföldum
hraða hljóðsins, en siðan lent
á venjulegum flugveili.
Þegar hefur verið hafin und-
irbúningur að slíku farartæki og
sér NASA, bandaríka geimferða-
stofnunin um stjórn rannsókn-
anna. Þetta getur því orðið að
veruleika eftir ca. 10 ár. —
Fyrst verðdr'þetta notað til að
flytja starfsmenn til geimstöðv-
anna, geimfara, sem eiga að
halda áfram til annarra hnatta,
og einnig til að flytja varahluti
og eldsneyti.
Expo
Framhald af 7. síðu.
metanleg málverk, gítarinn hans
Elvis Prestleys, hraunmola frá
Surtsey og landslag á tunglinu.
Við getum farið í reiðtúr á ind-
verskum fíl eða spreytt okkur
á því að tefla fram vitsmunum
okkar gegn raJfeindaheiljÞ. —
Hvað um skála okkar íslend-
inga? Jú, hann er þarna á staðn
um, en ekki hefur hann hlotið
einróma hrós þeirra er séð hafa.
Skal enginn dómur felldur um
hann hér.
Skcgrækt
Framhald af 7. síðu.
ur lands, og þar sem skógar
væru, væri jarðveginum borgið.
Sagði hann Það ekki sæma ís-
lendingum að láta landið blása
upp, en þjóðin væri fámenn og
yrði því að gera meiri kröfur
-til einstaklinganna en aðrar
þjóðir gerðu. Að lokum árnaði
hann Skógræktarfélagi íslands
allra heilla.
Að loknu ávarpi landbúnaðar-
ráö'h erra tok Gunnlaugur
Briem ráðuneytisstjóri til máls.
Hann þakkaði þann sóma, sem
honum hefði verið sýndur, er
‘hann var gerður að heiðursfé-
laga. Árnáði hann félaginu allra
heilla.
Einar G. E. Sæmundsen gjald
keri félagsins las upp reikninga
þess. Niðurstöður á rekstrar-
reikningi eru kr. 1.317.852, —
en á efnahagsreikningi kr. 1.390.
512.
Að loknum hádegisverði var
fundi haldið áfram. Lagðar voru
fram tillögur, er fundinum
höfðu borizt, er fundinum
ræður þar sem m.a. var rætt
um: Skipulagningu á ræktun
landsins, plöntuuppeldi og
val, kynningu á skógræktarstarf
inu, trjárækt við Þingvelli og
verndun birkigróðurs. í umræð-
unum tóku þátt: Sigurður Blön
dal, Tryggvi Sigtryggsson, Ólaf-
ur Á. Ólafsson, Daníel Kristjáns
son, Guðleifur Sigurjónsson, Há-
kon Guðmundsson, Hákon
Bjarnason, Guðmundur Mart-
einsson og Bjami Helgason.
Að umræðum loknum voru
reikningar bornir upp til sam-
þykktar og voru þeir samþykktir
samhljóða.
Eftir fund á föstudag, skoð-
uðu fundarmenn Laxeldisstöð-
ina í Kollafirði, Rannsóknarstöð
Skógræktar ríkisins að Mógilsá
og garð Sigurjóns Guðmunds-
sonar í Kollafirði.
Á laugardag hófst fundur að
nýju kl. 10,— árdegis. í byrjun
fundar minntist formaður Dan-
íels Fjeldsted læknis, en hann
andaðist 20. október. Var Daníel
ötull skógræktarmaður, en auk
þess hafði hann gefið Skógrækt
arfélagi íslands eignarhluta
sinn í Sandey í Þingvallavatni.
Risu fundarmenn úr sætum til
að heiðra minningu hans.
Framhald var á almennum um
ræðum, þar sem ræddar voru
tillögur þær, sem fundinum
höfðu borizt. Þeir, sem tóku
til máls voru: Einar G. E. Sæm
undsson, Sigurður Blöndal, Guð
mundur Marteinsson, Snorri Sig
urðsson, Oddur Andrésson og
Hákon Guðmundsson.
Hér á eftir fara nokkrar af
þeim tillögum, sem fundurinn
samþykkti:
Aðalfundur Skógræktarfélags
íslands haldinn að Hlégarði 20.
21. október 1967, beinir því til
landbúnaðarráðherra, að hánn
hlutist til um að fram fari athug’
un á því um land allt, hvernig
sérhvert hérað og byggðarlag
verði framvegis bezt nytjað með
tilliti til hagkvæmustu skipt-
ingu milli skógræktar, annarrar
ræktunar og beitar.
Aðalfundur Skógræktarfélags
íslands vill vekja athygli á því
að innan fárra ára mun fullgróð
ursett í mörg þau skógræktar-
lönd, sem nú eru girt og friðuð
og ber því ibrýna nauðsyn til að
fá ný hentug lönd til skógrækt
ar. Vill fundurinn því brýna fyr-
ir héraðsskógræktarfélögunum
að sæta tækifæri, ef kostur gefst
á góðum landsspildum eða jörð-
um, sem falla úr ábúð.
Einnig beinir fundurinn þeim
tilmælum til jarðeignardeildar
ríkisins, að hún láti í té hent-
ug lönd til skógræktar eftir því
sem ástæður leyfa.
Aðalfundur Skógræktarfélags
íslands táréttar tillögu þá, er
samþykkt var á aðalfundi á
Blöndósi 1965 um skipulagða
skógrækt í Fljótsdal í N-Múla-
sýslu og felur stjórn félagsins
að vinna að því við rétt yfirvöld
að fjármagn fáist til að hrinda
þeirri hugmynd í framkvæmd.
Aðalfundur Skógræktarfélags
íslands beinir þeim tilmælum til
Þingvallanefndar, að láta girða
og friða landið norðan núver-
andi girðingar Bolabáss og um
hverfi, helzt allt norður fyrir
Sandkluftavatn.
Nokkrar aðrar fundarsamþykkt
ír voru gerðar, er varða störf
skógræktarfélaganna.
Að loklnni afgreiðslu tillagna
var gengið til stjórnarkosningar.
tlr stjóm félagsins áttu að
ganga að þessu sinni Sigurður
Bjarnason og úr varastj. Ólaf-
ur Jónsson, og voru þeir báðir
endurkjömir.
í lok fundar þakkaði Hákon
Guðmundsson fundarmönnum
góð störf og mælti nokkur hvatn
ingarorð til þeirra.
Að loknum fundarstörfum
skoðuðu fulltrúar og gestir garð
Sveinbjamar Jónssonar í Ár-
túnshöfða.
Um laugardagskvöldið var full
trúum og gestum boðið til kvöld
verðar og kvöldvöku í Tjarnar-
búð í Reykjavík í boði Skógrækt
arfélags íslands og Skógræktar-
félags Reykjavíkur.
Við það tækifæri flutti Magn-
ús Jónssón fjármálaráðherra á-
varp, þar sem hann ámaði skóg
ræktarfélögunum allra heilla í
starfi.
Á kvöldvöku var þeim Guð-
mundi Bjarnasyni, Stykkis-
hólmi og Sveini Jónssyni, R-
vík afhentir silfurbikarar að
verðlaunum fyrir vel unnin
störf í þágu skógræktar.
Bækur
Framhald af 5. síðu.
borga meðan ég tóri.”
Allar eiga sögur Gúömundar
Frímanns sammerkt í því að þær
dragast mjög á langinn —
og stafar það að verulegu
leyti af viðleitni höfundarins að
skrifa íborinn „ljóðrænan” stíl.
Gott dæmi þessa frásagnarhátt-
ar er lýsing vorkomunnar í Gam-
alli krossmessusögu, þrálátt og
langdregið umtal um kliðinn og
niðinn í vötnum og vindum og
þann margvíslega hljóðfæra-
slátt sem vorkomu fylgi sem að
langmestu leyti er öldungis óvið-
komandi lýsing barnanna í sög-
unni og sjálfri atburðarás henn-
ar. Hins vegar megnar ekki þessi
stílsháttur að vekja áhuga hvað
þá ánægju lesandans, minnsta
kosti ekki undirritaðs lesanda
sagnanna, né stuðlar hann að á-
hugaverðri mynd sögumanns „að
baki” sagnanna sjálfra. Þó sögur
Guðmundar Frímanns í Rauðu
sortulyngi séu að vísu ekki eins
ógeðfelldar og Svartárdalssólin
var um árið, — vegna þess að
nýju sögurnar eru ekki jafn-
bernsklega klúrar að jafnaði,
verða þær harla þreytandi af-
Iestrar vegna þess vanmáttar
stílsins.
Af stílstefnu höfundar mun
leiða notkun hans á sjaldgæfum
orðum sem allvíða bér fyrir í
bókinni. Sumpart eru þetta orð
sem bundin eru liðnum tíma og
búskaparháttum, nafnorðin fast-
elja, torfkrókur til dæmis, en sum
eru almennara eðlis, lýsingar-
orðin, prompinn og hnókinn,
sagnimar skvaka og bátróa til
dæmis. Sumt orkar þó tvímælis.
Hvernig fór hrafninn að á bls.
94 sem „beltaði sig á fluginu”?
Er hægt að geyma harmóniku,
þó hún sé ekki nema obbolítið
kríli eins og á bls. 108, í .pússi’?
Og sums staðar reynist vald höf-
undar á máli sínu minna en
skyldi. Á bls. 56 er þess getið að
viðkoma varð furðulega mikil í
sveitinni „hvað barneignir
snerti,” bls. 57 talað um að
„kenna kvenmann” — sem að
vísu má vera prentvilla. — Ó. J.
Rannsókn
Framhald af 3. síðu.
vert hafi komið fram. Þannig væri
raunverulega ekkert að frétta af
málinu nú sem væri. Áfengismagn
ið væri að mestu leyti fundlð og
væri málið farið að skýrast í stór
um dráttum. Það er þó ekki nóg,
sagði Jón, því að við viljum fá
að vita bæði, hvemið þetr skip-
verjar hafi ætlað sér að losna við
áfengið og sömuleiðis vita tll fulls
á hvern hátt þeir hafi komizt yfir
þetta magn af áfengi erlendis. Mál
inu er þannig hvergi nærri lokið,
þó svo að það hafi skýrzt í aðal-
atriðum.
Húsgagnasmiðir
mótmæla
JUNDUR í trúnaðarmannaráði
Sveinafélags húsgagnasmiða í
Reykjavík, haldinn fimmtudaginn'
19. okt. 1967, mótmælir harðlega
ráðstöfunum þeim í efnahagsmál-
um, sem ríkisstjómin hefur ný-
lega lagt fram á Alþingi. J
Með þessum ráðstöfunum er
ráðist enn á ný á þá þjóðfélags-
þegnana, sem verst eru settir. ,
Fundurinn telur, að Alþýðu-.
samband íslands eigi tvímælalaust.
að beita sér fyrir kröftugum að-
gerðum gegn þessum árásum rík-
isvaldsins á launafólk.
Nóbeisverðlaun
Framliald af 2. síðu.
í viðtali, sem haft er við Betlie j
í gær, var hann m. a. spurður að.
því, hvemig hann teldi, að al- -
heimurinn hefði myndazt. Svar-
aði hann því, að það hefði gerzt
við afarmikla sprengingu. Heimur
inn væri stöðugt að verða meiri
að rúmmáli, en fyrir utan !hann
væri tóm. Hvernig það tóm væri, ■
sagðist Bethe ekkert geta sagt
um, en hann vonaðist til að svar
við þeirri spurningu fengist í nán -
ustu framtíð. Þá var Bethe spurð
ur að því, hvort hann teldi iþess-
ar efnabreytingar, sem gefa sól-
inni orku, gætu orðið að gagni :
sem orkulind á jörðinni. Kvaðst
hann sannfærður um að slík orka
yrði virkjuð hér á jörðinni, en
það yrði ekki á næstu áratugum.
Síldin
Framhald af 3. síðu.
Ólafur Magnússon EA 80
Ásgeir RE 100
Sigurvon RE 80
Keflvíkingur KE 80
Árni Magnússon GK 80
Vonin KE 130
Birtingur NK 130.
Pétur Thorsteinsson BA 70,
Höfrungur II. AK 60'
Björgúlfur EA 30'
Sólrún ÍS 80 :
Jón Garðar GK 90
Þorsteinn RE 140
Viðey RE 90
Náttfari ÞH 140
Guðbjartur Kristján ÍS 70
Guðrún Þorkelsdóttir SU 75 í
Dágóð síldveiði var í Jökuldjúp ■
inu í fyrrinótt. Allmargir bátar
fengu þar góðan afla, aðallega í
svonefndu Tungugati sem er um
20—25 sjómílur SV af Snæfells-
jökli.
Bátarnir lögðu afla ainn upp á
SV-laiidshöfnum í gærmorgun og
fór hann að mestu til frystingar,
þó var eitthvað saltað í Keflavík.
Síldin er sæmiieg. en nokkuð mik
ið er af átu í henni og yfirleitt
er hún nokkuð smá.
Nokkur skip eru á ieiðinui vest-
ur af miðunum fyrir austan.
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 82-101.
31. október 1967 — ALÞÝÐU8LAÐIÐ |,5