Alþýðublaðið - 20.02.1968, Síða 3

Alþýðublaðið - 20.02.1968, Síða 3
Nýr fundur á morgun FORSÆIISRAÐHERRA RÆDIR UM LOFILEIDIR Dr. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra flutti ræðu á fundi Norðurlandaráðs á sunnudaginn og vék hann í ræðu sinni að tveimur málum, af- stöðu íslands til Efta og Loftleiðamálinu. Fara hér á eftir kaflar úr ræðu hans: „Ríkisstjórn íslands er því þeirrar skoðunar, að tímabært sé að æskja þess, að gengið verði til samninga um aðild íslands að EFTA og heima á Islandi liafa allir flokkar, einn- ig stjórnarandstaðan lýst sig samþykka gagngerðri könnun málsins og ríkisstjórnin að minnsta kosti er þeirrar skoð- unar, að ísland beri siðar meir að leita eftir viðskiptasamningi við Efnahagsbandalag E\tópu. En við teljum ekki að við mun um leita fulh-ar aðildar að EEC. EFTA-löndin í heild eru stærsti viðskiptaaðili íslands með um 40% af vöruveltunni. Frá Norðurlöndum koma um 25% af innflutningnum, en til þeirra fer verulegum hluta minna, eða aðeins um 20%. af i'lutningnum. — Hlutfallið fyr- ir ísland er í rauninni ennþá óhagstæðara en þessar tölur benda til, vegna mikillar rýrn- unar á útflutningi okkar yfir- leitt á síðastliðnu ári og mjög neikvæðs verzlunarjöfnunar eins og sakir standa. Innflutningurinn frá Norð- urlöndum tekur til margra vöru tegunda og mun verða þeim enn hagstæðari við Lækkur. og afnám hinna háu íslenzku toli- stiga með væntanlegri aðild ís- lands að EFTA. Útflutningur ís lands til landanna fjögurra greinist að mestu leyti i eftir- farandi vörutegundir: Saltfisk, síldarlýsi, síldar- og fiskimjöl, gærur, dilkakjöt cg hrogn. All- ar eru afurðir þessar tollfrjáls- ar eða flokkast lil mjög iágra tollstiga í hinum Norðurlönd- unum og afnám tolla mun því ekki skipta verulegu máli fyrir útflutning íslands til þassara norrænu landa. Útflutningur íslandr yfirleitt er að langmestu leyti fiskafurð- ir. Þetta hefur í för með sér að aðeins hluti útflutningsins getur komizt undir ákvæðin um friverzlun, sem EFTA-sáttmál- inn kveður á um. Með vísan til 27. greinar sáttmálans um gagnkvæmni fyrir þau aðiklar- ríki, sem byggja efnahag sinn að mjög miklu leyti á útflutn- ingi fisks og annarra sjávar- afurða, væntir ísland þess að EFTA-löndin verði fús til til- slakana að því er varðar þann hluta af útflutningi og efna- Bjarni Benediktsson liags íslands, er sáttmálinp tekur ekki til.” „Loftleiðir eiga ekki þotu- flugvélar heldur skrúíufiug- vélar. Ferðin frá New York liggur um ísland. Hraðinn er miklum mun minni. Vélarnar hafa minni þægindi að bióða og ferðinni má á engan hátt jafna við ferð með viðstöðu- lausu þotuflugi frá New York til Skandinavíu. Spurning hvers einstaks farþega verður blátt áfram: Hversu mikinn af- slátt á verði fæ ég, ef ég tek á mig öll þessi óþægindi? Loft- leiðamenn telja, að verðmun- Framliald á bls. 14 Drengur fyrir bíl Fjöldamörg verkalýðsfélög hafa veitt Alþýðusambandi ís- lands umboð til að annast við- ræður v’ið atvinnurekendur um á- framhaldandi verðtryggingu launa frá 1. marz n.k. Blaðið hafði samband við Snorra Jóns- son á Álþýðusambandi íslands í gær og innti hann eftir því, live mörg verkalýðsfélög hefðu nú veitt þar til kjör'inni nefnd A. S. í. umboð til að annast viöræður við atvinnurekendur og hve mörg félög hefðu samþykkt að boða til v'innstöðvunar náist ekki sam. koinulag um kjarasamninga, sem bygg'ist á því, að vísitöluuppbæt- ur verði áfram tryggðar á Iaun. Snorri kvaðst ekkj geta svarað því til, hve mörg félög hefðu veitt A.S.Í. heimild til viðræðna við atvinnurekendur, þar sem enn væru að berast símskeyt'i frá hinum ýmsu félögum úti um land, sem veittu Alþýðusamband inu þessa heimild, og enn hafi ekki gefizt tóm til að taka fjölda þcssara félaga saman. Ifins vegar kvað Snorri yfirlit veröa tekið Lýst eftir vitnum Á TÍMABILINU frá kl. 15,30 'til klukkan 17 síðastliðinn fimmtu dag stóð bifreiðin G 884, sem er dökkgræn Ford Cortina, á bif- reiðastæðinu hjá Hótel Skjald- breið, á mótum Tjarnargötu og Kirkjustrætis. Á meðan konan, sem ók bifreiðinni, var fjarver- andi á áðurgreindu tímabili var ekið á hægri hurð bifreiðarinnar og hún dælduð og rispuð. Þcir, sem kynnu að hafa verið sjónarvottar að árekstrinum, eru vinsamlega beðnh’ að hafa sam- band við rannsóknarlögregluna. Sömuleiðis skorar rannsóknariög- reglan á þann, sem árekstrinum olli, að gefa sig þegar í stað i'ram við lögregluna. um fjölda félaganna að líkindum í dag. * Að lokum sagði Snorri, að næsti fundur 18 manna viðræðu. nefndar A.S.Í. yrði á morgun, miðvikudag, og verkalýðsfélögiu myndu beita öllum samtakamætti sínum t'il að knýja fram áfram- haldandi verðtryggingu launa 1. marz n.k. Mótmæla frumvarpi Stjórn Stúdentafélags Háskóla Islands samþykkti einróma eftir farandi ályktun á fundi sínum hinn 19. febrúar 1968. Stjórn S. F. II. í. varar við öllum t'ilraunum, sem stuðla að því að efla flokksræði og auka völd forystumanna stjórnmála- flokka og telur hún þær ekki til þess fallnar að bæta íslenzkt stjórnmálastarf og stjórnmálabar áttu. Með því er verið að ráðast að og brjóta niður tækifæri ein- staklingsins til þess að hafa áhríf á þjóöfélagsmál og stjórnmál. í því sambandi bendir stjórnin á, að sú tillaga, sem fram hefur komið á Alþingi um breytingar á kosningalögum nr. 52/1959 og felur í sér, að hverjum stjórn- j málaflokki sá einungis heimilt að bjóða fram einn lista í hverju kjördæmi og framboðslista verði að fylgja skrifleg viðurkenning hlutaðeigandi flokksstjórnar., stofni lýðræði í landinu í tiæt.tu. Einnig telur stjórnin æskilegt, að þingmenn taki í ríkara mæli eigin sannfæringu um þjóðarheill fram yfir samþykkt þingflokks- meirihluta, ef á milli ber‘‘. (Fréttatilkynning frá Stúd- entafélagi Háskóla íslands). UM hádegísbilið í gær varð lít ill drengur fyrir jeppabifreið á mótum Klapparstígs og Lruga- vegs. Mun hann liafa slasazt nokkuð, en blaðinu er ekki að fullu kunnugt um meiðsli hans. Talið er, að annað hjól jeppabif reiðai’innar hafi lent g öörum eða jafnvel báðum fótum hans. Tildrög slyssins voru þau, að ! drengurinn var á lcið norður yf- l ir Laugaveginn, en jeppabil'reið kom aðvífandj vest.ur Laugaveg- inn og lenti drengurinn utan í vinstra framt.yft’.t’L.j .hennar, en kastaðist síðan fram fyrir hana. Er óttazt, að vinstra framlijól bifreiðarinnar hafi lent á öðrum eða jafnvel báðum l'ótum drengs- ins. Litli drengurinn var fluttur í sjúkrabifreið á Slysavarðstofuna og var þar gert að meiðslum hans. Þegar rannsóknarlögrcglu- maðurinn, sem fylgtíi drengnum á slysavarðs.Jjfuna, fór þaðan, var ekki að fullu kunnugt um, hve alvarlegs eðlis meiðsli lians voru. Eyþór Þórarins- son er látinn EYÞÓR ÞÓRARINSSON, fyrr- um verkstjóri hjá vita- og hafn- armálastjórninni, andaðist í gær- morgun á Landsspítalanum. Ey þór hefur um árabil verið i'ram- kvæmdastjóri Happdrættis Al- þýðublaðsins og unnið mikið og óeigingjarnt starf bæði fyrir Al- þýðublaðið og Alþýðuflokkinn. Hans verður nánar getið síðart Þarna á gatnamótunum ók jeppinn á drenginn. 20. febrúar 1968 - ALÞYÐUBLAÐIÐ 3

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.