Alþýðublaðið - 11.04.1968, Page 4
J ....
TIL þess að ge'ta búið til
þcnnan litla unga þarf þykkt.
hvítt pappaspjald, vatnsliti,
vaxliti eða blýantsliti.
Fyrst er unginn teiknaður
á rúðustrikað blað (hver rúða
er 2x2 cm) og hann síðan
Lítirl
páskaungi
klipptur út. Pappaspjaldið er
brotið tvöfalt og unginn á
rúðustrikaða blaðinu lagður á
og útlínurnar dregnar. Síðan
er unginn klipptur út og lit-
aður og þá er hann tilbúinn
að hoppa upp á borð.
Páskaeggið
J^ú líður að páskum og börnin
eru farin eru farín að blakka
til að vakna á páskadagsmorg
un og gæða sér á súkkulaðiegg
inu, sem væntanlega verður við
rúmstokkinn. Hvort eggið verð
ur stórt eða lítið fer eftir efn-
um og ástæðum, en svo mikið
er víst að allir ættu að geta
fengið egg við sitt hæfi, því að
nóg er á boðstólum. Kosta egg
in frá 7 krónum upp í 500 krón
ur og stendur stærðin í flest
um tilfellum í réttu lilutfalli við
verðið.
Flestir eru orðnir svo vanir því
að páskunum tilheyri páskaegg
að þeir hugleiða ekki einu sinni
hVers vegna eggjaátð tilheyrir
aðeins páskunum, en ekki öðr-
um trúarhátíðum.
Það verður að fara nokkuð
; langt aftur í tímann til þess að
komasí fyrir rætur páskaeggs-
ins — allt aftur í lieiðni. Á vor-
hátíðum gæddu menn sér á eggj
um, nýjum eggjum úr lireiðrum
villifugla.
Eggin tilheyrðu vorinu og
vaknandi lífi og það var litið á
þau sem tákn frjóseminnar. Þeg-
ar menn tóku kristna trú færð-
ist eggjahátíð yfir á páskana,
Menn voru fegnir að geta á ný
snætt egg, því að á föstunni var
eggjaát bannað.
í kaþólskum sið var venja að
láta prestinn blessa fyrir sig
egg og gaf hvert sóknarbarn
presti nokkur egg fyrir vikið,
þannig að þau urðu allgóð bú-
bót á prestsetrum.
Prestarnir voru þó ekki þeir
einu, sem fengu egg að gjöf, því
að almenningur skreytti egg og
skiptist síðan á þeim á páska-
dagsmorgun. í Mið- og Austur-
Evrópu varð eggjaskreyting mik
il listgrein og lifir hún víða enn.
Síðar var farið út í að blása
egg (blása innihaldi úr skurn-
inni) og mála þau því að það
Framhald á bls. 14.
Danir kaupa
Danska stjórnín hefur ákveðið að festa kaup
á 23 orrustuflugvélum af gerðinni Draken 35
XD, frá sænsku Saab flugvélaverksmiðjunum.
Samanlagt verð vélanna er 250 milljónir danskra
króna. Vegna hlutleysis Svíþjóðar og aðildar
Dreka
Danmerkur að NATO eru Danir öruggir um að
geta fengið varahluti í vélarnar, og í framhaldl
af samningunum um kaupin fá þeir tryggingru
sænsku stjórnarinnar fyrir birgðasölu, einnig á
ófrlðartímum.
Seinna má gera ráð fyrir á-
kvörðun um kaup á annarri flug
véladeild, þar sem veittur verð-
ur mikill afsláttur. Gert er ráð
fyrir að samanlagt verð flug-
deildanna tveggja verði um það
bil 450 milljónir danskra króna.
Af sænskri hálfu eru gefin
loforð um hagstæð ríkistryggð
láti vegna kaupanna. Ennfremur
munu Saab-verksmiðjurnar
setja í þotur sínar ýmis tæki
framleidd af dönskum aðilum.
Þá ætla Svíar að kaupa ýms-
ar danskar iðnaðarvörur. Þessi
framlög koma til með að
innibinda 50—60% af 450 millj.
króna verði vélanna.
Þjálfun danskra flugmanna í
meðferð „Drekans” mun fara
fram í flugstöðinni í Angerholm,
fyrir norðan Hálsingborg. Svíar
geta gefið góð ráð viðvíkjandi
eftirliti með vélunum, svo að
danska viðgerðaþjónustan, sem
byggð er upp fyrir bandarískar
orrustuflugvélar, fær nægan
tíma til að aðlaga sig nýjum
viðfangsefnum.
★ 2000 KM. Á KLST.
Drekarnir eiga að koma í stað
Super Sabre F-100 orrustuflug-
vélanna, en nú er tími til kom-
inn að fengnar séu nýjar vélar
í þeirra stað. Danski flugflotinn
hefði fremur viljað fá nýjar Sup-
er Sabre í staðinn, en Banda-
ríkjamenn geta ekki látið þær
af hendi vegna stríðsins í Viet-
nam.
Danski flugflotinn hefur nú
3 deildir orrustuflugvéla. Þegar
1. Drekadeildin verður afhent
Dönum, eftir hálft annað til tvö
ár verða Super Sabre vélarnar
sem eftir verða, sameinaðar í 2
venjulegar deildir. Draken '32
XD kemur til með að verða út-
flutningsútgááa af tegþmdinnl
4- hefur komizt hraðast um 2000
km. á klst. Vélarnar hafa stórt
skotsvið og geta borið stóran
farm af eldflaugum og sprengj-
um.
Drekadeild nr. 2 kemur í stað
eftirlitsvéla af gerðinni RF-84
F, sem löngu eru orðnar úr-
eltar, fremur en Super Sabre
þoturnar. Þessi deild Drekanna
er útbúin myndavélaútbúnaði
eftir danskri fyrirsögn.
★ BARÁTTAN UM
SÖLUNA.
Að undanförnu hefur verið
mjög hörð samkeppni milli Saab-
verksmiðjanna í Svíþjóð og Mar-
cel Dassault verksmiðjanna í
Frakklandi, Mirage 5 D K, og
Northrop- Norair verksmiðjanna
í Bandaríkjunum, Northrop CF
5, um að tryggja sér framleiðslu
á vélunum til Danmerkur. Fyrir
skömmu var lagt fram tilboð
frönsku aðilanna, þar sem boðið
var jafnaðarverð á um 60% af
kaupverðinu, gegn því að Danir
framleiddu ýmsa hluti í vélarn-
ar, ýmis vopn og flugvélarhluti
fyrir franska ríkið, húsgögn o.
fl. Boðin voru lán með 5-5Vá%
vöxtum.
I
★ NÝTT TILBOÐ.
Pirre Francois, aðalritarl
frönsku verksmiðjanna, sagði,
að ef Danmörk keypti Mirage
þoturnar, myndu þeir fá' trygg-
ingu franska ríkisins um að flug
vélarnar yrðu afhentar, jafnvel
á ófriðartímum.
Marcel Dassault verksmiðjurn
ar framleiða nú vélar til S-
Afríku, Ástrálíu, Líbanon, Sviss
og Belgíu. Einnig er verið að
semja um framleiðslu þotanna
fyrir íran.
Framhald á bls. 14.
OPIÐ
allan
sólarhringinn
----★-----
VEITIN GASKÁLINN
GEITHÁLSI.
VÉR MORÐINGJAR
//
ÞANN 20 þ. m. frumsýnir Þjóð
leikhúsið leikfitið „Vér morð-
ingjar, eftir Guðmund Kamb-
an, en eins og kunnugt er, er 20.
apríl afmælisdagur Þjóðleikhúss
ins. Það eru nú liðin 18 ár frá
því að Þjóðleikhúsið tók til
starfa.
Vér morðingjar er þriðji leik
urinn, sem Þjóðleikhúsið sýn-
ir eftir Guðmund Kamban, en
Guðmundur Kamban.
hin voru, Þess vegna skiljum við
sýnt í Þjóðleikhúsinu vorið
1952, og í Skálholti, sýnt í Þjóð
leikhúsinu árið 1950, á 10 ára
afmæli leikhússins.
Vér morðingjar, var fyrst sýnt
á' Dagmarleikhúsinu í Kaup-
mannahöfn, 2. marz árið 1920 og
síðar á sama ári hjá Leikfélagi
Reykjavíkur.
Árið 1927 stjórnaði höfundur-
inn sjálfur sýningu á leiknum
hér í Iðnó og lék þá' jafnframt
sjálfur annað aðalhlutverk leiks
ins. Síðar sýndi leikflokkur und-
ir stjórn Gunnars R. Hansen,
leikinn hér i Reykjavík og víðar
út um land. Ennfremur var leik
urinn sýndur hjá Leikfélagi Ak-
ureyrar árið 1923. Þetta mun
því vera í fimmta skiptið, sem
leikurmn er settur á svið hér á
landi.
Fyrsta leikritið, sem Kamban
skrifaði, var Hadda Padda. Leik
urinn var fyrst sýndur í Kaup-
mannahöfn árið 1914 og ári síð
ar hjá Leikfélagi Reykjavíkur.
Þar næst kom Konungsglíman
sýnt í Reykjavík árið 1917,
Sendiherran frá Júpíter sýnt
hér árið 1927. Síðar lauk hann
við skáldsöguna um Brynjólf
biskup og samdi leikrit upp úr
skáldsögunni, er hann nefndi
í Skálholti, og hefur það verk
orðið frægast af öllu því er
Kamban skrifaði. Leikurinn var
fyrst sýndur árið 1946 hjá Leik
félagi Reykjavíkur og síðar hjá
Þjóðleikhúsinu árið 1960.
Árið 1915 fór Guðmundur
Kamban til Bandaríkjanna og
Framhald á bls. 14.
BRIDGESTON E
11. apríl 1968 - ALÞYÐUBLAÐI0