Alþýðublaðið - 11.04.1968, Síða 15
BRÚIN |
EFIIR KAY WINCHESTER I
I
frú Bayfield órólega við Felix
frænda.
— Hún virðist eiga bágt með
að þola hann, svaraði Felix og
yppti öxlum,
Melita byrjaði að laga til í
bókaherberginu. Meðan hún var
að bera bókahlaða upp að hill-
unum hrasaði hún og missti þær
allar í gólfið. Henni varð litið
á' eina þeirra. Það var fjölskyldu
saga Manbyanna og myndir af
gömlum málverkum, sem voru
löngu seld. Júlíus Manby hafði
séð um það. Allar fyrri konur
Manbyættarinnar, höfðu haft
brúnt, liðað hár og blá augu,
hátt enni og ákveðna höku — Me
lita minnti mikið á' þær — að-
eins ein var ólík þeim — eigin-
kona yngsta sonar Júlíusar. Hún
var lítil og grönn og frá henni
hafði Laureen erft uppbretta
nefið, smitandi brosið, rauð-
brúnt hárið, brún augu og fagr
an augnaumbúnað. Frá henni
hafði Laureen líka erft þann
hæfileika að fá allt sem hún
þráði.
Símon Aldridge skyldi fá þessa
bók, hugsaði Melita.
Hún ætlaði að sjá um það. Því
hljóp hún með bókina upp á her
bergi sitt og læsti hana þar inni
í klæðaskápnum.
Meðan hún var uppi á lofti
kom leigubíll akandi, úr honum
kom farþegi og tvær stórar
ferðatöskur.
— Það var ekki fyrr en Mel-
ita var aftur komin niður í bóka-
lierbergið, að hún hejrði barið
að dyrum. Hún gekk til dyra
og hlustaði og heyrði rödd Sím-
ons Aldridge — Laureen syst-
ur sinnar.
En.hún heyrði elckert af sam-
tali þeirra, því að um leið og
liún opnaði dyrnar, sá hún á
eftir Laureen og Símoni Aldrid-
ge inn í dagstofuna.
Hún fór fram í eldhús til
Klöru frænku og beið þangað til
að hún sá Símon aka á brott.
Þegar Laureen kom inn, var
þögnin óhugnanleg og Laureen
virtist ekkelrt bérlega hri.íin,
þegar hún slangraði inn gólfið.
—. Hvað á það eiginlega að
þýða, að koma okkur öllum svona
að óvörum? spurði Klara frænka
hreint út, þegar Laureen kom
inn.
— Vertu ekki móðguð, Klara
frænka, sagði Laureen og kyssti
frænku sína á kinnina. — Ertu
ekki hrifin af að sjá mig, Mel-
ly? Ég kom heim til að hvíla
mig. Mér leið svo illa.
— Misstirðu vinnuna, Laur-
een?
— Laureen fékk sér köku. —
Kerlingin áleit ekki að ég hent-
aði sér. Hún vildi fá rólega og
kyrrláta stúlku, sem frændi
hennar væri ekki að skjóta sig
i. Það var gaman í fyrstu, en
svo varð hann frekar erfiður
viðfangs.
— Áttu við, að frk. Bishop
liafi ekki viljað, að frændi henn-
ar daðraði við þig? spurði Mel-
ita.
— Eitthvað í þá áttina, sagði
Laúreen. — Ég held annars, að
okkur frk. Bishop hefði aldrei
komið saman til lengdar.
— Þú verður að fá þér atvinnu
með herbergi, sagði Melita stutt
í spuna. — Ég verð að gera það
og hér verður ekkert pláss handa
þér eftir söluna.
—• Hvað liggur á? spurði
Laureen. — Ég skildi það áðan,
að hr. Aldridge hefur ekki hug-
mynd um að eigendurnir eru
tveir, en mér skildist einnig, að
Klara frænka ætli að þykjast að
vera ráðskonan hjá honum.
— Það er ekkert að þykjast,
sagði frú Bayfield reiðilega. „Ég
verð ráðskona hjá hr. Aldrid-
ge og eins og ég sagði við Mel-
ly, hefði ég bara ráðið mig sem
ráðskonu einhvers staðar ann-
ars staðar, ef hann hefði ekki
viljað mig.
— Mér var líka sagt, að þið
hefðuð stofustúlku, sagði Laur-
een. — Hver er nú það?
Melita fór hjá sér, þangað
til að hún sá hvað tvíburasystir
hennar var stríðnisleg á svip-
inn.
— Sagði hann það? Hann á
víst við mig! Hjálpi mér ham-
ingjan, hefur honum aldrei
komið til hugar, að konur gerðu
sjálfar verkin — eða hvað?
— Hvenær ætlarðu að segja
honum, hver þú ert, Melita?
spurði Klara frænka hugsandi.
Ég hugsa, að hann verði reiður
og þá minnka líkurnar fyrir að
þér takist að selja húsið.
— Hvers vegna ætti ég að tala
við hann? Jim Thurlow sér um
þetta þangað til að-við þurfum
að undirskrifa sölubréfið. Ég
vona að ég sjái Símon Aldridge
aldrei aftur.
— Lízt þér ekkert á hann?
Mér hundleiðist hann!
— Ég kann vel við hann; ég
skal þá leika húsráðanda, fyrst
þú vilt það ekki. Ég fæ mér
vinnu seinna, við fáum peninga
fyrir söluna.
— Bíddu ekki of lengi með
það, sagði Meliía. Hvar ætlarðu
að búa, þegar við höfum selt?
— En þú, spurði Laureen.
— Hún ætlar að giftast Jim
Thurlow, sagði Klara frænka.
—f Er það, tautaði Laureen
og glotti. Símon Aldridge held-
ur ég sé þú.
— Sagðistu heita Melita
Manby, sagði Klara frænka.
eoKING
EDWARD
America'• Largest Selling Cigar
— Auðvitað ekki, sagði Laur-
een letilega. Ég bara mótmælti
honum ekki þegar hann kallaði
mig það.
FIMMTI KAFLI.
Daginn eftir, þegar Melita var
úti að ríða, sá hún Símon Ald-
ridge koma á eftir sér. Hún sló
í hestinn, en hann tók slíkt við-
bragð, að Melita datt af baki.
Þegar hún var að standa á
Föstudaginn 17. maí Ö-801 — Ö-850
Mánudaginn 20. maí Ö-851 — . Ö-900
Þriðjudaginn 21. maí Ö-901 - Ö-1000
Föstudaginn 24. maí 0-1001 — 'tV'- J Ö-1200
Bifreiðaeigendum ber að sínar til bifreiðaeftirlitsins koma með Vatnsnesvegi bifreiðar 33, og
verður framkvæmd þar daglega kl. 9-12
13—16,30.
og
Aðalskoðun verður ekki framkvæmd á laugar-
dögum.
'Festivagnar, tengivagnar, og farþegabyrgi skulu
fylgja bifreiðum til skoðunar. Einnig skal færa
létthjól til skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja
fram fullgild ökuskírteini, sýna ber skilríki fyrir
því að bifreiðaskattur og vátryggingariðgjöld öku
manna fyrir árið 1968 séu greidd og lögboðin vá-
trygging fyrir hverja bifreið sé í gildi.
Þeir bifreiðaeigendur sem hafa viðtæki í bifreið-
um sínum skulu sýna kvittun fyrir greiðslu af-
notagjalda til ríkisútvarpsins fyrir árið 1968.
Hafi þessi gjöld ekki verið greidd verður skoð_
un ekki framkvæmd og bifreiðin stöðvuð þar til gjöld
in eru greidd. Vanræki einhver að koma með bifreið
sína til skoðunar á réttum degi verður hann látinn
sæta sektum samkvæmt umferðarlögum, og lögum
um bifreiðaskatt, og bifreiðin tekin úr umferð hvar
sem til hennar næst.
Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga að máli.
Bæjarfógetinn í Keflavík, 8. apríl 1968.
Alfreð Gíslason.
Auglýsing um skoðun
bifreiða í lögsagnar-
umdæmi Keflavíkur
Aðalskoðun bifreiða í lögsagnarumdæmi Keflavíkur mun
fara fram 16. apríl til 24. maí næstkomandi sem hér segir:
Þriðjudaginn 16. apríl Ö-1 — Ö-50
Miðvikudaginn 17. apríl Ö-51 — Ö-100
Fimmtudaginn 18. apríl 0-101 — Ö-150
Föstudaginn 19. apríl 0-151 — Ö-200
Mánudaginn 22. apríl Ö-201 — Ö-250
Þriðjudaginn 23, apríl Ö-251 — Ö-300
Miðvikudaginn 24. apríl Ö-301 — Ö-350
Föstudaginn 26. apríl Ö-351 — Ö-400
Mánudaginn 29. apríl Ö-401 — Ö-450
Þriðjudaginn 30. apríl Ö-451 -v Ö-500
Fimmtudaginn 2, maí Ö-501 — Ö-550
Föstudaginn 3. maí Ö-551 — Ö-600
Mánudaginn 13. maí Ö-601 — Ö-650
Þriðjudaginn 14. maí Ö-651 — Ö-700
Miðvikudaginn 15. maí Ö-701 — Ö-750
Fimmtudaginn 16. maí Ö-751 — Ö-800
11. apríf 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ J5