Alþýðublaðið - 28.04.1968, Qupperneq 9
Frægt og tig'ið fólk gistir paradís Karims á Sardinlu. Hér er hann með tveimur gestum, Peter Sellers
og Margréti Brctlandsprinsessu.
arspillum í hæfilegri fjarlægð
og einnig til að hindra að bygg-
ingar annarra auðkýfinga spilli
heildarsvip staðarins. Bygging-
ar hans eru „nútíma túlkun á'
hefðbundinni byggingarlist Sar-
diníu” eins og hann segir sjálf-
ur.
Stóru hótelin fimm, sem þeg-
ar eru risin, líta út fyrir að hafa
staðið þarna í margar aldir. —
Veggirnir, sem eru í bleikum og
brúnum litbrigðum líta út eins
og veður og vindur hafi leikið
um þá í aldaraðir og gefa engan
veginn til kynna allan þann í-
burð, sem finna má innan
veggja.
Karim gerði 20 ára áætlun um
framkvæmdirnar á Sardiníu og
ef allt gengur samkvæmt áætl-
un eiga að þeim tíma liðnum
að vera risin 40—50 hótel, —
hundruð einbýlis og f jölbýlishúsa
og samtals eiga að geta dvalizt
þarna um 100 þúsund manns.
Karim hefur látið gera hrað-
brautir og stækkað höfnina og
fegrað þannig að hún er nú á-
litin ein fegursta lystisnekkju-
höfn við Miðjarðarhafið. Þá hef
ur hann byggt upp þorp, lagt
vatnsleiðslur o. s. frv. og hefur
allt þetta verið fjárhag Sardin-
íu mikil lyftistöng og veitt 5
þúsund manns atvinnu. Enginn
vafi er á því að peningarnir, sem
eiga eftir að koma í einka-
kassa Karims á Sardiníu verða
að einhverju leyti notaðir til að
bæta kjör trúbræðra hans víða
um heim.
Þótt lánið virðist leika við
Karim Aga Khan VI., þá hviiir
skuggi yfir þessu öllu: ráðgjöf-
um og þegnum Karims finnst
kominn tími til að hann íái sér
konu — konu, sem þeir viður-
kenna. Og þar stendur hnífur-
inn í kúnni. Karim hefur hlotið
menntun sína á vesturlöndum og
og því erfitt fyrir hann að finna
konu, sem jafnframt því að vera
sömu trúar og hann getur lifað
því lífi, sem hann lifir og skilið
áhugamál hans. Samband hans
og frönsku stúlkunnar Ainno-
i
ucka von Mehks, sem mikið hef-
ur verið rætt um undanfarin ár,
hlaut ekki blessun þegna hans
og hann varð að slíta sambandi
sínu við hana. Fyrir rúmu ári
fæddi Annoucka son, sem sumir
segja að sé sonur Karims, en
hann hefur neitað að segja nokk-
uð um það mál til þessa.
Elzta dóttir íranskeisara hefur
verið nefnd — en hún er frá-
skilin og á barn, svo að ekki kem
ur hún til greina. Sama er að
segja um Dolores Guiness, ekkj-
una eftir hálfbiróður Karims.
Hún er sögð hafa verið .fyrsta
ást’ Karims, en tók bróður hans
fram yfir hann. Er sagt að Kar-
im sé ennþá' hrifinn af henni,
en hún á barn svo að hún er
útilokuð.
Ennþá veit enginn hvað Kar-
im gerir í þessum efnum, en
hann hefur fengið ströng fyrir-
mæli frá ,æðri stöðum’ um að
nú verði hann að fara að láta
til skarar skríða í þessum efn-
um.
STON E
Hafnarfirði hefur til
askeið og Hólabraut.
réttar síns um kaup
L formanns félagsins
ndurnýja.
Frá barnaskólum Kópavogs.
Innritun nýrra nemenda
Börn fædd 1961, eiga að hefja skólagöngu á
þessu ári, Innritun þeirra fer fram í skólum
kaupstaðarins, laugardaginn 11. maí 1968
kl. 10-12 f. h. Verða þau síðan um skeið í
vorskóla.
Eldri skólabörn er verið hafa í öðrum skólum,
en ætla að hefja skólagöngu í Kópavogi að
hausti, eru einnig beðin að innrita sig á sama
tíma.
Fræðslufulltrúi.
KJÖRSKRÁ
til forsetakosninga, fyrir Kópavogskaupstað,
sem fram eiga að fara hinn 30. júní 1968,
liggur frammi á pósthúsinu í Kópavogi, frá
og með 30. apríl til og með 27. maí 1968.
Kærum út af kjörskránni ber að skila Bæjar-
skrifstofunni eigi síðar en hinn 8. júní 1968.
Pósthúsið er opið frá kl. 9-18, alla virka daga,
nema laugardaga til kl. 12,30.
26. apríl 1968.
Bæjarstjórinn í Kópavogi. í
ÓSKILAMUNIK
í vörzlu rannsóknarlögreglunnar er nú margt
óskilamuna, svo sem reiðhjól, fatnaður, lykla
veski', lyklákippur, veski, buddur, úr gler-
augu, o. fl.
Eru þeir, sem slíkum munum hafa týnt, vin-
^ samlega beðnir að gefa sig fram í skrifstofu
rannsóknarlögreglunnar, Borgartúni 7, kjall-
ara (gengið um undirganginn) næstu daga lcl.
2-4 og 5-7 e. h. til að taka við munum sínum,
sem þar kunna að vera.
Þeir munir, sem ekki verða sóttir, verða seld-
ir á uppboði 11. maí n.k.
Rannsóknarlögreglan.
AÐALFUNDUR
Húseigendafélags Reykjavíkur
verður haldinn þriðjudaginn 30. 'apríl n.k. kl,
18, að Bergstaðastræti 11.
D a g s k r á :
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
STJÓRNIN.
NÝ SENDING
Vor og Sumarkápur
Fermingarkápur og Vendi-
kápur
) / ‘ _ ,,,, .
Bíápu- og dömubúðin
Laugavegi 46. .
28. apríl 1968 - Al-ÞÝÐUBLAÐIÐ 9