Alþýðublaðið - 26.05.1968, Qupperneq 16
Útsvarið mitt
Ég fór í morgun að glugga í skattaskrána:
ég skammast mín fyrir hvað útsvarið mitt er lágt,
þó laug ég í vetur á mig allskonar tekjum,
en árferðið hefur leikið mig svona grátt.
Sjálfsvirðing mín og sómi er í bráðri hættu
og sannarlega komin á lægsta stig,
þeir geta reigt sig, sem hafa hundrað þúsund,
og hampað útsvarseðlinum framan í mig.
En árferðið hefur illa komið við margan,
svo ekki þarf ég kannski að skammast mín:
ég vikna af samúð með vesiings forstjórunum
með vinnukonuskattana og útsvörin sín.
AUGLÝSING
um umferð \ Reykjavík
Misritun varð í auglýsingu um umferð í Reykjavík frá ;
24. þ. m., sem birtist í Alþýðublaðinu í gær. 5. töluliður
auglýsingarir.nar orðist svo;
Bann við hægri bcygju verður afnumið á eftirtöldum stöð-
um:
1. Af Lækjargötu úr norðri inn í Austurstræti.
2. Af Lækjargötu úr norðri inn í Skólabrú.
3. Af Laugarnesvegi tii vesturs inn á Laugaveg.
4. Af Laufásvegi til vesturs inn á Hringbraut.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 28. maí 1968.
SIGURJÓN SIGURÐSSON.
Nú heitir það víst varúð tii
hægri. Ég má þá gjöra svo vel
og fá mér sterkara hægra gler
í gleraugun mín.
LOFTÞÉTTAR UMBLÐIR
Það verður fútt í að tryila í
háinu mar. Ég vona bara að
kallinn' fari á taugum svo
maður fái tækið oftar.
VINSÆLASTA PÍPUTÓBAK
í AMERÍKU.
Prince
Albert
REVKTÓnAK.
daglegi IKAIÍstur
Úr heimspressm
Líú Klí-kan, sjávarútvegsmálaráðherra Rauða-Kína, ritar í
gær gagnmerka grein í Kínaútgáfu Alþýðublaðsins. Fjallar
hann þar um þær hugsanir Maos formanns, sem snúast um
fiskimál. Telur Líu Klí-kan ótvírætt, að liugleiðingar for-
mannsins um þetta efni séu einn af hæstu tindum hinnar
miklu menningarbyltingu. í hugleiðingum sínum hreki Mao
formaður eftirminnilega hina gömlu kenningu heimsvaldasinn
ans og gagnbyltingarseggsins, Konfúsíusar. Hann hafi sem
kunnugt er haldið fram (þeirri haattulegu villukenningu, að
stjórn á ríki sé líkt og að sjóða hundrað litla fiska.
í grein herra Klí-kans, er tekið undir hina snörpu gagn-
rýni Maos á þessari 111. meðferð á litlum fiskum. Mao segi
aftur á móti í hugsunum sínum, að samkvæmt sinni reynslu
af ríkisstjórn, megi miklu fremur líkja henni við að sjóða
hundrað þúsund o/OO stórlaxa við hægan eld.
Klí-kan fagnar ákaft í grein sinni þessari niðurstöðu. Hann
telur að auk hins menningarbyltingarlega gildis hennar, eigi
eftir að sýna sig, hve afdrifaríkar afleiðingar hún kann að
hafa á efnahagssviðinu og nefnir sem dæmi, að hann hafi nú
endanlega slitið samningum við Hampiðjuna um kaup á
stórri loðnunót. /
Nú á dögum vék Morgunblaðið nokkuð að hinu heimskunna
listaverki Sigurjóns Ólafssonar, sem meiningin er að prýði
vegg stöðvarhússins við Búrfell. Blaðið vekur verðskuldaða
atliygli á þeirri staðreynd, að stöðvarhúsið verði hálft í jörð
og hálft á jörð og eigi listaverkið ;að prýða þann helminginn,
isem upp úr stendur.
Stórreykjavíkurblaðið „The Times. öf Reykjavík", getur þess
í lítt áberandi klausu á innsíðu, að Robert Kennedy, einn af
umsækjendunum um forsetaembættið í. Bandarikjunum, eigi
von á að kona hans eigi von á enn einum þegni í hið mikla
ríki Kennedíanna. Og það sem meira er. Konan á von á hing
aðkomu hins unga þjóðfélagsborgara um það leyti, er for«
setakosningarnar fara fram þar vestra.
Rétt er að vekja athygli á þessari frásögn blaðsins. Hún
rennir enn einni styrkri stoð undir þá almennu skoðun á ís.
landi, að allt sé hægt í Ameríku og þeir sem þekkja til i
Ameríku vita, að ekkert, bókstaflega hreint ekki neitt, er eins
mikilvægt í kosningabaráttu og að gera nákvæma framkvæmda
áætlun, a. m. k. níu mánuði fram í tímann.
—GADDUR.
KARLMANNASKOR
frá Frakldandi, Englandi og Þýzkalandi.
Seldir mjög ódýrt. — Verð frá kr. 393.oo — 428.oo —
486.oo — 577.00 — 598.oo —637.oo — 652.oo — 67I.oo
686.00. r