Alþýðublaðið - 13.06.1968, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 13.06.1968, Blaðsíða 11
Akureyri Vestur-þýzki knatt- spyrnumaðurinn Uwe Seel er hefur verið einn bezti knattspyrnumaður í heimi og- vakti m.a. mikla at- hygli í lieimsmcistara- keppninni í Englandi. Se*el er, sem komið hefur hing að til lands sézt til hægri á þessari mynd. ' SkrifsfofaKSÍ* Fyrsta keppni Golfklúbbs Ak- ureyrar í ár var Flaggkeppnin (full forgjöf) og fór hún fram þann 2. júní. Sigurvegari varð Þórarinn B. Jónsson með tals verðum yfirburðum, en hann lék mjög vel í þessari keppni. ^ Annar varð Ragnar Steinbergs son og þriðji Skúli Ágústsson. Um síðustu helgi, eða 8. og 9. júní, var háð keppni um Mickey’s Cup (3/4 forgjöf), en leiknar voru 18 holur hvorn daginn. Keppendur voru 24. Úrslit urðu þau, að fvrstur varð Ólafur Stefánsson með 138 högg og þriðji varð Árni Jóns son með 144 högg. Árangur Þengils er mjög eft irtektarverður, þar sem hann er aðeins 16 ára og tvímæla- laust efnj í góðan golfleikara. Nýir meðlimir, karlar, konur og unglingar hafa í stóraukn- um mæli gengið í Golfklúbb A.kureyrar nú í vor og hafa hafið æfingar af fullum krafti. Aðalkennari klúbbsins er Sæv- ar Gunnarsson, og geta nýir og gamlir kylfingar hitt hann á golfvellinum á hverjum degi kl. 5—7 e.h., og látið skrá sig á æfingastundatöflu. Nýir golf félagar fá fimm fyrstu tím- ana sér að kostnaðarlausu eins og áður hefur verið skýrt frá í blöðum. Eins og kunnugt er, er Árni Njálsson framkvæmdastjóri KSÍ. Skrifstofa sambandsins er í íþróttamiðstöðinni í Laugar dal og Árni er þar til viðtals kl. 4—6. Sími skrifstofunnar er 84444. Fyrsta tbl. Iþrótta- blaðsins er komið út Fyrsta tölublað íþróttablaðs- ins er nýkomið út, einskonar annálsblað, þar sem birtar eru yfirlitsgreinar um þær íþrótta greinar, sem iðkaðar eru hér- lendis. ítarlegast er skýrt frá frjáls um íþróttum, og auk yfirlits greinarinnar eru afrekaskrár í öllum greinum karla og kvenna og metaskrár. Ritstjórinn, Þórður B. Sigurðsson skrifar greinina. Næst er fjallað -um þjóðar- íþróttina, glímuna, en það er Kjartan Bergmann Guðjóns- son sem ritar þá grein. Sigurður Jóhannsson, for- maður Júdófélag Reykjavíkur og Þorkell Magnússon, formað ur Júdódeildar Ármanns skrifa um Júdóíþróttina. Stefán Kristjánsson skrifar um skíðaíþróttina, og Torfi Tómasson um sundíþróttina. Loks er fjallað um knatt- spyrnu, körfuknattleik, bad- minton o.fl. efni er í þessu blaði, sem er 116 bls. Forsíðumyndin ér af skíða lyftunni í Hlíðarfjalli. ,L Vilhjálmur er í 7. sæti í þrístökkinu Aðeins einn maður, Jósef Schmidt, Póllandi hefur stokk ið yfir 17 metra í þrístökki, 17,03, það gerði hann í Oistyn í Póllandi 5. ágúst 1960. Okkar mesti afreksmaður í frjálsíþróttum, Vilhjálmur Einarsson, ÍR, yar um árabil einn helzti keppinautur Schmidt og hann áænn 7. bezta afrek, sem unnið hefur verið í þessari grein í heiminum frá upphafi, 16,70 m. Hér eru beztu afrekin um síðustu áramót: J. Schmidt, Póll. 17,03 m. A Zolotaryev, Sovét, 16,92 m. J. Jaskólski, Póll. 16,76 m. A. Walker Bretl. 16,74 m. H. Kalocsai, Ungv. 16,73 m. V. Kreyer, Sovét, 16,71 m. O. Fyedoseyev, Sovét, 16,70 m. V. Einarsson, ísland, 1670 m. V. Kurkyevich, Sovét, 16.69 G. Stoikovski, Búlgaríu, 16,67 V. Saneyev, Sovét, 16,67 m. Vilhj. Einarsson. Hörð barátfa í II. deild Keppnin verður vafalaust hörð í 2. deild íslandsmótsins í knattspyrnu á þessu sumri Síðustu daga voru leiknir tveir leikir, sem báðum lauk með jafntefli, Víkingur — FH 1:1 á Melavelli og Breiðablik — Selfoss 1:1 í Kópavogi. Vaxtahækkun Kaupmannahöfn, 12. júní. ÞjóðbankJ Dana hefur ákveð- ið að lækka forvexti um Vz prósent frá og með morgun- de^inum. Bankinn grundvall- ar átvörðun sína á því, að at vinnuleysi sé enn tiltölulega mikið miðað við árstíma, auk þess sem verðhækkanir hafi verið tiltölulega litlar og aukn ing hafi haldizt í útflutningn- um.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.