Alþýðublaðið - 13.06.1968, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 13.06.1968, Blaðsíða 5
MINNING: Jónas Þorbergsson, FYRRVERANDI ÚTVARPSSTJÓRI ÚTVTRPSRÁÐ hélt síðastliðinn þriðjudag minningarfund um Jónas Þorbergsson, fyrrum útvarpsstjóra. Þar sagði formaður ráðsins, Benedikt Gröndal, eftirfarandi orð: Jónas Þorbergsson, fyrrum út- varpsstjóri, er láíinn. Með hon- um er fallinn sá maður, sem mestan þátt átti í byggingu Rík isútvarpsins fyrir tæplega fjór um áratugum og mótaði þær meginstefnur, sem fylgt hefur verið síðan við stofnunina. Jónas fæddist að Helgustöð- um í Reykjadal í S.-Þingeyjar- sýslu, sonur Þorbergs bónda þar . Hallgrímssonar og konu hans Þóru Hálfdánardóttur. Hann stundaði nám við Gagnfræða- skólann á Akureyrl, lagði eftir það fyrir sig kennslu, en hélt síð an til Vestui-heims, þar sem liann dvaldist nokkur ár. Eftir heimkomu gerðist Jónas ritstjóri Dags á Akureyri og varð landskunnur fyrir skrif um þjóðmál og önnur áhugamál sín. Árin 1927-29 var hann ritstjóri Tímans. Eftir það helgaði hann starfsorku sína að langmestu leyti Ríkisútvarpinu. Jónas Þorbergsson var skipað ur útvarpsstjóri og í hans hlut féll að stýra stofnuninni hin fyrstu og erfiðustu ski-ef. Þegar var nokkur reynsla fengin af þeim vandkvæðum, sem það er bundið að koma upp útvarpi fyr ir fámenna þjóð, sem býr dreifð um mikið land. Veigamest af öllu var þó, að undir stjórn Jónasar var Ríkis útvarpið gert að menningarstofn un, sem síðar hefur verið kölluð mesta menningarstofnun þjóðar^ innar. Þetta var ekki sjálfsögð stefna og hefur ekki verið ó- umdeild. En fáir mundu í dag óska þess, að öðru vísi hefði verið af stað farið. Það var vandasamt að skapa Ríkisútvarpinu það fjárhagslega sjálfstæði, er gert hefur stofn- unina jafn óháða og hún, þrátt fyfir allt, hefur verið. Jónas Þorbergsson hafði víðsýni til að tryggja útvarpinu auglýs- ingatékjur, sem voru nær óþekt- ar í Evrópu á þeim árum, en búa jafnframt svo um hnúta, að ekki fyigdu ágallar auglýsingaút varps. í öðru lagi sá hann, að verzlun með útvarpstæki gæti orðið stofnuninni drjúg tekju- lind, og svo hefur verið allt til þessa öags. Sú fjáraflaleið var þá óþekkt í nágrannalöndum. Með þessu tvennu og afnota- gjöldum hlustenda tókst Jónasi Þorbergssyni að sjá Ríkisútvarp inu farborða. Gerði hann mynd arlegar áætlanir um byggingar fyrir stofnunina, lét teikna þær og fann þeim stað. En efnahaps höft, sem sigldu í kjölfar ófrið ar ollu því, að yfirvöld meinuðu Ríkisútvarpinu að i-eisa sér það heimili, sem Jónas ætlaði því. Jónas bar mikla umhygeju fyr ir, að Ríkisútvarpið væri stofn- un, sem öll þjóðin gæti treyst, en enginn misnotað. En hann minnti oft á, að orðið hlutleysi væri ekki notað í lögum eða í-eglugerðum stofnunarinnar, heldur óhlutdrægni, og væri á því verulegur munur. Jónas Þorbergssnn var útvarps stjóri í 23 ár. Það starfslið er því fjölmenni, sem vann undir hans stjórn við stofnunina og liugsar til hans meö þakklæti og 11HOSIÐ - SKIUSTðFUSTULKA Skrif&tofustúlka óskast að Norræna húsinu. Hún þarf að Vera skapgóð, vön skrifstofuvinnu, góður vélritari og kunjra islenzku og eitt Norðurlanda- málanna vel. Alhliða skrifstofúvinna, bréfaskriftir, lett bók- færsla, móttaka og annað sem til fellur. Mjög góð vinnuskilyrði. Laun og vinnutimi eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 25. júní. Þarf stúlkan að hefja störf sem fyrst. Ski’ifteg umsókn sendist Ivar Eskeland, Norræna liúsinu, Reykjavík. NORR€NA HUSIÐ POHJOLAN TAIO NORDENS HUS vinarhug. Ríkisútvarpið sér á bak braut ryðjanda, sem vann sér mikinn og glæsilegan sess í sögu stofn unarinnar — og þá um leið sögu þjóðarinnar. Ég bið viðstadda að rísa úr sætum í minningu Jónasar Þor bergssonar. 'Discount 50 —air travel U.S.A. fare Enginn heyrt um estrisnisafslátt Bandaríkjastjórn hefur und- anfarið gefið út til handa er- Iendum skeimntiferðamönnum kort, sem gefa þeim rétt til lækkaðra fargjalda með flug- vélum og járnbrautum innan- lands í Bandaríkjunum og lækkaðs verðs í verzlunum og hótelum á meðan þeir eru í heimsókn í landinu. Sem sagt gott, eins og Her- ald Tribune sagði nú í vikunni, en gallinn er bara sá, að fréttir af þessu virðast ekki hafa bor- izt vestur yfir Atlantsála, nema þá að amerísk fyrirtæki hafi sum hver látið undir höfuð leggjast að tilkynna útibúum sínum um þessar ráðstafanir. Blaðið tekur sem dæmi Jam es nokkunx Coltart, yfirmann fréttaþjónustu óháða sjónvarps ins í Bretlandi. Hann mun fyr . ir nokkru hafa farið með rautt, hvítt og blátt kortið sitt á ferðaskrifstofu eina í Green- wieh í Connecticut. í bæklingi, er Coltart fékk í London, og á kortinu, sem útlendingaeftirlit ið í New York stimplaði við komu hans til landsins, sagði, að hann gæti keypt flugmiða handa sér og konu sinni fyrir hálfvirðí. Enginn á ferðaskrifstofunni kannaðist við þetta, þegar hann vildi kaupa miða við lækkuðu verði til Washington. Mannin- um varð auðvitað að orði: ,,Hver ósköpin eru þetta? For- seti Bandaríkjanna segir, að þetta gefi mér rétt til ,,gest- risnis-afsláttar“. Ekki vildi af- greiðslumaðurinn trúa þessu og kallaði til aðra á skrifstof- unni, en allt kom fyrir ekki. Hann komst svo burtu á lækk uðu verði fyrir sérstaka greiða semi. Og sagan endurtók sig. Á kortum þessum er innsigli forsetans og á þeim stendur: „Velkomin til Bandaríkjanna. Forsetinn og öll bandaríska þjóðin bjóða yður hjartanlega velkomin og óska yður ánægju legrar og eftirminnilegrar heimsóknar“. í bæklingnum er listi yfir verzlanir og hótel um allt land, þar sem fá má af- slátt. Sömuleiðis er þar lofað hálfum fargjöldum með flugfé- lögum og járnbrautum innan- lands. Coltart skýrir frá því í viðtali við fyrrgreint blað, að hann og kona hans hafi gengið um Fifth Avenue og Madison Aven ue en hvergi séð í glugga neinn ar verzlunar nein merki þess, að tekið yrði tillit til korts- ins „Visit U.S.A. Hospitality Card 1968“. Hann bendir réttilega á það í viðtalinu, að ástand það, sem skapazt gæti af þessu, gæti haft mjög alvarlegar afleiðing ar fyrir venjulega skemmti- ferðamenn, sérstaklega frá löndum eins og t.d. Bretlandi, þar sem gjaldeyrir væri skammtaður. Menn gerðu þá ráð fyrir miklu betri nýtingu gjaldeyrisins, en raun yrði á, ef enginn á staðnum hefði heyrt um nefndan gestrisnis- afslátt. Verkfall boðað á síldarflotanum FJÖLMÖRG sjómannafélög hafa boðað verkfall frá og með 18. júní n.k., hafi samningar ekki tekizt fyrir þann tíma. Búið er að halda nokkra samníngafundi með sáttasemjara, en lítið hefur miðað í samkomulagsátt. Næsti sáttafundur er boðaður annað kvöld klukkan 20.30. Alþýðublaðið átti viðtal við Jón Sigurðsson, formann Sjó mannasambands íslands, í gær varðandi kjaradeilu síldveiði sjómanna og útgerðarmanna. í viðtalinu sagði Jón, að síld veiðisjómenn vildu nú fá inn í samninga sína þau atriði, sem samningar urðu um í vetur varðandi kaup og kjör sjó manna á vetrarvertíðinni. Þannig vildu hásetar, mat sveinar og netamenn nú fá 1100 króna upphæð á mánuði í svonefnda fatapeninga., sem raunverulega væri viðbót við kauptryggingu. Vélstjórar vildu fá 624 krónur á mánuði, sem greiðast skal auk hlutar eða kauptrygginar. Þá vildu síldveiðisjómenn fá örorkutryggingu hækkaða úr 200.00 krónum í 400.000 krónur í samræmi við samninga sjó manna frá því í vetur. Auk þess sagði Jón , að ekki yrði hjá því komizt að semja um kaup og kjör vegna sölt unar um borð í fiskiskipunum. í áðurgildandi samningum hafi verið ákvæði um þessi atriði, en sú kaupupphæð, sem í þeim væri ákveðin, væri nú í alla staði óraunhæf. Þá viljumwið fá ákveðin at riði varðandi sumarleyfi síld arsjómanna inn í samningana. Sú venja hefur ríkt fram að þessu, að Sjómannasambandið hefur sent út tilkynningu í nafni félaganna með heimild fyrir skipsmenn til að taka sum arleyfi og þannig veitt nokk ur frávik í samningum varð andí sumai'leyfi. Nú viljum við hins vegar fá ákvæði um sum arleyfi inn í samningana. Ekki verður hjá því komizt að breyta nokkuð frá því, sem á(Sur hefur gilt í þessum efn um, þar sem búast má við, að síldvéiðisjómenn verði í surrx ar lengur fjarx'i landi en áðuc á sumarsíldveiðum. í suim <* líður þannig lengri tími en áð ur á milli þess að skipin komi að landi. Framhald á síðu 14. US 13- júní 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.