Alþýðublaðið - 16.08.1968, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 16.08.1968, Blaðsíða 4
[5535 :;sflftWftSí: Sú snýr upp á sig Okkur brá heldur betur, þegar við litum yfir myndabunkann. Það fyrsta, sem okkur datt í hug, var vansköpuð akróbatstúlka. En við nánari atbugun kom ajuðvitað í ljós, að allt er þetta verk ljós- myndarans. Hann lætur þessa laglegu fyrirsætu augnablik styðja sig við bakhluta gínunnar og við það fást þessi sláandi á- hrif. Það fylgir sögunni, að þessi breiðröndótta ullarkápa sé með portúgölsku sniði, og þar sem okkur þóttí hún jafnframt fjári falleg, birtum við mynd af henni. Eins og allir geta séð eru hnapparnir ekkj á hinum |j hefðbundna stað, framan á S miðri kápunni, heldur vinstra £ megin. Það fylgir með, að kápa I þessi klæði bezt ungar og j grannvaxnar stúlkur, enda 5 virðast háu stlgvélin, sem stúlk | an klæðist undirstrika það. S rn -n s D rHATIONAL] J3 } Hi-Top j U 00 O 4 16. ágúst 1968 — Gott er jboð ekki Samuel Courtney félagi í verzlunarráði Ástralíu og xram leiðandi hunda- og kattafæðu lá heldur betur í því á dögun- um. Hann hélt því nefnilega statt og stöðugt fram, að hundamaturinn, sem hann framleiddi væri svo fra-múr- skarandi góður, að eigendur hundanna, sem matinn keyptu, gætu vel étið hann sjálfir. Einhverjir efasemdamenn vildu hvorki kingja þessari staðhæfingu hans né hunda- matnum oig veðjuðu við hann um það, hvort hann gæti slafr að í sig framleiðslu sína. Og auðvitað varð hann að taka veðmálinu. Svo blessaður framleiðand- inn át hundamat úr einni dós, og á hann lof skilið fyrir það afrek, en svipbrigðin á and- liti hans benda.þó til þess, að hann hefði miklu fremur kos ið að éta gamla hattinn sinn. LENNON AÐ SKILJA John Lennon kvæntist Cynt hju fyrir 6 árum, eða löngu > áður en Bítlarnir urðu frægir. ' Þau eiga fjögurra ára gamlan / son, Julian. Síðustu árin hafa þau búið í lúxusvillu Lennons í Surrey. Nú virðist sem hjóna ( foandssælan sé úti. Hvorugt hjónanna hefur • nokkuð látið frá sér fara varð- andi skilnað, en vitað er, að þau hafa snúið sér til lögfræð ings, og nánustu vinir þeirra ■, fullyrða, að skilnaður sé í vændum. John Lennon er nú á ír- landi, þar sem hann er að ikaupa sér litla eyju. Hann sagði fréttamönnum við það tækifæri, að hann hefði ekki hugmynd um, hvar konan væri niður komin eða hvað hún hefði fyrir stafni. Síðar kom í ljós, að Cynthia var stödd á ítalíu ásamt móð- ur sinni. Geimfarar? Þessir þrír herramenn í hálf- gerðum geimfarabúningum vöktu óskipta athygli tízkiu- sinnaðra karlmanna í London fyrir skömmu. Sá sem átti hugimyndina að klæðnaði þessum er Vf Mexí- kani og V2 Ameríkani og heit ir Ruben Torres. Hann hefur höfuðstöðvar í París, en kem- ur oft hugmyndum sínum á framfæri í öðrum borgum, eins og t.d. London. Fötin hafa marga kosti, auk þess sem snið þeirra er mjög frumlegt, segir Torres. — Þið getið synt í þeim, sofið í þeim, og þau eru alltaf eins! Trúi því, hver sem vill. SERVÍETTU- PRENTUN SfMI 32-10L ALÞYÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.