Alþýðublaðið - 16.08.1968, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 16.08.1968, Blaðsíða 11
Þarna er hart sótt að marki Fram, en hinn efnilegi markvörður,i Þerbergur Atlason, hefur gómað knöttínn. (Ljósm. B.B.). Bikarkeppni FRI um helgina A laugardag og sunnudag fer fram úrslitakeppni bikar- ----------—---———-—-< íþróttamót iðnnema Iðnnemasamband íslands efn ir til íþróttamóts nú um næstu helgi 17,—18. ágúst að Þjórsár- túni. Búizt er við, að iðnnem ar víðsvegar að af landinu fjölmenni á mótið og hafa nú þegar iðnnemafélög frá Reykja vík, Hafnarfirði, Kefiavík, Vestmannaeyjum, Akranesi, ísafirði og Siglufirði tilkynnt þátttöku. Keppt verður í knattspyrnu, 100 metra, 200 metra, 400 metra, 800 metra og 4x100 metra boðhlaupi fyrri daginn og handknattleik, há- stökki, langstökki, þrístökki, kúluvarpi og hjólreiðum síðari daginn. Búizt er við að kepp- endur verði a.m.k. 120. Mótið verður sett af formanni sam- takanna Sigurði Magnússyni. Á laugardaginn verður kvöld- vaka og verður margt til skemmtunar, s.s. flugeldasýn- ing, fjöldasöngur og útiskot keppni, sem mun teljast ný- mæli á íslandi. Öllum er heimil innganga á mót þetta. keppn'nnar í frjálsum íþrótt- um 1968. Er þetta í þriðja sinn, sem slík keppni fer fvam hér. Að þessu sinni tilkynntu 7 félög og héraðasambönd um þátttöku, en þar sem aðeins 6 mega vera í úrslitum, urðu Reykjavíkurfélögin Ármann, ÍR og KR að heyja um það innbyrðis keppni, hvaða tvö lið kæmust í úrslit. Svo fór að ÍR og KR komust í úrslit- in að þessu sinni. Búast má við jafnri og skemmtilegri keppni, enda fór svo í fyrra, að ekki skildu nema 15 stig fyrsta og þriðja lið. Þá bíða margir þess með eftirvæntingu að vita, hvort þeir frjálsíþróttamenn, sem al- veg eru við það að ná tilskild um árangri til að öðlast rétt til þátttöku í ólympíuleiknn- um, vinni tilskilin afrek urn helgina. Eru það einkum þe'r Jón Ólafsson, Valbjörn Þor- láksson og Þorsteinn Þorsteins son, sem hafa góða möguleika til þess. 1 í úrslitunum að þessu sinni 1 taka þátt eftirtalin félög og héraðasambönd: KR, UMSK, HSH, ÍR, HSK og HSÞ. SL EDSSON (ÞR#TTIR ÖRLEGUR LEiKUR Fram mistókst vítaspyrna, og Vestmanna- eyingar hlutu annað stigið Á miðvikudagskvöldið léku Fram og IBV seinni leik sinn í íslandsmótinu. Áður höfðu Frammarar leikið í Vestmanna- eyjum og sigrað IBV þar ekki óglæsilega. Mátti því buast við allfjörugum viðskiptum að þessu sinni. Reið og á miklu fyrir hvorn aðilann sem var að standa sig sem bezt, Sigur Fram hefði óneitanlega fært þá feti nær ís- landsbikarnum, en sigur Vest- mannaeyinga tryggt þá í I. deild inni áfram. Vissulega var þetta líka fjörlegur leikur, sem lauk með jafntefli Qg án þess að marki yrði náð. Einkum var það þó fyrri hálfleikurinn sem var oft bæði vel leikinn á báða bóga og skemmtilegur. Boltinn látinn ganga viðstöðulítið manna á milli. Er stutt var á Ieikinn liðið fékk Ásgeir innherji Fram, eina slíka sendingu þar sem hann var óvaldaður inni á vítateigi, en mistókst herfilega skotið, og spyrnti framhjá. Þarna rauk „upplagt“ tækifæri sem vel hefði getað breytt gangi leiksins í heild, ef heppnast hefði. Reynd-* ar átti Sævar miðherji IBV rétt á eftir ekki ósvipaðan mögu- leika uppi við mark Fram, en skaut yfir. Einnig átti hann nokkru síðar annað færi en þá varði Þorbergur mjög glæsilega. Þannig skiptust á áhlaupin á víxl, megin-hluta hálfleiksins. En mjóu munaði að Fram ekki tækist að skora úr skoti Helga Númasonar um miðbik hálfleiks- Heimsmet jafnað Ljudmila Samotjesova jafn- aði í gær heimsmetið í 100 ra| hlaupi kvenna á 11,1. Um leið setti hún nýtt sovézkt met sem var 11.3, sett fyrir 10 árum af Vem Krepkina. Tvær pólskar f stútkur og tvær bandarískar hafa náð sama árangri og Samotsjeva nú. Þá jaínaði Rússinn Sapeia öðru sinni Evrópumetið í 100 m. hlaupi karla en það er 10,0. ins, föstu og ákveðnu, en Páll markvörður varði en missti þó knöttinn frá sér þannig að Fram tókst að skjóta aftur, en bakvörð urinn bjargaði á línunni. Síðari hálfleikurinn var ekki eins vel leikinn, að vísu þrum- uðu Frammarar fast að IBV, og fór leikurinn langtímum saman fram á vallarhelmingi þeirra. Áttu Frammarar þá þau tæki- færi, sem hefðu átt að endast þeim til sigurs. Meðal annars var Erlendur Magnússon tvívegis með stuttu millibili í slíkum „ofsa sjens“ að það þurfti „sér- staka lægni“ til að skora ekki. en skjóta yfir í bæði skiftin. Og enn fengu Frammarar eitt tækifærið og það ekki af lakara endanum, vítaspyrnu, fyrir stjak við Iielga Númasyni, sem kom- inn var innfyrir í opið færi við markið. Helgi spyrnti svo sjálfur úr vítinu, en vandaði sig senni- lega um of, ætlaði sýnilega að skjóta rétt innan við stöng, en knötturinn smaug hins vegar rétt utan við hana. Það gerði gæfu- muninn. Er á hálfleikinn leið sóttu Vestmannaeyingar sig að nýju. Sköpuðu sér góð skilyrði til að skora, en mistókst. Leiknum lauk eins og fyrr segir án marka. Lið Vestmannaeyinga lék oft mjög laglega og sýndi að þar eru á ferðinni dugmiklir og djarfir leikmenn. En í hópi þeirra var miðherjinn Sævar og h.úth. Sig- mar einna snarpastir. Valur Andersen er einnig mjög góður leikmaður og bakvörður Sigurð- ur Ingi. Annars er liðið allt furðu vel samstillt. í liði Fram bar Sigurður Friðriksson af sem miðframvörður og Baldur Schev ing vann mikið að vanda, eins Elmar sem skeiðaði um völlinn þveran og endilangan, þegar svo bauð við að horfa. ótrúlega fljót- ur og laginn. Það er oft gaman að sjá hann á sprettinum, en hins vegar vill stundum verða minna úr tilþrifunum, en manni finnst efni standa til. Magnús Pétursson .dæmdi leik- inn ágætlega. EB Tvísýn keppni á Reykja- víkurmótinu í golfi Reykjavíkurmótið í golfi er nú langt komið. Á morgun verða leiknar síðustu 18 hol- urnar, og hefst keppnin klukk an eitt á vellinum í Grafar- holti. Þegar keppnin var hálfnuð, leiknar höfðu verið 36 holur, var staðan þessi: Meistaraflokkur: 1. Ólafur Bjarki Ragnarsson 163 högg. 2. Óttar Yngvason 165 högg. 3.-4. Einar Guðnason og Ólafur Ág. Ólafsson 167 högg. 5. Eiríkur Helgason 169 högg. 1. flokkur: 1. —2. Ragnar Magnússon og Ragnar Jónsson 188 högg. 3. Þorvaldur Jóhannesson 189 högg. 2. flokkur: 1. Lárus Arnórsson 197 högg. 2. Gunnar Kvaran 202 högg. /0-/5% afsláttur af tjöldum og ferðavörum Aðalstræti — Nóatúni — Laugavegi 164. 16. ágúst 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 1|,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.