Alþýðublaðið - 10.09.1968, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 10.09.1968, Blaðsíða 3
Selst Thule-ölið eftir að hafa hækkað um helming Fyrir rúmri viku ákvað verðlagsráð, að Thule 61, sem framleitt er á Akureyi’i. skuli ekki vera háð verðlagsákvæðum. Ennfremur var ákveðið, að pilsner yfirleitt skuli ekki lengur vera háður verð-i lagsákvæðum. Thule öl hefur ekki verið á boðstólum í verzlunum í Reykjavík um skcið, en kom aftur á markaðinn í gær á nýju verð'i — eða 18,75 kr. hver flaska. Áður kostaði Thule öl 10,00 krónur hver flaska. Ölgerð Egils Skallagrímssonar hyggur ekki á hækkun á pilsner að minnsta kosti ekki í bráð. Kaupmenn í Reykjavík virðast spá því, að Thule öl muni alls ekki seljast á liinu nýja verð’i. Fréttamaður blaðsins hafði samband við skrifstofusti óra Verðlagsráðs í gær og sagði bann, að í fyrrj viku hafi vex'ð lagsráð álíveðið að afnerna verðlagsákvæði á Thule öli og af pilsner. Kvað hann ástæð una 11 þessarar ákvörðunar ráðsjns vera þá, að mikið tap hafi verið á verksmiðjunni á Akureyri og hún væri mjög dýr í rekstri. Thule öl hefur ekkj verið á boðstólum í verzlunum í Rvík |Um þó nokkurt skeið, en í gær var hann aftur komjnn á markaðinn í höfuðborg'nni og þá á nýju verði. Kostar ölið nú hvorki meira né mjnna en 18.75 krónur hver flaska. Áður kostaði hver flaska af Thule öli 10.00 krónur. Fréttamaður hafði samband v ð Þorstein Þorkelsson skrif stofustjóra hjá Ölgerð Egils Skallagrímssonar og spurði hann, hvort búast mætti v ð, að Egilspilsnerinn hækkaði nú 'að sama skapi og Thule ölið. Kvað hann engar ráðstafanír hafa verið gerðar til hækkun ar á pilsner og engin hækkun á honum væri á döfinni. Sagð jst hann ekk búast við, að pils rter hækkaði í verði nú, þrátt fyrir það, að hann væri gerður frjáls. Hins vegar myndi hann sjálfsagt hækka í verði, ef um verulegar hækkanir yrð: að ræða á hráefni í hann eða þá almennar hækkanir vöru verðs. Blaðið hafði samband við verzlunarstjóra hjá Sþla og Valda í Aðalstræt' í gær og spurði hann, hvort hann væri búinn að fá Thule ölið á ný. Kvað hann svo vera, en sagð ist hins vegar búast við því, að hann seldist alls ekki á hinu nýja verði. Þegar hefðu marg ir viðskiptavinir, sem áður keyptu Thule öl, lýst því yf'r að þeír myndu alls ekki kaupa Blaðið hafði samband við sölustjóra Sana á Akureyri í gær og spurði hann, hvort hann teldi, að Thule ölið seld ist eins vel og áður á hinu USA vill að Evrópa styrki NATÓ betur Fréttaritari N T B fréttastof unnar í New York segir í gær, innrás Sovétríkjanna og lepp ríkja þeirra fjögurra í Tékkó slóvakíu hafa orðið tilþess að þær raddir verði sífellt hávær ari í Bandaríkjunum sem krefj ast þess að að’ldarríkj NATO í Evrópu -auki framlög sín til bandalagsins og treysti ekki1* um of á hlutdeild Bandaríkj anna. Jafnframt þessu heyrast raddir um að Suður Vietnam eigi að bera auknar byrðar af styrjaldarrekstrinum þar eystra. Talsmaður bandarísku stjórn arinnar sagði í gær að á fundi í öryggisráði Bandaríkjanna í síðustu viku hefði verið ákveð ið að leggja að öðrum NATO ríkjum að þau legðu meira að mörkum til að viðhalda styrk leika bandalagsins. Þangað til væri ekkl hægt að vænta þess að Bandaríkin ykju skuldbind ingar sínar við NATO. Lc-iðtogi demókrata í öld- ungadeild Bandaríkjaþings gerðist talsmað.ur útbreiddrar skoðunar í þinginu er hann sagði í sjónvárpsviðtali á sunnudaginn, að hann áliti að tími væri til þess komin að NATO ríkin stæðu v_ð þær skuldbindingar sem þau hefðu tekið á sig fyrir tveimur ára tugum, en hefðu hummað fram af sér hingað til. Mansfield sagði að Bandaríkjn ættu ekki að bera höfuðábyrgðina áf ör yggismálum Evrópu, heldur bandalagsríki þeirra, sem bet ur væru stödd fjárhagslega. Meðal þeirra ríkja sem nú er lagt að að auka hlutdeild sína að varnarmætti N A T O er Vestur Þýzkaland, en-ætlazt er til að Þjóðverjar leggi fleiri hersvejtir til sameiginlegs her afla NATO í Evrópu. Þá hefur Ítalía einnig ver ð beðin að út búa herlið sitt betur og þjálfa það betur en nú er. nýja verði. Kvað hann aðila þar nyðra alls ekki vera hrædda um, að ölið seldist ekkj. Hjn svegar sagði hann, að búast mætti við einhverjurn samdrætti í sölu ölsins fyrst í stað, en fyrirtækið væri aldeil is ekki á því, að Thule ölið stæðist ekki samkeppni við annað öl, sem á markað num væri, þrátt fyrir þessa hækk un. Ástæðan til þess, að Thule öl hafi ekkj verið á markaði í Reykjavík um skeið, væri sú, að verksmiðjuna hafi vant að kolsýru og sömuleiðis hafi starfsfólk hennar verið í sum arfríi og því hafi framleiðslu verið hætt um eins mánaðar skeið. Sölustjórinn sagði, að verksmiðjan hafi aldrei getað annað allri þeirri mjklu eftir spurn, sem verið hafi eft r Thule öli allt frá því fram leiðslan hófst. Fréttamaður hafði einnig samband við framkvæmda stjóra Sana verksmiðjunnar á Akureyrj og innti hann eftir ástæðunni, sem lægi að baki h;nni miklu hækkun á Thule öli. Sagði framkvæmdastjór inn, að það væri ekki við því að búast, að fyrirtækj á ís landi geti framleitt öl úr sömu hráefnum og til dæmis Danir á allt að því helmingi lægra verðj en þeir. Sana borgaði ekkj lægri tolla á hráefni en t. d. Danir og fl,utningsgjöld, sem Sana þyrfti að greiða, væru margfalt hærri. Sagði hann, að verksmiðjan hafi verið byggð fyrir einu og hálfu ári síðan og væri hún Framhald á bls. 14. Kjördæmisþing á Norðurlandi eysfra: VALGARDUR HARALDSSON ENDURKJORINN FORMADUR Kji'hdæmisbing Albýðuílolcks'ins í Norðurlandskjördæmi eystra var haldið s.l. laugardag að Hótel Varðborg, Akureyri. Fundurinn var vel sóttur og komu fulltrúar víðsvegar að úr kjördæminu. Fúndinn setti og stýrði for maður kjördæmisráðsins Sigur sveinn Jóhannesson, Akureyri. Gylfj Þ. Gíslason, varaformað maður Alþýðuflokksins og Bragi Sgurjónsson, alþingis maður fluttu framsöguræður um stjórnmálaviðhorfið. Að framsöguræðum loknum hóf 'ust síðan fróðlegar og skemmti legar umræður um efnahags ástandið og þjóðmál yfirleitt í lok umræðnanna var sam þykkt tillaga þess efniá að haldin skyldi innan tíðar ráð stefna um atvjnnumál kjördæm isins. í lok fundarjns var kjörin stjörn kjördæmisráðsins, en fyrri stjórn baðst eindregið undan endurkjöri, Var hjn nýja stjórn kjörin. einröma en hana skipa, Valgarður Haralds son Akureyri formaður, Björn Friðfjnnsson, Húsavík og Hreggvdður Hermannss., Ólafs firði, varastjórn: Sigur sveinn Jóhannesson, Akureyri, Steindór Steindórsson, Akur eyri og Einar M. Jóliannesson, Húsavík. ' Fundurinn þótti takast mjög vel, ríkti þar einhugur og festa um aukinn framgang Alþýðu flokksjns í kjördæminu. Erlendar fréftirí stuftu máli PRAG: Sovézk yfirvöld hafa látið þá skoðun í ljós, að ástandið í Tékkóslóvakíu hafi gengið eðli- legan gang samkvæmt Moskvu. sáttmálanum, sem gerður var fyrir 19 dögum. Samkvæmt söiim heimildum segir, að þeir Al- exander Dubcek, Svoboda og Oldrich Cernic séu nokkuð bjart sýnir eftir umræðurnar viðVas- ilij Kuznetsov, varautaríkisráð- herra Sovétríkjanna, síðustu þrjá daga. Pragútvarpið sagði í gær að Kuznetsov hafi í gær hitt að máli Gustav Husak, leið- toga Slóvaka. Segir ennfremur að Kuznetsov hverfi til Moskvu innan tíðar til að gefa yfirvöld- um Sovétríkjanna skýrslur um við ræðurnar við leiðtoga Tékkósló vakíu. Sovézkir hervagnar halda enn kyrru fyrir í hjarta Prag. 5 öryggislögreglumenn, sem, Rússar handtóku í • ^nnrásinní hafa verið látnir lausir. Stöðug gagnrýni blaðaútgefenda á rit- skoðunina er ekki vinsæl hjá sovézkum leiðtogum og þeir vilja enn auka ritskoðun. PARIS: De Gaulle forseti Frakklands fordæmdi í gær harðlega innrás Sovétríkjanna og bandamanna þeirra í Tékóslóvakíu. Gerðist þetta á blaðamannafundi, þar sem voru saman komnir um 700 blaðamenn ásamt fjölda erlendra sendimanna og stjórnmála- manna.De Gulle ræddi einnig um ástandið í Nígeríu og sagði það skoðun sína að Biafra-menn hefðu óskoraðan rétt til að á- kveða sjálfir afstöðu sína til stjórnarinnar í Nígeríu. NEW YORK - TEL AVIV: Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna kemur saman í dag til að ræða hina auknu spennu í Mið- austurlöndum, sem hófst með átökunum við Súesskurð á sunnu ,dag. Báðir aðiljar, Arabar og ísraelsmenn saka hvorn annan um upptök átakanna. U Thant frestaði för sinni til Líbíu í gærkvöldi vegna atburð- anna við Súez, en sagði að hann vonaðist til að geta setíð fund- inn í Algeirsborg á miðvikudag- inn, þar sem leiðtogar Afríku- ríkjanna hittast. Rólegt var við Súezskurðinn í gær, en ísraelskur og jórdansk ur her skiptust á skotum yfir skurðinn. Enginn féll í skot. hríðinni. 10. sept. 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.