Alþýðublaðið - 10.09.1968, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 10.09.1968, Blaðsíða 8
 HJA KRON Hlynur, bHað um samvinnumál, birtir í ágústhefti viðtal við Ingólf Ólafsson, kaupfélagsstjóra hjá KRON og leyfum við okkur að taka hér eftirtektarverðustu atriðin. Millifyrirsagnir eru blaðsins. —■ Spurt er um rekstrarafkomu KRON á s.l. ári og svarar Ingólfur á þennan veg: — Það má heita, að útkoman standi á jöfnu, segir Ingólfur, því >að okkur tókst að skila 30 iþúsund krónum í reksturshagn- að, en jþá höfðum við líka áður afpkrifað allar eignir eins og lög leyfa. — Og hverjar telur þú ástæð- ur þess, >að ykkur tekst þetta, meðan fjöldamörg fcaupfélög úti um land eru rekin með tapi? — Það er erfitt að segja um ástæðurnar. Víða úti um land. ekki sízt í smærri félögunum, irnar, og takmarkið, sem við koma vafalítið ýmsar staðbundn ar ástæður tii greina, og þetta er ekki sérstaklega bundið við þéttbýlið hér su ðvest anl'an ds, því að t. d. voru kaupfélögin á Akranesi og í Haíniarfirði rekin með halla 6.1. ár, en í Keflavík mun ú tkoman hafa verið svip uð og hjá okkur. Ég er þó þeirr ar skoðuniar, að hér >í Reykja- vík sé auðveldara að reka fyrir- tæki en víða ainnars staða-r, eink um vegna þess að rekstrarmögu leikarnir séu nær því að vera fullnýttir hér, m. >a. nýtast kost- ir stórreksturs betur hér í þétt- býlinu en úti í dreifbýlinu. Stefnan hjá okkur, sem við höf- um fylgt undanfarin ár, er sú að leggja niður smærri verzlan- riniar, og takmarkið, sem við keppum að, er það, að megin- hlutinn af verzlunum okkar velti ekki undir tíu milljónum króna hver á ári. Síðast liðin fimm ár höfum við þannig lagt KRON rekur 12 matvöru- búðir og 4 verzlanir niður fimm matvöruverzlanir, sem voru taldar of litiar, og í stað þeirra höfum við aðeins stofnsett eina. Á sama tíma höf um við auk þess sameinað tvær sérvörubúðir í eima, þ. e. bús- áhalda- og raftækjabúðina, sem nú eru reknar í sama húsnæði. Þess'ar aðgerðir eru ailar liðir ií sömu þróun, og þær hafa all- ar skilað tilætluðum árangri. — Fæst KRON eingöngu við smásöluverzlun. — Svo til eingöngu, en við erum auk þess með kjötvinnslu og pökkunarstöð. — Og 'hvað eiiu smásöluverzl- anirna'r margar? — í dag eru matvörubúðirnar tólf, og auk þess rekum við verzlunina Liverpool við Lauga- veg, þar sem seld eru heimilis- tæki, búsáhöld, ferðavörur, leik föng og gjafavörur, bókabúð f Bankastræti 2, fatnaðar- og skó- búð að 'Skólavörðuistíg 12 og járnvörubúð að Hverfisgötu 52. — Hvað eru félagsmemn marg ir? — Þeir eru tæplega 5.600, og þeim hefur farið heldur fækk andi síðustu árin, sérstaklega vegna þess, að eldra fólkið fell- ur frá, en ekki bætist nægilega margt við til þess að halda í horfinu. — Hefur verið unnið að því að fjölga félagsmönnum? — Ekki skípulega, en fólk getur gengið í félagið í hvaða KRON-búð sem er. — Þið gerðuð tilraunir með að lækka verð á vissum vöru- tegundum í fyrrahaust, var það ekki? Alfreð Ólafsson, kaupfélagsstjóri. Tilboð vikunnar — Jú, það var það sem við nefndum „tilboð vikunnar." Þetta var liður í markaðskönn- um hjá okkur, og var tilgangur- inn sá að kanna það, hvort fólk vildi leggja það 4 sig að ferðast nokkra vegalengd til þess að fá ódýrari vörur. Þessu var hagað þannig, að í verzlun okkar við Stakkahlíð var gefinn 10% af- sláttur af tiltekmum vöruteg- undum eina viku í senn, og síð- an skint, um þær vörur, sem verðlækkunin máði til, en í verzl ■uninni við Stakkahlíð er að ýmsu leyti góð aðstað'a fyrir slíkar kannanir, t. d. góð bíla- stæði, rúmgott og nýtízkulegt 'húsnæði, og verzlunin er vel staðsett. Þessi tilraun stóð yfir í tvo mánuði, en þá komu verð- lagsákvæðin til sögunnar og stöðvuðu hana, því að við treyst um okkur ekki til að gefia af- slátt af þeirri álagningu sem þau ákváðu. Við teljum því, að Iþessari könnun hafi ekki verið að fullu lokið, >en þó sýndi reynslan þenman tiíma, að við- skiptin í verzluninni jukust, og sérstaklega varð vart við aukna sölu á þeim vörutegundum, sem 'afsláttur var gefinn af hverju sinni. Við höfum ðhug á a halda þessu áfram, ef svigrúm gefst, en ,í þessu efni höfðum við um tvær leiðir að velja, annað hvort að lækka verðiS á öllum vörum í verziuninni, en þá hefði verð'lækkunin ekki get að orðið nema óveruleg, e. t. v. 2—3%, eða veita hærri afslátt af færri vörutegundum, og sú leið varð .fyrir valinu. Ég tel líka, að núna undanfarið 'hafi það verið að aufcast, að fóík kynni sér verðlag og taki tillit til þess við innkaup sín, og því . sé viðleitni -sem þessi tímabær- ari nú en fyrr. RÆTT VIÐ INGÓLF ÓLAFSSON KAUPFÉLAGSST JÓRA Er stórverzlun æskileg? aðrar - Fé- lagsmenn eru 5.600 — Hefur KRON nokkrar áætl anir uppi um það að reisa stór. verzlun hér á Reykjavíkursvæð- inu? — Það er ofarlega á stefnu- skrá okkar að reyna að reisa stærri verzlanir, og við höldum, að sú þróun í verzlanamálefn- um, sem orðið hefur í nágranna iöndunum, komi einpig hingað fyrr eða síðar. Ég sótti fyrir skömmu ráðstefnu um smásölu- dreifingu í Haag í Hollandi, og þar kom m. a. fram, að sam- vinnuverzlunum fækkar jafn- fraimt því sem þær stækka í flestum löndum V-Evrópu nema Frakklandi og íslandi. í Svíþjóð voru verzlanir kaupfélaganna t. d. 8.200 árið 1952, en 1966 hafði þeim fækkað niður í 3.450, og árið 1975 er áætlað að þær verði ekki nema 920 talsins. Ég hef þú trú, að sama þróun eigi eftir að verða hér, hvenær sem sá tími kemur að hún berist hingað. Hins vegar getum við ekki hafið framkvæmdir á þessu sviði nema með velvilja bæjar- yfirvalda, en sfcilnmgur þeirra á riauðsyn þess að verzlanarekst ur færi'S't í þetta 'horf þarf fyrst af öllu að vera fyrir hendi. í þeim herbúðum virðist fram til þessa hins vegar hafa verið lögð meiri áherzla á að það sé stutt í verzlanir en að þær séu af þeirri stærð sem getur boðið neytendum hagstæðust kjör. Við gerðum á sínum tíma bráða birgðaaíhuganir á möguleikum þess að setja upp stórverzlun á svæðinu fyrir austan Kópa- vog, nálægt þeim stað þar sem Breiðholtshverfið er nú að rísa. Matvöruverzlun KRON við Skólavörðustíg. g 10. sept. 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.