Alþýðublaðið - 10.09.1968, Blaðsíða 4
Michael Caine og unnustan frá Nicaragua.
Njósnarinn gekk
/ gildruna
OG nú er hann orðinn ást-
fanginn. Michael Caine, þcssi
merkílegi, brezki leikari, sem
fyrir nokkrum árum kom bein-
línis inn í hlýjuna úr kuldan.
um í alþjóðakvikmyndum qg
varð á samri stundu hreinlega
heimsfrægur. Þar til nú hefur
þessi alvarlegi, fámáli leikari,
að því er virðist, ekki látið kon-
ur eiga mikinn þátt í sínu
einkalifi. En þegar hann kom
t um daginn til Ítalíu, þar sem
hann er að leika í kvikmynd,
var hann með unga, suðuramer-
fska stúlku með sér, sem hann
kynnti sem unnustu sína. Stúlk-
an heitir Biancha P. Pe Ma.
chias og stendur í engu sam-
bandi við kvikmyndir. Hún er
frá Nicarague. Eftir því, sem
bezt er vitað, er faðir hennar
stórbóndi þar í landi.
Norskar sements-
verksmiðjur
sameinast
Öllum þrem sementsverksmiðj.
um Norffmanna verð'ur steypt
saman í eina verksmiðju, sem
ber nafnið Norcem A/S. Hluta-
fé verksmiðjunnar veírður 68
milljónir norskra króna og
starfsliðið yfir 2500 manns.
Sementsverksmiðjurnar hafa
leagi haft slamvinnu á ýtnsaim
sviðúm, meðal annars Ihafa 'þeir
haft sameiginiega sölumiðstöð.
í frétt í norskum blöðum segja
stjóraiendur verksmiðjanna, <að
náin samvirma væri til mikils
gagns fyrir lallar verksmiðjum-
ar. og ' nýlega hafa stjórair
iverksmiðjanna ákveðið, að alger
sameining væri það bezita.
Astna órabelgur
Verkun pillunnar:
Færri giftast Jbe/m fyrsta
og færri giftast Jbungaöar
Verið er að gera um-
fangsmikla rannsókn í
Danmörku á pillunotk-
un þar í landi. Skýrsla
tverður gerð á vegum
nefndar dönsku upplýs-
ingaþjónusturmar í kyn-
ferðismálum og mun
verða tilbúin næsta vor.
Nefndin hefur stuðzt við
efni frá ráðleggingamið-
stöðvum, mæðrahjálp-
inni og læknunum 70,
sem starfa að rannsókn-
inni.
Sérstaklega er rann-
sakað, hvaða stéttir nota
pilluna. — og hversu
gamlar þær stúlkur eru,
sem nota pilluna.
Á þeim stutta tíma, sem lið-
inn er, frá því að farið var að
nota pilluna, hefur hún haft
mikil áhrif á þjóðfélagið. Þær
hafa orðið þess valdandi, að
fæðingum fer mjög fækkandi —
og munu verða til þess, að hug-
takið „skdrlífi” mun nokkurn
veginn úreldast. Því að pillan,
sem svo mjög hefur aukið ör.
yggiskennd kvenna, hefur þeg.
ar átt sinn stóra þátt í því, að
þeim konum fjölgar stöðugt,
sem ekki giftast þeim fyrsta.
Þær konur, sem ganga þungaðar
upp að altarinu munu tæpast
verða eins margar á næstu ár-
um og veriö hefur.
Ef imga konan vill í fram-
tíðinni giftast sínum fyrsta elsk,
huga, mun það í rikara mæli
verða vegna þess, að hún elskar
hann — en í færri tllfellum
vegna þess, að hún á von á
barni.
Hægt er að komast að þessara
niðurstöðu, ef borin er saman
„skírlífisprósentan” í skýrslu
þeirri, sem upplýsingaþjónusf-
an sendi nýlega frá sér og sams
konar rannsókn, sem tveir þjóð-
félagsfræðingar við Kaupmanna
hafnarháskóla hafa nýlega birt.
65% danskra kvenna giftast
fyrsta manninum, sem þær sofa
hjá, segir upplýsingaþjónustan.
En við þessa prósenttölu setja
Erik Manniche og Björn Evald
Olsen stud. soc. spurningar-
merki.
Af eigin rannsóknum hafa
þjóðfél.fræðingarnir tveir komizt
að því, að hámarkstalan er 25
til 33 prósent. Með öðrum orð-
um: Meðan nefnd upplýsinga-
þjónustunnar telur, að meira en
helmingur kvenmannanna kjósi
hinn fyrsta, telja þjóðfélagsfræð-
ingarnir, að aðeins u.þ.b. þriðj.
ungur kvennanna muni deila
borði og sæng með fyrsta elsk-
huga sínum.
— Lektor Manniche, takið þér
pilluna með í reikninginn við
endurskoðun skýrslunnar?
— Pillan hefur enn ekki ver-
ið notuð svo lengi, að við höf-
um gert viðhlítandi rannsóknir.
En það er eflaust rétt, að pill.
an hefur valdið því, að færri
konur giftast nú vegna þess, að
þær eru þungaðar.
Annars telur Erik Manniche
ekki, að „skírlífisprgsentan’' só
byggð á réttri heildartölu íbú.
anna.
Nefndin reisir ályktanir sínar
á viðtölum við mæður, sem áttu
börn fyrir níu mánuðum. Jafn-
gamlar konur, ógiftar, voru
ekki spurðar og við það bætist,
t*ð íimmtóia jplrósen(t dansl(ra
kvenna eignast ekki börn. Auk
þess er fjöldi fæðinga ekki sá
sami innan allra stétta.
Á sínum tíma komst Kirsten
Auken að þeirri niðurstöðu, að
44% kvenna giftust' fyrsta clsk-
huga sínum. En niðurstaðan gaf
ekki rétta mynd, þar eð hér var
eingöngu um að ræða ungar
konur, sem voru á' sjúkrahúsum.
Erik Högh, lektor, hefur einn.
ig rannsakað þetta:
— Er það fyrsti elskhugi yð.
ar, sem leiðir yður upp að alt-
arinu? Högh telur, að því sé
þannig farið milli 36—53%
kvennanna. Rannsóknin var gerð
í hópi námsfólks frá 16—20
ára Námsfólk giftist síðar en
aðrir.
— Kvænast menn fyrstu ást-
mey sinni? — Högh lektor tel.
ur, að í hæsta lagi 36% karl-
manna geri það.
Dr. med. Preben Hertoft seg-
ir um sama efni, að í hæsta lagi
40—50% ungra manna kvæn-
ist fyrstu ástmey sinni.
Það lítur sem sagt út fyrir,
a® á þessu sviði sé nú um „jafn.
rétti” að ræða milli kynjanna.
En tiltölulega lítið er vitað
um þessi giftingarmál og ein3
er um hugtakið „framhjáhald.”
Hefur pillan leitt til aukins
framhjáhalds í hjónabandi eða
öfugt?
Danskír þjóðfélags. og kyn-
ferðismálafræðingar hafa áhuga
á að hefja rannsókn á því.
Fegurðarsérfræðingrarnir
segja. að „fallegu augun“
verði enn við lýði svo
að áfram eru notuð gervi-
augnhár. En ef þið kaupið
ykkur ódýrar'i gerðina af
fölsknm angnhárum, og vilj-
ið ekki, að þau virki mjög
óekta, skulið þið klippa
þau til sjálfar. Þið getVð
gert það með naglaskæruu-
um ykkar og klippt sum
augnhárin. Og þannig verða
augu ykkar eins cðlileg og
hægt er.
_ London ’68.
4 10- sept. 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ