Alþýðublaðið - 13.09.1968, Blaðsíða 1
Aflinn kassaður
í veiðiskipunum?
AUKAFXJNDUR Sölumiffstöðv
ar hrafffrystihúsanna hinn 6.
september síffastliffinn gerffi
nokkrar athyglisverðar álykt
anir, sem m. a. hafa veriff
sendar dagblöffunum. Þar er
þeim tilmælum beint til
sjávarútvegsmálaráffherra,
aff endurskoffa reglugerff um
ferskfiskeftirlit, sem setja
ber samkvæmt lögum um
fiskmat, samþykktum á síff-
asta Alþingi, og hraða
svo, aff hin nýja reglugerff
taki gildi fyrir vetrarvertíff
1969. Jafnframt verffi gerffar
ráffstafanir hiff bráffasta til
aff núverandi reglum um meff
ft'rff afla i fiskiskipum og í
fiskvinnslustöffvum verffi
framfylgt til hins ýtrasta.
Þá taldi fundurinn, að hið
svokallaða þreifimat, sem not-
að hefur verið við ferskfisk.
mat á öðrum fiski en neta-
fiski, sé ófullnægjandi og vili-
andi, og beri í þess stað að taka
upp eina aðferff við mat á öll-
um bolfiski, eftir að fiskurinn
hefur veriö flattur eða flakað.
Ur til mats.
Einnig taldi fundurinn, að
allan annan fisk en þann karfa,
sem veiddur er í botnvörpu,
beri skilyrðislaust að slægja.
Þá var það yfirlýst’ skoðun
fundarins, að verði ekki gerðar
róttækar ráðstafanir til að
tryggja bætta meðferð þess
sjávarafla, sem að '■landi berst,
muni það leiða til stórkost-
legra vandræða á næstunni,
enda sé þeirra raunar þegar
fariö að gæta. Fundurmn taldi
brýna nauðsyn til þess að
stíax verði hafnar 1.iinaunir
með kössun á afla í fiskibát-
um, svo og löndun í kössum,
svo að Ijóst megi verða, hver
áhrif það kann að hafa á gæði
aflans, einkum sumarfisksins
og verðmætari fisktegunda, og
á hvern hátt kössun verði við
komið. í því sambandi beindi
fundurinn því til sjávarútvegs-
málaráðherra, að hann beiti sér
þegar í stað fyrir því, að at.
huganir þessar verði hafnar
og veitt verði nægjanlegt fjár-
magn til framkvæmda þeirra.
FARNIR
UR PRAG!
PRAG: í fyrsta skipti um <gær, en orðrómur um að tékkn
þriggja vikna skeið sáust eng- eskir ráða-menn hefðu orð.ð
ir sovézkir skriðdrekar eða að greiða það dýru verði varp.
sovézkir hermenn í Prag í aði nokkrum skugga á ánægju
---------------------------♦ fólks.
Hvemig eru atvinnu
r
a
Hvemig eru atvinnuhorfumar í landinu nú með
haustinu? Þessari spumingu er erfitt að svara enn
sem komið er, en hins vegar er ljóst, að ýmis fyrir
tæki hafa þegar gert varúðarráðstafanir til að standa
ekki uppi með vinnuafl eftir að verkefni em þrotin.
Á þetta einkum við byggingariðnaðinn. Nokkurs
ótta virðist gæta meðal verkalýðsfélaganna nú um, að
alvarlegt ástand í atvinnumálum sé yfirvofandi,
þegar líða tekur á haustið. Nokkur stórfyrirtæki í
Reykjavík hafa þegar sagt upp starfsmönnum, sem
eiga lögum samkvæmt eins mánaðar uppsagnar-
frest.
horfurnar
haustinu?
Steypusitöðin hefur sagt upp
30 starfsmönnum, ien flestir
þessara manwa leiga kröfu á
leins miániaiðar luppsagn'arfresiti.
Halldór Jónsson hjá Steypu
stöðinni tjáði fréttamanni í
gær, að fyrirtækið gripi til
þessara ráðstafana nú vegna
'horfannia í markaðsmálum fyrir
tækisins með haustinu. Kvað
hann fyrircækið enn hafa nægi
ieg verkefni, en hins vegar vissi
enginn, hvernig áslandið yrði
yrði í lok október og í nóvem
ber. Rieynsian 'hafi sýnt það.
að þegar frosta- og harðindakafl
ar kæmu á vetrum, yrðu verkefn
in lengin. Jafnframt væri aug
Ijóst, 'að samdráttur væri í
byggingariðnaðinum og vinna
færi minnkandi. Þeisis vegna yrði
Steypustöðin að grlpa til ‘þess
ara varúðarráðstafaina og segja
upp 'þeim starfsmönnum, sem
iengstan ættu uppsiagnarfrest.
'Hins vegar kæmu uppsagnir þess
iar ekki til íramkvæmda fyrr en
að miánuði liðnum.
Þá 'hafði blaðið samband við
Ráðingarskrifstofu Reykjavík-
urborgar í gær, en hún sér um
atvinnuleysiss'kráningu í Reykja
vík. Ragnar Lárusson tjáði
fréttaim'anni, 'að laitvinnuástand
ið nú væri líkt og venju'lega á
þiessum árstíma. Nokkrir menn
væru á aitvinnuleysisskrá, Sagð
ist 'hann ekki sjá, að atvinnu
'leysi 'hiafi aukizt að undanförnu
en sagði ennfremur: „Auðvit
'að vteit m'aður ekki, hvort ástand
eins og það, sem skal'l á fyrir
varalaust eftir síðustu áramót,
kunni að skelila á aftur.
Ragnar sagði, 'að ef bygging
lariðnaðurinn fæili að dragast
saman nú, þegar stórum áföng
um t.'d. í 'Breiðholti lyki og þar
sem mæstu áfangar bæfust ekki
fyrr en á næsta sumri, væri
yfirvofandi, að ástandiff í a.t-
'vinnuffiáium yrði alvarlegra en
áður. Sömuleiffis 'kvað hann eng
an vita, 'hve mikil atvrnina yrði
við frystihúsin, ef togararnir
færu í auknum mæli aff sigla
með lafl'ann á erlendan markað.
Hins vegar sagði Ragnar, að
isér virtiist um þessar mundir,
að nokkur 'hreyfing væri á at
vinnu á öðrum sviðum og væru
(nú ýmis Æyrirtætki iað taka
menn í vinnu.
Blaðið féfck þær upplýBingar
hjá AlþýðuSambandi íslands í
gær, að skrifstofa sambandsins
væri að*hyrja að safna upplýs
ingum um atvinnuástand og
ihorfur hjá verkalýðsfélögunum
úti um iandið.
Sigurður Guðgeirsson hjá
Dagsbrun sagði fréttamanni, að
síðan um mánaðamót hafi fé-
laginu borizt umsóknir frá níu
aðilum, sem óskuðu eftir at-
atvinnuieysistriggingu. Hinn 9.
september s.i bafi verið af-
greiddiar umsóknir frá fimm nýj
um umsækjendum og fjórar um
sóknir lægju (þegar fyrir til af
igreiðslu á næsba fundi. Kvað
iSigurður þesSa níu menn bafa
aðallega verjð í íhlaupavinnu en
ibafi átt erfitt með .að fá at
vinnu að undanförnu og því grip
ið til þess ráðs að láta skrá
sig atvinnuiausa. Á hinn bóg
'inn kviað Sigisrður það aug-
Ijóst, að mörg fyrirtæki væru
Framhald á bls. 10.
Skriðdrekarnir, sem æddu inn
í borgina, gráir fyrir járnum,
að morgni hins 21. ágúst síðast,
liðins, voru þó ekki ýkja langt
undan, væri betur að gáð. Þeir
höfðu semsé tekið sér stöðu
í útjaðri hennar, um 15 kíló-
metra leið frá miðborginni. Það,
að skriðdrekarnir og hermenn-
irnir hafa látið undan síga,
sýnir það, að leiðtogarnir í Kreml
telja ráðlegast að halda loforð
sín um að fjarlæga herinn smám
saman, ef Tékkóslóvakar koma
innanlandsástandinu aftur í samt
lag.
Að koma ástandinu aftur í
lag merkir á' máli Rússanna að
taka á ný upp ritskoðun í land-
inu, leggja bann við myndun
nýrra stjórnmálaflokka og víkja
frá valdamönnum, sem ekki eru
Sovétmönnum að skapi. Því var
haldið fram í gær, að Jiri Hajek,
utanríkisráðherra, hefði látið af
embætti, en talsmaður utanríkis-
ráðuneytisins kvað þá fregn ekki
hafa við rök að styðjast. Hajek
talaði máli þjóðar sinnar í örygg.
isráði Sameinuðu þjóðanna eft-
ir innrás Varsjár- bandalagsins
Framhald á bls. 10.
Fiiiidur um ný viðhorf
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur og Fulltrúa-
ráð Alþýðuflokksins í Reykjavík efna til
félagsfundar n.k„ mánudagskvöld klukkan
20.30 í Iðnó. Fundarefniff heitir: „Ný vlff-
horf í stjórnmálum og efnahagsmálum".
Frummælendur á fundinum eru þeir ráff-
herrarnir dr. Gylfi Þ. Gislason og Eggert G.
Þorsteinsson.
Nú standa yfir viffræffur milli stjómmála.
flokkanna í landinu um ráðstafanir í efna-
hagsmálum þjóffarinnar. Á þaff hefur verið
drep'ið, aff þessar viðræffur kunni aff leiffa til
breyl'inga á ríkisstjórninni. Um öll þessi mál
verffur rætt á Alþýffuflokksfundinum á mánu
dagskvöldiff. Allt Alþýffuflolcksfólk í Reykja-
vík er hvatt til aff koma á fundinn og fylgjast
þannig með því, sem er að gerast í stjórn-
málunum um þessar mirndir.
MWWWWMWWIWWWWMWWWWMWtWWWWWWWWWWWMWWWWWMiWV